Morgunblaðið - 21.01.1993, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 21.01.1993, Qupperneq 34
34 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. JANUAR 1993 seei aa Fanney Dagmar Krist- jánsdóttir — Minning Mér virðist oft sem fólk hafi tap- að hinum sanna tilgangi lífsins í nútímans neyslu- og lifs„gæða“ kapphlaupi. Fólk hefur misst sjónar á því ljósi sem á að vera leiðarljós- ið. Við þrýstum ekki bara á ein- hvem hnapp og leiðin er upplýst, nei, svo auðvelt er það nú ekki. Við verðum að tendra ljósið með þeim eldi er býr í hjarta okkar, það er hið sanna ljós. Við sjáum ekki ljós- ið, en vissulega vitum við af tilvist þess, það var okkur gefið með líf- inu. Tilgang lífsins höfum við þá fundið er við lítum ljósið sjálf aug- um. Þessi eiginleiki er okkur öllum gefm, en hirðuleysislega fáir hirða um hann. Sú kona sem ég vil nú minnast, var einmitt þessari gáfu gædd. Hún fann að sú innri gleði, að geta glatt aðra með sínum innilega hlýleik, fjörgaði ljósið í hjörtum hjá hverjum þeim er naut umönnunar hennar. Megi hún nú njóta ávaxtar hlýju sinnar. Mér er því þakklæti í efst í huga þeim er gaf slíkan ljósgjafa sem Fanna amma var. Að endingu, bið ég góðan Guð að vaka yfir og vera með Friðriki afa, og hann styrki hann til framtíð- arinnar. Baldur Gautur Ég á erfitt með að sætta mig við þá hugsun að eiga eftir að fara aftur niður á Grettó með pabba til að heimsækja afa án þess að amma sé þar líka til að taka á móti okkur með hlýju og væntumþykju. Ég átti margar ógleymanlegar stundir með henni, þar sem við sát- um í eldhúsinu yfir kaffibolla og töluðum saman og pabbi og afi famir inn í stofu að tala um stjóm- mál. Amma fræddi mig um hluti, sem einhvem veginn hafði aldrei verið talað um, sagði mér frá frænd- fólki mínu, sem ég hafði ekki náð að kynnast, gömlum sveitungum sínum ofan af Kjalamesi bæði lífs og liðnum. Þetta vom mér ógleym- anlegar stundir. Eftir því sem árin liðu varð Fanna-amma ekki bara amma mín heldur einnig vinur, sem gaman var að tala við og hlusta á. Pijónaskap- ur var t.d. eitt af því sem við gátum alltaf talað um, blöðum var flett og mynstur, útpijón og pijónaskap- ur skoðaður. Osjaldan var maður sendur heim með útpijónaða peysu, sokka, vettlinga, heklað teppi eða annað, sem alltaf var vel þegið. Amma hefur átt stóran þátt í að okkur systkinunum var hlýtt allan ársins hring hvort sem var úti á göngu, á ferðalögum eða heima við sjónvarpið. Eitt af því, sem ég verð ömmu ævinlega þakklát fýrir er að hún losaði mig undan mikilli drauga- hræðslu, sem hrelldi mig þegar ég var yngri. Tal okkar hafði borist að myrkrinu. Hún sagði mér frá því þegar hún var yngri og þurfti að fara á milli húsa á Álfsnesi eða milli bæja ásamt systkinum sínum og þá jafnvel stundum ein. Þá væru bæimir ekki jafnvel upplýstir eins og nú. Ég sá þá fyrir mér kvöldin, allt orðið dimmt, kolsvart og allt iðandi í draugum og alls kyns önd- um og ég spurði hana hvort hún væri ekki hrædd við drauga. Nei, sagði hún, maður hefur enga ástæðu til að vera hræddur við drauga, miklu heldur við lifandi fólk, sem getur gert manni illt. Draugar gera manni ekkert illt. Eftir þetta leið mér miklu betur því nú vissi ég að ég hefði ekkert að óttast. 