Morgunblaðið - 25.03.1993, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 25.03.1993, Blaðsíða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ DAGLEGT LÍF FIMMTUDAGUR 25. MARZ 1993 Gelda þarf ketti til að losna við lykt Þó kettir geti verið hinar vænstu félagsverur í íbúðarhverfum, eiga þeir til að taka upp á hinum verstu ósiðum sem okkur mann- fólkinu er lítið gefið um. Daglegt líf frétti t.d. á dögunum af húsmóður í Kópavoginum sem kvartaði í tíma og ótíma undan katta- hlandslykt við aðalinngang íbúð- arhúss síns. Það ifcvar sama hversu vel var þvegið og skrúbbað. Ekkert dugði. Eftir nokkra eftir- grennslan kom í ljós að sömu kett- imir í hverfínu gerðu sig ávallt heimakomna við útidyr húsmóður- innar. Það var hinsvegar ekki fyrr en að húsmóðirin hellti klór á stétt- ina fyrir utan að þeir létu sér segj- ast og hafa ekki sést síðan í slíkum erindagjörðum. Oe samkvæmt upp- lýsingum frá Leiðbeiningastöð heimilanna er skothelt ráð að brytja niður lauk og strá á svæðið. Lykt- ina forðast kettimir eins og heitan eldinn. Að sögn Katrínar Harðardóttur, dýralæknis hjá Dýraspítalanum, duga hinsvegar slík ráð illa til lengri tíma litið. Þetta væru fress- kettir, sem væm að tileinka sér ákveðin yfírráða- svæði og þá gjam- an í leit að læðum. „Eina ráðið er að gelda þessa ketti. Þá linnir þessu fyrst. Það em hinsvegar til alls konar efni í versl- unum sem eiga að fæla burtu ketti, en ég hef aldrei heyrt um að þau virkuðu sem skyldi," segir Katrín. Lyktina má rekja til hormónavökva, sem þeir gefa frá sér. ■ UPPSKRIFT VIKUNNAR Nýr matreiðslu- og vínklúbbur hjá AB ALMENNA bókafélagið er að hleypa af stokkunum nýjum matar- og vínklúbbi í samvinnu við matreiðslumeistarann Sigurð Hall. Klúbb- urinn er sá fyrsti sinnar tegundar hér á landi og er honum bæði ætlað að höfða til byrjenda í matargerð og þeirra sem lengra eru komnir í listinni, að sögn Sigurðar. í hveijum mánuði fá klúbbfélag- ar senda matreiðslu- eða vínbók. Fyrsta bókin, sem hefur að geyma mexíkóska rétti, verður send út um miðjan apríl, en ætlunin er að flakka sem víðast um heiminn í matargerð- inni. Á sama tíma verður mexíkósk- ur mánuður á veitingastaðnum Jón- atan Livingstone máv þar sem boð- ið verður upp á mexíkóskan mat og þarlend skemmtiatriði. 1 Hverri bók fylgir Sælkerinn, sem er rit klúbbsins, þar sem fram koma helstu upplýsingar um starfsemi klúbbsins hveiju sinni. Veitingahús mánaðarins verður kynnt og ýmis sérkjör sem klúbbfélögum stendur til boða. í því sambandi má nefna afsláttarkjör í verslunum, veitinga- húsum og af matreiðslu- og vín- smökkunarnámskeiðum, sem í bí- gerð eru. Haldin verða sælkera- kvöld hérlendis og farið verður í sælkeraferðir erlendis. Fyrsta sæl- keraferðin verður að öllum líkindum farin til Hollands í maí nk. Þá mun Sigurður verða klúbbfélögum til halds og trausts í matargerðinni, en hægt verður að leita ráðgjafar hjá honum. Að sögn Sigurðar er ætlunin að leggja sérstaka rækt við lands- byggðina. Oft heyrðust kvartanir um að hráefni, sem til þarf í hina ýmsu rétti, fáist ekki í verslunum úti á landi. Til þess að mæta þörfum klúbbfélaga úti á landsbyggðinni hefur verið samið við heildsala um að útvega það efni sem til þarf. Fyrir klúbfélaga kostar mánað- arpakkinn 1.290 krónur. Að lokum biitast hér uppskriftir að mexíkósk- um svínarifjum sem fyrsta bókin hefur m.a. að geyma: Mexíkóskar svínarifjur (handa fjórum) 2 hvítlauksgeirar, flysjaðir og skomir í tvennt 4 svínariíjur 2 msk. olía Mexíkóskar svínarifjur. 