Morgunblaðið - 25.03.1993, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 25.03.1993, Blaðsíða 10
'ú) táÖRGÚNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. MARZ 1993 Sjaldheyrður slagverks- konsert á tónleikum Sin- fóníuhljómsveitar Islands í KVÖLD, fimmtudaginn 25. mars, kl. 20 eru sjöundu tónleikar í Gulri tónleikaröð Sinfóníuhljómsveitar Islands í Háskólabíói. Á efnis- skránni er verkið Langnætti eftir Jón Nordal, Konsert fyrir slag- verk og hljómsveit eftir André Jolivet og Sinfónía nr. 4 eftir Johann- es Brahms. Hljómsveitarsljóri er Avi Ostrowskíj en einleikari á slag- verk er Maarten van der Valk. Fyrsta verkið á efnisskránni er Langnætti eftir Jón Nordal, en það var samið árið 1975 í tilefni af 25 ára afmæli Sinfóníuhljómsveitar íslands og frumflutt sama ár. Slag- verkskonsert André Jolivet heyrist sjaldan á tónleikum, og er hann ófáanlegur á geislaplötum. Jolivet notar mörg slagverkshljóðfæri í tónverkinu, ekki einungis hin hefð- bundnu, heldur bætist við víbra- fónn, xylófónn og trommusett. Síð- asta verkið á efniskrá tónleikanna er 4. sinfónía eftir Brahms, og þarf vart að kynna. Hljómsveitarstjórinn Avi Ostrowskíj er ísraeli af rússneskum ættum, og hélt til Vínarborgar eftir að hafa lokið tónlistarnámi í heima- landi sínu, og hóf nám í Tónlistarhá- skólanum þar. Hann sótti einnig námskeið hjá hljómsveitarstjóran- Maarten van der Valk um Franco Ferrara. Ostrowskíj var um tíma stjórnandi ísraelska út- varpskórsins og Fílharmóníusveit- arinnar í Antwerpen, en er nú aðal- stjórnandi Norsku útvarpshljóm- sveitarinnar í Ósló. Einleikarinn Maarten van der Valk bjó hér á landi um skeið og lék með Sinfóníuhljómsveitinni í þijú ár. Hann er fæddur í Jóhannes- borg en flutti barnungur til Hol- lands þar sem hann nam slagverks- leik við Tónlistarháskólann í Amst- erdam, en áður hafði hann lært á píanó og trompet. Maarten hefur leikið með helstu hljómsveitum Hollands, m.a. Concertgebouw- hljómsveitinni. Árið 1984 gerðist Maarten félagi í hinnukunnu- „„Hljómsveit 18. aldarinnar" undir stjóm Frans Bruggen og leikur með henni enn. Avi Ostrowskíj Morgunblaðið/Sverrir Næstkomandi helgi flytur Söngsveitin Fílharmónía óratóríuna Árstíðirnar eftir Joseph Haydn í Langholtskirkju. Söngsveitin Fílharmónía * Arstíðimar eftir Joseph Haydn SÖNGSVEITIN Fílharmónía flytur óratóríuna Árstíðirnar eftir Joseph Haydn í Langholtskirkju í Reykjavík um helgina, laugar- daginn 27. og sunnudaginn 28. mars, klukkan 16 báða dagana. Texti þessa stórverks er eftir Gottfried van Swieten, en unninn úr kvæði eftir James Thomson. Lýsir hann daglegri önn og skemmtan sveitafólksins í lág- sveitum Austurríkis á átjándu öld, sáningu, uppskeru, veiðum, komu vetrar og bið eftir nýju vori. Einsöngvarar eru þrír, stór- bóndinn Símon (bassi), Hanna dóttir hans (sópran), og ungur bóndi að nafni Lúkas (tenór). Með hlutverk þeirra fara Bergþór Páls- son, Inga Backman og Gunnar Guðbjörnsson, en kórinn, Söng- sveitin Fílharmónía, fer með hlut- verk sveitafólksins. Hljómsveitina skipa alls 36 manns. Konsert- meistari er eins og oft áður Szym- on Kuran, en stjórnandi Úlrik Ólason organisti, sem verið hefur söngstjóri kórsins síðan 1988. Arstíðirnar eftir J. Haydn voru frumfluttar í einkasamkvæmi í Schwarzenberghöll