Morgunblaðið - 10.01.1993, Síða 6
6 FRÉTTIR/INIULENT
MORGUNBLÁÖIÐ SUKíNUDÁGOR lO.'JANÚÁR 1993
Tilmæli um þjóðaratkvæðagreiðslu um EES
300 undirskriftir
*
til for seta Islands
UNDIRSKRIFTALISTAR með nöfnum á þriðja hundrað íslend-
inga hafa verið sendir til forseta íslands og forseta Alþingis
með tilmælum um að samningurinn um Evrópskt efnahags-
svæði verði borinn undir þjóðina í þjóðaratkvæðagreiðslu. Enn
eiga eftir að berast undirskriftalistar frá Vesturlandi, sunnan-
verðum Vestfjörðum og Suðurlandi.
í tilmælunum segir m.a. að skýr
rök mæli með því, að þjóðarat-
kvæðagreiðsla fari fram um samn-
inginn, sem séu í fullu gildi þótt
felld hafi verið tillaga til þingsálykt-
unar um það efni, þar sem löggjaf-
inn hafí eftir sem áður á valdi sínu
að ákveða þjóðaratkvæði eins og
eðli máls býður og lög standi til.
Bent er á það sem meginröksemd
að samningurinn sé að efni og formi
umdeildur meðal fræðimanna um
Þungfært
og dimmt
á Suður-
nesjatánni
Garði.
MIKLUM snjó kyngdi niður
á blátánni í fyrrinótt þann-
ig að þeir, sem annað
tveggja voru seint á leið
heim eftir glaum næturinn-
ar, eða þeir árrisulu, sem
reyndar voru miklu fleiri,
sem héldu eldsnemma til
vinnu, áttu í vandræðum
með að komast leiðar
sinnar.
Aðeins var ein akrein á hverri
götu og hún það illfær að ekk-
ert var annað að gera en að
gefa hressilega í heima á hlaði
og halda uppi ferðinni þar til
komið var út fyrir bæinn. Það
var reyndar betra að mæta
ekki bíl því þá varð sá er vitið
hafði meira að fara út úr förun-
um í ófæruna.
Það dimmdi yfir bænum að-
faranótt 7. janúar, en þá tóku
langflestir niður jólaseríumar.
Suðumesjamenn þykja í meira
lagi glysgjamir og er ekki óal-
gengt að séu settar upp 5-7
jólaseríur í glugga og utaná
hvert hús. Þeir sem lengst em
komnir em með alls konar sjálf-
blikkandi ljós en nú hefir sem
sagt dimmt yfir. Reyndar er
fullt tungl þannig að það hjálp-
ar til. Þá er mjög skær stjama
sem lýsir okkur úr suðri þessa
dagana og svo síðast en ekki
sízt lengist dagurinn um 4-5
mínútur á dag. Þeir skarp-
skyggnu þykjast sjá dagamun.
Amór.
lög og rétt. „Við undirrituð teljum,
að þessi skoðanamunur fræði-
manna sé mikilvæg röksemd fyrir
því, að löggjafínn taki sér ekki ein-
hliða vald um löggildingu samn-
ingsins. Mál þetta er svo afdrifa-
ríkt, að löggjafa er skylt að sýna
af sér þá varúð góðs umboðsmanns
að ieita til umbjóðanda síns um
fyllra umboð, þegar svo stendur á,“
segir í textanum.
Er minnt á að þjóðaratkvæða-
greiðsla um EES-málið njóti mikils
fylgis meðal þjóðarinnar. Til þess
bendi 35 þúsund undirskriftir ís-
lendinga og skoðanakönnun sem
gefí til kynna að % hlutar lands-
manna styðji þjóðaratkvæði.
„Víðtækt almannafylgi við þjóð-
aratkvæðagreiðsluhugmyndina
styður ótvírætt þau tilmæli, sem
hér skulu fram borin, að löggjafínn
leiti til þjóðarinnar um úrslit EES-
málsins. Aðrar ástæður, sem nefnd-
ar hafa verið, styðja tilmæli þessi
ekki síður. Löggjafí metur þó máls-
atvik af sjálfsdáðum, hann er
óbundinn af öðru en trúnaði við
landslög. Honum ber m.a. að virða
rétt kjósenda til þess að hafa bein
áhrif á löggjöf, þegar mikið liggur
við,“ segir þar að lokum.
Öm Falkner tekur við styrk úr minningarsjóði um Karl Sighvats-
son. Með honum á myndinni em Jakob Fr. Magnússon, Sigrún
Karlsdóttir og Haukur Guðlaugsson.
