Morgunblaðið - 10.01.1993, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 10.01.1993, Qupperneq 20
20 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10. JANÚAR 1993 tViiXiÍá jJ£L eftir Guðna Einarsson ÁSDÍS Jenna Ástráðsdóttir heitir ung stúlka sem lauk stúdentsprófi frá Mennta- skólanum við Hamrahlíð rétt fyrir jólin. Hvít stúd- entshúfan hennar táknaði meira en að lokið væri i ynr rettum 22 árum fæddist lítil stúlka, sjö vikum fyrir tímann. Litla JBb hnátan veikt- ist af fyrirburagulu sem olli heilalö- mun og hefur háð henni æ síðan. Asdísi Jennu skortir samhæfingu hreyfínga og er hún bundin við hjóla- stól. Hún er heymarskert og mál- hölt en tjáir sig með aðstoð tölvu. Þrátt fyrir mikla fötlun hefur hún lagt ótrauð á hvem hjallann af öðr- um, studd sínum nánustu og fjöl- mörgum öðrum. Skólagangan Þegar Asdís Jenna var rétt um eins árs flutti fjölskyldan til Dan- merkur. Þar mættu þau viðhorfum sem þá vom nær óþekkt á íslandi. Sú stefna var mörkuð að Ásdís Jenna fengi að vera sem mest með ófötluð- um jafnöldrum sínum. Skólagangan hófst í leikskóla fyrir fatlaða, en inn- an tíðar var hún komin í hverfísleik- skólann með ófötluðum börnum. Þegar upp í grunnskólann kom taldi skólasálfræðingur einn að Ásdís Jenna væri of fötluð til að sækja almennan skóla. Foreldramir vom á öðra máli og nutu stuðnings leik- skólakennara og annarra sem vissu hvað í stúlkunni bjó. Það varð úr að hún fór í almennan grannskóla, en í sérdeild fyrir fatlaða. Nemendur deildarinnar vom með ófötluðum í ýmsum námsgreinum og fengu sér- ágætu prófi, hún var til vitn- is um að með þolgæði, dugn- aði og góðri hjálp má sigr- ast á ótrúlegum vanda. Ásdis Jenna Ástráósdóttir: „Að geta hugsað og lært er mikilvægara en að geta gengið." kennslu í öðram. Fjölskyldan flutti til íslands þegar Ásdís Jenna var 10 ára. Það kostaði talsverða fyrirhöfn að koma henni inn í almenna skólakerfið hér á landi. „Forráðamenn gmnnskólans veigr- uðu sér við að taka við Ásdísi og töldu sig á allan hátt vanbúna til að veita henni kennslu, því til þess vant- aði bæði aðstöðu og kennara. Við þurftum að leita réttar okkar til ráð- herra, því bamið var vitanlega skóla- skylt. Okkur var vel tekið í kerfínu, en þetta kostaði talsverða fyrirhöfn," segir Ásta B. Þorsteinsdóttir, móðir Ásdísar, en hún er formaður lands- samtakanna Þroskahjálpar. Ásdís var innrituð í Hlíðaskóla og hóf þar nám. „Skólasaga Ásdísar Jennu er miklu bjartari en þorra fatlaðra barna. Það hefur ekki verið sjálfgef- ið hér á landi að fötluð böm fengju inni í almennum skólum. Hér hefur rikt sterk tilhneiging til að senda þau í sérskóla í stað þess að gera al- mennu skólunum kleift að taka við fötluðum börnum. Þettá er þó hægt og hægt að breytast." Eftir að Ásdís Jenna komst inn í Hlíðaskóla gekk skólagangan mjög vel. „Það hefur verið gæfa Ásdísar Jennu að hafa fengið kennara sem höfðu trú á henni,“ segir Ásta. „Skól- inn hefur verið líf hennar og yndi. Það kemur fyrir flesta unglinga að þeir nenni ekki í skólann, en það hefur aldrei átt við um Ásdísi Jennu. Hún hefur alltaf hlakkað til að fara í skólann. Á menntaskólaámnum komst bókstaflega ekki annað að. EÐ VILJA EFTIRFARANDI ræðu samdi Ásdís Jenna og var hún lesin við brautskráningu stúdenta frá Menntaskólanum við Hamrahlíð í desember síðastliðnum: ffk gæti rektor, konrektor, kennarar, samstúdentar og aðstandendur. í dag er langþráð stund runnin upp í lífí okkar allra sem sitjum hér á sviðinu með hvítu kollana okkar. Þegar ég lít til baka finnst mér stutt síðan mamma ók með mig í skólann fyrsta daginn. Þá vissi ég ekkert hvað beið mín. Þegar ég byrjaði var aðstaðan nánast engin, bara gömul vörulyfta og smáskonsa fyrir fatlaða. Fyrsta árið var erfítt því að ég hafði aðeins eina aðstoðarmanneskju sem ég varð að treysta alfarið á og enga hafði ég tölvu en þegar blessaða tölvan kom þá breyttist mikið. Mig skortir orð til þess að lýsa þakklæti mínu til þeirra, sem hafa verið svo ótrúlega ötulir við að gera mikið fatlaðri manneskju eins og mér kleift að stunda námið í Menntaskólanum við Hamrahlíð. Gleði mín er mikil í dag, því mér finnst ég hafa sigrast á ótroðnum vegi til gagns fyrir þá sem á eftir koma. Án óþijótandi stuðnings og skilnings starfsliðs og nemenda MH hefði þetta ekki verið mögulegt. Ég veit að ekki er hallað á neinn þótt ég nefni hér nöfn AÐVOPNI tveggja baráttukvenna, námsráðgjafanna Sölvínu Konráðs og Ágústu Unnar Gunnarsdóttur, sem reyndust mér ómetanlegar. Einnig vil ég þakka öllum nemendunum, sem voru hjálparhellur mínar. Menntaskólinn við Hamrahlíð hefur það að leiðarljósi að koma til móts við þarfir hvers og eins. Ég ber mikla virðingu fyrir því brautryðjendastarfi sem hér hefur verið unnið. Aðrar menntastofnanir landsins mættu fylgja því fordæmi. Blöndun getur eytt fordómum og hræðslu við fatlaða ef ófötluð böm byrja snemma að umgangast þá fyrmefndu í leik og starfí. Mér fínnst fatlaðir eigi að hafa óskertan rétt til náms eins og aðrir. Ég vil þakka öllum hér í skólanum fyrir hlýju og vináttu sem mér hefur verið sýnd héma. Ég veit að þið samstúdentar mínir takið heilshugar undir þakkir til skólans fyrir þá menntun sem við höfum hlotið á undanförnum áram og sem mun reynast okkur skjól og skjöldur er við nú höldum á vit ævintýranna sem bíða okkar. Ykkur þakka ég samfylgdina og ykkur fylgja einnig frá mér hlýjar óskir. Ég þakka fyrir að þið hafíð gert mig, svo fatlaða manneskju, að einni af ykkur, tekið mér eins og ég er og látið mig finna að ég heyri til hópnum. Ég ætla að lokum að gefa ykkur lífsmottó mitt að gjöf: „Lífið er ekkert mál, þegar maður hefur viljann að vopni.“ Lifíð öll heil. Takk fyrir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.