Morgunblaðið - 01.12.1992, Side 29

Morgunblaðið - 01.12.1992, Side 29
____________________________________MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. DESEMBER ,19,92_ Rússneski stj órnlagadómstóllinn um bannið á kommúnistaflokknum Rétt að baima valdastofn- anir en ekki flokksfélög Moskvu. Reuter. RÚSSNESKI stjórnlagadómstóll- inn úrskurðaði í gær, að Borís Jeltsin, forseti Rússlands, hefði ekki farið alveg að lögum þegar hann bannaði starfsemi komm- únistaflokksins í kjölfar valda- ránstilraunarinnar í ágúst í fyrra. Raunar staðfesti dómstóll- inn bannið við starfsemi helstu stofnana flokksins en taldi ólög- legt að banna einstök flokksfé- lög. Hafa báðar fylkingar, kommúnistar og stuðningsmenn Jeltsíns, fagnað úrskurðinum og telja hann sér í vil. Valeríj Zorkín, forseti dómstóls- ins, segir í úrskurðinum, að Jeltsín hafí verið heimilt að banna helstu valdastofnanir kommúnistaflokks- ins eftir valdaránstilraunina en aft- ur á móti hafi það strítt gegn lögum að banna starfsemi einstakra flokksfélaga. Niðurstaðan varðandi rétt Jeltsíns til að gera eigur flokks- ins upptækar þykir einnig fremur mótsagnakennd en hún er annars vegar, að eðlilegt hafi verið að taka af flokknum þær eignir, sem ríkið Reuter Borís Jeltsín, forseti Rússlands (2. til hægri), ræðir við helsta ráð- gjafa sinn, Gennadíj Búrbúlís, á fundi með stuðningsmönnum sínum á sunnudag. Við hlið hans eru Viktor Boranníkov öryggismálaráð- herra (lengst til vinstri) og Jegor Gajdar forsætisráðherra (2. frá vinstri). átti þótt flokkurinn færi með þær, en hins vegar, að ólöglegt hafi ver- ið að taka eignir, sem voru skráðar á hann. Talið er, að þessi úrskurður geti hrint af stað endalausum mála- ferlum um hvað hafi verið flokks- eign og hvað ríkiseign en í 70 ára sögu Sovétríkjanna var jafnan litið á flokk og ríki sem eitt og hið sama. Stjórnlagadómstóllinn hefur fjallað um þetta mál í níu mánuði og hafa hundruð manna verið kvödd til að bera vitni. Míkhaíl Gorbatsj- ov, fyrrverandi forseti Sovétríkj- anna, neitaði því hins vegar og líkti málaferlunum við sýndarréttarhöld Jósefs Stalíns á fjórða áratugnum. Lögfræðingar Jeltsíns og fulltrú- ar kommúnista hafa hvorirtveggja fagnað niðurstöðunni sem sigri. „Lagaleg staða flokksins og stefna hans hefur verið staðfest," sagði Valeríj Kúptsov, formaður rússn- eska kommúnistaflokksins, og Mík- haíl Fedotov, lögfræðingur og stuðningsmaður Jeltsíns, sagði, að 80% niðurstöðunnar væru forsetan- um í vil. Misheppnað valdarán í Venezúela Valdaræningjam- ir fá hæli í Perú Perez forseti neitar að segja af sér Caracas. Reuter. CARLOS Andres Perez, forseti Venezúela, var vígreifur á sunnudag og sagði að ekki kæmi til greina að hann segði af sér þrátt fyrir að tvisvar hefði verið gerð tilraun til að steypa honum af stóli, fyr- ir níu mánuðum og aftur sl. föstudag. Um 170 manns féllu í átökunum. Um 1.400 manna herlið undir for- ystu Franciscos Viscontis hershöfð- ingja í flugher Venezúela, gerði mis- heppnaða tilraun til þess að steypa Perez í dögun sl. föstudag. Yfírvarp uppreisnarmanna var að Perez væri gjörspilltur og aðhaldsstefna hans í