og nokkru síð- ar við austurrísku hirðina, þar sem sjálf María Theresía söng hlutverk Hönnu við mikinn fögnuð áheyr- enda. Verkið var síðan flutt opin- berlega 29. maí 1801 við frábær- ar undirtektir og hefur notið mik- illa vinsælda síðan, enda mjög fallegt og áheyrilegt og á köflum afar létt og fjörugt. Þess má geta að Árstíðir Haydns voru fyrsta stórverkið sem fyrrum stjómandi og stofn- andi Söngsveitarinnar Fílharmón- íu, dr. Róbert Abraham Ottósson, færði upp hérlendis fýrir hálfri öld. Var það með Hljómsveit Reykjavíkur og Söngfélaginu Hörpu og raunar einnig í fyrsta sinn sem Guðmundur Jónsson óperusöngvari kom fram í viða- miklu einsöngshlutverki á íslandi. Árstíðirnar eru eitthvert stærsta verk sem Söngsveitin Fíl- harmónía hefur tekið til flutnings á síðustu árum, en miðaverði á tónleikana næstu helgi er stillt í hóf, m.a. með aðstoð nokkurra aðila sem söngsveitin er mjög þakklát. Aðgöngumiðar verða til sölu í bóka- og gjafavörubúðinni Kilju og við innganginn í Lang- holtskirkju. (Fréttatilkynning) Sex þýsk ljóðskáld heímsækja Island EINS OG oft áður hefur komið fram í blaðafréttum var sex ís- lenskum ljóðskáldum boðið að velja eftir sig ljóð og þýða þau í samvinnu við þýsk skáldsystk- in sín árið 1991. Afrakstur þessa samstarfs birtist í bókinni „Ich hörte die Farbe blau“, Ég heyrði litinn bláa, er kom út í Þýskalandi í september 1992. Goethe-stofnunin á íslandi hef- ur boðið þýsku skáldunum hingað dagana 24.-28. mars til að kynna bókina sem og eigin skáldskap. í tilefni afþví hafa íslensku skáldin, Baldur Oskarsson, Gyrðir Elías- son, Hannes Sigfússon, Ingibjörg Haraldsdóttir, Linda Vilhjálms- Stuttmynda- dagarí Reykjavík . Stuttmyndadagar verða haldnir 7., -8. og 9. aþnl á Kaffi Hressó. •Þar gefst ungura og nær óreyndum kvikmýndágerðar- raönnum tækifæri iii að sýna verk sín opinberleg'a. Ákveðið hefur verið -að verðlauna þijár bestu myndimar að vali dóm- nefndar og mun Reykjavíkur- borg gefa verðlaunin. Sýndar verða stuttmyndir hvaðanæva af landinu og er öllum heimil þátttaka. (Fréttatilkynning) iCli HÖKTK DIE FARBE PBiPPl BLAU 1(1 JUi.SGI CFÐES VOS GKK.fiK l.ASCIIIiN X wmiUMi SCIIIH I K '•(liiitn dio horon dóttir og Matthías Johannessen, snarað nokkrum ljóðum eftir Þjóð- verjana (Barbara Köhler, Gregor Laschen, Johann P. Tammen, Kito Lorenc, Ralf Thenior, Uwe Kolbe og Wolfgang Schiffer) og birtast þau í marshefti tímaritsins Bjartur og frú Emilía. Tvær ljóðakynningar eru fyrir- hugaðar meðan þýsku skáldin dvelja hér: Fimmtudaginn 25. mars klukkan 20.30 í Norræna húsinu yerður Ijóðasafnið „Ég heyrði litinh hláa“ kynnt. Skáldin og þýðendur lesa upp.-Laugardag- inn 27. mars klukkan lð í Sigúr- jónssal (Ustasafni Sigutjéns Ól- afssonar) verða gestimir sjáifir kynntir og lesnar þýðingar á Ijóð- um þeirra. Ef tími vinnst til gefst kostur á að ræða við skáldin um þýska nútímaljóðlist og fleira í þeim dúr. Óhætt er að mæla með þessum Ijóðakynningum við alla sem unna góðum skáldskap. (Fréttatilkynning) UM HELGINA Myndlist Listmunahúsið í Listmunahúsinu verður opnuð samsýning nokkurra eldri og við- urkenndra myndlistarmanna, laugardaginn 27. mars, en þeir hafa oft staðið að samsýningum áður. Allir þessir listamenn sýndu í Septem-hópnum, en þær sýn- ingar vöktu jafnan eftirvæntingu