Morgunblaðið - 25.03.1993, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 25.03.1993, Blaðsíða 38
38__________'________MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. MARZ 1993 Amgrímur Sigur- jónsson - Minning Fæddur 26. febrúar 1912 Dáinn 12. mars 1993 í dag er til moldar borinn Am- grímur Sigurjónsson, föðurbróðir min, á áttugasta og öðru aldursári. Með honum er genginn gáfaður, traustur og vænn maður. Amgrímur Sigurjónsson fæddist á Seyðisfirði 26. febrúar 1912, son- ur hjónanna Helgu Amgrímsdóttur, fædd 13. maí 1889, dáin 21. febr- úar 1947, og Sigurjóns Jóhannsson- ar, sem um áratuga skeið var skrif- stofustjóri hjá Brunabótafélagi ís- lands, fæddur 16. ágúst 1881, dáinn 17. febrúar 1968. Amgrímur var annar r röð íjög- urra systkina. Elstur var Jóhann er lést árið 1956, en yngri var Fann- ey sem lést árið 1988. Yngstur er Asmundur, hagfræðingur og deild- arstjóri á Hagstofu íslands, fæddur árið 1925. Amgrímur sleit bamsskónum á Seyðisfírði, en fluttist til Reykjavík- ur 15 ára gamall eftir alllanga dvöl á Ekkjufelli á Héraði. Þar dvaldi hann meðan foreldrar hans vora að koma sér fyrir í Reykjavík. Hann hóf nám í Menntaskólanum f Reykjavík og lauk stúdentsprófí úr stærðfræðideild árið 1933., Um haustið hélt hann til náms í tiygg- ingafræðum við Kaupmannahafn- arháskóla, en sneri heim aftur ijór- um áram síðar og hóf störf hjá heildversluninni Eddu. Þar starfaði hann fram til ársins 1947, en þá bauðst honum starf hjá íslenskri endurtryggingu og hjá því fyrirtæki starfaði hann síðan óslitið fram til 65 ára aldurs er hann kaus að fara á eftirlaun. Hann sá um bókhald Þjóðleikhússins frá byijun árið 1957 og fram til ársins 1988. Arngrímur kvæntist Guðrúnu Öldu Sigmundsdóttur árið 1941. Alda, sem er fædd 10. apríl 1916, er dóttur Magneu Sigríðar Sigurð- ardóttur, sem lést árið 1951, og Sigmundar Sigmundssonar, sem nær alla sína starfsævi var hjá Eim- skipafélagi íslands sem stýrimaður og skipstjóri á Fossunum. Hann lést árið 1979. Þau Arngrímur og Alda eignuð- ust þijá syni. Elstur er Sigmundur Öm, fæddur 1941, leikari og starfs- maður hjá Sjónvarpinu. Hann er kvæntur Vilborgu Þórarinsdóttur, þjónustufulltrúa hjá íslandsbanka og eiga þau tvö böm. Sigmundur hafði áður eignast tvær dætur. Þá er Baldur Már, hljóðmaður í Borg- arleikhúsinu og þekktur tónlistar- maður, fæddur 1943, kvæntur Hrafnhildi Sigurðardóttur er starf- ar hjá Samvinnuferðum/Landsýn og eiga þau tvær dætur. Yngstur er Haraldur fæddur 1948, lærður matreiðslumaður og nú háskóla- nemi í Svíþjóð, kvæntur Dóra Hall- dórsdóttur, hjúkranarfræðingi og ljósmóður, og eiga þau tvö böm. Haraldur átti fyrir eitt bam. Á mjög stuttum tíma hef ég kvatt marga nána ættingja og tengda- fólk, allt fólk á áttræðis- eða níræð- isaldri af þeirri kynslóð sem var komin vel á legg á heimsstyijaldar- áranum síðari. Eg sé margt af þessu fólki ljóslifandi fyrir mér sem upp- litsdjarft og glaðvært fólk sem átti flest mjög viðburðaríka og spenn- andi ævi á þessari öld byltinga og ótrúlegra tækniframfara. Amgrímur fellur inn í miðja þessa mynd, því þótt hann væri fremur alvörugefinn og dagfars- prúður þá bjó hann yfír hlýrri kímni og miklum þokka. Það þótti fleiram en mér gott að hitta hann og eigin- konu hans Öldu og deila með þeim gleði. Alda var mjög samstíga manni sínum enda oft sagt Am- grímur og Alda eins og verið væri að tala um eina persónu. Amgrímur var skemmtileg blanda af bóhem og dugnaðarforki. Hann var listaskrifari, talnaglöggur og góður spilamaður. Hann undi sér best á heimili sínu og garðvinnan gaf honum mikla útrás því honum lét einkar vel að hlú að nýgræð- ingi. Amgrímur reyndist mér og föður mínum ákaflega vel, en báðir höfðum við þörf fyrir liðveislu hans þótt með ólíkum hætti væri. Þegar þeir bræður þrír vora allir í fullu §öri var