1 meðalstór avókadó til skrauts 1 msk. sítrónusafí Sósa 3 fersk græn chilepiparaldin, fín- söxuð 750 g tómatar, forsoðnir, flysjaðir, saxaðir 2 litlir laukar, saxaðir 1 hvítlauksgeiri salt Nuddið hvítlauknum yfír rifjum- ar. Byrgið og setjið í kæliskápinn í 5 klst. Setjið chilepiparaldinin í pott til að búa til sósuna, hellið vatni yfír og komið upp suðu. Sjóðið í 3 mínútur. Hellið af. Fjarlægið stönglana og skerið piparaldinin langsum í tvennt. Fleygið hvíta mergnum og fræjunum. Setjið pip- araldinin í matvinnsluvél og látið tómatana saman við ásamt lauk, hvítlauk og salti og hrærið þetta jafnt. Setjið til hliðar. Hitið olíuna á pönnu. Steikið rifl- umar í 5 mínútur á hvorri hlið eða þar til brúnast. Hellið chilepipar- blönduninni yfír og látið krauma án loks í 15 mínútur. Flysjið avókadó, skerið það í tvennt og takið steininn. Sneiðið og ýrið sítr- ónusafa yfír. Leggið rifjumar á heitan framreiðsludisk, ausið sós- unni yfír og skreytið með avókadó. Jl VIKUNNAR Hvað kosta páskaeggin? 41 Verðkönnun í stórverslunum og mörkuðum á höfuðborgarsvæðinu ík Egg nr. 2 frá Mónu Strumpaegg frá Nóa-Síríusi Egg nr. 10 frá Mónu Egg nr. 6 frá Nóa-Síríusi Nóatún 298,0 939,0 1.638,0 1.959,0 Hagkaup v. Eiðistorg 324,0 999,0 1.789,0 2.114,0 Kaupstaður 324,0 999,0 - 1.998,0 Mikligarður 324,0 999,0 1.789,0 1.998,0 Fjarðarkaup 324,0 - 1.788,0 2.114,0 Páskaeggin lækka eftir því sem nær dregur páskum Verðstríð er í uppsiglingu á páskaeggjamarkaði og dæmi eru um að verð á páskaeggjum breytist frá degi til dags. Morgunblaðið gerði skyndiverðkönnun á fjórum tegundum páskaeggja í fimm verslunum sl. þriðjudagsmorgun, en rétt er að benda á að verðin kunna að vera önnur nú í sumum verslunum. Sem dæmi má nefna að páska- eggjaverð í Fjarðarkaupum lækk- aði í gærmorgun. Egg númer 6 frá Nóa lækkaði úr 2.114 í 1.998 kr. Egg númer 10 frá Mónu lækk- aði úr 1.788 í 1.733 kr. og Mónu- egg númer 2 Tór úr 324 kr. í 315. Strumpaegg frá Nóa eru seld í Fjarðarkaupum á 986 kr. Að sögn Sveins Sigurbergssonar, verslunarstjóra, má jafnvel vænta frekari verðlækkana í næstu viku. Hjá Hagkaupum kostaði páska- egg númer 6 frá Nóa-síríusi í gær 1.998 kr. og Mónuegg númer 10 kr. 1.778. Þá hafði Mónuegg núm- er 2 lækkað um þijár krónur frá þriðjudegi. Óvíst er um frekari lækkanir. Engar verðbreytingar hafa orð- ið hjá Miklagarði, Kaupstaðabúð- unum og Nóatúni frá því að könn- unin var gerð sl. þriðjudag. Sam- kvæmt upplýsingum þaðan eru engar verðbreytingar á döfínni nema samkeppnisaðilarnir lækki sig enn frekar. Jón Björnsson, markaðsstjóri hjá Nóa-Síríusi, segir að dagverð séu í gangi og þau fari lækkandi eftir því sem nær dregur páskum. „Við gerum verðkannanir tvisvar á dag í verslunum. Hingað til höfum við ekki séð sömu verðin að morgni dags og kvöldi dags.“ Á það skal bent að Nóa-egg núm- er 6 er 630 g að þyngd, Mónu- egg númer 10 er 550 g. Stumpa- eggið vigtar 260 g og Mónu-egg númer 2 100 g. Bónus-verslanimar voru ekki teknar með í könnunina í þetta sinn þar sem að páskaeggin koma ekki þangað fyrr en í dag. Sam- kvæmt upplýsingum frá Bónus verða Mónu-egg númer 10 seld á 1.579 krónur og Nóa-egg númer 6 á 1.812 kr. Að sögn Jóns geta félagasam- tök með kennitölu keypt páskaegg í heildsölu hjá Nóa-Síríusi. Þess má til gamans geta að Nóa-egg stærstu gerðar, númer sex, kostar þar 2.133 krónur. Samkyæmt því er.mun ódýrara að kaupa eggin í stórmörkuðunum. Heildsöluverð vegna endursölu nemur hinsvegar 1.855 kr., en að sögn Jóns búa kaupmenn við ýmis afsláttakjör. Að sögn kaupmanna hefst páskaeggjasalan ekki af krafti fyrr en eftir viku. „Menn eru enn á rólegu nótunum, en eftir að Bónus kemur inn með sín verð, fer stríðið af stað fyrir alvöru. Svo endar þetta með skelfingu," sagði einn verslunarstjórinn í samtali við Morgunblaðið. „Kaup- menn fá afslátt 'eftir því hversu stórir þeir eru í innkaupum og í raun lifa þeir á honum. Heildsal- arnir skammta okkur álagning- una.