Morgunblaðið - 01.12.1992, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 01.12.1992, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. DESEMBER 1992 31 igium íksius u og sýningar um nýsköpun í ís- tók svo ýmsum breytingum fram eftir laugardegi. Endanlegu sam- komulagi var svo náð síðdegis á laugardag. Túlkuðu menn það þó mismunandi en Ólafur Þ. Þórðarson sagði við umræður á sunnudag að öll tvímæli hefðu með þessu verið tekin af um að ekki væri hægt að samþykkja EES án breytinga á stjómarskrá. Nokkrir þingmenn þögðu Aðrir þingmenn flokksins gættu þess mjög á þinginu að setja ekki fram ákveðnar skoðanir sínar, hvorki inn í sjálfri nefndinni eða við almennar umræður. Er helst talið að Jón Helgason, Ólafur Þ. Þórðarson og Guðni Ágústsson séu andvígir samningnum en Guð- mundur Bjarnason og Jón Krist- jánsson séu honum fremur hlynnt- ir. Full óvissa sé hins vegar um afstöðu Stefáns Guðmundssonar, Ingibjargar Pálmadóttur og Finns Ingólfssonar. Átökin um Evrópumál birtust ekki í sjálfum umræðum þingsins á laugardag að neinu marki á með- an óvissa ríkti um hvort endanlegt samkomulag næðist. Þegar álykt- anir þær sem snertu EES voru lagðar fram á sunnudag spunnust talsverðar umræður og bar þar mest á andstæðingum samnings- ins. Flestir voru þó á þeirri skoðun að sú málamiðlun sem náðist væri viðunandi. í endanlegri málamiðlunarálykt- un um utanríkismál er hvergi vikið beinum orðum að EES en sagt að markmiðum utanríkisstefnunnar verði best náð með öflugu starfi innan Sameinuðu þjóðanna, með samningum og samstarfi við öll viðskiptastórveldi og ríkjabandalög og að hverskyns skerðing á for- ræði þjóðarinnar yfir eigin málum verði að ákveða með stjórnarskrár- breytingu. Þeir liðir í drögum að atvinnumálaályktun sem fjölluðu um EES voru á endanum felldir út en þar segir hins vegar að ís- lenskir atvinnuvegir verði að eiga greiðan aðgang að helstu mörkuð- um heims og í því sambandi séu samningar um frjáls alþjóðavið- skipti afar mikilvægir. Sumir eru enn ósáttir við niðurstöðuna Við umræðurnar á sunnudag sagði Árni Benediktsson að með þessari niðurstöðu ætti að vera hægt að sætta öll sjónarmið í mál- inu. Steingrímur Hermannsson sagði að þingfulltrúar hefðu lagt sig mjög fram við að sætta sjónar- mið í stjórnmálanefndinni þar sem mikil umræða hefði farið fram. Einar Þorsteinsson sagðist vilja að flokkurinn _ tæki skýrari afstöðu gegn aðild íslands að EES. Gunnar Bragi Sveinsson var ósáttur við stjórnmálaályktunina og sagði hana ekki ganga nógu langt gegn EES. Þá væri alls ekki rétt að það hafi verið nánast full samstaða í stjórnmálanefndinni um þessa nið- urstöðu og sagðist hann ekki ætla að greiða ályktuninni atkvæði sitt. Gunnar Sæmundsson sagði að ekki léki vafi á að samþykkt EES- samningsins væri brot á stjórnar- skrá og hann væri ósáttur við orða- lag stjórnmálaályktunarinnar um EES og Gunnar Oddsson sagði: „Ég er mjög óánægður með þessa niðurstöðu. Eg vildi hafa hana ljósa og eindregna höfnun samningsins en við skulum gera okkur grein fyrir að hlutverk þessa flokksþings er að marka flokknum stefnu. Hins vegar eru þingmenn okkar alls ekki bundnir af því sem er sam- þykkt hér.