efnahagsmálum kæmi oft hart niður á fátækari hluta þjóðarinnar. Gerð var loftárás á miðborgina, m. a. for- setahöllina. Náðu sveitir uppreisnar- manna ríkissjónvarpinu á sitt vald um tíma en valdaránstilraunin var brotin á bak aftur samdægurs. Visconti hershöfðingja, 40 öðrum liðsforingjum og 52 undirmönnum var veitt pólitískt hæli í Perú á sunnudag, að því er Alberto Fuji- mori Perúforseti tilkynnti í sjón- varpsávarpi. Sagði hann ákvörðun- ina byggjast á þjóðarétti. Um 1.300 fylgismenn Visconti voru hins vegar teknir fastir er að- gerðir þeirra runnu út í sandinn. Meðal þeirra eru tveir aðmírálar sem sagðir eru meðal forsprakka valda- ránstilraunarinnar. Um 170 manns biðu bana í valda- ránstilrauninni, þar af 140 óbreyttir borgarar. Meðal þeirra voru 40 fang- ar sem létu lífið er vistmenn í einu fangelsa landsins reyndu að notfæra sér uppreisnartilraunina og óvissuna sem henni fylgdi til þess að flýja. Uppþot varð aftur í fangelsinu á sunnudag og biðu 60 fangar þá bana. Perez forseti viðurkenndi í sjón- varpsávarpi á sunnudag að sér hefði mistekist við stjórn efnahagsmála. Hann sagði það þó ekki réttlæta ofbeldisaðgerðir valdaræningjanna. iH!Íj!i!«iHiiii b síuoí a rma Reuter Caracas-búar flýja undan hermönnum eftir að hafa látið greipar sópa um verslanir í borginni. 29 VANTAR GÓÐA BÍLA Á STAÐINN MMC Pajero langur '88, bensín, hvítur, 5 g., ek. 69 þ., óvenju gott eintak. V. 1490 þús., sk. á ód. Bílamarkaburinn Smiðjuvegi 46E v/Reykjanesbraut, Kopavogi, sími 671800 Mazda 626 GTi Coupé '88, rauður, 5 g., ek. 87 þ., rafm. í öllu, álfelgur o.fl. V. 930 þús. Nissan Patrol 6 cyl. ’87, hvítur, 5 g., ek. 56 þ., 33“ dekk o.fl. V. 1080 þús. stgr. MMC L-300 4x4 '87, grásans, 5 g., ek. 94 þ., 8 manna. V. 980 þús. Toyota Corolla Touring GLi '91, blár, 5 g., ek. 31 þ., dráttarkúla o.fl. Toppeintak. V. 1320 þús. Chevrolet Custrom Delux 4x4 Pick Up '86, m/húsi, 8 cyl.-305, sjálfsk., ek. 47 þ. mílur. Toppeintak. V. 1090 þús. Chevrolet Crew Cap „2-71“ Pick Up m/húsi '92, 8 cyl. (350), sjálfsk., ek. 16 þ. mílur. Mikiö af aukabúnaði. V. 2.3 millj. Lada Sport '88, 5 g., léttistýri, ek. 41 þ. Gott útlit. V. 270 þús. stgr. MMC Galant GLSi 4x4 '90, 5 g., ek. 52 þ., samlitir stuðarar, rafm. í öllu. V. 1290 þús., sk. á ód. Toyota Landcruiser langur '82, 6 cyl., 4 g., ek. 170 þ., 38“ dekk o.fl. V. 980 þús. Toyota Corolla GTi '88, rauður, 5 g., ek. 42 þ. V. 800 þús. stgr. MMC Lancer GLX 4x4 station ’88, 5 g., ek. 70 þ., sóllúga, álfelgur o.fl. V. 790 þús Toyota Hilux Pick Up '84, talsvert breytt- ur, mikið af aukahl. V. 690 þús. stgr. Mazda 323 LX 3 dyra '89, ek. 52 þ. V. 490 þús. stgr. Nissan Prairie 4x4 '88, 5 g., ek. 59 þ., 2 dekkjag. o.fl. Gott eintak. V. 850 þús. MMC Lancer GLX '89, hvítur, sjálfsk., ek. 74 þ. Fallegur bfll. V. 690 þús., sk. á ód. A morgunn, miðviku- dag, kl. 2 opnar nýja BÍLASTÆÐAHÚSIÐ gegnt Þjóð- leikhúsinu ÓKEYPIS BÍLASTÆDI á Hverfisgötu. Verið velkomin á leið ykkar í Habitat-húsið. Ókeypis 271 bílastæði út allan desembermánuð! LAUGAVEGI 13 - SÍMI (91) 625870 AUGLÝSINGASTOFA BRYNJARS RAGNARSSONAR

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.