Morgunblaðið - 01.12.1992, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 01.12.1992, Qupperneq 15
Nýjar bækur ■ Benjamín dúfa heitir bamabók eftir Friðrik Erlings- son, en sagan hlaut íslensku bamabóka- verðlaunin nú í vor þegar þau vom veitt í sjötta sinn. í kynningu útgefanda seg- ir m.a.: „Verð- Fnðrik Erlings- launabókin son Benjamín dúfa segir frá viðburðaríku sumri í litlu hverfi. Þegar hrekkjusvínið Helgi svarti fremur enn eitt ill- virkið ákveða fjórir vinir að taka höndum saman, stofna Reglu rauða drekans og hefja baráttu gegn ranglæti heimsins. Þeir Róland dreki, Andrés öm, Bald- ur hvíti og Benjamín dúfa hafa nóg fyrir stafni og um tíma er lífið eitt óslitið ævintýri. En það koma brestir í vináttuna, ævin- týrið hættir skyndilega og kald- ur raunvemleikinn ryðst af hörku inn í líf þeirra.“ Útgefandi er Vaka-Helgafell. Bókin er 134 blaðsíður að stærð, prentuð og bundin í Prentstofu G. Ben og kostar 1.490 krónur. ■ Út er komin ævisaga Sig- urðar Þorsteinssonar skip- stjóra sem nefnist Alltaf til í slaginn. I kjmningu útgefanda seg- ir m.a.: „Sig- urður hóf feril sinn aðeins þrettán ára sem háseti á togara en hef- ur verið sjó- maður og farmaður síðan. Hann sat fastur í ís í viku norður í ballarhafí á Hafeminum og vakti allan tímann með þeim afleiðingum að hann fraus fast- ur við brúargluggann; hann sigldi upp Amazon-fljótið á Hvítanesinu á vegum frönsku stjómarinnar; fór á Sæbjörgu með fjölskylduna í hnattsiglingu árið 1969 til að kynnast henni nánar; kom um borð í farþega- skip í leit að málningu en var ráðinn á staðnum sem skipstjóri í hálft ár; Sigurður keypti nán- ast af rælni rannsóknarskipið ET sem kom hingað til lands á haustdögum; hann var leiðang- ursstjóri flömtíu pólskra togara fyrir norðaustan Síberíu í fyrra; fór leynilegra erinda bandaríska hersins til austurhluta Þýska- lands ..." Útgefandi er Vaka-Helgafell. Búi Kristjánsson hannað i kápu. Bókin er prentuð í Odda. Hún er 186 blaðsíður að lengd og kostar 2.980 krónur. ■ Draugar vifja ekki dósa- gos! er nýjasta bók Kristínar Steinsdóttur. í kynningu útgef- anda segir m.a.: „Elsa er ósköp venjuleg ellefu ára stelpa sem flyt- ur í gamalt hús í Hafnarfirði. En þá fara undarlegir 1 hlutir _ að ger- ast. í húsinu virðist búa undarlegur náungi sem fer að skipta sér af ýmsu. Hann þolir t.d. ekki hávaða og grípur því til sinna ráða. En fyrr en varir hefur Elsa eignast vin. Það kemur nefnilega í ljós að gömlu íslensku draugarnir era svo sannarlega ekki dauðir úr öllum æðum! Þetta er mein- fyndin saga um kynni hressrar stelpu og óvenjulegs vinar henn- ar.“ Útgefandi er Vaka-Helgafell. Búi Kristjánsson gerði kápu- mynd og Prentstofa G. Ben. annaðist prentvinnslu. Bókin er 124 síður. Verð 1.490 krón- ur. Kristín Steins- dóttir Sigurður Þor- steinsson MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. DESEMBER 1992 Snjórinn dansaði niður úr loftinu Morgunblaðið/Kristinn Japanska myndlistarkonan Rieko Yamazaki fær forseta íslands í lið með sér við að skapa óð til íslands. Japanska listakonan, Rieko Koki Yamazaki var hér á landi í flmm daga til að safna