“ „Hiklaust hljóta þeir líka að gefa rækilega gaum að því hver stefna flokksins er,“ sagði hann. Benti hann á að markmið samningsins væri óheft markaðs- kerfi á efnahagssvæðinu en Fram- sóknarflokkurinn væri andvígur óheftum markaðsbúskap og því væri það þverbrot á stefnu flokks- ins ef einhver þingmaður flokksins styddi samninginn á Alþingi. Ásta Hannesdóttir sagði að þótt margt gott væri að finna í samningnum um EES væri ennþá fleira vont við samninginn. Hún hefði óskað að þingið sendi frá sér skýlausa afneit- un á EES. Ályktanir voru að þessu búnu bornar undir atkvæði þingsins og samþykktar mótatkvæðalaust. Framsóknarflokkurinn hefur ekki haldið landsfund sinn í stjóm- arandstöðu í rúmlega 20 ár. Hafði einhver á orði að flokksmenn væru tvístígandi í þessu hlutverki en vildu umfram allt forðast að opin- bera ágreining innan flokksins og því hefði tekist að halda mönnum saman og ná málamiðlun sem meirihlutinn sætti sig við. Af stjórnkænsku sinni hafi Steingrím- ur lagt málin svo fyrir að ekki þyrfti til þess að koma að flokkur- inn hafnaði efnislegum ávinningum EES en andstæðingar sem stuðn- ingsmenn EES gætu náð saman um að vafi á því hvort samningur- inn bryti stjórnarskrána heimilaði þingmönnum ekki að samþykkja samninginn. Væntanlegur arftaki í formannsstól, Halldór Ásgríms- son, hélt hins vegar uppi jákvæðri stefnu flokksins gagnvart Evrópu- samstarfi framtíðarinnar og kom þannig í veg fyrir að flokkurinn yrði útilokaður frá samsteypu- stjórnmálum komandi ára. Sáttahugur sem kominn var í framsóknarmenn undir lok þingsins kom svo skýrast í ljós við kosning- ar eftir hádegi á sunnudag þegar flokksstjórnin var endurkjörin með miklum meirihluta atkvæða. Steingrímur Hermannsson Flokkurínn tekur ekki efnislega afstöðu tíl EES Þingið úrskurðaði ekki um stjórnarskrár- gildi samningsins, segir Halldór Ásgrímsson STEINGRIMLUR Hermannsson formaður Framsóknarflokksins segir að flokksþingið hafi ekki tekið efnislega afstöðu til EES-samningsins. Hann vísar því hins vegar algerlega á bug að flokkurinn sé klofinn vegna málsins og segir að hann standi jafnsterkur eftir sem áður. „Ég efast um að þingflokkurinn taki efnislega afstöðu til samningsins. Þingmenn viðurkenna jákvæða þætti samningsins fyrir sjávarútveginn og allir við- urkenna neikvæða þætti og því er spurningin hvort vegur þyngra,“ sagði Steingrímur Halldór Ásgrímsson varaformaður segir að þótt sterkt hafi komið fram á þinginu um að vafa um stjórnar- skrárgildi samningsins beri að túlka stjórnarskránni í vil hafi flokksþingið ekki kveðið upp neinn úrskurð um hvort samningurinn bijóti ákvæði stjórnarskrár. Ályktanir þingsins bindi ekki þingmenn flokksins en þingflokkurinn verði nú að ganga endanlega frá afstöðu sinni. Ályktan- irnar væru að sumu leyti jákvæðar og að öðru leyti neikvæðar í garð EES, sem endurspegli þær raddir sem fram komu á þinginu, en þingfulltrúar hafi farið sáttir heim að því loknu. Sá kafli stjómmálaályktunar sem fjallar um EES og samkomulag náð- ist um er svohljóðandi-.„Flokksþingið átelur þá ákvörðun meirihluta á AI- þingi að hafna þjóðaratkvæðagreiðslu um EES samninginn. Flokksþingið ítrekar samþykktir miðstjórnar Fram- sóknarflokksins um nauðsynlegar lag- færingar á ýmsum efnisatriðum samnings um hið Evrópska efnahags- svæði. Sérstaklega leggur flokksþing- ið áherslu á að komið verði í veg fyr- ir kaup eriendra aðila á íslensku landi umfram það, sem nauðsynlegt er vegna atvinnureksturs, og á öruggt eignarhald íslendinga á orkulindum og bönkum. Þingið ítrekar þá afstöðu framsóknarmanna að veita ekki fisk- veiðiheimildir í íslenskri fískveiðilög- sögu í stað viðskiptafríðinda. Flokks- þingið leggur jafnframt áherslu á að þegar verði sú stefna mörkuð með samþykkt á Alþingi að leitað skuli eftir