Morgunblaðið - 25.03.1993, Síða 1
72 SIÐUR B/C
STOFNAÐ 1913
70. tbl. 81.árg.
FIMMTUDAGUR 25. MARZ 1993
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Reuter.
Sósíalistar á útleið
SÍÐASTI fundur ríkisstjómar sósíalista í Frakklandi var haldinn í gær.
Sósíalistar biðu mikinn ósigur í fyrri umferð þingkosninganna um helg-
ina. Ekki má birta skoðanakannanir milli umferða en framkvæmdastjóri
SOFRES-stofnunarinnar, sem er leiðandi á sviði skoðanakannana, sagði
í gær að líklega yrði sigur hægrimanna í síðari umferðinni jafnvel enn
meiri en búist hefur verið við. A myndinni má sjá þá Roland Dumas
utanríkisráðherra og Pierre Bérégovoy yfirgefa Elysée-höllina.
Jeltsín hættur víð að taka sér alræðisvald
Reynt að víkja Jeltsín
úr embætti á föstudag
Mnolrim Rni.fm* TKn Dn 11 Tnlnnmnnli
Moskvu. Reuter, The Daily Telegraph.
SPENNAN í Rússlandi jókst enn í gær í kjölfar þess að
Æðstaráðið hafnaði málamiðlunartillögxi frá Borís Jeltsín
Rússlandsforseta og ákvað að kalla saman fulitrúaþingið
til fundar á föstudag. Þá verður lögð fram tillaga, sem
hefur það að markmiði að víkja forsetanum úr embætti.
Fyrr um daginn höfðu vaknað
vonir um að hugsanlega myndi
lausn finnast á deilunni i kjölfar
þess að Jeltsín dró til baka fyrri
yfírlýsingar um að hann hygðist
taka sér alræðisvald og stjórna með
tilskipunum. Forsetinn sagðist þó
áfram stefna að því að halda þjóð-
aratkvæðagreiðslu um valdaskipt-
inguna í Rússlandi í næsta mán-
uði. Þá glæddi það vonir manna
að boðað var til fundar Jeltsíns,
Rúslans Khasbúlatovs, forseta full-
trúaþingsins, Viktors Tjernómyrd-
íns, forsætisráðherra, og Valerís
Zorkíns, forseta stjómlagadóm-
stólsins. Að þeim fundi loknum var
hins vegar ljóst að samkomulag
hefði ekki náðst. Khasbúlatov sagði
eftir fundinn að hann hefði kynnt
Jeltsín átta kröfur, þar á meðal að
ríkisstjórnin yrði stokkuð upp og
boðað til kosninga. Þá sagðist hann
einnig hafa krafíst þess að þeir
aðstoðarmenn Jeltsíns, sem hvöttu
forsetann til að halda sjónvarpsá-
varp sitt síðasta laugardag yrðu
látnir svara til saka.
Skömmu síðar samþykkti
Æðstaráðið, að beiðni Khasbúl-
atovs, að kalla saman fulltrúaþing-
Svínabú
íblokk
Pétursborg. Reuter.
HJÓN nokkur í Pétursborg
hafa keypt svin og landskika
til að hefja búskap en skortir
fé til brýnna landbóta og þau
neyðast því til að hafa svínin
í tveggja herbergja íbúð
sinni á þriðju hæð fjölbýlis-
húss.
Svínin eru tvö og geymd á
bak við timburstíu í öðru her-
bergjanna. Talsmaður heil-
brigðisnefndar Pétursborgar
kveðst ekki sjá „neitt sem
mælir á móti því að svín séu
geymd í einkahíbýlum". Öðru
máli gegnir um nágrannana,
sem kvarta sáran yfír fnyknum
frá svínunum, en hjónin segja
svín hreinlátari skepnur en
hunda. „Ef þú fínnur einhveija
lykt er það vegna þess að kló-
settið lekur. Þetta er ekki frá
svínunum," sagði húsfreyjan.
Atali!
RÚSLAN
Khasbúlatov
þingforseti
leggur á ráðin
í valdabarátt-
unni á fundi
Æðstaráðsins
í gær.
ið á föstudag til að ræða aðgerðir
„til vemdar stjórnarskránni". Ef
samþykkja á að víkja forsetanum
frá verða tveir þriðju þingmanna
að greiða slíkri tillögu atkvæði og
sögðu nánir aðstoðarmenn Jeltsíns
í gær að alls ekki væri víst að það
myndi takast.
Nái tillagan hins vegar fram að
ganga mun Alexander Rútskoj
varaforseti taka við forsetaembætt-
inu þegar í stað. Jeltsín hefur lýst
því yfír að hann muni ekki virða
slíka ákvörðun af hálfu þingsins
heldur stjóma ótrauður fram að
þjóðaratkvæðagreiðslunni.
Tvær skoðanakannanir, sem
birtust í gær, benda til að Jeltsín
njóti verulegs stuðnings meðal al-
mennings. í báðum könnunum
sögðust 40% hafa samúð með for-
setanum en einungis 15% með
Khasbúlatov.
Sjá einnig bls. 24-25.
