Morgunblaðið - 10.01.1993, Qupperneq 48

Morgunblaðið - 10.01.1993, Qupperneq 48
48 SJÓNVARPIÐ 9,00 RJIDMAFFMI ^ Morgunsjón- DHHnilLrni varp barnanna 11.15 ►Hlé 14.00 ►Nýárskonsert í Vín Fílharmóníu- sveitin í Vínarborg leikur tónlist eft- ir Jóhann Strauss eldri og yngri og Josef Lanner undir stjóm Ricardos Mutis, og dansarar við Ríkisóperuna í Vínarborg dansa undir stjóm Ger- linde Dill. 16.00 ►Sveitapiltsins draumur Heimiid- arkvikmynd eftir Hilmar Oddsson og Ólaf Rögnvaldsson gerð í tilefni af óskarsverðlaunaútnefningu Bama náttúrunnar eftir Friðrik Þór Frið- riksson. 16.55 ►Öldin okkar - Lokaþáttur (Notre siécle) Franskur heimildarmynda- flokkur um helstu viðburði aldarinn- ar. í þessum þætti era tekin fyrir árin frá 1980 til 1990. 17.50 ►Sunnudagshugvekja Guðlaugur Gunnarsson trúboði flytur. 18.00 ►’Stundin okkar Garpur og Emelía halda upp á þrettándann með tilheyr- andi söngvum, nemendur Karls Jón- atanssonar spila á harmónikkur og Móeiður Júníusdóttir syngur Móðir mín í kví-kví. Ágúst Kvaran eðlis- og efnafræðingur gerir tilraun, frú Grýla kemur í heimsókn og Felix Bergsson syngur lagið Snjókarlinn með Þvottabandinu. Umsjón: Helga Steffensen. Upptökustjóm: Hildur Snjólaug Braun. 18.30 ►Ævintýri á norðurslóðum — Hannis Bjartur og Rannvá, systkini frá Þórshöfn í Færeyjum, fara til sumardvalar hjá ömmu sinni á Skúf- ey. Þar kynnast þau dularfullum og einrænum manni sem bömin í þorp- inu hafa að skotspæni. Systkinin komast um síðir að sannleikanum um gamla manninn og reyna að breyta viðhorfi þorpsbamanna til hans. En það er ekki fyrr en gamli maðurinn deyr að þau skilja hvað þau hafa gert honum og hvaða mann hann hafði að geyma. Höfundur og leikstjóri er Katrín Óttarsdóttir. 18.55 ►Táknmálsfréttir -I9.00 hlFTTID ►Auðleflð °9 ástrfð- HlL I IIII ur (The Power, the Passion) Ástralskur framhalds- myndaflokkur. Þýðandi: Ýrr Bertels- dóttir. (66:168) 19.30 ►Fyrirmyndarfaðir (The Cosby Show) Bandarískur gamanmynda- flokkur um fyrirmyndarföðurinn Cliff Huxtable og fjölskyldu hans. 20.00 ►Fréttir og veður 20.35 hlCTTID ►Húsið í Kristjáns- PfLl IIII höfn (Huset pá Christ- ianshavn) Sjálfstæðar sögur um kímilega viðburði og kynlega kvisti, sem búa í gömlu húsi í Christians- havn í Kaupmannahöfn og nánasta nágrenni þess. Aðalhlutverk: Ove Sprogoe, Helle Virkner, Paul Reic- hert, Finn Storgaard, Kirsten Hans- en-Meller, Lis Severt, Bodil Udsen og fleiri. Þýðandi: Ólöf Pétursdóttir. (2:24) 21.00 ►Fjallamenn á Fimmvörðuhálsi Árið 1940 reistu nokkrir frumhetjar í fjallamennsku og ferðalögum skála á Fimmvörðuhálsi. Árið 1990, fimm- tíu árum síðar, var skálinn rifinn og annar reistur í staðinn. í þættinum er farið yfir sögu félagsins Fjalla- manna. Gamlar kvikmyndir og ljós- myndir, sem Guðmundur frá Miðdal tók, sýna hvemig þessi hópur leitaði á vit fjallanna, stundaði klettaklifur og skíðamennsku og fékk erlenda menn til að leiðbeina um íjalla- mennsku. Meðal annars kom hinn frægi garpur sir Edmund Hillary hingað til lands á vegum Fjallamanna og hélt fyrirlestur. Textahöfundur og þulur er Arí Trausti Guðmundsson en dagskrárgerð annaðist Hjálmtýr Heiðdal. 