oft talsverð sam- keppni þeirra í millum hver væri minnugastur og gáfaðastur og var gaman að fylgjast með þeim andans skylmingum. Bræðraböndin vora ætíð sterk og hlý. Ég minnist sérstaklega þegar ég á unglingsáram kom í heimsókn á skrifstofu íslenskrar endurtrygg- ingar og stóð við stóra borðið þar sem bræðumir Amgrímur og Jó- hann sátu hvor andspænis öðram við bókhaldsstörf, jafnokar í starfí, spilafélagar og mjög nánir vinir. Mér fannst ég ríkur að eiga slíkan föður og föðurbróður. Amgrímur var lengst af mjög hraustur og vinnusamur. Síðustu árin var hjartað farið að gefa sig og einnig sjónin. Líkamlega var þvl dauðinn líkn en minningin um góð- an dreng er ljúf. Við hjón sendum Öldu og nánustu ættingjum innileg- ar samúðarkveðjur. Siguijón Jóhannsson. Amgrímur Siguijónsson er lát- inn, skólabróðir minn og vinur. Kom mér ekki á óvart fregnin um andlát hans, þar sem heilsu hans hafði mjög hnignað á síðastliðnu ári. Hann var Austfirðingur, fæddur á Seyðisfírði 26. febrúar 1912. Fluttist hann ungur að áram, skömmu eftir fermingu, hingað til Reylqavíkur, og átti hér heimili síð- an. Gagnfræðaprófi lauk hann við Menntaskólann hér árið 1930, og settist um haustið í 4. bekk, stærð- fræðideild, en hafði áður numið utan skóla. Minnist ég enn þessa broshýra nýsveins, framandi svipmóts hans, eðlislægrar hógværðar og fágaðrar framkomu. Hann féll þegar vel að glaðværa samfélagi okkar, reyndist söngmaður hinn besti og söngelsk- ur, hafði dökka og hlýja bassarödd og söng alla tíð síðan í skólakómum okkar undir stjóm hins mæta söng- kennara okkar og tónskálds, Sig- fúsar Einarssonar. Þetta vora ár undirbúnings fyrir lífið, persónumótunar og viðhorfa í hvívetna. Að loknu stúdentsprófí árið 1933 hélt Amgrímur til Kaupmanna- hafnar til náms í tryggingafræðum við Háskólann þar, og áttum við þar samleið ári síðar. Það var á kreppuárunum, þegar hvað harðast var í ári heima og heiman og fannst okkur þá stundum löng og illþol- andi biðin eftir póstskipunum, því að þá voru ekki lánsfjárbrannar að ausa af eins og nú era. Árið 1937 kom Arngrímur heim frá námi og tók þegar til starfa. Varð starfsævi hans löng og fjöl- þætt, en verður ekki rakin nánar hér, þar sem annars staðar er fjall- að um það efni. Sérgrein hans var bókhald, sem hann vann mikið að í aukastörfum, t.d. fyrir fjóðleik- húsið um áratuga skeið. Var Am- grímur hamhleypa til þeirra starfa, sem léku honum mjög í höndum. Var frágangur hans allur hinn fág- aðasti og áferð öll eins og best verð- ur á kosið. í því efni var hann sam- ur við sjálfan sig sem öðra, enda snyrtimenni í hvívetna, vel gefinn og fjölhæfur. Árið 1941 kvæntist Amgrímur eftirlifandi eiginkonu, Guðrúnu Öldu Sigmundsdóttur, hinni vænstu konu, sem staðið hefur styrk við hlið eiginmanns síns frá fyrstu til seinustu stundar. Þau eignuðust þijá sonu sem eru: Sigmundur leik- stjóri, sem er kvæntur og á fjögur börn, Baldur sem er hljóðmaður við Borgarleikhúsið, kvæntur tveggja bama faðir, og yngstur er Harald- ur, einnig kvæntur og á hann þijú böm, nú við tannlæknanám í Sví- þjóð. Árið 1945 fluttust þau hjónin, Arngrímur og Guðrún Alda, í ný- byggt hús sitt á Hjallavegi 42 í Laugarási mót austri. Þá urðum við nágrannar, því að sama ár flutt- umst við hjónin einnig þangað, og höfum við búið við sömu götu í næsta nágrenni ávallt síðan, í 48 ár, og ætíð haldist hin bestu kynni og vinátta. Amgrímur spilaði „bridge“ í tóm- stundum, og naut þeirrar íþróttar með góðum og gegnum vinum. Hann ræktaði blóm í garðinum sín- um heima, litfagurt blómskrúð, sem hann hafði af mikið yndi og unað. Nú hafa árin liðið eitt af öðru •frá því er við kvöddum skólann okkar og héldum til móts við mis- jöfn örlög. Og þrátt fyrir að við gengjum hvert í sína áttina frá próf- borðinu forðum, höfum við komið saman á fímm ára fresti alla