Morgunblaðið - 01.12.1992, Síða 34

Morgunblaðið - 01.12.1992, Síða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ vn&QPn/javiNNuiiF ÞRIÐJUDAGUR 1. DESEMBER 1992 Bílasaia Hekla seldi 75 notaða bíla á útsölu yfir helgina HEKLA hf. seldi alls 75 notaða bíla á sérstakri útsölu um síðustu helgi en þá var veittur 100 þús- und króna afsláttur gegn fram- vísun ávísunar sem mátti klippa úr auglýsingu fyrirtækisins í dagblöðum. Fyrir útsöluna átti Hekla 244 notaða bíla þannig að fjöldi þeirra hefur nú lækkað í 169. Það telst eðlilegt hjá Heklu á fyrirtækið eigi kringum 120 notaða bíla á hveijum tíma. Nóvember var svokallaður happamánuður hjá Heklu þannig að einn kaupandi fær bílinn sinn endurgreiddann í dag. Lokaátak þessarar söluherferðar fólst síðan í útsölunni um helgina. Sigfús Sig- fússon, forstjóri Heklu, sagði í sam- tali við Morgunblaðið að fólk hefði gert mjög góð kaup um helgina. Með þessu væri fyrirtækið að bregðast við birgðasöfnun í notuð- um bílum en bflasala hefði verið treg að undanfömu bæði í nýjum og notuðum bflum. „Okkur tókst •það sem við ætluðum okkur og er- um mjög ánægðir með söluna,“ sagði Sigfús. Hann sagði aðspurður að Hekla hefði ekki tapað á þeim bílum sem seldust á útsölunni en verðið væri nálægt kostnaðarverði. Verð á not- uðum bílum hefði hins vegar farið lækkandi frá því í haust og búast mætti við að það stæði í stað þrátt fyrir gengisfellinguna. Viðskipti Fylgst með alþjóða- viðskiptum AÐALFUNDUR Landsnefndar Alþjóða verslunarráðsins var haldinn fyrir stuttu. Lands- nefndin var stofnuð fyrir níu árum að tilstuðlan fyrirtækja, stofnana og samtaka atvinnul- ífsins með það að markmiði að fylgjast með reglum og viðhorf- um í alþjóðlegum viðskiptum og koma sjónarmiðum viðskipta- lífsins.á framfæri. «<»<•' o. EVROPSKA EFNAHAGSSVÆÐIÐ EES MÍGIHAIRÍ01 0G SKYRIHGAS HVAÐ VILTU VITA UM EES? Svörin færðu í bókinni „EVRÓPSKA EFNAHAGSVÆÐIÐ- Meginatriði og skýringar" eftir Gunnar G. Schram. Bók ætluð hinum almenna lesenda sem útskýrir EES-samninginn á aðgengilegan og hlutlausan hátt. Fæst í öllum helstu bókaverslunum og einnig má panta bókina hjá Framtíðarsýn hf. í síma 91-678263. Jótaráðstefna Skýrslutæknifélags Is/ands: ET dagur Hótel Loftleiðum- 4. desember 1992 Dagskrá 13:00 Skráning 13:15 Setning Halldór Kristjánsson - ráðstefnustjóri 13:20 Aó ná sáttum viö sína töivu og sigia mikinn Thor Vilhjálmsson, rithöfundur 13:45 Viðhaldsvakinn Hjörtur Emilsson, framkvæmdastjóri rekstrarsviðs Samskipa hf. 14:10 Notkun einkatöiva í klíniskri taugalffeölisfræði Sigurður St. Hjálmarsson, framkvæmdastjóri Taugagreiningar hf. 14:35 Tölvusjón Magnús Þór Ásmundsson, rafmagnsverkfræðingur hjá Marel hf. 15:00 Kaffi og meðlæti 1 5:30 Að hemja myndir Guðjón Már Guðjónsson frá OZ hf. 15:55 Boðil - Könnun á mörkum tölvutækninnar Heimir Þór Sverrisson, verkfræðingur hjá PlúsPlús hf. 16:20 Oft var þörf en nú er nauðsynl Halldór Kristjánsson, verkfræðingur hjá Tölvu- og verkfræðiþjónustunni 16:45 - 18:00Léttar veitingar Þátttökugjald er kr. 3.950 fyrir félagsmenn SÍ en kr. 4.700 fyrir aðra Skráning fer fram á skrifstofu félagsins í síma 27577 eigi sfðar en 3. desember 1992 Alþjóða verslunarráðið (ICC) er helsti talsmaður atvinnulífsins á alþjóðavettvangi. Ráðið hefur opin- bera ráðgjafarstöðu gagnvart Sameinuðu þjóðunum og hefur einnig veitt umsagnir um ýmis frumvörp til Evrópubandalagsins. Á vegum þess starfar einnig um- svifamesta gerðardómsstofnun í heimi og reglur ráðsins um ýmis atriði í framkvæmd og samræm- ingu alþjóðlegra viðskipta eru al- mennt viðurkenndar. Aðild að Al- þjóða verslunarráðinu eiga nú um 8.000 fyrirtæki og samtök í um 120 löndum. Aðild að Landsnefnd Alþjóða verslunarráðsins á íslandi eiga nú tæplega 40 fyrirtæki, stofnanir og samtök. Starf nefndarinnar hefur verið í þeim farvegi að fengnir hafa verið erlendir gestir til að ræða ýmislegt sem ofarlega er á baugi í alþjóða viðskiptum og efna- hagsmálum og haldnir eru fundir eða ráðstefnur þar sem sérfróðir menn