21.30 ►Don Quixote (El Quixote) Upphaf á nýjum, spænskum myndaflokki sem byggður er á hinu mikla verki Miguels de Cervantes um Don Kí- kóta. Leikstjóri: Manuel Guitierréz Aragon. Aðalhlutverk: Femando Rey, Alfredo Landa, Francisco Mer- ino, Manuel Alexandre og Emma Penella. Þýðandi: Sonja Diego. (1:5) 22.55 ►Sögumenn (Many Voices, One World) Þýðandi: Guðrún Arnalds. 23.05 ►Útvarpsfréttir í dagskrárlok MORGUNBLAÐIÐ im/ARP/SJONVARP SUNNUDAGUR 10. JANUAR 1993 SUWWUPAGUR 10/1 STÖÐ TVÖ 9.00 ► I bangsalandi II Teiknimynda- flokkur með íslensku tali. 9.20 ► Úr ævintýrabókinni Ævintýrið um Hans og Grétu í teiknimynd. 9.45 ► Myrkfælnu draugarnir Teikni- myndaflokkur. 10.10 ► Hrói höttur(Young Robin Hood) Teiknimyndaflokkur um þjóðsagna- persónuna Hróa hött. (1:13) 10.35 ► Ein af strákunum Mynd um unga stúlku sem á erfítt uppdráttar í blaða- mannáheiminum. (9:26) 11.00 ► Brakúla greifi Fyndinn teikni- myndaflokkur fyrir alla aldurshópa. 11.30 ► Fimm og furðudýrið Framhalds- þáttur fyrir börn og unglinga. (2:6) 12.00 ► Sköpun (Design) í þessum athygl- isverða þætti verður spjallað við hönnuði sem hafa getið sér gott orð við framleiðslu á stöðutáknum. Þar á meðal Ferdinand Porsche og Nick Ashley. Þátturinn var áður á dagskrá í janúar 1991. (5:6) 13.00 ÍÞRÖTTIR ► NBA tilþrif (NBA Action) Skemmtilegur þáttur þar sem liðsmenn bandarísku úrvalsdeildarinnar era teknir tali. 13.25 ► ítalski boltinn Leikur í beinni útsendingu frá 1. deild ítalska bolt- ans í boði Vátryggingafélags íslands. 15.15 ► Stöðvar 2 deildin Fylgst með íslandsmótinu í 1. deild karla í hand- knattleik. 15.45 ► NBA-körfuboltinn Leikur í bandarísku úrvalsdeildinni í boði Myllunnar. 17.00 klCTTip ► Listamannaskálinn rlLI lln í þessum þætti sláumst við í för með breska grínistanum Lenny Henry en hann kynnir sér sögu „funk“ tónlistarinnar. 18.00 ► 60 mínútur Fréttaskýringaþáttur. 18.50 ► Aðeins ein jörð Endurtekinn þáttur frá síðastliðnu fímmtudags- kvöldi. 19.19 ►19:19 Fréttir og veður. 20.00 kJCTTip ► Bernskubrek (The PlLl IIH Wonder Years) Banda- rískur myndaflokkur um unglings- strákinn Kevin Amold. (5:24) 20.25 ► Lagakrókar (L.A. Law) Lokaþátt- ur bandaríska framhaldsmynda- flokksins um félagana hjá Brachman og McKenzie. Næsta sunnudag hefur göngu sína á ný framhaldsmynda- flokkurinn Heima er best. (22:22) 21.15 ► Dýrgripir (Jewels) Framhalds- mynd í tveimur hlutum sem gerð er eftir samnefndri metsölubók Danielle Steel. Sagan hefst árið 1936 á Long Island í New York með ævintýralegu brúðkaupi hinnar nítján ára gömlu Söruh Thompson og Freddie Van Deering sem hafa þekkst frá bam- æsku. Það liðu ekki margir mánuðir þar tii Sarah kynnist hinum rétta Freddie. Hann er drykkjumaður og beitir hana andlegu og líkamlegu ofbeldi sem veldur því að hún missir fóstur. Hún gerir hvað hún getur til að láta á engu bera og segir ekki foreldrum sínum frá fósturlátinu. En .. Enn mun þó reimt á Kili.. “ Fyrri hluti dagskrár um voveiflega atburði á Kili fyrir rúmum tvöhundruð árum RÁS 1 KL. 14.00 Rösklega tvær aldir eru nú liðnar frá því að þeir atburðir gerðust á Kili, sem hafa verið þjóðinni í fersku minni allt fram á daga núlifandi kynslóðar. Og þrátt fyrir alla þá dul sem yfir atburðunum grúfír má hiklaust fullyrða að sjaldan eða aldrei hafi