Morgunblaðið - 01.12.1992, Side 28

Morgunblaðið - 01.12.1992, Side 28
28 MORGÚNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. DESEMBER 1992 Reuter Björgunarmenn flylja lík úr lestinni sem fór út af sporinu í grennd við Amsterdam í gær. Holland Fimm farast í jámbrautarslysi Amsterdam. Reuter. FIMM menn biðu bana og 36 slösuðust er járnbrautarlest fór út af sporinu 15 km suðvestur af Amsterdam í gærmorgun, að sögn talsmanns hollensku járnbrautanna. Ottast var að tala látinna ætti eftir að hækka. Þýskaland Piltur sakað- ur um morð á tyrknesk- um konum Bonn. Reuter. NÍTJÁN ára verslunarmaður í bænum Mölln í Þýskalandi hefur verið handtekinn og sakaður um að hafa myrt tyrkneska konu og tvær telpur í íkveikjuárás á heim- ili innflytjenda í bænum um fyrri helgi, að því er Alexander von Stahl ríkissaksóknari skýrði frá í gær. Leitað er samverkamanns piltsins sem heitir Lars Christ- iansen og er fæddur og uppalinn í Mölln. Viðræður stjómar og stjómarandstöðu um breytingar á stjórnarskránni til að koma í veg fyrir fólksstrauminn til lands- ins fóra út um þúfur um helgina. Fimm árásir að minnsta kosti voru gerðar á útlendinga í Þýska- landi í fyrrinótt og lögreglan hand- tók fímm menn, sem grunaðir eru um íkveikjuárásir á gistiheimili fyrir innflytjendur. Enginn slasaðist í árásunum í fyrrinótt en þó mátti litlu muna þegar tyrknesk fjölskylda komst með naumindum út úr brenn- andi húsi sínu. Bensínsprengjum var einnig varpað að gistiheimili fyrir innflytjendur skammt frá Hamborg og nokkru síðar voru fimm ungir menn handteknir grunaðir um verknaðinn. Á þessu ári hefur of- beldið gegn útlendingum og minni- hlutahópum í Þýskalandi kostað 17 manns lífið og 452 hafa slasast. Viðræðum stjórnarflokkanna við jafnaðarmenn, sem eru í stjórnar- andstöðu, lauk um helgina án nokk- urs árangurs en stjómin og Helmut Kohl kanslari vilja ganga miklu lengra en jafnaðarmenn í að breyta stjórnarskránni og koma í veg fyrir fólksstrauminn til Þýskalands. Hundruð björgunarmanna kepptust við að bjarga fólki úr fjór- um vögnum sem ultu er lestin fór af sporinu. Atvikið átti sér stað kl. 7.15 að staðartíma í gærmorg- un við bæinn Hoofddorp sem er skammt frá Schiphol-flugvellinum. Lestin var full af fólki á leið til vinnu í Amsterdam. Hóf hún ferð- ina í bænum Vlissingen. Orsakir slyssins eru ókunnar en lest ók út af sporinu á sama stað sl. laugardag. Engan sakaði þá. Farþegar lestarinnar sem fór út af í gærmorgun sögðu að allt í einu hefði lestin aukið hraðann og síðan kastast út af sporinu. Vaxta- lækkuní Noreg’i SEÐLABANKI Noregs lækkaði í gær skammtímavexti sína í 17% úr 25% eftir að hafa hækk- að þá til að veija norsku krón- una. „Við höfum unnið þessa orrustu," sagði Eirik Larsen, talsmaður bankans, en bætti við að stríðið við spákaupmenn um norsku krónuna kynni að halda áfram á næsta ári. „Látið drottn- ingnna í friði“ DOUGLAS Hurd, utanríkisráð- herra Bretlands, sagði í gær að þeir sem hafa gagnrýnt skattfríðindi Elísabetar Breta- drottningar og fjölskyldu henn- ar ættu nú að láta hana í friði. Hann sagði að gagnrýnin væri ekki aðeins árás á drottningar- fjölskylduna