Morgunblaðið - 01.12.1992, Side 22

Morgunblaðið - 01.12.1992, Side 22
seet HaaMaaaa .1 Hut)AauLQia<t aiciAjauuoHOM MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR I. DESEMBER 1F92 Hvaða maður ber þyngsta ábyrgð á hættulegri fjárhagsstöðu LIN? eftír Gunnar Birgisson Svavar Gestsson fyrrverandi menntamálaráðhera skrifaði furðulega grein um málefni Lána- sjóðs íslenskra námsmanna í Morgunblaðið 17. nóvebmer sl. Þar talar hann um „skuldamet" sjóðsins „á hveiju ári framvegis". Hvaða maður skyldi nú fyrst og fremst bera ábyrgð á þessu sem Svavar kallar „skuldamet á hverju ári framvegis? Hvaða mann geta námsmenn í raun ásakað fyrir skemmdarverk á þessum sjóði sem þjónar svo mikilvægu hlutverki fyrir þá og þjóðina alla? Svar við þessum spumingum er létt próf- verkefni fyrir námsmenn: Sá mað- ur er hinn sami Svavar Gestsson, sem fer svo mikinn í áðurnefndri blaðagrein. Hann og flokksbróðir hans Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi fjármálaráðherra, bera fyrst og fremst ábyrgð á fjár- hagsstöðu LÍN sem er enn hættu- leg þrátt fyrir mikilvægar ráðstaf- anir núverandi menntamálaráð- herra, Ólafs G. Einarssonar, ríkis- stjómarinnar og Alþingis svo og stjómar LÍN til þess í reyndinni að koma í veg fyrir greiðsluþrot sjóðsins. Lántökur Svavars hættulegastar Fyrir ráðherratíð Svavars Gestssonar voru lántökur til LÍN tiltölulega litlar. Á einungis þrem- ur áram 1989-1991, þegar Svavar Gestsson var menntamálaráðherra og flokksbróðir hans fjármálaráð- herra, vom námslán hækkuð um 20% umfram verðlag en fjárveit- ingar til sjóðsins skomar á sama tíma ótæpilega niður og langt nið- ur fyrir það sem vitað var að félli sem kostnaður á ríkissjóð á hveiju ári. Snjallræði þeirra félaga var að auki lántökur þessi 3 ár um rúmlega 7,3 milljarða króna á núvirði. Á sama tíma greiddi sjóð- urinn einungis tæplega 1,6 millj- arð í afborganir af lánum. Með öðrum orðum, skuldsetning sjóðs- ins jókst um nærri tvo milljarða á ári í tíð fjármálasnillingsins Svav- ars Gestssonar! (Sjá súlurit.) Fjárhagurinn treystur með nýjum lögum og úthlutunarreglum Með nýjum lögum og úthlut- unarreglum sem samþykktar vom af núverandi stjórn sjóðsins 1991 og 1992 var fjárhagur LÍN treyst- ur vemlega. Fjárþörf sjóðsins hef- ur verið minnkuð árlega um hvorki meira né minna en 1300 til 1400 milljónir króna. Auk þess falla sem kostnaður á ríkissjóð einungis 54% af heildaraðstoð sem námsmönn- um er veitt í stað rúmlega 66% skv. fyrri lögum. Námslán eru með öðrum orðum minni styrkur skv. nýjum lögum en áður en þó um- talsverður styrkur. Komið er að skuldadögum Mikilvægasti fjárhagsvandi LÍN sem enn er óleystur og getur reynst hættulegur fyrir framtíð sjóðsins er einmitt óráðsía og gíf- urlegar lántökur frá valdatíma Svavars og félaga. Við forráða- menn sjóðsins stöndum frammi fyrir því að taka árlega sífellt meiri lán þótt námsaðstoð í heild dragist eitthvað saman og inn- heimta námslána aukist. Með öðr- um orðum, við þurfum að setja „skuldamet" á næsta ári til þess eins að standa undir afborgunum og vöxtum af þessari skuldasúpu, ef ekki verður gripið til sérstakra ráðstafana. Hvernig gat þessi mikilvæga staðreynd farið framhjá Svavari við lestur og túlkun skýrslu þeirrar sem lögð var fram í menntamálanefnd? Skuldasúpu