Morgunblaðið - 10.02.1993, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. FEBRÚAR 1993
31
Minning
Finnur Bjamason
Fæddur 22. febrúar 1909
Dáinn 4. febrúar 1993
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin strið.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þðkk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skait.
(V. Briem.)
Elsku afi.
Mig langar með þessum orðum
að þakka þér allar góðu samveru-
stundimar í gegnum árin, sérstak-
lega eftir að þú fluttist á Hrafn-
istu. Það var alltaf gott að koma
til þín eftir vinnu og spjalla og
alltaf áttirðu mola í skápnum sem
gott var að gæða sér á.
Hvíl í friði.
Sigríður Andersdóttir (Sigga).
Fimmtudaginn 4. febrúar lést á
Hrafnistu í Reylqavík tengdafaðir
minn Finnur Bjamason. Margar
góðar minningar koma upp í hug-
ann.
Þegar ég kynntist Finni fyrr
rúmum tveimur áratugum bjó hann
ásamt tengdamóður minni, Fann-
eyju Guðmundsdóttur, á Braga-
götu 22. Finnur var þá matsveinn
á togaranum Júpiter. Hann hafði
áður verið gerður út frá Norðfirði
þar sem Finnur bjó og hét Gerpir.
Þegar Júpiter og Mars keyptu tog-
arann 1960 fluttist Finnur með
fjölskyldu sína til Reykjavík. Hann
var góður kokkur og mikið snyrti-
menni. Hann gekk fast eftir því
að skipveijar gengju vel um borð-
salinn og aðrar sameiginlegar vist-
arverur. Það var líka haft á orði
að Júpiter væri einn snyrtilegasti
togarinn í flotanum.
Þegar Finnur hætti á sjónum
um sjötugt fór hann að vinna við
ýmislegt heima hjá sér. Hann inn-
rammaði myndir fyrir ættingja og
vini, sagaði út og fleira. Finnur
var alltaf glaður og skipti sjaldan
skapi. Hann var mjög barngóður
og hafði ánægju af því að umgang-
ast böm. Ég leitaði oft til hans ef
börnin mín vom veik eða ég af
öðmm ástæðum þurfti á því að
halda að einhver væri hjá þeim
meðan ég var að vinna. Hann
fylgdi líka í tvo vetur yngsta syni
mínum, þá sex og sjö ára, í Tónlist-
arskóla. Þeir vom alltaf góðir vinir
og nutu samvistanna í ríkum mæli.
Þá bjó Finnur í Álftamýrinni svo
að stutt var á milli og sótti dreng-
urinn mikið í að fara til afa síns,
sem tók alltaf vel á móti honum.
Ég fann að drengurinn lærði margt
af afa sínum bæði í orði og verki.
Þegar Fanney dó 1985 fluttist
Finnur í Álftamýri 26 og bjó þar
þangað til hann fór inn á Hrafn-
istu 1989. Á meðan hann bjó í
Álftamýrinni gekk hann yfir í Ból-
staðarhlíð og tók hann þar af al-
hug þátt í handavinnu hjá Félags-
Séríneðingar
í blóiiiaskr«kyUngiiiii
vii) öll tækikrri
Skólavörðustíg 12,
á horni Berg'staóastrætis,
simi 19090
starfi aldraðra. Hann var þá líka
í kór og söng af mestu innlifun.
Hann hafði mikið yndi af söng og
tónlist. Hann langaði mikið til að
geta spilað á orgel sem hann átti
og hafði með sér á Hrafnistu.
Hann hafði aldrei lært neitt en
þekkti nóturnar og þráði mjög að
geta spilað. Honum þótti líka mjög
ánægjulegt ef einhver vildi spila á
það fýrir hann.
Finni leið mjög vel á Hrafnistu.
Hann var þar líka í handavinnunni
og óf þar margar mottur sem prýða
heimili ættingja og vina. Hann
kynntist þar mörgu fólki. Þar eru
margir gamlir sjómenn. Og gátu
þeir borið saman bækur sínar og
rætt um heima og geima. Finnur
hafði gaman af því að vera innan
um annað fólk. Hann skemmti sér
líka mjög vel sunnudaginn 31. jan-
úar þegar við fórum með hann á
Sólarkaffi hjá Norðfirðingafélag-
inu. Þar hitti hann marga gamla
kunningja að austan. Það var í
síðasta skiptið sem ég sá hann og
ég gleymi ekki þeim degi og því
hvað hann var glaður. Ég er þakk-
lát fyrir að hafa fengið að kynnast
Finni og þakka honum fyrir sam-
veruna. Inga Dóra, Hafþór og
Heiðar þakka líka afa sínum inni-
lega fyrir allar ánægjulegu sam-
verustundimar.