heldur líka Bret- land; konungdæmið væri ekki lítilfjörlegt leikfang sem menn gætu leikið sér að án þess að eiga á hættu að skaða bresku þjóðina. Uppsagnir hjá Unibank 500 starfsmönnum Unibank í Danmörku var sagt upp í gær vegna mikilla rekstrarerfíð- leika. í ráði er að fækka starfs- mönnum bankans um 1.200 til viðbótar fyrir árslok 1994. Samkvæmt könnun dagblaðs- ins Bersen á meðal forstjóra 1550 danskra fyrirtækja búast 42% þeirra við að þurfa að fækka starfsfólki sínu á næstu sex mánuðum vegna samdrátt- ar, auk óvissunnar í gengismál- um og um stöðu Danmerkur innan Evrópubandalagsins. Samnorrænt útflutnings- fyrirtæki? OLE Ramlau Hansen, forstjóri Royal Greenland, sjávarútvegs- fyrirtækis grænlensku lands- stjórnarinnar, hefur lagt til að Grænlendingar, Færeyingar, íslendingar og Norðmenn stofni sameiginlegt fyrirtæki til að koma á samvinnu á sviði fískútflutnings. Royal Green- land hefur sagt upp samstarfí sínu við félag fiskútflytjenda í Danmörku vegna ásakana um undirboð á rækju og þorski. Fóstureyðing- um hafnað ÍRSKIR kjósendur höfnuðu til- lögu um að afnema algjört bann við fóstureyðingum á írlandi og heimila þær ef líf móðurinn- ar er í hættu. 65,4% greiddu atkvæði gegn tillögunni í þjóð- aratkvæðagreiðslu í síðustu viku. Hins vegar var samþykkt með miklum meirihluta að heimila konum að fara til út- landa í því skyni að gangast undir fóstureyðingu og að þeim verði veittar upplýsingar um erlendar stofnanir sem bjóða upp á slíkar aðgerðir. Aung San Suu Kyi í hættu EIGINMAÐUR friðarverð- launahafans Aung San Suu Kyi, leiðtoga stjórnarandstæð- inga í Burma, sagði í gær að líf hennar væri í alvarlegri hættu. Aung San Suu Kyi hef- ur verið í stofufangelsi í Rango- on frá því í júlí 1989 og hefur verið í mótmælasvelti að und- anförnu. Bretiand Háværar kröfur um að fjár- málaráðherrann sesi af sér I.onrlon. Reufer. The Dailv Tpletrranh. London. Reutcr, The Daily Telegraph. JOHN Major, forsætisráðherra Bretlands, er nú beittur miklum þrýstingi af hálfu þingmanna Ihaldsflokksins, sem krefjast þess að hann leysi Norman Lamont fjármálaráðherra frá störfum í byijun næsta árs. Telja margir forystumenn í röðum íhaldsmanna nauðsynlegt að stokka upp stjóraina eigi fólk að fá traust á henni á ný. Þessir þingmenn vilja hins vegar ekki að fjármálaráðherr- ann láti undan kröfum Verkamannaflokksins og segi af sér vegna uppljóstrana um að hann hafi notað 4.000 pund af almannafé til að greiða hluta lögfræðikostnaðar við að losa sig við óþægilegan leigjenda, þekkta vændiskonu, af heimili sínu. Skrifstofa Johns Majors hefur látið þau skilaboð út ganga að afsögn Lamonts sé ekki yfirvof- andi en margir breskir fréttaský- rendur telja að hjá því verði ekki lengur komist; ráðherrann sé rú- inn trausti eftir fréttir undanfar- inna daga. Blaðið Financial Times sagði í grein í gær að þetta mál hefði skaðað ímynd Lamonts verulega en ímynd skipti oft ekki minna máli en innihald í stjóm- málum. Lagði blaðið til að Ken- neth Clarke innanríkisráðherra yrði fjármálaráðherra í hans stað. Fréttir af því að vændiskona ræki starfsemi sína í kjallara húss í