Garrí Kasparov
Suður-Afríkustjórn viðurkennir að hafa smíðað kjarnorkuvopn
Bjóst við
titilmissi
„ÞAÐ eina sem ég vil segja, og
það á við um Nigel Short líka, er
að þetta er það sem búast mátti
við,“ sagði Garrí Kasparov í sam-
tali við Morgunblaðið í gær um
þá ákvörðun Alþjóðaskáksam-
bandsins (FIDE) að svipta hann í
raun heimsmeistaratitlinum.
FIDE tilkynnti í fyrradag að Kasp-
arov og Short hefðu fyrirgert réttin-
um til að tefla um heimsmeistaratitil-
inn í skák. Sagði í yfírlýsingu FIDE
að Rússanum Anatolíj Karpov, og
Holiendingnum Jan Timman yrði
boðið að tefla um heimsmeistaratign-
ina. Aðspurður um hvort hann teldi
að Karpov og Timman tækju því
boði sagði Kasparov einungis: „Það
er algjörlega þeirra mál.“
„Ég þykist vita að þeir Kasparov
og Short hafí þótt FIDE standa illa
að því að útvega nógu mikið verð-
launafé fyrir einvígið. En meira hlýt-
ur að hafa komið til,“ sagði Friðrik
Ólafsson fyrrverandi forseti FIDE.
„Kasparov er svo sem kunnur fyrir
skjótteknar ákvarðanir og hann hef-
ur ef til vill ekki alltaf hagað sér
skynsamlega. Short hefur mér funck
ist vera yfirvegaðri og velta hlutun-
um vel fyrir sér áður en hann hefur
komist að niðurstöðu. Þess vegna tek
ég meira tillit til að hann skuli ákveða
að heyja einvígið án afskipta FIDE.“
Sex sprengjum tortímt
að loknu kalda stríðinu
Reuter.
A
Atak gegn ofbeldi
DE KLERK forseti Suður-Afríku sagðist í gær ætla að kalla út vara-
liða í hernum til að aðstoða lögreglu við að binda enda á „villimanns-
lega“ ofbeldisöldu. Forsetinn kynnti tíu punkta áætlun sem lið í
baráttunni gegn pólitísku ofbeldi. Á myndinni má sjá hermann vopn-
aðan haglabyssu gæta barna á leið í skólann skammt frá Jóhannesar-
borg en öryggisgæsla hefur verið aukin til muna síðustu daga.
Höfðaborg. Reuter, The Daily Telegraph.
STJÓRN Suður-Afríku viðurkenndi í gær í fyrsta skipti opinberlega
að hafa haft kjarnorkuvopn undir höndum en að þeim hefði verið
eytt fyrir árið 1991. F.W. de Klerk forseti sagði á sérstökum þingfundi
í gær að ríkisstjórnin hefði ákveðið að gera allar upplýsingar varð-
andi kjarnorkuvopnaáætlun Suður-Afríku opinberar. „Hendur Suður-
Afríku eru óflekkaðar. Við ætlum ekki að fela neitt,“ sagði de Klerk.
Forsetinn sagði að Suður-Afríku-
menn hefðu smíðað alls sex sprengj-
ur og hefðu þær verið hannaðar fyr-
ir sprengjuþotur. Enginn tækni eða
búnaður hefði verið keyptur frá út-
löndum né heldur hefði tækniþekk-
ingarinnar verið aflað með njósnum.
A blaðamannafundi var de Klerk
spurður um dularfullan blossa sem
bandarískur gervihnöttur greindi á
Indlandshafí árið 1979 og hefur til
þessa verið túlkaður af mörgum sem
suður-afrísk tilraunasprenging,
framkvæmd með aðstoð ísraela.
Hann sagði að það hefði aldrei verið
fyllilega sannað að þarna hefði verið
um kjamorkusprengingu að ræða og
ef svo væri hefðu Suður-Afríkumenn
hvergi komið þar nærri.
Ríkisstjórn Suður-Afríku undirrit-
aði árið 1991 samkomulagið gegn
útbreiðslu kjamorkuvopna. De Klerk
sagði að stjórn sín hefði gert Alþjóða
kj arnorkumálastofnuninni fyllilega
grein fyrir hveiju einasta grammi
af geislavirku efni í landinu. Hins
vegar hefði verið ákveðið að gera
kjarnorkuvopnaáætlunina opinbera á
þessu stigi til að stemma stigu við
„rógsherferð ákveðinna ríkja“ í garð
Suður-Afríku.
Ákvörðunin um smfði kjamorku-
vopna var tekin árið 1974 í kjölfar
þess að Sovétmenn fóru að sækjast
eftir auknum áhrifum í suðurhluta
álfunnar og Kúbveijar réðust inn í
Angóla. „Einangrun Suður-Afríku
gerði það að verkum að við gátum
ekki treyst á utanaðkomandi aðstoð
yrði ráðist á okkur,“ sagði de Klerk.
Hann sagði að aldrei hefði staðið til
að nota sprengjumar; þær hefðu
verið smíðaðar í fælingarskyni.