Morgunblaðið - 01.12.1992, Page 10
10
MÖRGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. DESEMBER 1992
Heiður
Baldursdóttir
Nyjar
bækur
■ Háskaleikur er ný saga
eftir Heiði Baldursdóttur. í
kynningu útgefanda segir
m.a.: „Sagan segir frá fjórum
krökkum úr
Reykjavík
sem fara í
sumarbústað
um páska. í
fyrstu er allt
með felldu,
ekkert bendir
til þess að
ævintýri sé í
vændum en
þá fara hlut-
irnir að ger-
ast. Þau lenda í æsispennandi
atburðarás þar sem ekki er
allt sem sýnist. Þau rekast á
kynlega náunga sem er æði
grunsamlegir. En það eru
fleiri á ferli. Hver var konan
í svarta kjólnum? Hvað var á
seyði á eyðibýlinu? Forvitnin
rekur þau áfram þar til ekki
verður aftur snúið. Og þá ríð-
ur á að fara ekki á taugum!“
Og á bókarkápu segir m.a.:
„Háskaleikur er mögnuð ís-
lensk spennusaga úr samtím-
anum fyrir böm og unglinga
þar sem fjórir krakkar takast
á við dularfullt mál.“
Útgefandi er Vaka-Helga-
fell. Halldór Baldursson
gerði kápuna en Prentstofa
G. Ben. annaðist prent-
vinnslu. Bókin er 149 blað-
síður. Verð: 1490 krónur.
Myndasagan
Myndlist
fBar&miMitftift
Melsölublaó ú hwrjum degi!
Eiríkur Þorláksson
Myndlistin spannar vítt svið,
sem sífellt hefur verið að stækka
á tuttugustu öld. Ný tækni, ný
viðhorf til hlutverks myndlistar,
nýir túlkunarmöguleikar og fleiri
breytingar hafa orðið til þess að
langt er frá því að allir séu sam-
mála um hvar mörkin liggi milli
myndlistar og annarrar myndgerð-
ar. Deilur um þau eru oft helsta
merkið um það líf sem býr með
myndlistinni, þrátt fyrir allt, og
eru því af hinu góða; þá fyrst er
myndlistin í hættu þegar deilumar
hljóðna.
Myndasagan er ein þeirra túlk-
unarleiða, sem hefur orðið að
deiluefni í þessu sambandi; er hún
ein grein myndlistar, eða ber að
skilgreina hana utan þess sviðs,
þar sem hún verður til á mörkum
(afþreyingar-)bókmennta, kvik-
mynda og grafíklistar?
Nú stendur yfir í vestursal
Kjarvalsstaða sýning, þar sem
þessari spurningu er svarað ákveð-
ið: myndasagan er grein af sama
meiði og önnur myndlist. Sýningin
er haldin í samvinnu Kjarvals-
staða, myndasögutímaritsins
(GISP!) og franska utanríkisráðu-
neytisins, og hefur hlotið yfir-
skriftina „Guðdómleg innri spenna
og pína“, og þar getur að líta
franskar og íslenskar myndasögur
síðustu ára.
í sambandi við sýninguna hefur
verið gefið út fímmta tölublað af
(GISP!), sem um leið er sýningar-
skrá, og hefur að geyma greinar
um myndasöguna sem listgrein,
og upplýsingar um þá listamenn
sem eiga verk á sýningunni. í
grein Þorra Hringssonar, Mynda-
söguheimurinn, er fjallað um eðli
og uppbyggingu myndasögunnar,
tengsl hennar við aðrar listgreinar
og þá fordóma sem hún hefur
Vantar þig atvinnu?
Til sölu er sælgætisverslun með yfir 2,0 millj.
kr. mánaðarveltu. Mikil eigin framleiðsla á brauði
og samlokum. Vel staðsett á fjölmennum stað
í sérhúsi. Einstök greiðslukjör. Allt kaupverð
má greiða með 10 ára skuldabréfi. Fyrsta
greiðsla eftir 1 ár.
ra7TTTTT77?T?7imviT71
SUÐURVE R I
SÍMAR 812040 OG 814755, REYNIR ÞORGRÍMSSON.
fasteignasaia
Suðurlandsbraut 14
"*= s 678221
fax: 678289
Einbýlis- og raðhús
Þingasel - einbhús
Stórglæsil. ca 350 fm á tveimur hæð-
um. 5-6 svefnherb. Ca 70 fm innb. bil-
skúr. Afgirt sólverönd m. útisundlaug.