eigu Lamonts voru áberandi á tímabili í fyrra en endalok málsins voru þau að hún fluttist á brott, nokkrum vikum eftir að Lamont hóf málaferli gegn henni. Nú hef- ur komið á daginn að lögfræði- kostnaður Lamonts vegna málsins var annars vegar greiddur með milligöngu íhaldsflokksins og hins vegar af ríkissjóði Bretlands. Lamont réð einn þekktasta lög- fræðing Bretlands á sviði meið- yrðamála, Peter Carter-Ruck, í þjónustu sína í kjölfar blaðafregna í apríl í fyrra, þess efnis að þekkt- ur „kynlífs-meðferðarfræðingur" að nafni Sara Dale, sem stundum gengur undir nafninu „Miss Whi- plash“ (Ungfrú Svipuhögg) í Bret- landi, hefði tekið kjallaraíbúð í húsi Lamonts á leigu eftir að hann flutti í embættisbústað fjármála- ráðherrans í Downingstræti 11. Clarke ver fjármálaráðherrann Fjármálaráðuneytið taldi það skyldu sína að vernda ráðherrann og mannorð hans en þar sem þetta var um helgi var upplýsingaskrif- stofa ráðuneytisins lokuð. Var því skrifstofa Carters-Rucks fengin til að svara fyrirspurnum um málið og leiðrétta rangfærslur. Kostnaður við þjónustu Carters- Rucks var 4.000 pund, 384.000 ÍSK. Embættismenn ráðuneytis- ins hafa varið þessa ákvörðun og segja fordæmi vera fyrir henni. Lamont sjálfur segir að þennan kostnað megi beinlínis rekja til þess að hann gegndi opinberu embætti og hefði hann ekki orðið fyrir honum annars. Kenneth Clarke innanríkisráð- Norman Lamont herra sagði í viðtali við breska útvarpið, BBC, í gær að hann teldi ekki líklegt að ríkistjórnin yrði stokkuð upp vegna þessa máls. Hann bætti líka við að ef hann ætti sjálfur að lifa við það að vera ataður auri opinberlega vegna ráðherrastöðu sinnar og ríkið myndi ekki aðstoða hann við að bera kostnaðinn vegna lög- fræðiaðstoðar gæti hið opinbera fundið sér einhvem annan til að gegna ráðherraembættinu. Eftirstöðvar lögfræðikostnað- arins, átján þúsund pund, sem voru tilkomnar vegna kostnaðar við að reka vændiskonuna úr íbúð- inni, voru greiddar af ónafn- greindum stuðningsmönnum og stóð íhaldsflokkurinn fyrir söfn- uninni. Skuldar kreditkortafyrirtæki Ofan á allt saman bætist svo að í síðustu viku birti dagblaðið The Sun frétt þess efnis að Lam- ont skuldaði 2.473 pund á einu kreditkorta sinna, og væri það 473 pundum yfír leyfílegri úttekt- arheimild. Veltu æsifréttablöð sér upp úr því hvernig maður, sem réði ekki við eigin fjármál, ætti að geta stjórnað ríkisfjármálum Bretlands. Fréttir óvandaðra breskra blaða, þess efnis að meðal greiðslukortaúttektanna væri að finna greiðslu á flösku af ódýru kampavíni og sígarettupakka í vínbúð í vafasömu hverfi í London voru bomar til baka í gær. Af- greiðslumaður í vínbúðinni hafði í blaðaviðtölum haldið þessu fram og æsifréttablöðin mikið velt vöngum yfír því hvað Lamont væri að gera á þessum stað og handa hveijum hann hefði keypt sígaretturnar, en hvorki hann né eiginkona hans reykja. Lamont sjálfur segist hafa keypt þijár flöskur af víni í öðru útibúi sömu vínbúðakeðju og staðfesti aðal- skrifstofa fyrirtækisins í gær, eft- ir bókhaldskönnun á greiðslu- kortanótum, að það væri rétt.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.