Helga Hansdóttir.
t
Eiginkona mfn og móðir okkar,
MARÍA K. PÁLSDÓTTIR
frá Höfða, Grunnavíkurhreppi,
lést f St. Jósefsspítala, Hafnarfirði, 9. febrúar.
Jarðarförin auglýst síðar.
Maríus Jónsson
og börn.
t
Maðurinn minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
SIGURGEIR FINNBOGASON,
Marfubakka 2,
Reykjavfk,
andaðist 8. febrúar í Hátúni 12.
Hulda Bertel Magnúsdóttir,
synir, tengdadóttir og barnabörn.
t
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma,
HALLDÓRA GUÐMUNDSDÓTTIR,
áður til heimilis á Brávallagötu 48,
Reykjavík,
lést á Hrafnistu í Hafnarfirði mánudaginn 8. febrúar.
Kristján G. Kristjánsson,
börn, tengdabörn og barnabörn.
t
Innilegar þakkir til þeirra, sem sýndu okkur samúð og vinarhug
við andlát og útför föður okkar, tengdaföður og afa,
ALFREÐS FRIÐGEIRSSONAR
frá Húsavík,
Álfhólsvegi 53,
Kópavogi.
Friðgeir Már Alfreðsson,
Gunnar Alfreðsson, Sigrún Sigurðardóttir,
Friðjón Alfreðsson, Margrét Jónsdóttir
og barnabörn.
t
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir og afi,
SIGURÐUR Þ. BJÖRNSSON
klæðskeri,
Goðatúni 21,
Garöabæ,
lést á heimili sínu 4. febrúar sl.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk
hins látna.
Sigurlaug Eðvaldsdóttir,
Kolbrún Sigurðardóttir,
Margrét Sigurðardóttir,
Guðrún Sigurðardóttir,
Erna Sigurðardóttir, Ómar Kjærnested,
Guðný Sigurðardóttir
og barnabörn.
t
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, tengdasonur, afi og
bróðir,
ÓLAFUR B. JÓHANNESSON,
Gyðufelli 10,
Reykjavík,
andaðist í Landspítalanum 8. febrúar.
Hjördfs Antonsdóttir,
synir, tengdadætur, tengdamóðir,
barnabörn og systir.
t
Ástkær faðir minn og afi,
ODDGEIR JÓNSSON,
lést 8. febrúar sl.
Jarðarförin fer fram frá Fossvogskapellu þann 16. febrúar
kl. 13.30.
Sigurður Nikulás Oddgeirsson,
Bent Georg Oddgeirsson,
Victorie Abelsen.
t
Ástkær sambýlismaður minn, faðir og bróðir,
VALDIMAR VALDIMARSSON
fyrrv. brunavörður,
Karlagötu 19,
Reykjavík,
lést af slysförum 9. febrúar.
Guðrún Svanhvít Sigurðardóttir,
Fanney Dögg Valdimarsdóttir,
Kristján Valdimarsson.
t
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
STEINÞÓR ÁSGEIRSSON
frá Gottorp,
lést í Landspítalanum 8. febrúar.
Kolbrún Steinþórsdóttir,
Auður Steinþórsdóttir, Emil Als,
Ásdfs Inga Steinþórsdóttir,
Þorgerður Kristjánsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Ástkær sonur, faðir og bróðir,
SIGTRYGGUR VILHJÁLMSSON
frá Þórshöfn,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 11. febrúar
kl. 13.30.
Kristrún Jóhannsdóttir,
Selma Rut Sigtryggsdóttir
og systkini hins látna.
t
Hjartkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
INGIBJÖRG JÓNSDÓTTIR
kennari,
áður Holtsgötu 11,
Hafnarfirði,
verður jarðsungin frá Hafnafjarðarkirkju fimmtudaginn 11. febrúar
kl. 15.00.
Jón Bergsson, Þórdís S. Sveinsdóttir,
Örn Bergsson, Svala Jónsdóttir,
Ólafur B. Bergsson, Ragna G. Þórsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Innilegar þakkir til allra, sem sýndu
okkur samúð og vinarhug við andlát og
útför eiginmanns míns, föður, tengda-
föður og afa,
ÓÐINSS. GEIRDALS,
Vallarbraut 9,
Akranesi.
Guðrún J. Geirdal,
Dröfn Lavik,
Njörður Geirdal,
tengdabörn, barnabörn
og barnabarnabörn.