Getur hægl. nýst sem 2ja íb. hús innan
sömu fjölsk. Verð 23,0 millj. Einkasala.
Klapparberg - einb.
Gott u.þ.b. 196 fm einb. m. innb. bílsk.
Steinflísar og parket á gólfum. Stórar
svalir og verönd í suður. Verð 12,8 millj.
Fagrihjalli - nýtt parh.
Nútimalega hannað á notalegum og
skjólsælum stað í Suðurhlíöum Kóp.
181 fm ásamt 27 fm bilskúr. Að fullu
frág. á vandaöan hátt. 3-4 svefnherb.
Verð 14,5 millj. Einkasala.
Reykás - raðh.
U.þ.b. 198 fm m. innb. bílsk. 4 svefn-
herb. Húsiö svo til fullb. Fallegur garöur
m. sólverönd. Áhv. 8 millj. Ath. skipti á
minni eign. Verö 12,8 millj.
Drafnarfell. Atvhúsn. V. 12,5 m.
Haukshólar. Einbýli.V.18,3m.
Urðarbakki. Raðhús.v. 13,7 m.
2ja-6 herb.
Eskihlíð - 4ra
Góð endaíbúö á 3. hæö í fjölb. Góöar
skiptanlegar stofur, 2 svefnherb., rúm-
gott eldhús. Fráb. staöur. V. 7,2 millj.
í nágr. Kjarvalsstaða
Glæsil. 106 fm jarðhæö m. sérinng.
Fallegar innr. Parket. Nýl. hús. Fallegur
garöur og verönd. Áhv. 3,0 millj. veö-
deild. Verð 11,1 millj.
Selvogsgrunn - 3ja
Góö 80,5 fm íb. á 3. hæö (efstu) í 5 íb.
húsi. Suöursv. Verö 6,9 m. Einkasala.
Grandavegur - 2ja
Góð ný 53 fm kjíb. ósamþ. Ákv. sala.
Verð 3,9 miilj.
Bogahlíð. 4ra herb. Verð 8,1 m.
Kjarrhólmi. 3ja herb. V. 6,5 m.
Ugluhólar. 4ra-bílsk.v.8,6m.
mátt beijast við (og berst enn við)
til að öðlast viðurkenningu; en við-
urkenningu fylgir einnig ábyrgð,
og því má nú gera meiri kröfur
til rnyndasagna heldur en áður.
í öðrum hluta sýningarinnar
getur að líta verk ýmissa þeirra
íslensku myndlistarmanna sem
standa að tímaritinu (GISP!). Flest
er þetta ungt fólk, og er árgangur-
inn sem útskrifaðist úr Myndlista-
og hanðíðaskólanum 1989 áber-
andi. Þau hafa mörg hver náð
góðu valdi á þessum miðli, þannig
að heildarsvipur myndasögunnar
er sterkur. Sum leita fanga í lista-
sögunni í verkum sínum, eins og
Freydís Kristjánsdóttir í „Gangur-
inn“ (1992) og Jóhann L. Torfason
í verkinu „í raun og kvöl“ (1990),
og tekst það ágætlega; einkum eru
verk Freydísar athyglisverð. „Ör-
lagasögur“ (1991) eftir Þorra
Hringsson er góð athugasemd við
íslenska kvikmyndagerð, og
Þórarinn B. Leifsson hefur farið
svo langt yfir strikið í myndasög-
unum „Ruglmálaráðuneytið“
(1991) og „Surtur" (1992) að það
verður erfitt að gera hneykslanleg-
ar myndir af íslenskum ráðamönn-
um í framtíðinni.
