Morgunblaðið - 10.01.1993, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10. JANÚAR 1993
11
Svanhvit Tómasdóttir:
„Ég beið með innkaup þar til
útsölurnar hófust og tel mig
hafa gert góð kaup. Mér
finnst vöruúrvalið betra og
verðin hagstæðari nú en áður.
Það er líka minni örtröð í
búðunum en oft áður á útsöl-
um. Ætli þrengri lífskjör eigi
ekki mesta sök á því.“
Halldóra Pétursdóttir:
„Ég var nú bara að skoða.
Yfirleitt hef ég verslað eitt-
hvað á janúarútsölum, en það
verður ekki nú vegna minni
peningaráða en áður. Mér
sýnast vörumar hafa lækkað
álíka mikið og áður.“
Jóhanna Hreinsdóttir,
Styrmir Mósson og
Steinunn Hreinsdóttir.
Jóhanna sagðist ekki ætla
mikið á útsölur í ár, en hafði
þó keypt sér peysu og var
ánægð með kaupin. Steinunn
verslaði fyrir jólin og ætlaði
að láta það nægja í bili. Þær
vom sammála um að núorðið
væri orðið gáman að fara á
útsölur. Þar væri meira úrval
en áður, betri vörur og á góðu
verði. Styrmir sagði fátt, enda
ekki nema 10 mánaða gamall
og nýgræðingur í útsölubrans-
anum.
Þórdis Jokobsdóttir: „Maður er alltaf áð athuga
málið. Ég fer yfirleitt á hveiju ári á útsölur en hugsa
mig vel um áður en ég kaupi. Venjulega er ég að
leita að einhverju ákveðnu, það þýðir ekkert að kaupa
fyrir skápana, jafnvel þótt flíkin sé á útsölu! Nú var
ég að leita mér að jakka og hann er hér í pokanum."
Svana Vikingsdóttir og
Anna Vala Ólafsdóttir.
Svana sagðist gjarnan
versla á útsölum og að þessu
sinni hefði hún bæði keypt
útsöluvörur og á fullu verði.
Hún taldi til hagsbóta að
kaupa varning á útsölum og
sagðist hálfsjá eftir fata-
kaupum sem hún gerði fyrir
jólin, nú væri sama vara á
hálfvirði. Svana sagðist
hafa slæma reynslu af
skyndiákvörðunúm á útsöl-
um, nú kaupir hún ekki
annað en það sem fyrirfram
er ákveðið.
Ólafur Jónsson: „Ég fylgi nú bara frúnni, en
geri lítið af því sjálfur að kaupa. Hún hefur mig
aðeins með í ráðum og ég hvet hana til að fara á
útsölur. Það er hægt að fá vandaða vöru á góðu
verði.“
Siguróur Helgason: „Mig vantaði sjálfvirka
kaffikönnu og kom hér í gær að skoða úrvalið. Ég
tel mig hafa gert góð kaup miðað við það sem ég
hef séð annars staðar, en á ekki von á því að fara
á fleiri útsölur í bili.“
Benedikt Jóhannsson,
Konný Bjargey og
Maria Hókonardóttir.
„Mér finnst nú að margt hefði
mátt lækka meira, einkum
þegar um dýrari vörur er að
ræða,“ segir Benedikt. „Ann-
ars er mikill munur á verðlagi
hér og á Eskifirði, þar sem
við búum.“ „Það er einkum
tilfinnanlegt hvað matvaran
er miklu dýrari fyrir austan,
það munar ekki eins miklu á
fatnaði," segir María.
Jón Bjarnason og Sólveig Mariusdóttir: „Það
var gott verð á því sem við keyptum, munaði allt
að helmingi. Ég var ákveðinn í að kaupa þetta og
beið eftir útsölunni, sagði Jón. Maður er orðinn elli-
lífeyrisþegi og farinn að spá í útsölurnar, nú hefur
maðurtímatil þess.“