Morgunblaðið - 01.12.1992, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. DESEMBER 1992
21
Móðir og’ bam - fimm ára afmæli
eftirJón Val Jensson
Hjálparsamtökin Móðir og bam
eiga fimm ára afmæli í dag, 1.
desember. Á þeim tímamótum er
sérstök ástæða til að fagna því, sem
áunnizt hefur í starfi samtakanna.
Það er fyrst og fremst fólgið i að-
stoð við sjálfstæðar mæður í hús-
næðisvanda. Nú hafa um 42 konur
notið slíkrar aðstoðar Móður og
bams frá upphafi starfsins.
Það vom 65 einstaklingar, sem
stofnuðu samtökin og mynduðu
fyrstu stjóm þeirra. Þann 7. desem-
ber 1987 var skipulagsskrá sjálfs-
eignarstofnunarinnar Móður og
barns staðfest með forsetabréfí.
Þegar drög em lögð að starfí sem
þessu, þarf að mörgu að hyggja til
að allar áætlanir standist, og oft
reynast ljón í veginum, sem vom
ófyrirséð í byijun. Upphaflega
stefndum við að þvi, að Móðir og
bam gæti keypt sitt eigið húsnæði
til að anna sem mestu af eftirspum
frá skjólstæðingunum. En eftir mik-
inn undirbúning, erfíða fjáröflun og
bollaleggingar um tilhögun starfs-
ins, var tekin upp sú stefna að hefja
starfíð í leiguhúsnæði, sem yrði nið-
urgreitt fyrir skjólstæðinga okkar.
Fyrsta íbúðin var opnuð í nóvember
1989. Strax vorið eftir vom þær
orðnar átta, en 11 í árslok. Um
mitt árið 1991 og það sem eftir var
ársins vomm við með 11 íbúðir á
leigu fyrir 13 sjálfstæðar mæður
og börn þeirra. Eftir því sem liðið
hefur á þetta ár, hefur íbúðunum
farið heldur fækkandi, þær em átta
núna í desember, en stefnan er að
fjölga þeim aftur eftir áramót.
Móðir og barn starfar ekki sem
venjuleg húsnæðismiðlun, heldur er
stofnunin með íbúðir sem hún niður-
greiðir fyrir skjólstæðinga, þ.e. 30%
leigunnar, þó að hámarki 8.500 á
mánuði, og á það við um flestar
íbúðirnar. Stofnunin er sjálf leigu-
taki íbúðanna og ábyrgist leigu-
greiðslur til leigusalans, en inn-
heimtir hjá viðkomandi skjólstæð-
ingum, að frádreginni niður-
greiðsluupphæðinni. Hver kona fær
inni í átta mánuði, sem yfírleitt er
framlengt upp í eitt ár, og á þeim
tíma hefur hún þá fengið niður-
greiðslu sem nemur 102.000 kr. í
flestum tilvikum.
Erfiðar aðstæður
„Hjálparstofnun Móðir
og barn leitar nú eftir
víðtækum stuðningi við
það starf, sem unnið er,
og hverjum nýjum
styrktarfélaga verður
tekið fagnandi.“
eldra og annarra, heldur líka
ótryggar aðstæður þeirra sem eru
í leiguhúsnæði.
Fleira markvert kom fram í þess-
ari könnun, t.a.m. að um þriðjungur
einstæðra foreldra missir laun í
aðalstarfí af völdum vinnutaps í
veikindum barna, og í aukastarfí
verða um 60% einstæðra foreldra
fyrir tekjutapi af sömu ástæðu.
I lesendadálkum dagblaðanna er
oft verið að hnýta í einhver tiltekin
forréttindi, sem einstæðir foreldrar
eru sagðir njóta. Það eru engin for-
réttindi að búa í dýru og ótryggu
leiguhúsnæði og verða að vinna
mikla aukavinnu til endar nái sam-
an, ef sú aukavinna fæst þá yfír-
leitt. Einstæðar mæður eru nú á
sjöunda þúsund og þær hafa á
níunda þúsund bama á framfæri
sínu. Algengt er að umsækjendur
um húsnæði hjá Móður og bami
hafi á bilinu 40—60.000 kr. í at-
vinnutekjur, enda er mjög hátt hlut-
fall þessa hóps konur með litla sem
enga framhaldsmenntun, eins og
kom fram í nefndri könnun.