Þrátt fyrir góð tilþrif verður
ljóst við skoðun frönsku myndanna
að íslendingarnir eiga margt
ólært, einkum hvaða varðar sögu-
sköpun og sjónarhorn. Hér getur
að líta sýnishorn verka ýmissa
þekktra listamanna á þessu sviði
Jean Giraud/Moebius: Rifan. 1992.
(bækur með heilum myndasögum
eru til skoðunar utan sýningarsal-
arins), og má einkum nefna til þá
Jacques de Loustal, Enki Bilal,
sem hefur getið sér gott orð fyrir
framtíðarsögur sínar, og Jean Gi-
raud, sem einnig hefur starfað
undir dulnefninu Moebius, og þá
unnið í allt öðrum stíl en venju-
lega; þekktasta sköpun hans er
án efa Blástakkur liðþjálfi, hetjan
úr Villta vestrinu, en vísindaskáld-
sögur hans eru ekki síðri.
Myndasagan hefur um langt
árabil verið viðurkenndur hluti
myndlistarlífs í Belgíu, Frakklandi
og jafnvel Bandaríkjunum, þó hún
sé aðeins að stíga fyrstu skrefin
hér á landi. Myndasagan er einnig
eitt vinsælasta frásöguformið í
Japan, og hefur líklega hvergi
meiri útbreiðslu, þó viðfangsefni
þeirra bóka séu ekki endilega I
háum gæðaflokki. Líkt og í öllum
öðrum listgreinum er meira fram-
boð af lélegu efni en góðu, en sú
staðreynd getur ekki dregið úr því
að myndasaga, þar sem fara sam-
an góð teikning, myndskipun, frá-
sögn, framvinda og stíll, getur
jafnast á við myndlist af öllum
öðrum sviðum.
Sýningin í vestursal Kjarvals-
staða á frönskum og íslenskum
myndasögum stendur til sunnu-
dagsins 13. desember, og ætti
áhugafólk um þessa grein mynd-
listar að notfæra sér þetta tæki-
færi til að sjá það besta sem er
gert .
Kristniboð í Kenýa
Bækur
Pétur Pétursson
Skúli Svavarsson: Predikað í
Pókot. Kenýa, sagan, þjóðin og
kristniboðið. 103 bls. Samband ís-
lenskra kristniboðsfélaga. Reykja-
vík 1992.
íslendingar geta státað af mörgu
öðru en kristniboði meðal annarra
þjóða, enda má til sanns vegar færa
að næg séu verkefnin á því sviði inn-
an Iands. Mikil uppsveifla var í
kristniboði mótmælendakirkjudeilda
á öldinni sem ieið og voru íslending-
ar þar áhorfendur og sinntu því lítið
sem ekkert. Áhugafólk um kristniboð
stofnaði þó félög í upphafi þessarar
Alhliða ráðgjöf - ábyrg þjónusta
Kjurtun Rugnurs hrl.
réyftýOcé
FASTEIGNAMIÐLUN.
Síðumúla 33
S:679490 og 679499
Kambasel — raöh.
Vorum að fá i einkasölu mjög
vandað ca 260 fm raðhús á
Iveimur hæðum ésamt ínnr. risi.
lnnbyggður bilak. Áhv. ca 6,0
millj. langtímalán. Verð 15,0 millj.
Tómasarhagi — hœð
Nýkomin i einkasölu mjög góð
ca 120 fm efri hæð. Eign f mjög
góðu ástandi. Verð 11,3 millj.
Gnoðarvogur — sérh. -
í sölu glæsil. ca 160 fm neðri
sérh. ásamt góðum bflsk. Nýieg
eldhúsínnr. Parket. Tvennar sval-
Ir. Miklð útsýni. Áhv. ca 4,1 mlllj.
langtímalán.
Veghús - lúxusfbúð
Nýkomin I einkasölu ca 185 fm
sérlega vönduð Ib. á tveimur
hæðum, m.a. 2 baðherb., 2 inng.
Parket. Bílskúr. Verð 12,8 millj.