tíð síðan og heimtur jafnan góðar, þótt fylkingin hafí þynnst með áram og dögum. Nú í sumar eigum við 60 ára stúdentsafmæli og hugði Am- grímur vonglaður til þeirra endur- funda á 82. aldursári. En þar verð- ur hann ekki að gleðjast með vin- um, því að nú er hljóðnaður ljúfur söngur hans. í garðinum sínum ræktaði Am- grímur undurfögur blóm, rósir og gladiólur, sem gerðu hvort tveggja að eiga rætur sínar þar og einnig í örlátu hjarta hans, því að gleði hans var sú að færa þau vinum og gefa þeim á hátíðum og tyllidögum, þegar hann fagnaði með þeim og auðsýndi þeim elsku sína og virð- ingu. Þegar við skólasystkin hans og samstúdentar kveðjum hann hinstu kveðju og þökkum hugljúfa sam- fylgd hans um langan farinn veg, viljum við votta samúð okkar eigin- konunni, Guðrúnu Öldu, sonunum þrem og öðram ástvinum, og biðjum við þeim heilla og blessunar Guðs á örlagastundu. Grímur Grímsson. Einn af fyrrverandi starfsmönn- um Islenskrar endurtryggingar, Arngrímur Siguijónsson, er látinn. Hann var einn af þeim mönnum, sem átti mjög stóran þátt í við- gangi íslenskrar endurtryggingar og að skapa það traust, er félagið ávann sér hjá viðskiptamönnum sín- um. Um þijá áratugi var hann aðal- bókari félagsins. Hann byggði upp það bókhaldskerfi, sem félagið not- aði. Fyrirmyndir að því vora aðal- lega fengnar frá norrænum endur- tryggingarfélögum. Þeirra bók- haldskerfí virtust henta betur við íslenskar aðstæður en form stórra félaga, t.d. enskra. Amgrímur var einstæður bók- haldari. Kom þar margt til. Hann t lést HELGIÞORKELSSON húsasmíðameistari, Bólstaðarhlfð 39, Reykjavík, Borgarspítalanum þriðjudaginn 23. mars. Bræður hins látna. t Ástkær eiginmaður minn, BALDVIN S. JÓNSSON, Efstahjalla 19, lést í Landspítalanum 23. mars. Jarðarförin auglýst siðar. Fyrir hönd aðstandenda, Álfhildur Ingimarsdóttir. t Ástkær eiginmaður minn, faðir, fósturfaðir, tengdafaðir, afi og langafi, ÓLAFUR LÍNDAL FINNBOGASON, Suðurgötu 48, Akranesi, verður jarðsunginn frá Akraneskirkju föstudaginn 26. mars kl. 14.00. Jónína Gísladóttir, Emilía Líndal Ólafsdóttir, Eiríkur Sigmar Jóelsson, Hinrik Líndal Hinriksson, Júlianna Karvelsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Móðir okkar, tengdamóðir og amma, UNA SVAVA JAKOBSDÓTTIR, Stigahlið 32, Reykjavík, andaðist í Borgarspítalanum 23. mars. VigdísTryggvadóttir, Jón Guðmundsson, Rán Einarsdóttir, Svanur Ingvason, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn. t Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÞÓRÐUR HALLDÓR GÍSLASON, Hraunbúðum, Vestmannaeyjum, verður jarðsunginn frá Landakirkju laugardaginn 27. mars kl. 14.00. Blóm afþökkuð, en þeim sem vildu minnast hans, er bent á kristniboðiö eða Gideonfélagið. Jónína Guðjónsdóttir, Ingveldur Þórðardóttir, Rútur Snorrason, Hallgrímur Þórðarson, Guðbjörg Einarsdóttir, Ellý Þórðardóttir, Hreinn Svavarsson, Kristín Þórðardóttir, Einar Norðfjörð, barnabörn og barnabarnabörn. t Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÞÓRUNN R. NORDGULEN áðurtil heimilis Brávallagötu 8, lést í Hátúni 10b 24. mars. Ásta Hallý Nordgulen, Lúðvik Sig. Nordgulen, Sigríður Einarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Elskuleg eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, JÓHANNA SIGFiNNSDÓTTiR, Skólavegi 9, Neskaupstað, sem lést í Landspítalanum 19. mars sl. verður jarðsungin frá Norðfjarðarkirkju mánudaginn 29. mars kl. 14.00. Sigurjón Ingvarsson, Ragnar Ingólfsson, Jón Lundberg, Valgerður Franklin, Sigrún V. Guðmundsdóttir, Jóna Katrín Aradóttir, Taina Otsamo, Wendelin Suuring, Margrét Sigurjónsdóttir, Jóhann Sigurjónsson, Sigþór Sigurjónsson, Benedikt Sigurjónsson, Friðrik Pétur Sigurjónsson, Hjálmar Sigurjónsson, Anna Margrét Sigurjónsdóttir, Ove Bulow Nielsen, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.