Minning-arsj óður Karls Sighvatssonar
Om Falkner hlaut
styrk til námsdvalar
ÖNNUR úthlutun úr minningarsjóði Karls J. Sighvatssonar fór
fram í gær og hlaut Öm Falkner styrk til námsdvalar erlend-
is. Hann hyggur á framhaldsnám í orgelleik hjá þekktum
meistara í Róm á árinu.
Örn á ýmislegt sameiginlegt
með Karli heitnum, hann þjónar
nú sömu söfnuðum austán fjalls
og Karl gerði í lifanda lífí og er
líkt og hann driffjöður tónlistarlífs
í Þorlákshöfn og Hveragerði. í
fyrra hlaut styrkinn Jóhann
Yngvason, sem stundar framhalds-
nám í hljómborðsleik í Boston, en
þar dvaldi Karl einnig við fram-
haldsnám á síðasta áratug.
Minningarsjóðurinn er stofn-
aður af tónlistarmönnum og vel-
unnurum Karls J. Sighvatssonar.
Allar tekjur af minningartónleik-
um í Þjóðleikhúsinu síðastliðið
sumar, sem • sjónvarpið gerði
nokkra þætti um, runnu í sjóðinn
auk stofnframlaga einstaklinga,
samtals vel á þriðju miiljón. Hljóm-
plata með tónleikunum kom út
fyrir jólin og seldist vel að sögn
aðstandenda sjóðsins. Stjóm hans
skipa Haukur Guðlaugsson, Sig-
urður Rúnar Jónsson, Ellen Kristj-
ánsdóttir og Sigrún Karlsdóttir en
trúnaðarmenn eru Siguijón Sig-
hvatsson og Jakob Frímann Magn-
Fegurðarsam-
keppni íslands
Undirbún-
ingur hefst
um miðjan
febrúar
Nú stendur sem hæst und-
irbúningur fyrir fegurðars-
amkeppni íslands. Haldin
verður forkeppni vlðs vegar
um land frá og með miðjum
næsta mánuði fram í lok
mars, en úrslitakeppnin verð-
ur haldin í Reykjavík hinn 21.
apríl, að sögn Estherar Finn-
bogadóttur, framkvæmda-
stjóra keppninnar.
Forkeppnin verður haldin á sjö
stöðum á landinu, á Vesturlandi,
Norðurlandi, Austurlandi, Suður-
landi, Suðurnesjum, og að öllum
líkindum einnig á Vestfjörðum, sú
síðasta í Reykjavík 26. mars, að
sögn Estherar. Hún sagði að ver-
ið væri að ljúka við að velja inn í
þá keppni þessa daga eða vikur,
og tekið væri við ábendingum.
„Úrslitakeppnin verður syo
haldin hinn 21. apríl á Hótel ís-
landi, og þar munu taka þátt
14-16 stúlkur úr forkeppninni,"
sagði Esther. „Um helmingur
þeirra verður sennilega úr for-
keppninni í Reykjavík, en hinn
helmingurinn annarsstaðar af
landinu.“
Borgarhlið og áningar-
staðir við Suðurlandsveg
BORGARRÁÐ hefur samþykkt að á næstunni verði hafin vinna við
ræktun meðfram Suðurlandsvegi og við gerð borgarhliðs og svokall-
aðra áningarstaða við veginn. Þá hefur ráðið samþykkt að hrundið
verði í framkvæmd sérstakri hreinsunaraðgerð, sem miði að því,
að fjarlægja allt rusl af svæðinu og lagfæra núverandi byggingar
og girðingar eða rífa þær. Markmiðið er að fegra aðkomuna að
Reykjavík eftir Suðurlandsvegi, en jafnframt að stuðla að hægari
bílaumferð með því að bijóta upp tilbreytingaleysið.
Katrín Fjeldsted kynnti á fundi
borgarstjómar í fyrrakvöld niður-
stöður nefndar, sem síðustu mánuði
hefur unnið að tillögum um breyt-
ingar á svæðinu meðfram Suður-
landsvegi frá Lækjarbotnum að
Breiðholtsbraut við Rauðavatn.
Hún sagði að tillögur nefndarinnar
gerðu ráð fyrir gróðursetningu tijá-
lunda, einkum á þeim svæðum, þar
sem væru fyrir sumarbústaðir eða
önnur byggð, en þó þannig, að allt-
af sæist a.m.k. til annarrar handar
frá veginum. Jafnframt yrði núver-
andi tijágróðri haldið við.
í tillögunum er gert ráð fyrir
borgarhliði, þar sem ekið er inn
fyrir borgarmörkin við Hólmsá og
áningarstað á móts við Heiðmerkur-
veg. Gert er ráð fyrir að þar verði
komið fyrir kortum, sem sýni m.a.
skiptingu borgarinnar í hverfí, og
fleiri upplýsingum fyrir ferðamenn.
