Morgunblaðið - 25.03.1993, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 25.03.1993, Blaðsíða 23
méíPn .■'-jtffiK- rtílþQQ Se daga Vikuna 25.-31 .februar MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. MARZ 1993 Haldið upp á fimmtugsafmæli Douglas-vélar Landgræðslunnar 1 vor Fer væntanlega í sitt síð- asta áburðarflug í sumar Annað smábýli Þess má að lokum geta að þegar blaðamaður og ljósmyndari skoðuðu rústirnar í fylgd Þórðar og Hilmars Jóns fyrir helgina komu í ljós aðrar rústir u.þ.b. 90 m norðvestan við hinar rústirnar og kvað Þórður ekki ólíklegt að um væri að ræða býli af svipaðri stærð og hið fyrra og hefðu býlin sennilega verið hjáleig- ur frá Þykkvabæjarklaustri. í rústunum fundust húsdýrabein, aska og brot úr eirpotti. - AGÓ Heimilistæki hf SÆTUNI 8 SIMI 69 15 15 ■ KRINGLUNNI SlMI69 15 20 Bæj arrústir nar FOKIÐ hefur í rústirnar frá því Bergljót og Arin- björn voru þar á ferð síðasta haust. Nær sjást rúst- ir baðstofu eða eldhúss en fjær skála. I smábýlum sem þessu má ætla að hafi búið 6-8 manns. Morgunblaðið/Kristinn I smiðjunni ÞÓRÐUR og Hilmar Jón í smiðjunni. Fremst er smiðjusteinninn. Eins og sjá má er töluvert mel- gresi í rústunum en vestuijaðar Álftavers hefur smám saman verið að gróa upp frá árinu 1944 þegar þar var sett upp landgræðslugirðing fyrir framtak Landgræðslunnar og bændanna í sveitinni. Landgræðsluflugvélin Páll Sveinsson fer væntanlega í sitt síðasta landgræðsluflug í sumar, en haldið verður upp á fimmtugs- afmæli vélarinnar í vor. Ráðast þarf í kostnaðarsamar endurbæt- ur á vélinni en talið er hæpið að þær borgi sig vegna þess hvað notkun hennar hefur minnkað. Flugvélin er af gerðinni Douglas „Dakota“ DC-3. Stefán H. Sigfússon, fulltrúi land- græðslustjóra, sagði ekki ákveðið hvernig málin yrðu leyst færi svo að Páli Sveinssyni yrði lagt. Vandamál- in væru einkum á svæðum langt frá flugvelli. Rætt væri um að byggja flugvöll við Blönduvirkjun og yrði þá hægt að dreifa áburði þaðan með minni landgræðsluvélinni, TF-TÚN. Þá sagði Stefán að til greina hlyti að koma að selja minni vélina og kaupa flugvél sem gæti tekið við hlutverki beggja vélanna. í þjónustu Bandaríkjahers og Flugfélags íslands Páil Sveinsson er sögufræg flug- vél. Hún var smíðuð fyrir Bandaríkja- her árið 1943 í Douglas-flugvéla- smiðjunum í Oklahoma. Hún var af- hent breska hernum og hafnaði á íslandi þar sem hún lenti fljótlega í höndunum á bandaríska flughernum. Þar þjónaði hún til vors 1946 að Flugfélag íslands keypti hana. Hlaut hún nafnið Gljáfaxi og var í áætlun- arflugi fyrir Flugfélagið til 1970. Reyndist hún hin mesta hapgavél. Vorið 1972 gaf Flugfélag íslands Landgræðslunni Douglas-vélina. Hún hefur síðan dreift um 30.000 tonnum af áburði og fræi. Flugtímar hennar eru orðnir 22 þúsund, þar af 4 þúsund fyrir Landgræðsluna. Stefán sagði ekki ákveðið hvað gert yrði við Douglas-vélina. Hann sagði þó ljóst að hún færi ekki frá Islandi, því að Emi heitnum Johnson forstjóra Flugfélagsins hefði verið gefið það loforð þegar tekið var við vélinni á sínum tíma. PHILIPS TRACER rafmagnsrakvélin. Rakvél unga mannsins. Tveir fjaðrandi hnífar. Klukkutíma hleðsla. Verð kr. 5.990. SP00LIS hárrúllur frá PHILIPS ^ h Hitna á 10 mínútum, auðvelt að vefja hárinu um mjúka og létta rúlluna. Liðar hárið á örskömmum tíma. Verð kr. 3.190.- . ' VASAUTVARP Lítið og nett vasaútvarp með góðan hljóm, FM og miðbylgja, beltisklemma, innstunga fyrir heyrnartæki. Verðkr.990.- VASADISK0 MEÐ TÖLVULEIK í einu og sama tækinu Vasadisko og tölvuleikur. Verð aöeins kr. 2.400.- Morgunblaðið/Ámi Sæberg Douglas-flugvél Landgræðslunnar, Páll Sveinsson, í áburðarflugi. GRAFÍSK HÖNNUN: MERKISMENN HF. AUGLÝSINGASTOFA

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.