Morgunblaðið - 21.01.1993, Page 29

Morgunblaðið - 21.01.1993, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. JANÚAR 1993 29 Euikur Björnsson læknir - Minning Mágur minn, Eiríkur Bjömsson, læknir í Hafnarfirði, lést 10. jan- úar á hjúkrunardeild Hrafnistu þar í bæ. Hann var fæddur á Karlsskála við Reyðarfjörð, sonur Bjöms bónda Eiríkssonar og konu hans Guðrúnar Þorsteinsdóttur. For- eldrar hans em af þekktum bændaættum austan lands, en ættir kann ég ekki að rekja. Hann ólst upp á Karlsskála í systkinahópi, en þau vora sex. Á undan honum era farin Sigur- björg, Sigríður og Jón. Eftir lifa Þorsteinn og Helga Árdal. í bemsku og æsku stundaði Eiríkur algeng sveitastörf, en varð stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík 1919, og kandídat frá læknadeild Háskóla íslands 1926. Þá hafði taugaveiki tafíð hann allmjög í námi. Strax að námi loknu varð hann staðgengill hér- aðslæknis í Ólafsvík meðan hann sat á Alþingi, en fór að því loknu á fæðingadeild Ríkisspítalans í Kaupmannahöfn. Það var skylda íslenskra kandídata til að fá lækn- ingaleyfí. Hann dvaldi síðan um skeið við framhaldsnám á ýmsum spítölum í Kaupmannahöfn. Eftir heimkomuna vann hann læknis- störf í Ólafsvík, Hróarstunguhér- aði og á Neskaupstað. Árið 1933 settist hann að í Hafnarfírði og var heimilislæknir þar meðan kraftar entust, eða fram um átt- rætt. Fyrstu mörg ár gangandi að nóttu sem degi, en síðari árin ók hann bíl. Þá var hann skóla- læknir í áratugi og skólatannlækn- ir. Allt lék í höndum hans. Sumar tannfyllingar hans hafa enst í 20-30 ár. Þetta er sagt af eigin reynslu. 9. febrúar 1929 kvæntist Eirík- ur Önnu systur minni, dóttur Ein- ars bónda Friðrikssonar á Hafra- nesi við Reyðaríjörð og konu hans Guðrúnar Hálfdanardóttur. Anna fæddist 5. október 1903 og dó 1. maí 1988. Þau eignuðust tvö böm: Bjöm skrifstofumann í Reykjavík, kvæntan Hjördísi Halldórsdóttur hjúkranarfræðingi og Guðrúnu tækniteiknara hjá Orkustofnun. Hún var gift Hafliða Andréssyni, framkvæmdastjóra Sjálfstæðis- hússins. Hann dó 1970. Afkom- endur Eiríks og Önnu era 12. Hjónaband Eiríks og Önnu var einstaklega farsælt, svo að aldrei bar skugga á. Eiríkur var mjög vel gerður andlega og líkamlega. Meðalmað- ur á hæð, fríður sýnum og bar sig vel. Greindur, ræðinn og málhag- ur. Las mikið, einkum íslenskar bókmenntir, eftir því sem tími vannst til. Hafði ákveðnar skoðan- ir og gat haldið þeim fram af festu, jafnframt sanngimi og skilningi á skoðunum annarra. Skipti aldrei skapi svo séð væri. Reiddist sjald- an, nema hann sæi níðst á þeim sem minna máttu sín, en gat þá verið harður í horn að taka. Aldr- ei niðraði hann öðrum eða talaði illa um nokkum mann. Þau hjón bjuggu sér fallegt heimili að Austurgötu 41 í Hafnar- fírði. Þar bjó Eiríkur til fallegan garð með fjölda sjaldgæfra plantna víðs vegar að. Þar var ekkert nema úfíð hraun, sem hann reif upp með jámkarli og gróður- setti, sléttaði og ræktaði fram á * FLÍSAR írA IU Jóll! ffl Stórhöfða 17, við Gullinbrú, sfmi 67 48 44 gamals aldur. Óteljandi era þær vinnustundir, svo að hans nánustu þótti stundum nóg um, en hann hafði yndi af. Eiríkur fylgdist vel með í fræði- grein sinni og fór margar ferðir, einkum til Englands og Danmerk- ur, til að kynna sér nýjungar í læknisfræði. Hann var mikill læknir, heim- ilislæknir í þessa orðs fyllstu merk- ingu: Lét sér ekki nægja að vitja sjúklinga einu sinni, þegar hann var kallaður, heldur fylgdist áfram með þeim óbeðið, meðan þess gerðist þörf. Varð vinur margra fjölskyldna og lét sér annt um þær í blíðu og stríðu. Á fýrri hluta starfsævi hans vora ekki komin á vaktaskipti í þeim mæli sem síðar varð. Heimil- islæknar þurftu því oftast að sinna sjúklingum sínum jafnt á nóttu sem degi. Veit ég að hans verður saknað af mörgum eldri Hafnfírð- ingum, sem nú rifj'a upp minning- ar um sinn gamla heimilislækni. Þegar elli og þróttleysi ágerðist fluttust þau Anna fyrir nokkram áram á Hrafnistu. Eftir lát Önnu hefír Eiríkur dvalist á hjúkranar- deildinni, þar sem hann naut frá- bærrar umönnunar og aðhlynning- ar. Lét hann oft í ljós þakklæti til hjúkranarfólksins og annars starfsfólks, og vil ég nú fyrir hönd aðstandenda flytja þessu góða fólki innilegar þakkir. Eiríkur hefír verið í hjólastól síðustu árin. Sjónin dapraðist og hefír hann lítið getað lesið. En hann fylgidst vel með í útvarpi. Hugsun, minni og dómgreind hélt hann óskertu fram á síðustu daga. Tveim sólarhringum fyrir andlát fékk hann heilablóðfall og jafn- framt lungnabólgu, missti þá fljót- lega meðvitund og dó án þjáninga, að því er séð varð. Flýt þér, vinur, í fegra heim. Krjúptu að fótum friðarboðans og fljúgðu á vængjum morgunroðans meira að starfa Guðs um geim. (Jónas Hallgrímsson) Blessun Guðs fylgi þessum milda og hógværa manni og góða lækni á nýjum leiðum. Bálför Eiríks var gerð 20. jan- _ úar í kyrrþey að eigin ósk. Friðrik Einarsson. VERÐIÆKKUN mtiam Sgf"" DAGA SKYNDiSALA bmjR fetfar ervJ;u?sem aklæh Óirúlegt úrval aí vöndupu áídæði. Verðlækkun á öllum vörum í versluninni, aðeins í 3 daga, fimmtudag, föstudag og laugardag. Opið laugardag frá kl. 10-16. LYSTADUN-SNÆLAND hf ^óðj Skútuvogi 11 124 Reykjavík • Sími 814655 / 685588 Sendum í póstkröfu um land allt 'kHjj.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.