í hjörtum listunnenda. Þessir listamenn eiga myndir á sýningunni; Guðmunda Ándr- ésdóttir, Guðmundur Benedikts- son, Jóhannes Jóhannesson, Kjartan Guðjónsson og Valtýr Pétursson. Sýning þessi stendur fram til 18. apríl og Listmunahúsið sem er til húsa að Tryggvagötu 17 er opið virka daga frá klukkan 12-18, um helgar frá klukkan 14-18, en á mánudögum er lokað. (Fréttatilkynning) Síðustu dagar sýning- ar Gunnlaugs Stefáns ♦ Gíslasonar í Fold Gunnlaugur Stefán Gíslason, 'hefur undanfarið sýnt vatnslita- myndir í Gallerí Fold, Austurstrt- aíti 3. Sýningunni lýkur á laugar- dag. Gunnlaugur Stefán er meðal þekktustu núlifandi vatnslitamál- ara þjóðarinnar. Myndirnar sem hann sýnir nú í Fold eru unnar á síðustu mánuðum og eru þær aliar til sölu. Opið er í Fold virka daga frá klukkan 11-18 nema laugardaga klukkan 11-16. Síðasta sýningarhelgi á sýningunni Fimm Færeyingar Nú fer hver að verða síðastur að sjá sýninguna Fimm Færeying- ar, sem staðið hefur yfir í sýning- arsölum Norræna hússins frá 6. mars, en henni lýkur nk. sunnu- dag 28. mars. Sýningin er opin daglega klukkan 14-19 og er að’- gangur ókeypis. Aðsókn hefur verið afar góð. Það eru Amariel Norðoy, Bárð- ur Jákupsson, Marius Olsen, Tor- bjorn Olsen og Tróndur Paturs- son, sem sýna málverk og grafík- myndir og eru þeir allir í farar- broddi í blómlegu listalífi Færeyja. Skúlptúrar í Gallerí 11 Ingibjörg Friðriksdóttir opnar á morgun kl. 14.00 sýningu sína á þrykktum myndum og skúlptúr- um í Gallerí 11. Sýningin stendur til 7. apríl nk. Leiklist Möguleikhúsið sýnir barnaleikrit I Gerðu- bergi Leikhópurinn Möguleikhúsið sýnir barnaleikritið Geiri lygari, í menningarmiðstöðinni Gerðu- '. bergi, laugardaginn 27. mars klukkan 15. Höfundur handrits er Pétur Eggerz, Ingvi Þór Kormáksson, samdi tónlist við sýninguna og leikstjóri er Bjarni Ingvarsson. Leikarar í sýningunni eru fjórir, Alda Arnardóttir, Bjarni Ingvars- son, Pétur Eggerz og Stefán Sturla Sigurjónsson. Menning- arvaka í Garðabæ ÁRIÐ 1991 var stofnuð menn- ingarmálanefnd Garðabæjar, sem ætlað er það hlutverk að efla menningarlíf í Garðabæ. Nefndin hefur þegar gengist fyrir kaupum á nokkrum lista- verkum og sl. sumar stóð hún fyrir myndlistarsýningu í fé- lagsheimilinu Garðalundi, Garðabæ. j I ár ákvað nefndin að kynna túlkandi listamenn. Pöstudaginn 26. mars verður haldin menningar- vaka í Stjörnuheimilinu í Garðabæ. Verður þar margt á dagskrá. Bryn- dís Halla Gylfadóttir, leikur einleik á selló með Snorra Sigfúsi Birgis- syni, píanóleikara, en Bryndís var annar tveggja listamanna sem hlutu starfslaun frá Garðabæ árið 1992. Þá koma fram tveir ungir söngv- arar, þau Jóhanna Vigdís Arnar- dóttir, sem syngur með Þorsteini Gauta Sigurðssyni, píanóleikara og . Sigurður Örn Berrihöft, sem syng- ur með Guðbjörgu Sigutjónsdóttur, píanóleikara. Is’lenski dansflokkur- inn sýnir atriði úr ballettinum Coppelíu, sem frumsýna í byrjun apríl í Borgarleikhúsinu og vök- unni iýkur með því að tríó Ólafs Stephensens leikur jazz, en tríóið skipa þeir Ólafur Stephensen, Guð- mundur R. Einarsson og Tómas R. Einarsson. Kynnir á vökunni er Steindór Hjörleifsson, leikari. Menningarvaka sem þessi er nýlunda í Garðabæ og hefst hún klukkan 20.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.