Ennfremur verði þar útivistarað-
staða og göngustígar liggi frá
áningarstaðnum, sem nýtist skíða-
fólki að vetri til.
Katrín sagði að flestar byggingar
á þessu svæði bæru vott um tak-
markað viðhald. Sama ætti við um
umhirðu umhverfis þær og girðing-
ar um einstakar landspildur stærri
eða minni. Þó væru inni á milli
snyrtileg. hús, sumarbústaðir og
heilsársbústaðir, og e'innig á sumum
spildum hávaxinn og fallegur tijá-
gróður.
Katrín sagði að þótt hreinsunar-
deild gatnamálastjóra hefði látið
töluvert til sín taka á þessu svæði
sl. sumar, væri Ijóst, að þörf væri
á enn meira átaki í hreinsun einkum
með það fyrir augum, að fjariægja
úr sér gengnar skúr- og sumarbú-
staðabyggingar, ónýtar girðingar
og rusl af ýmsu tagi. Á hinn bóginn
væri ekki raunhæft markmið, að
ætla að uppræta alla sumarbú-
staða- eða hesthúsabyggð á þessu
svæði á skömmum tíma. „Að því
er hesthús varðar þarf að vera
hægt að vísa hrossaeigendum á
annan stað eða aðra staði, þar sem
Ibúðir fyrir aldraða í Sandgerði
Landsbanki íslands
fjármagnar verkið
Sandgerði.
SANDGERÐISBÆR og Landsbanki íslands hafa gert með sér
samkomulag um að bankinn fjármagni byggingu 10 íbúða fyrir
aldraða og þjónustukjarna og var samningur þessa efnis undirrit-
aður í Sandgerði nýlega. Áætlaður kostnaður við bygginguna er
106,5 milljónir króna á núverandi verðlagi og er gert ráð fyrir
að íbúðirnar verði afhentar í desember.
Sverrir Hermannsson bankastjóri
gat þess við undirritun samningsins
að Landsbankinn hefði orðið fyrstur
banka til að fjármagna byggingar
íbúða fyrir aldraða af þessu tagi.
Hér væri um það umfangsmikinn
samning að ræða, að fjármagn yrði
að koma frá aðalstöðvum bankans í
Reykjavík. Sigurður Valur Ásbjarn-
arson bæjarstjóri í Sandgerði sagði
að þetta væri ánægjulegasta emb-
ættisverk sitt sem bæjarstjóra til
þessa því það væri hveiju bæjarfé-
lagi kappsmál að tryggja öldruðum
Sigurður Valur Ásbjarnarson bæjarsljóri Sandgerðisbæjar og Sverr-
ir Hermannsson bankastjóri Landsbanka íslands, á miðri mynd,
undirrita samninginn í Sandgerði ásamt fulltrúum bankans, bæjar-
stjórnarinnar og byggingaraðila.
íbúum viðunandi þjónustu á efri
árum og væri samningur þessi stór
áfangi í þá átt.
íbúðimar verða tveggja og þriggja
herbergja og er það byggingafélagið
Húsanes hf. í Keflavík sem sér um
smíðina. Þjónustumiðstöðin verður
261,6 fermetrar. íbúðirnar verða af-
hentar fullfrágengnar, ásamt sam-
eign inni sem úti og fullfrágenginni
lóð og verða þær auglýstar til sölu
siðar í þessum mánuði. - BB
þeir geti verið með hrossin, áður
en þeim verður gert að fara úr
núverandi hesthúsum sínurn," sagði
Katrín.
Reykjavíkurborg er eigandi
meirihluta þess lands, sem athugun
nefndarinnar beindist að. í niður-
stöðum nefndarinnar segir að sums
staðar sé óljóst með leigurétt sum-
arbústaðaeigenda að landi, einkum
í Hólmslandi. Norðlingaholt og
Baldurshagaland séu framtíðar-
íbúðasvæði og sé hjá Borgarskipu-
lagi hafín vinna við skipulagningu
þeirra. Að öðru leyti sé um að ræða
útivistarsvæði samkvæmt Aðal-
skipulagi Reykjavíkur 1990-2010.
Nefndina, sem vann tillögumar,
skipuðu Katrín Fjeldsted frá um-
hverfismálaráði, Stefanía Trausta-
dóttir frá heilbrigðisnefnd, Magnús
Jensson frá skipulagsnefnd og Hall-
dór Guðmundsson frá bygginga-
nefnd. Einnig unnu að tillögunum
Hafdís Hafliðadóttir hjá Borgar-
skipulagi og Ágúst Jónsson á skrif-
stofu borgarverkfræðings.