Svavarslána upp á 6 milljarða þarf að breyta í lengri lán Stjórn LÍN hefur lagt tillögur fyrir menntamálaráðuneyti, menntamálanefnd og fjárlaga- nefnd Alþingis þess efnis í megin- atriðum að þessum Svavarslánum verði skuldbreytt og þau lengd. Þau vom einungis tekin til tiltölu- lega skamms tíma en lánuð út fræðilega til 42 ára! Þetta er kjami í þeirri skýrslu sem framkvæmda- stjóm LÍN gaf menntamálanefnd Alþingis um ijármál sjóðsins og Svavar Gestsson lagði út af. Und- irstrika verður þó að leggja þunga áherslu á að það er ekkert áhlaupaverk að skuldbreyta svo hárri fjárhæð til þess tíma sem nauðsynlegt væri með innlendri lántöku. Ut úr þessum vanda era þó aðeins tvær leiðir, þ.e. að lengja þessi lán eða setja „skuldamet" á næstu árum til þess að geta greitt títtnefnd Svavarslán til baka. Sú leið gæti þó reynst stórhættuleg og gert að engu þá viðleitni að koma í veg fyrir greiðsluþrot sjóðs- ins. Af hveiju stafar áætluð fækkun lánþega LÍN? í nefndri blaðagrein gerir Svav- ar Gestsson mikið úr því að náms- Lántökur LÍN og afborganir af lánum á verðlagi 1992 Millj. króna 3.600- 120 3.000 2.600- 2.000- 1.600 1.000- 600- 100 1988 1989 1990 1991 UsUknt Afboifuiir 1066 262 1610 423 2613 466 3123 693 ! Lántökur IS2 Afborganir Mánaðarleg námsaðstoð á Norðurlöndum Námsmaður með maka og tvö börn Þús. kr. ísland 99.304 Noregur Svíþjóð 73.048 63.756 Finnland 42.240 Danmörk 43.124 ^ . I I Lán E53 Styrkir EZZ3 Alls aðstoð 80 60 40 20 Gunnar Birgisson „Væri nú ekki verðugt verkefni hjá Félagsvís- indadeild Háskóla ís- lands að taka út hvern- ig Svavar Gestsson sem stjórnmálamaður not- aði upplýsingar sem hann hafði í höndum í Morgunblaðsgrein 17. nóvember og hvernig stjórnmálamenn geta umgengist staðreyndir eða það sem almenning ur nefnir stundum sannleikann?“ menn sem njóta aðstoðar LÍN fækki, einkum og sér í lagi náms- mönnum með böm á framfæri og dregur þær ályktanir að þetta stafi auðvitað af vondum lögum LÍN, sem sett voru fyrir örfáum mánuð- um. Rétt er að í skýrslu sem starfs- menn LÍN hafa unnið kemur fram að áætlað er að nokkur fækkun verði á lánþegafjölda LÍN á yfír- standandi skólaári miðað við það sem hefur verið undanfarin ár. Megin ástæða þessarar fækkunar töldu starfsmennirnir vera að mikil fjölgun lánþega varð hjá sjóðnum fyrír tveimur til þrem- ur áram, einkum á íslandi. Þessi Qölgun var sérlega mikil hlutfalls- Landhelgín og EES - EB + atvinnuleysið eftír Asgeir O. Einarsson Mesti sigur okkar sem lýðræðis- ríkis var sigur okkar í þorskastríð- inu við England. Upp úr því feng- um við þann vinning að koma land- helginni út í 200 mílur. Þá fyrst vorum við í raun og vera alfrjálsir. Nú era margir sem ræða um að ganga í EES og sumir vilja heldur jafnvel í EB. Þetta er vott- ur um mikinn dómgreindarskort. Gallamir era og verða síðar svo miklir að innganga kemur ekki til greina vegna þess að það era fískimiðin okkar sem sóst er eftir. Fyrst er okkur lofað öllu fögra, að við fáum sérstöðu sem ein- göngu fískveiðiþjóð. En það mun ekki standa lengi. Þegar búið verð- ur að narra okkur inn í EES - EB og við sitjum fastir i netinu kemur reglugerð eða lög frá Brassel um að landhelgi okkar skuli vera 50 mílur eins og hjá öðram „félögum" í EB. Þá verðum við sáróánægðir og