0«Dy Þeir sem þekktu ömmu, vita hvernig hún var og ætla ég því ekki að lýsa henni, en þetta er hluti af því sem mér fannst ég eiga af henni. Margar góðar minningar hafa kviknað á meðan þetta er skrifað, einlæg samtöl okkar, þar sem það var rætt, sem okkur lá á hjarta, það sem ég lærði af henni, hvað hún fylgdist vel með og var óhrædd við að spyija og segja sína skoðun á mörgu í þessu lífi. Mér mun alltaf verða minnis- stæðust hlýjan, áhuginn, væntum- þykjan og vináttan, sem ég fann hjá henni. „Þegar þú ert sorgmæddur, skoð- aðu þá aftur huga þinn, og þú munt sjá, að þú grætur vegna þess, sem var gleði þín.“ (Spámaðurinn e. K. Gibran.) Fanna. Hin langa þraut er liðin, nú loksins hlaustu friðinn og allt er orðið rótt. Nú sæll er sigur unninn og sðlin bjðrt upp runnin á bak við dimma dauðans nótt. (V.Briem) Hún elsku amma er dáin. Hún lést á Borgarspítalanum mánudag- inn 11. janúar. Hún fæddist í Álfs- nesi á Kjalarnesi 22. desember 1909 og var hún ein af fimmtán bömum þeirra Kristjáns Þorkelssonar og Sigríðar Guðnýjar Þorláksdóttur. Árið 1936 giftist hún afa okkar, Friðrik Garðari Jónssyni lögreglu- þjóni, og áttu þau saman þijú böm. Á kveðjustund er margs að minn- ast. Góðar minningar um góða ömmu. Við minnumst þess alltaf þegar við fómm í heimsókn á Grett- t Elskulegur bróðir minn og mágur, EGILL ORMAR KRISTINSSON málari, Sólvallagötu 27, varð bráðkvaddur á heimili sfnu 19. janúar. Guðrún Kristinsdóttir, Sigurður Söebeck. t Móðir okkar og tengdamóðir, GUÐNÝ S. RICHTER, Óðinsgötu 8, sem lést 14. janúar, verður jarðsungin föstudaginn 22. janúarfrá Dómkirkjunni kl. 15.00. Blóm og kransar afbeðnir, en þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á öldrunar- deild Landakotsspítala. Fyrir hönd ættingja, + Systir mín, ÁSTA KRISTJÁNSDÓTTIR, Austurbrún 4, Reykjavík, lést í Landspítalanum 19. janúar. Fyrir hönd aðstandenda, Guðrún Kristjánsdóttir. Emil S. Richter, Erla Gunnarsdóttir, Sigvaldi Búi Bessason. + Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, EIRÍKUR BJÖRNSSON fyrrverandi læknir í Hafnarfirði, andaðist á Hrafnistu í Hafnarfirði 10. janúar. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Sérstakar þakkir til starfsfólks hjúkrunardeildar Hrafnistu f Hafnarfirði. + Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUNNLAUG JÓNSDÓTTIR, Vesturgötu 19, Guðrún Eiríksdóttir, Björn Eiríksson, Hjördís Halldórsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. lést í Borgarspítalanum 19. janúar. Jarðarförin auglýst síðar. Guðrún Gunnarsdóttir, Kolfinna Gunnarsdóttir, Þórlaug Gunnarsdóttir, Steindór Gunnarsson, Valgerður Gunnarsdóttir, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. + HALLFRÍÐUR ÞORKELSDÓTTIR kennari frá Jaðri, Bíldudal, Kleppsvegi 22, er látin. Sigurður Runólfsson. t Ástkær eiginmaður minn, sonur, faðir okkar, tengdafaðir og afi, HAFSTEINN DANÍELSSON vélstjóri, Klettahlfð 7, Hveragerði, lést 17. janúar. Útförin verður gerð frá Hveragerðis- kirkju laugardaginn 23. janúar kl. 14.00. Elsa Vigfúsdóttir, Sigurlfna Guðjónsdóttir, Danfel Hafsteinsson, Lise-Lotte Hafsteinsson, Heiðar Hafsteinsson, Sigríður Dögg Geirsdóttir, Sævar Hafsteinsson, Vivi Hafsteinsson, Hafsteinn S. Hafsteinsson, Berglind Lfney Hafsteinsdóttir og barnabörn. t Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, STEFANÍA GUÐRÚN GRÍMSDÓTTIR frá Húsavfk í Strandasýslu, Skjólbraut 1a, Kópavogi, verður jarðsungin frá Kópavogskirkju föstudaginn 22. janúar kl. 10.30. Katrfn Oddsdóttir, Guðjón Andrésson, Grímur S. Runólfsson, Sigríður Runólfsdóttir, Agnar Runólfsson, Óli S. Runólfsson, Guöbjörg Vilhjálmsdóttir, Ragnheiður Runólfsdóttir, Lýður Magnússon, barnabörn og barnabarnabörn. isgötuna til ömmu og afa. Þá vom þau ávallt mjög góð við okkur, allt- af var þar góðgæti á borðum. Við munum sakna þess að geta ekki farið í heimsókn hjá ömmu og hafa hana hjá okkur. Við biðjum algóðan Guð að styrkja afa á sorg- arstund og segjum: Minning um ömmu er ljós í lífi okkar. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Friðrik Fannar og Stefanía. Mig langar til að minnast ömmu minnar, Fanneyjar Dagmarar Krist- jánsdóttur, í örfáum orðum. Það var alltaf gott að koma í heimsókn til ömmu og afa og aldrei fór maður þaðan svangur. Ekkert gladdi ömmu meira en að sjá okkur bamabömin taka hraustlega til matar okkar, og stakk hún oftast að okkur einhveiju góðgæti þegar við fómm heim. Ég minnist þess að á síðasta afmælisdegi hennar, en þá kom öll fjölskyldan saman að venju, bað ég hana um að gefa mér uppskrift að einni af þeim ljúf- fengu tertum sem á boðstólunum vom. Amma bauðst þá strax til að baka eina fyrir mig, og þegar ég kvaddi laumaði hún að mér einni slíkri tertu. Ég vissi af gamalli reynslu að það þýddi ekkert að mótmæla, því að svona var hún amma. Amma var mjög myndarleg í höndunum og var hún iðulega að pijóna eða við einhveija handa- vinnu. Ég naut góðs af þessum myndarskap hennar, og þykir mér mjög vænt um að eiga þessa hluti eftir hana. Ég bið algóðan Guð að blessa minningu ömmu minnar og veita afa styrk til þess að bera þennan harm í fullvissu um að hún hafí fengið hvíld í faðmi drottins. Hulda Saga Sigurðardóttir. Amma var fædd í Álfsnesi á Kjal- amesi. Hún var dóttir hjónanna Kristjáns Þorkelssonar hreppstjóra og bónda þar og konu hans Sigríð- ar Guðnýjar Þorláksdóttur. Árið 1936 giftist hún Friðriki Garðari Jónssyni lögreglumanni í Reykja- vík, ættuðum frá Amarbæli á Fells- strönd í Dalasýslu. Þau eignuðust þijú böm. Þau em: Baldur bygg- ingafræðingur, f. 1938. Hann er kvæntur Selmu Jónsdóttur og eiga þau þijú böm og tvö bamaböm. Sigurður Kristján viðskiptafræð- ingur, f. 1945. Hann er kvæntur Unni Færseth og eiga þau þijú böm. Hildur Jóna húsmóðir, f. 1951. Hún er gift Sigfúsi Emi Ámasyni og eiga þau tvö böm. Þegar ég minnist ömmu er mér ofarlega í huga heimsóknir mínar sem lítils stráks á Grettisgötuna. Því margir leiðangrar mínir upp á gamla Framvöllinn og um bæinn enduðu þar. Eins og með marga unga menn þurfti ég að skoða mig um í heiminum og þá oft án þess að hafa látið vita af þessum ferðum heima fyrir. Ef ferðin hafði dregist á langinn vissi ég að fjölskyldan væri farin að leita mín og ég ætti ekki von á góðu þegar ég kæmi heim. Þá var það siður að enda ferðalagið á Grettó hjá ömmu, sem alltaf varði þessi ferðalög mín og minnti þá pabba á að þetta hefðu fleiri gert, bamið ætti ekki langt að sælqa flökkueðlið. Amma var sérlega myndarleg kona og góð amma og má segja að gestrisni hafí verið henni í blóð borin. Móttökumar vom alltaf höfð- inglegar hvort sem við komum óvænt eða okkur hafði verið sér- staklega boðið. Amma varð aldrei gömul kona þótt hún yrði 83ja ára. Hún var ungleg í sjón og raun. Ég þakka henni samveruna og bið Guð að blessa afa minn, sem hefur misst svo mikið. Jón Gunnar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.