því að breyta samningi um Evr- ópskt efnahagssvæði í tvíhliða samn- ing íslands og Evrópubandalagsins strax og önnur EFTA-ríki hafa sótt um aðild að bandalaginu. Jafnvel þótt ofangreind atriði verði tryggð og efnishlið samningsins talin viðunandi, telur flokksþingið vafa- samt að það standist hina íslensku stjórnarskrá að framselja til eftiriits- stofnunar og dómstóls EFTA vald, eins og gert er ráð fyrir í samningn um um hið Evrópska efnahagssvæði. Flokksþingið ber virðingu fyrir ís- lensku stjórnarskránni og teiur að túlka beri allan vafa henni í hag. Fiokksþingið telur því nauðsynlegt av breyting fari fram á íslensku stjómar- skránni áður en unnt sé að sam- þykkja aðild íslands að hinu Evrópska efnahagssvæði. Flokksþingið leggur jafnframt áherslu á að allar vonir um að hic Evrópska efnahagssvæði eitt og séi verði einhvers konar bjarghringur fyr- ir fslenskt atvinnulíf séu tálvonir ein- ar. Efíslenskt atvinnulíf er ekki sjálf. * sterkt mun það eiga erfitt með av nýta sér kosti sem samningnum kunna að fylgja. Staðreyndin er av eiient samstarf, eins og gert er ráv fyrir í umræddum samningi, getur verið hættulegt íslensku fullveldi og sjálfstæði ef íslenzkt atvinnulíf er veikt. Endurreisn hins íslenska at- vinnulífs er, einnig vegna áforma um stóraukið alþjóðlegt samstarf, mikil- vægasta verkefnið í íslenskum þjóð- málum í dag. Flokksþingið lýsir fullr. ábyrgð á hendur ríkisstjórninni og hvetur til þess að án tafar verði haf- ist handa um endurreisn og nýsköpun í íslensku atvinnulífi. “ „Ég tel þetta skýr skilaboð til þing- manna um að greiða ekki atkvæði með samningnum en þingmenn hlýða bara samvisku sinni og em ekki bundnir af þessu. Þessi niðurstaða varð líka til þess að þeir sem ekki hafa haft tíma til að kynna sér stjórn- arskrárþátt málsins fallast á að túlka verði allan vafa stjómarskránni í vil og því sé ekki hægt að samþykkja samninginn án heimildar í stjómar- skrá,“ sagði Steingrímur. Douglas Hurd forseti Evrópubandalagsins á fundi með Jóni Baldvin Hannibalssyni EE S-samningurinn gildir þrátt fyrir fækkun í EFTA Á fundi sem Jón Baldvin Hannibalsson utanrikisráðherra átti með Dou- glas Hurd utanríkisráðherra Breta og forseta Evrópubandalagsins i gær, kom fram að það myndi hafa í för með sér veruleg vandamál fyr- ir Evrópubandalagið ef ísland sækti um aðild að því. Hurd staðfesti á fundinum, að samningurinn um Evrópska efnahagssvæðið myndi gilda áfram þótt allflest EFTA-ríkin gengju í Evrópubandalagið. Á fundinum kom einnig fram að það er mat Breta að ísland muni áfram gegna lykil- hlutverki í varnarsamstarfi Atlantshafsbandalagsins. Jón Baldvin Hannibalsson ræddi bæði við Douglas Hurd og Tristan Garel-Jones Evrópumálaráðherra Bretlands í London í gær. í samtali við Morgunblaðið sagði Jón Baldvin, að Bretar, sem fara nú með for- mennsku í Evrópubandalaginu, hefðu að undanfömu rætt við utanríkisráð- herra allra EFTA-ríkjanna, annars- vegar til að fara yfir stöðuna varð- andi staðfestingu og upphafs- framkæmd EES-samningsins, og hins vegar að skiptast á skoðununum við þau EFTA-ríki sem sótt hafa um aðild að EB. „Við ræddum fyrst um EES-samn- inginn. Það er sameiginleg niðurstaða beggja að brýnt væri að tryggja stað- festingu allra aðila á samningnum fyrir áramót. Ég gerði grein fyrir því, hvernig líklegt væri að EFTA- ríkin brygðust við, ef svo slysalega tækist til að samningurinn næði ekki staðfestingu í svissneskri þjóðar- atkvæðagreiðslu. í því tilviki munu