kynna málefni sem varða íslenskt atvinnulíf. Þá hafa verið skipulagðar ferðir á ráðstefnur og fundi erlendis og auk þess er rekin skrifstofa sem sér um margs konar fræðslu og þjónustu á þessu sviði. Á núafstöðnum aðalfundi Landsnefndarinnar var Hörður Sigurgestsson endurkjörinn for- maður. Þá voru Friðrik Pálsson, Ingimundur Sigfússon, Ragnar Birgisson, Sigurður Helgason, Tryggvi Pálsson og Þórarinn V. Þórarinsson kosnir í stjórn, en fyr- ir voru Ágúst Einarsson, Guðjón B. Ólafsson, Ólafur B. Thors, Ólaf- ur Tómasson og Páll Siguijónsson. TOLVUNAMSKEIÐ — Tölvuskóli Reykjavíkur mun sjá um tölvunámskeið fyrir Landsbankann næstu tvö árin. Á myndinni eru f.v. Jón Þór Eyþórsson, framkvæmdastjóri Tölvuskólans, Guðmundur Árnason, skólastjóri og Guðjón Skúlason, fræðslustjóri Landsbankans. Fræðsla Landsbankinn semur við Tölvuskóla Reykjavíkur NÝLEGA var undirritaður samningur milli Tölvuskóla Reykjavíkur og Landsbanka Islands um að skólinn annist alla tölvumenntun starfsmanna bankans næstu tvö árin, bæði í Reykjavík og á lands- byggðinni. Þetta námskeiðahald fer fram samhliða breytingum á tölvukosti bankans og felur í sér kennslu í Windows, Word fyrir Windows, Excel fyrir Windows og umgengni við netkerfi bankans. Þau eru bæði ætluð byijendum og þeim sem unnið hafa við tölvur í mörg ár með annan hugbúnað. Tölvuskóli Reykjavíkur tók til starfa í febrúarlok 1990 og hélt þá m.a. áfram námskeiðum sem annar skóli hafði þá haldið um nokkurra ára skeið, segir í frétt frá skólan- um. Hann býður nú byijendanám- skeið, námskeið í notendahugbún- aði og starfsmenntunamámskeið. Öllum námskeiðum fylgja náms- gögn á íslensku. Á síðustu misser- um hefur fjöldi fyrirtækja og stofn- ana sótt námskeið skólans og þá einkum í Windows og tengdum hugbúnaði. Greiðslukort Símaþjónusta Visa nær brátt til 46 landa VISA International hefur eitt greiðslukortafyrirtækjanna gengið frá samningum fyrir korthafa sína við símafyrirtæki sem veita þjónustu um allan heim. Þjónustukerfið sem heitir VisaPhone er þegar komið í notkun í Bandaríkjunum og er unnt að nota það bæði til símtala innanlands og fyrir millilanda- símtöl þaðan til 185 landa. Allir korthafar Visa íslands hafa átt kost á þessari þjónustu frá miðju þessu ári og hefur í því skyni I M P E X Sterkt • auðvelt • fljótlegt Hillukerfi sem allir geta sett saman r t 1=2 0DEXIDN SINDRI -sterkur í verki BORGARTÚNI 31 ■ SÍMI 62 72 22 verið samið við bandaríska símafyrirtækið Sprint Internat- ional, segir í frétt frá Visa ís- landi. Símaþjónusta Visa mun standa íslenskum korthöfum til boða í 28 löndum fyrir árslok, þ.á.m. öllum helstu viðskiptalöndum íslendinga og fljótlega á árinu 1993 mun þjónustusvæðið ná til 46 landa. Þjónustan kemst síðan að fullu í gagnið á árinu 1994. Korthafar eiga jafnan val á því hvort þeir hringja eftir leiðbeiningum sjálf- virkrar miðstöðvar eða njóta að- stoðar skiptiborðs í sama skyni. Hveiju korti fylgir símalykill eða leyninúmer korthafa sem hann notar ásamt kortnúmeri sínu þeg- ar hringt er gegnum VisaPhone, Þegar símtal er afgreitt er jafnan kannað hvort kort eða símalykill hefur verið tilkynnt glatað og þannig komið í veg fyrir misnotk- un. VISA hefur einnig, eitt greiðslukortafyrirtækjanna, samið við Póst og síma um að þeir sem notfæra sér þjónustu stofnunar- innar „ísland beint“ til hringinga heim á ferðalögum erlendis geti greitt fyrir með því að gefa upp númer greiðslukortsins. Tölvur Decus með fund DECUS, samtök Digital tölvunot- enda, halda þriðja félagsfund vetrarins í dag, þriðjudaginn 1. desember kl. 15.00 í húsakynnum Rafmagnsveitu Reykjavíkur. Á fundinum verður fjallað um tölvu- net Pósts og síma eins og það er í dag og framtíðarhugmyndir. Þá verður fjallað um nýjungar í Path- works, s.s. uppfærslur, tengimögu- leika og Pathworks sem Platform. Meðal þeirra sem flytja erindi á fundinum eru Siguijón Árnason frá Pósti og síma og Heiðar Þór Guðna- son frá Örtölvutækni hf.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.