Morgunblaðið - 21.01.1993, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. JANÚAR 1993
5
Úðaði ryð-
varnarefni
yfír bíl fjöl-
skyldunnar
Ryðvarnarefni var úðað yfir
bifreið í Arbæjarhverfi í fyrri-
nótt. Lögreglan handtók mann,
grunaðan um verknaðinn, en hann
hefur haft í hótunum við fjölskyld-
una sem á bílinn frá því að dóttir-
in á heimilinu sleit samvistir við
hann.
Um miðnætti hringdi fjölskyldu-
faðirinn í lögregluna og kvaðst hafa
grun um að ákveðinn maður ætlaði
að skemma bíl hans um nóttina. Um
kl. 3 hringdi hann aftur og kom þá
í ljós að búið var að úða ryðvarnar-
efninu yfir bílinn. Þá var hótunarbréf
í póstkassa fjölskyldunnar.
Lögreglan handtók mann skömmu
síðar, sem er grunaður um verknað-
inn. Hann hefur ónáðað fjölskylduna
um tveggja mánaða skeið, eða frá
því að dóttirin sleit samvistir við
hann. Vegna sífellds símaónæðis sem
hann stóð fyrir, tók Póstur og sími
af honum símann, en þá sendi hann
hótunarbréf í staðinn.
Maðurinn neitaði öllum sakargift-
um. Mál hans er áfram til meðferðar
hjá lögreglu.
Luktar-
Gvendur
hvarf
á braut
LUKTAR-Gvendur hvarf úr
Perlunni á þriðjudag, en þar
hafði hann verið um tíma.
Luktar-Gvendur var tréskurð-
arverk eftir sænskan listamann
og hafði því verið komið fyrir í
kaffiteríu Perlunnar. Það þótti
hins vegar ekki heppilegur stað-
ur og var Gvendur fluttur að
salernisdyrum. Þar virðist hon-
um hafa leiðst, því hann hvarf
á þriðjudag. Líklegt þykir að
einhver hafi haft hann á brott
með sér. Ekki er vitað hvert tjón-
ið er við hvarf Gvendar, en lista-
maðurinn hafði óskað tilboða í
verkið.
Hæstiréttur
staðfestir
saksóknar-
vald RLR
Áréttað að aðilar séu
jafnréttháir fyrir dómi
HÆSTIRÉTTUR staðfesti í gær
úrskurð Sverris Einarssonar hér-
aðsdómara að hafna frávísunarkr-
öfu Magnúsar Thoroddsens hrl.,
verjanda manns sem ákærður hef-
ur verið fyrir að kveikja í Klúbbn-
um. Hins vegar er áréttað í dómi
Hæstaréttar í málinu að þess beri
að gæta vandlega að aðilar séu
sem jafnast settir fyrir dómi og
kemur fram að tilefni þeirrar
áréttingar sé það að verjandanum
hafði þá fyrst verið afhent gögn
málsins þegar hann mætti til þing-
haldsins þar sem fjallað var um
frávísunina.
Synjun frávísunarúrskurðarins var
staðfest með tilvísun til forsendna
héraðsdómarans og sérstaklega er
tekið fram að Hæstiréttur telji að
skýra beri 29. grein laga um með-
ferð opinberra mála á þann veg að
rannsóknarlögreglustjóra sé eins og
öðrum lögreglustjórum heimilt að
fela löglærðum starfsmönnum sínum
rekstur þeirra mála sem ríkissak-
sóknari felur embætti hans saksókn í.
Morgunblaðið/Sverrir
Borgin opnuð á ný
Hótel Borg var opnuð á ný sl. þriðjudagskvöld eftir
margra mánaða lokun. Tómas Tómasson veitinga-
maður keypti þetta fornfræga hótel á síðasta ári og
hefur hann látið framkvæma gagngerar endurbætur
á hótelinu, bæði á herbergjum og veislusölum. Eflaust
fagna flestir Reykvíkingar því að Borgin skuli hafa
verið opnuð á ný og engir þó meira en fastagestir
hótelsins, sem aftur eru sestir við gömlu borðin sín
í matsalnum.
Aiusuisse í Sviss
Hættir
í hrááli
Ziirich. Frá Önnu Bjarnadóttur, fréttarit-
ara Morgunblaðsins.
ALUSUISSE-Lonza hyggst hætta
hráálsframleiðslu í Steg í Sviss
haustið 1994. Það mun reka
steypuskála áfram í kantónunni
Wallis en kaupa hráál á opnum
markaði fyrir álvinnsluna þar. Um
hundrað manns mun missa vinn-
una þegar framleiðslunni verður
hætt.
Álverið í Steg framleiðir fyrst og
fremst fyrir véla-, bygginga- og bif-
reiðaiðnaðinn. Eftirspum hefur dregist
saman og ástandið í áliðnaðinum al-
mennt er auk þess slæmt vegna of-
framleiðslu og lágs verðs. Svissneska
fyrirtækið hefur því ákveðið að hætta
óarðbærri hráálsframleiðslu þar. Það
mun framleiða hráál áfram á íslandi,
í Noregi og Þýskalandi.
Alusuisse var frumkvöðull í sviss-
neska áliðnaðinum þegar það hóf ál-
framleiðslu í Neuhausen fyrir rúmum
hundrað ámm. Það rak einnig álver í
Chippis þangað til fyrir nokkmm
ámm. Það er eina fyrirtækið sem enn
stundar hráálsframleiðslu í Sviss og
iðnin mun leggjast niður í landinu
þegar framleiðslunni verður hætt.
(
I
vorar
insveum
Með hœkkandi sól hristir fólk af sér skammdegisdrungann
og lœtur hugann reika til komandi vors.
I hugskoti geymum við angan afgrösum, trjdm og blómum.
Laxinn fer að ganga í Elliðaámar og jafnvel
bragðlaukamir takafjörkipp.
Því er tilvalið að koma saman og gera sér dagamun í
fiskihlaðborðinu okkar, sem við bjóðum í hádeginu á
fimmtudögum og föstudögum.
Verið velkomin í Óðinsvé.
Við erum alltafí sólskinsskapi, í hvaða veðri sem er.