EFTA-ríkin koma saman til sérstaks fundar og óska eftir nýjum samninga- fundi við EB, þar sem óskað verður eftir því að samningurinn nái fram að ganga með þeirri breytingu einni að Sviss verður þar ekki aðili,“ sagði Jón Baldvin. Þegar utanríkisráðherra var spurð- ur hvernig þeim kostnaði, sem Sviss er ætlað að bera samkvæmt EES- samningnum, yrði skipt á önnur EFTA-ríki ef til þessa kæmi, svaraði hann að það væri eitt af álitamálun- um og lægi ekki ljóst fyrir. Þá sagðist Jón Baldvin hafa spurt Hurd, sem forseta Evrópubandalags- ins, hvort ekki mætti treysta þvi að þau EFTA-lönd, sem hugsanlega stæðu utan EB innan fárra ára, héldu öllum þeim réttindum og skuldbind- ingum sem fælust í EES-samningn- um. „Hann áréttaði að það væri skiln- ingur EB að svo væri og að ekki þurfti að semja um annað en tækni- legar breytingar varðandi eftirlit og lausnir deilumála. Þar sem samning- urinn væri að formi til þjóðréttar- samningur milli Evrópubandalagsins og einstakra EFTÁ-landa myndi stækkun EB út af fyrir sig ekki breyta neinu um varanleik EES- samningsins,“ sagði Jón Baldvin. Frans Andriessen varaforseti fram- kvæmdastjórnar EB hefur áður lýst sömu skoðun fyrir hönd fram- kvæmdastjórnarinnar. „Það var auðheyrt á fulltrúum Breta, að þeir voru ákaflega fengir því að ekki væri að vænta aðildar- umsóknar að EB af hálfu íslands. Þeir lýstu því hvílík vandamál það myndi færa þeim ef það væri uppi á teningnum, ekki síst gagnvart samn- ingum um sjávarútvegsmál, áhrifum dvergríkja í stofnunum bandalagsins, starfshæfni EB með fjölgun tungu- mála og fleiru. Það er ljóst að af þeirra hálfu verður ekki beitt neinum þrýstingi á íslensk stjórnvöld að breyta um afstöðu til aðildar að EB,“ sagði Jón Baldvin. Þeir Jón Baldvin og Hurd ræddu einnig samstarf innan NATO og ör- yggismál og spurðist Jón Baldvin sérstaklega fyrir um viðhorf Breta til mikilvægis íslands fyrir vamar- samstarfíð. „Hurd kvað mjög fast að orði þegar hann sagði, að þrátt fyrir að lýðræðisbylting í Rússlandi hefði fjarlægt árásarhættu úr þeirri átt að sinni, þá breytti það engu um grand- vallaratriðin. Atlantshafsbandalagið væri tæki til að viðhalda samstarfí þjóða beggja vegna Atlantshafsins og ísland gegndi lykilhlutverki í því samstarfi. Ef bandarísk stjórnvöld drægju hraðar heim herlið sitt frá V-Evrópu þýddi það, að viðbúnaðar NATO gagngvart hugsanlegu hættu- ástandi yrði í enn meira mæli en áður að reiða sig á öryggi siglingar- leiða þar sem ísland væri í lykilstöðu. Af þessu tilefni kynnti ég honum rækilega stöðu mála varðandi áform- aðar og umsamdar framkvæmdir á Keflavikurflugvelli, eldsneytiskerfi og flugskýli, og minnti á, að Bretar hefðu gert við þær athugasemdir á sínum tíma. Bretar hefðu hins vegar sagt, að ef þessar framkvæmdir væru metnar forgangsmál af hálfu flotayf- irvalda í Norfolk og það staðfest af matsnefnd varnarmála innan NATO, þá myndu þeir ekki gera þetta að ágreingingsmáli. Ég afhenti honum öll gögn um þetta mál og óskaði eft- ir því að fá endanlega niðurstöðu af Breta hálfu sem allra fyrst,“ sagði Jón Baldvin. Á fundum ráðherranna var einnig samstarf innan Vestur-Evrópusam- bandsins, og RÖSE. Auk þess var rætt um ástand mála í ríkjum fyrrver- andi Júgóslavíu og Rússlands. Fram kom í viðræðunum sá skilningur, að aðskilja bæri kröfuna um brottflutn- ing rússneskra herja frá Eystrasalts- löndunum og umfjöllum um réttindi minnihlutahópa í þessum löndum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.