íslensk öræfí sett á svið nokkurn þann harmleik er látið hefur eftir sig dýpri spor í meðvitund almenn- ings eða haft á sér blæ voveiflegri örlaga. Það er einum tvennt sem gert hefur þennan atburð harm- rænni og minnisverðari en flesta aðra mannskaða er hér verða. í fyrsta lagi er ekkert vitað um ferðalok þeirra félaga er hurfu út í sortann með lest sína og fjárhóp en komu þaðan aldrei aftur. Tvö líkin fundust vorið eftir, tvö eftir 65 ár og eitt aldrei. Þá risu lang- sótt og harðsnúin réttarhöld út af hvarfí þeirra félaga, þar sem þrír menn voru ásakaðir um líkrán og mun það nærri einsdæmi í ís- lenskri réttarsögu. Fyrri hluti Reynisstaðabræðra er á dagskrá Rásar 1 í dag klukkan 14 og seinni hlutinn að viku liðinni. Höfundur og leikstjóri er Klemenz Jónsson. Lenny Henry rekursögu funktónlistar STÖÐ 2 KL.17.00. í þættinum Listamannskálanum rekur Lenny Henry sögu funktónlist- arinnar í þrjá ættliði með við- tölum, söng og dansi. Á meðal þeirra sem hann talar við er faðir funksins, Herra Superbad, James Brown og Hammer. Lenny ferðast á milli London, New York ,og Minneapolis og heimsækir búllumar þar sem funkið varð til. Þetta er þáttur fyrir alla þá sem hafa einhvem áhuga á „svartri - tónlist". Leikararnir - Fernando Rey leikur Don Kíkóta og Alfredo Landa Ieikur fylgdarsvein hans, Sanco Panza. þegar Freddie niðurlægir hana opin- berlega með því að koma með tvær gleðikonur í brúðkaupsafmæli þeirra taka foreldrar hennar í taumana, krefjast þess að hún skilji og fara með hana til Evrópu. Annar hluti er á dagskrá annað kvöld. 23.15 ► Gítarsnillingar (Guitar Legends) Þriðji og síðasti hluti tónleikaupptöku frá Sevilla á Spáni en þar komu fram margir fremstu gítarleikarar heims. 020 KVIKMYND Kto Basinger kom öllum á óvart í þess- ari mynd er hún sýndi að hún er ágætis leikkona. Myndin gerist árið 1954 og Kim Basinger leikur bams- hafandi hárgreiðslukonu sem er um það bil að skilja við manninn sinn. Fyrir tilviljun verður hún vitni að morði á meðan hún er að reyna að ná aftur „listrænum" nektarmyndum sem teknar voru af henni á hennar yngri áram. Aðalhiutverk: Kim Bas- inger, JeffBridges og Rip Tom. Leik- stjóri: Robert Benton. 1987. Bönnuð börnum. Maltin gefur ★ ★★ og Myndbandahandbókin gefur ★ ★'A 1.40 ► Dagskrárlok Ævintýrí Kíkóta og Sancho Panza Myndafíokkur- inn um riddarann sjónumhrygga er byggður á verki Miguels de Cervantes SJÓNVARPIÐ Kl. 21.30 í kvöld hefur göngu sína spænskur mynda- flokkur um ævintýri riddarans sjón- umhrygga, Don Kíkóta, og meðreið- arsvein hans, Sancho Panza. Myndaflokkurinn er byggður er á verki Miguels de Cervantes, sem komið hefur út í íslenskri þýðingu Guðbergs Bergssonar. Framleið- endur myndaflokksins segjast fylgja bókinni í smáatriðum og smám saman koma í ljós skapgerð- arbrestir og geðveila riddarans, sem þó nær að hrífa Sancho með sér á hugarfluginu. Cervantes var mikill háðsádeilumeistari og líklega er það hinn lúmski húmor í verkinu sem á mestan þátt í vinsældum þess. Seinni þættimir íjórir, sem eru tæplega klukkustundarlangir, verða sýndir á mánudagskvöldum frá og með 11. janúar. Don Kíkóti - Riddarinn sjónum- hryggi, Don Kíkóti.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.