göngum aftur úr „samfélaginu“, sem tekur heilt ár, en fáum þó ekki aftur viður- kenndar okkar 200 mílur. Verður þá í framtíð veitt allt í kringum okkur upp að 50 mílna landhelgi. Eða okkur verður tilkynnt að við fáum að veiða 50% af kvótanum en 5 þjóðir aðrar fái 10% kvóta hver. Hvort sem verður ofan á munum við verða illa stödd. Svo verður á ýmsan hátt hægt að- hegna okkur fyrir brotthlaupið. Þá mun verða komið fyrir okkur eins og Færeyingum eða Ný- fundnalandsmönnum en við höfum þá enga Dani eða Kanadamenn til að taka við okkur, beiningamann- inum. Á þessu geta menn séð hvílík hætta vofír yfír okkur ef við hætt- um að vera alfrjáls og sterk þjóð. Að þetta skuli gerast áður en hálf öld er liðin frá því að við urðum allsráðandi! Hræddastur er ég við lögin þeirra sem eyða okkar lögum. Þeim má breyta, herða, eða að samin verða ný lög sem koma okkur alveg á óvart. Með lögum skal land byggja og með ólögum eyða. Það verður nógu mikið af ólögum sem koma hingað frá Brassel. Hvemig eiga líka þessir „hálærðu" menn að þekkja á ís- lenskan sjávarútveg þegar „Hafró“ veit svona lítið? Atvinnuleysið. Það er nú 2-3% hjá okkur en ef við göngum í EES - EB verður það fast og stöðugt hér, 10-20%, og það er óþolandi. Atvinnuleysið hér á landi stafar af þorskleysi, af því að við veiðum of mikið af hrygningarþorski og hrefnan og aðrir tannhvalir og selir drepa of mikið af ungum þorski. Haldið þið að það væri munur að fá 400.000 tonna kvóta í stað 150-200.000 tonna og næsta ár verður hann kannski kominn niður í 100.000 tonn. Ekki batnar þá. Þess vegna era þetta einu ráðin við atvinnuleysinu: 1) Að setja veiðibann á stór svæði fyrir Suðurlandi í heilan mánuð svo að þorskurinn geti gegnt sínu Ásgeir Ó. Einarsson „Island er eina landið sem er laust við berkla o g hefur lítið af eyðni en þessa kvilla mun flökkulýðurinn út- breiða hér, leggja undir sig ónotuð hús, selja eiturlyf o.s.frv.“ foreldrahlutverki og 2) að veiða 1.000 hrefnur á ári, já byija sem fyrst og semja um sölu á kjötinu til Japans. Við megum vera mjög fegin að það skuli vera til stórþjóð sem borðar hvalkjöt. Noregur samþykkti nýlega að ganga í EES en ef Mar norðan Þrándheims hefðu mátt kjósa einir um það hefðu þeir alls ekki sam- þykkt það. En það er einmitt þessi hluti Noregs sem hefur líkasta afstöðu til lífs og tilvera og við íslendingar. Norskir sjómenn vita hvað þeir hafa daglega að beijast við, hvali og seli, og því vilja þeir ekki bæta rán-veiðimönnunum, Spánveijum og Portúgölum ásamt fleiri Evrópuþjóðum, við þann óvinahóp. Eins og hver maður getur nú séð gildir það sama fyrir okkur íslendinga. Það eru margir fleiri ókostir við að ganga í EES — EB. Einn er sá sem varla hefur verið minnst á en það er að leggja niður útlend- ingaeftirlitið og fá svo yfír okkur heilan skara af flakkandi atvinnu- leysingjum sem yfírvöld okkar verða að halda hér uppi en ráða þó ekkert við. ísland er eina land- ið sem er laust við berkla og hefur lítið af eyðni en þessa kvilla mun flökkulýðurinn útbreiða hér, leggja undir sig ónotuð hús, selja eiturlyf o.s.frv. Útlendingaeftirlit- ið er okkar mesta velferðamefnd. Það megum við ekki missa. Höfundur er dýralæknir og fyrrverandi heilbrigðisfulltrúi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.