Öllum ætti að vera ljóst að nú
þrengir að þjóðinni og ástæða er
til að spara sem mest á sem flestum
sviðum, í ríkisrekstri sem annars
staðar. En um hitt ættu menn að
vera sammála, að menn draga ekki
úr neyðarhjálp, þegar neyðin vex.
Það væri t.d. öfugsnúið réttlæti að
minnka framlög til framfærslu-
styrkja, þegar æ meiri erfiðleikar
steðja að þeim sem minnst mega
sín í þjóðfélaginu.
Hjálparstofnunin Móðir og barn
leitar nú eftir víðtækum stuðningi
við það starf sem unnið er og hverj-
um nýjum styrktarfélaga verður
tekið fagnandi.
Höfundur er formaður stjórnar
Móður og barns
Jón Valur Jensson
Kynningadagar í
Ortölvutækni
Dagana 1., 2., 3. og 4. desember verður mikið um að vera hjá okkur í
Örtölvutækni. Ný og glæsileg húsakynni okkar verða almenningi til sýnis og
höfixm við kaffi á boðstólum. A tveimur hæðum verður haldin sýning á tölvum,
hugbúnaði og jaðartækjum þar sem m.a. verður kynnt ný tölva frá Digital, DEC
3000 AXP, en hún er öflugasta vinnustöð á íslandi. í tengslum við sýninguna
verða haldnir fyrirlestrar alla dagana. Tilkynna þarf þátttöku á fyrirlestrana
Þórunni Þórisdóttur í síma 687220.
Þegar við stofnuðum samtökin
Móðir og barn, vorum við okkur vel
meðvitandi um erfiðar aðstæður
einstæðra foreldra. Þá voru að vísu
ekki jafnmiklir krepputímar og nú,
en neyðin þó mikil, eins og greini-
lega kom í ljós, þegar umsóknir
fóru að berast um húsnæði. Þær
eru nú orðnar um 200 talsins, en
væru mun fleiri, ef stofnunin hefði
auglýst meira starfsemi sína. Það
er dæmigert, að i hvert sinn sem
við auglýsum eftir húsnæði fyrir
nýjan skjólstæðing, berast mun
fleiri nýjar umsóknir frá einstæðum
mæðrum heldur en tilboð um leigu-
húsnæði. Ástandið á leigumarkaðn-
um er líka þannig, að margar þess-
ar einstæðu mæðra eru að borga
okurverð fyrir húsnæði af takmörk-
uðum tekjum og eiga þá yfirleitt
eftir að borga fyrir bamagæzlu auk
annarra heimilisútgjalda.
Árið 1984 var gerð könnun á
kjömm einstæðra foreldra. Þá kom
í ljós, að helmingur þeirra býr í
leiguhúsnæði, en að jafnaði búa níu
af hveijum tíu fjölskyldum á íslandi
í eigin húsnæði. Af þessum ein-
stæðu foreldrum í leiguhúsnæði |
höfðu aðeins 6% leigusamning til -
meira en eins árs, en helmingurinn £
engan leigusamning. Hér er því |
ekki aðeins um stórfelldan eignar-
mun að ræða milli einstæðra for-
3M
Sjúkravörur
Þriðjudagur 1.12. Miðvikudagur 2.12. Fimmtudagur 3.12. Föstudagur 4.12.
Kl. 10:00 AutoCAD Nýjungar í útgáfu 12 Arnlaugur Guðmundsson Örtölvutækni Digital Skrifstofuumhverfi Teamlinks MailWorks Heiðar Guðnason Örtölvutækni Oracle Elvar Þorkelsson Oracle á íslandi Informix Gagnasafns- og þróunar- hugbúnaður Snorri Bergmann Strengur hf.
13:00 Stólpi Verkbókhald og strikamerki Björn Viggósson Kerfisþróun hf. OpusAllt Innflutningskerfi heildsala Baldur Guðlaugsson Vífilfelli hf. Digital Alpha og framtíðin Stig OrlofF DECA/S Danmörk (talað á ensku) Digital Alpha og framtíðin Stig Orloff DECA/C Danmörk (talað á ensku)
15:00 Borland Samhæfing hugbúnaðar Sigurður Jónsson Örtölvutækni Bústjóri Innheimtukerfi lögmanna Sveinn Guðmundsson Strengur hf. Ingres Nýr gagnagrunnur á íslandi Halla Björg Baldursdóttir Ingres á íslandi SAS Upplýsingar í fyrirtækjum Torben Christensen SAS Institute A/S (talað á ensku)
= ÖRTÖLVUTÆKNI M
Skeifunni 17 sími 687220
Þekking, þróun, þjónusta.