Álftamýri — 2ja
Falleg íb. á 1. hæð á þessum
vínsæla stað. Útsýni. Verö 5,3
millj.
Ármann H. Benediktss., sölustj.,
Geir Sigurðsson,
lögg. fasteigna- og skipasaii.
aldar og 1929 var Samband ís-
lenskra kristniboðsfélaga stofnað.
Studdu þessi félög af veikum mætti
við kristniboð gegnum erlend samtök
en þegar Ólafur Ólafsson var gerður
út af örkinni í samstarfí við norsk
kristniboðssamtök má segja að Is-
land hafí eignast sinn fulltrúa á þessu
sviði. Einn af reyndustu núlifandi
íslensku kristniboðunum er Skúli
Svavarsson sem sent hefur frá sér
bók um starf sitt í Kenýa.
Skúli hafði áður starfað í Eþíópíu
en þar hefur aðalvettvangur ís-
lenskra kristniboða verið eftir að
landamærum Kína var lokað á þá. I
Eþíópíu er hins vegar fyrir hendi
afar merkileg kristnisaga koptísku
kirkjunnar sem er mörgum öldum
eldri en kristni á íslandi. Ekki hefur
sú kirkja þó gömul sé náð til allra
íbúanna. Vestrænir kristniboðar hafa
lagt mikið af mörkum í félagslegu
og efnahagslegu uppbyggingarstarfí
þar eins og reyndar í Kenýa þar sem
kristniboðar eru vel séðir vegna
framlags síns til margháttaðs upp-
byggingarstarfs, sérstaklega á sviði
heilsugæslu og menntunar.
Hins vegar varð mikii breyting á
í Eþíópíu þegar byltingarstjómin tók
þar völdin 1974. Islensku kristniboð-
unum var ókleift að vinna áfram á
stöðvum sínum og ákveðið var 1978
að þeir flyttu sig suður á bóginn til
Kenýa.
Bók Skúla greinir frá þessum
umskiptum en í henni er einnig að
fínna stutt og greinargott yfírlit yfír
sögu kristniboðs í Austur-Afríku.
Með fylgja glefsur úr menningarsögu
svæðisins. Höfundur fegrar ekki
frammistöðu kristniboðanna og er
harðorður í garð fyrstu boðenda
fagnaðarerindisins á þessum slóðum.
Skúli gefur lesanda einkar góða
innsýn í blómlega verslun og fjöl-
FLISAR
JB- !»! iSp! liL * **
Stórhöfða 17, við GulUnbní,
sími 67 48 44
Skúli Svavarsson
skrúðuga menningu á svæðinu áður
en Portúgalir lögðu landið undir sig
í kjölfar þess að þeim tókst að sigla
fyrir suðurodda Afríku. Þessi menn-
ing hafði að mestu farið fram hjá
sagnariturum Evrópu. Grimmd og
ágimd Portúgala kom þessu fólki í
opna skjöldu og menning þess
hrundi. Sorgarsaga þrælasölu tók við
þar sem arabar og innlendir höfðingj-
ar komu við sögu, en Englendingar
reyndu að lokum að banna og kristni-
boðar unnu markvisst gegn henni.
Trúboð mótmælenda fór fyrst að
bera verulegan árangur meðal fyrr-
verandi þræla en suma þeirra höfðu
trúboðarnir keypt og gefíð frelsi.
Skúli lýsir menningu og trúar-
brögðum innfæddra af þekkingu og
innsæi en skoðar þau að sjálfsögðu
út frá sjónarhomi kristniboðans.
Frumstæð andatrú heldur enn liluta
íbúanna í greipum sér og hindrar þá
í því að efla hagsæld og mannúð.
Höfundur kann meira að segja að
greina frá því að andamir kröfðust
mannfórnar, en fórnarlambið flúði á
náðir trúboðanna og allt fór vel að
lokum.
Óhætt er að mæla með þessari
bók. Höfundurinn er traustur og
glöggur leiðsögumaður um undra-
veröld Austur-Afríku í sögu og samt-
íð og þangað er gott að hverfa eina
kvöldstund í íslensku skammdegi.