efnivið fyrir málverkasýningu í Tókýó, þar sem ísland á að vera í brenni- depli. í kaffistofu Perlunnar eru hún og 4 nemendur hennar að undirbúa móttöku fyrir forseta íslands, nokkra íslenska myndlist- armenn, tengda japanskri mynd- list og forystumenn íslensk-jap- anska félagsins hér á landi. Rieko ætlar að sýna listskrifaða borða og blævængi, einnig ætlar hún að listskrifa sérstaklega fyrir frú Vigdísi Finnbogadóttur, ásamt nemanda sínum Yajima. Rieko er þekkt myndlistarkona í Japan og hefur sýnt í New York. Frakklandi og víðar. Fyrir þremur árum fékk hún fýrstu verðlaun í ein- hverri þekktustu keppni japanskra listskrifara. Undanfarin ár hefur hún verið með vorsýningar í MITSUKOS- HI, sem er eitt elsta og virtasta vöru- hús í miðborg Tókýó. Og nú á ísland að vera megin þemað á vorsýningu ’93, fyrst allra landa. — Hvers vegna? Rieko segir að helsta viðfangsefni hennar núna sé að túlka náttúruöflin eða „manninn í náttúrunni”. Góð vin- kona hennar, Shinako Tsutsiya, sé dóttir fyrrverandi forseta japanska þingsins, en náin vináttutengsl séu á milli forseta íslands og fjölskyldu hennar. Hún hafi sagt sér, að ísland passaði vel inn í þessa túlkun. — Og hvemig hefur landið tekið á móti henni? Rieko hlær mikið og tekur hendi fyrir munn að japanskra kvenna sið. Síðan bendir hún út um gluggann. Þetta er fimmti dagur hennar á ís- landi og fyrsta skipti sem hún sér til sólar. „Mikill stormur, þegar ég kom,“ segir hún. „Snjórinn dansaði niður úr loftinu. ísland er land sem snjór og vindar umlykja í villtum dansi.“ Rieko og nemendur hennar era búin að dvelja hér í 5 óveðursdaga. Þau komust samt suður að Dyrhóla- ey. A Þingvöllum gerði hún skissur í hríðarkófi í Almannagjá. Gullfoss sáu þau aldrei, því skyggnið var ekki nema 2-3 metrar. „Mig langar til að endurspegla óheft náttúraöfl í myndum mínum, en verð að koma aftur til íslands — fékk of stóran skammt af þeim núna.“ Rieko er bæði listskrifari og hefð- bundinn japanskur vatnslitamálari. Málar einnig olíumálverk. Svo fjöl- hæf túlkun er mjög sjaldgæf hjá jap- önskum myndlistarmönnum. Og hún er oft spurð, hvemig þetta geti farið saman. „Vatn og olía fara ekki sam- an,“ segja Japanir. Rieko segir að fleiri japanskir olíu- málarar séu undir evrópskum áhrif- um en bandarískum. Auðvitað séu ýmsir straumar í japanskri myndlist, en mjög margir séu undir andlegum áhrifum frá hinni hefðbundnu jap- önsku landslagsmynd í vatnslitum. Olíumálverkið tekur langan tíma — endar á löngu ferli. Listskriftin er verk augnabliksins, þar gilda fyrstu hrif, eins og verið sé að skrifa ljóð. Enda er innihald japanskrar list- skriftar oftast ljóð eða „ljóðlíki" — þema til þess sem tekur á móti. Hvaða þema ætlar Rieko að gefa forseta íslands? „Reyna að túlka landið að baki. Annarsvegar land vinda og snjóa. Hinsvegar himininn í þessum mjúku litum sem ég horfi á núna. Á íslandi birtist náttúran óheft í öllu sínu veldi — bæði hrár kraftur og móðurleg blíða." O.SV.B. ptar)arlp> H Jarlínn ' i/ f / r i w í; í g t n f a . VEITINGASTOFA Sprengisandi - Kringlunni

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.