“ ■ Gómsæta kakan veldur heilabrotum SUMUM hefur reynst erfitt að fylgja uppskrift sem birtist hér 11. febrúar sl. og verður nú reynt að svara fyrirspurnum í eitt skipti fyrir öll. Ég frétti nýlega að uppskriftin væri upphaflega komin frá Ástríði Guðmundsdóttur í Reykjavík. Bökunartími, hitastig og annað getur verið breytilegt eftir heimilis- tækjum. Smám saman lærum við að ná fram besta árangri með aðstoð þeirra og því ætti ekki að taka upp- skriftir svo hátíðlega að það verði á kostnað eigin reynslu og þekkingar. Ég nota „ekstrafin rá marcipan" frá Anton Berg, Ecko Baker’s bök- unarmót með bylgjuðum hliðum og stórri laut. Ég hef vanið mig á að smyija mót þó ekkert eigi að fest- ast við þau. Éggin eru pískuð saman og þeim bætt smám saman út í blöndur. Hrært á milli svo eggin nái að samlagast blöndunni. í byijun þarf að hræra saman í hrærivél marsípan, sykur og smjör í alla vega 10 mín. eða þar til bland- an er létt. Ekki er ráðlegt að fylla bökunarmótið alveg, því kakan lyft- ist svolítið við bakstur. Hluta af deiginu má setja í litla eldfasta skál og gera eina litla köku fyrir yngstu kynslóðina. Slíkt hefur vakið mikla kátínu. Eftir um 15 mínútna bakstur skoða ég kökuna og sé hún farin að dökkna set ég álpappír yfir og lækka jafnvel hitastig um 10 gráð- ur. Eftir aðrar 15 mín. kanna ég hvort hún er bökuð með því að Svona lítur hún út nýbökuð. Gómsæt kaka full af vítamínum . . . og hitaeiningum ÞETTA er ein »f þeim klikum sem tuegt er að geyma I frysti og taka út þegar á þarf að halda. llún er einataklega (júffeng en hráefnið f hana er frekar dýrt og aamviaku- laus væri ég ef ég segði að hún væri megrunarfæða. Vegna þe«8 hvenu (júffeng mér finnst hún, hef ég aldrei lagt á mig að reikna út hvað hún kostar, hvorki i krónum né kaloríum. j A kökuna má setja hvers | kyns ávexti og vissulega cru j þeir auðfáanlegri og ódýrari j á sumrin. Þeim mun fleiri | ferskír ávextir þeím mun i betri verður kakan, en einnig en ávextir eru settir á hana. Mun- ið að best er að leyfa eggjum að jafna sig við stofuhita I 1-2 klst. áður en þau eru notuð I bakatur og hið sama gildir um snyör. fertkir ávexHr oflir smakk Marripan, sykur og smjör hrært i meðalhraða f nokkrar mlnútur. Egg plakuð og þeim slðan bætt saman við. Hveiti hrært varlega saman við með sleif. Látið í form jncð djúpri laut og bakjð_viM50^ Eggjarauður og sykur þeytt f 5 min. Matarlím lagt I vatn, vatnið kreist úr og blöðin síðan brædd yfir vatnsbaði. Grand Marnier blandað saman við eggjahræruna með sleif, slðan þeytta rjómanum og að lokum matarilmi. Frr >»■ klappa létt á hana. Sé hún þétt við- komu er hún bökuð. Ég baka í nýjum blástursofni, en vera kann að bökun- artími sé lengri eða styttri í öðrum ofnum. Krem Eggjarauður og sykur er þeytt saman í minnst 5 mín. Ekki sakar að þeyta lengur eða í 10-15 mín. Kremið á að vera ljóst og létt. Athug- ið að matarlím þarf að vera ilvolgt áður en því er bætt út í kremið. Kakan er ekki góð nýkomin úr ofni og hún þarf að kólna áður en krem er sett á hana. Krem á að þekja kökuna og fylla lautina. Það hefur verið gaman að heyra frá lesendum og ég hvet fólk til að láta ekki deigan síga, heldur reyna uppskriftina því kakan er vel þess virði og sannarlega ekki erfíð í bakstri. BJ a Dagblöð ofan á skápa HVER kannast ekki við fitukennt leiðinda ryk ofan á eldhússkápun- um? Það situr gjarnan fastar en rykið sem safnast fyrir í öðrum vistarverum heimila. Daglegt líf frétti á dögunum af ágætu hús- ráði, sem felst í því að breiða dag- blöð ofan á eldhússkápa sem skipta má um með reglulegu millibili. Þar sem eldhúsinnréttingar ná næstum upp í loft, ber lítið á dagblöðunum, en þau auðvelda heimilisþrifin.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.