Morgunblaðið - 21.01.1993, Page 23

Morgunblaðið - 21.01.1993, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. JANÚAR 1993 23 BILL (I.IYI'ON SETTUR I EMBÆTTI FORSETA BANDARIKJANNA Lífs- glaðir áhorf- endur Washington. Frá Snævari Hreins* syni. ÞOTT fólk hafi beðið tímun- um saman eftir að vera vís- að inn á áhorfendasvæðið fyrir framan þinghúsið hér í Washington virtist engum vera gramt í geði. Menn virtust vera ákveðnir í að skemmta sér á þessum há- tíðardegi. Þó það hafi verið nokkuð kalt á meðan á at- höfninni stóð, var hvergi ský að sjá og veður hið besta. Fólk var yfir höfuð kurteist og þótt þröngin hafi verið mikil var augljóst að þolinmæði og gott skap var uppskrift dagsins. Lögregluþjónarnir sem voru á hveiju götuhorni virtust vera þeir einu sem ekki höfðu tilefni til að vera í góðu skapi. Þeir höfðu í nógu að snúast við að vísa mannfjöldanum á réttan stað á áhorfendasvæðinu. Bob og Lorraine Heidie frá Michigan-ríki sögðu aðspurð um það af hveiju þau væru til- búin til að ferðast alla þessa leið til að vera viðstödd er Bill Clinton sór embættiseið forseta Bandaríkjanna: „Þetta er nokk- uð sem við getum seinna meir sagt barnabörnum okkar frá.“ Melissa Brown, Patty Heuer og Lindsey Llewllyn eru fyrr- verandi bekkjarsystur Chelsea, 12 ára gamallrar dóttur Bill og Hillary Clinton. Þær kváðust vera mjög ánægðar fyrir hönd Chelsea og sögðust nokkuð vissar um að hún myndi taka þessum breytingum í lífi sínu með stakri ró. Það er athyglisvert hversu margir voru tilbúnir til að leggja á sig umtalsvert erfiði þótt ekki væri útsýnið alls stað- ar jafn gott. Sumir sátu jafnvel innan um mannfjöldann með hitabrúsa og snarl og virtust ekki hafa nokkurn áhuga á því sem var að gerast á þrepum þinghússins. Það skiptir víst minnstu hvað menn heyra eða sjá við athafnir sem þessar. Aðalatriðið er að geta sagst hafa verið viðstaddur. Reuter Vinarkveðja Chelsea Clinton, dóttir forset- ans, klappar Millie, hundi Ge- orge Bush, fyrrverandi forseta, áður en faðir hennar sór emb- ættiseiðinn. Millie var talsvert í sviðsljósinu í embættistíð Bush, því fjölmiðlar sýndu henni mikinn áhuga. Clinton sver embættis- eiðinn Bill Clinton sver embættiseiðinn með Hillary konu sína og Chelsea, dóttur sína, sér við hlið. William Rehnquist, forseti hæstaréttar Bandaríkjanna, las honum eiðinn. í inn- setningarræðu sinni hvatti hann Banda- ríkjamenn til að hræðast ekki breyt- ingar sem nú færu í hönd. „Það er ekk- ert svo slæmt við Bandaríkin að hið góða við landið lækni það ekki,“ sagði forsetinn. Clinton boðar breytingar og endurnýjun í innsetningarræðu Bandaríkj amemi færí fórnir í þágn umbóta Washington. Reuter. BILL Clinton, forseti Bandaríkj- anna, sagði i ræðu, sem hann flutti i gær þegar hann var sett- ur i embætti forseta, að Banda- ríkjamenn yrðu að búa sig undir breytingar og færa fórnir til að koma Bandaríkjunum aftur á réttan lgöl. „Ég skora á nýja kynslóð banda- rískra ungmenna að liggja ekki á liði sínu í þjónustu við aðra - að starfa af hugsjón við að hjálpa börn- um sem eiga bágt, að sýna þeim umhyggju sem þurfa á aðstoð að halda, að sameina aftur sundruð samfélög,“ sagði Clinton, 42. for- seti Bandaríkjanna. Ræða forsetans þótti minna á ræðu, sem John F. Kennedy flutti þegar hann tók við embætti forseta árið 1961, og Clinton minntist einn- ig á Thomas Jefferson, einn af helstu höfundum Sjálfstæðisyfírlýs- ingarinnar. „Thomas Jefferson taldi að til að varðveita undirstöður lands okkar þyrftum við öðru hveiju að koma á róttækum breytingum. Við skulum taka þeim opnum örmum.“ „Það er ekkert svo slæmt við Bandaríkin að hið góða við landið lækni það ekki,“ sagði forsetinn ennfremur og þau orð þóttu minna á Ronald Reagan, fyrrverandi for- seta. Clinton lagði þó höfuðáherslu á að kynslóðaskipti hefðu orðið í Hvíta húsinu og eins og í kosninga- baráttunni var honum tíðrætt um að nú færi í hönd tími breytinga, endurnýjunar og umbóta. „Við lofum að tímabil þráteflis og undanhalds er liðið - nýtt tíma- bil bandarískrar endurnýjunar er hafið. Við verðum nú að fram- kvæma það sem engin kynslóð hef- ur gert íyrr: við þurfum að fjár- festa meira í eigin fólki og eigin framtíð og um leið að minnka gífur- legar skuldir okkar. Þetta verður ekki auðvelt og krefst fórna. En þetta er hægt og unnt er að gera það þannig að sanngirni sé gætt.“ Hróp valda og forréttinda yfirgnæfi ekki rödd fólksins Clinton þakkaði fyrirrennara sín- um, George Bush, „fyrir hálfrar aldar þjónustu við Bandaríkin“. Hann fjallaði ekki um framkvæmd stefnu sinnar í smáatriðum en vakti máls á nokkrum meginþemum Ross Perots, sem fékk fleiri atkvæði í forsetakosningunum en nokkur annar óháður frambjóðandi frá The- odore Roosevelt árið 1912. „Til að endurnýja Bandaríkin verðum við blása nýju lífi í lýðræð- ið,“ sagði hann. „Þessi fallega höf- uðborg, eins og allar höfuðborgir frá upphafi siðmenningar, er vett- vangur ráðabruggs og hagsmuna- pots. Áhrifamiklir menn ota sínum tota og hafa sí og æ áhyggjur af því hver sé í hlýjunni og hver í kuldanum, en gleyma fólkinu sem með erfiði sínu og svita heldur þeim uppi. Bandaríkjamenn eiga betra skilið. .. Við skulum einsetja okkur að koma á umbótum í stjórnmálun- um þannig að hróp valda og forrétt- inda yfirgnæfi ekki rödd fólks- ins.“ Sfi KOTASÆLA fitulítil og freistandi Þessi fitulitla og kalkríka afurð býr yfir óþrjótandi fjölbreytni: Hún er afbragð ein sér, frábær ofan á brauðið með t.d. kryddjurtum, gæðir súpuna rjómabragði og gefur sósunni á grænmetissalatið fyllingu og ferskleika. KOTASÆLA - fitulítil og freistandi

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.