Morgunblaðið - 25.03.1993, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 25.03.1993, Blaðsíða 30
Námaleyfi Kísiliðjunnar við Mývatn Niðurstaða rannsókna um setflutninga kynnt NÁMALEYFI Kísiliðjunnar sem takamarkað hefur verið við Ytri- flóa rennur út um næstu mánaðamót. Á fundi á morgain, föstu- dag, verður kynnt fyrir framkvæmdastjóra og stjórn verksmiðj- unnar niðurstaða ráðgjafahóps um Mývatnsrannsóknir, en iðnaðar- ráðherra mun væntanlega byggja ákvörðun sína um framhald námaleyfis á niðurstöðum hópsins. T Pétur Torfason, formaður stjórnar Kísiliðjunnar, sagði að forráðamenn verksmiðjunnar biðu spenntir eftir að heyra niðurstöður ráðgjafahópsins, en í kjölfarið Flugfélag Norðurlands Rekstrartap 1,3 milljómr á liðnu ári RÚMLEGA 1,3 milljóna króna tap varð af rekstri Flugfélags Norður- lands á liðnu ári eftir fjármagns- gjöld og skatta, en nokkur hagn- aður varð af reglulegri starfsemi félagsins. Aðalfundur Flugfélags Norðurlands var haldin í gær. Fram kom á aðalfundinum að velta félagsins árið 1992 var um 226,2 milljónir króna og eigið fé var í árs- lok rúmar 88,5 milljónir króna. Félagið flutti á síðasta ári 22.507 farþega í áætlunarflugi á 9 flugleið- um, þá voru flutt 350 tonn af pósti og vörum. Auk áætlunarflugs stund- ar félagið umfangsmikið leiguflug um allt land og til útlanda. Tæknideild félagsins annast auk viðhalds eigin flugvélá, viðhald fyrir önnur flugfélög og einkaaðila. Flugfélag Norðurlands á sjö flug- vélar, þfjár Twin Otter, eina Fair- child Metro 111, tvær Piper Chieftain, eina Piper Aztec auk tveggja minni flugvéla sem notaðar eru til flug- kennslu. Hjá félaginu starfa 28 starfsmenn, en þar af eru 12 flug- menn og 8 flugvirkjar. mætti vænta ákvörðunar ráðherra um hvert framhaldið yrði. Setflutningar Eftir að skýrsla svokallaðrar sérfræðinganefndar um Mývatns- rannsóknir leit dagsins ljós var skipaður ráðgjafahópur haustið 1991 en í áliti nefndarinnar kom m.a. fram að beina þyfti athygli að setflutningum í vatninu og áhrifum kísilgúrsnámsins á þá og hugsanlega röskun á lífríki vatns- ins vegna þeirra. I niðurstöðu ráð- gjafahópsins kom m.a. fram að skoða þyrfti nánar hvernig set- flutningum í Mývatni væri háttað við núverandi ástand og hvernig líklegt sé að þeim hafi verið háttað fyrir námavinnslu og landris sem og hvernig líklegt sé að þeir breyt- ist við mismunandi staðsetningu námasvæða. Eftir að álit ráðgjafahópsins lá fyrir í mars í fyrra var námaleyfí Kísiliðjunnar takmarkað við Ytri- flóa í eitt ár, en jafnframt var skip- aður hópur þriggja sérfræðinga sem m.a. var falið að skoða set- flutninga í vatninu og áhrif þeirra á lífríki þess. Niðurstöður úr þeirri rannsókn verða kynntar forráða- mönnum Kísiliðjunnar á fundi í Reykjavík á morgun, föstudag. Bið „Þetta er ekki þau rekstrarskil- yrði sem maður kýs að hafa, það er óþægilegt að reka fyrirtæki undir þessum kringumstæðum. Nú bíðum við eftir niðurstöðu, þannig að við vitum í hvorn fótinn á að stíga og hvert á að stefna,“ sagði Friðrik Sigurðsson fram- kvæmdastjóri Kísiliðjunnar. Morgunblaðið/Rúnar Þór Sá tíundi LEIKSKÓLINN Klappir var formlega tekin í notkun í gær og er það tíundi leikskólinn sem Akureyrarbær á og rekur, en hann stend- ur efst í Brekkugötunni. Leikskóli opnaður KLAPPIR, nýr leikskóli við Brekkugötu, var formlega tekinn í notkun í gær, en þar eru 24 börn í heilsdagsvistun og 12 í hálfsdags- vistun. Sigríður Stefánsdóttir forseti bæj- arstjórnar Akureyrar sagði í ávarpi við opnunina að þetta væri tíundi leikskólinn sem Akureyrarbær ætti og ræki, en að auki eru reknir leik- skólar Hvítasunnusafnaðarins og Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri. í leikskólum Akureyrarbæjar eru 523 börn, en að viðbættum þeim tveimur sem aðrir reka eru 643 börn á leikskólum í bænum. Sagði Sigríð- ur að þrátt fyrir þá uppbyggingu sem átt hefði sér stað væru 417 börn á biðlista. Niðurstaða Héraðsdóms hefur fordæmisgildi Bærinn greiði íbúum við Grenilund skaðabætur AKUREYRARBÆR mun væntanlega þurfa að greiða íbúum við Greni- lund rúmlega 30 milljónir króna í skaðabætur vegna vatnsljóns sem varð á íbúðum þeirra í maí árið 1990. Dómur í máli eins húseigenda við Grenilund gegn Akureyrarbæ var kveðinn upp í dómþingi Héraðs- dóms Norðurlands eystra í gær, en Iitið er á að hann hafi fordæmis- gildi fyrir aðra íbúa við götuna er einnig fóru í mál við bæinn af sama tilefni. Asahláka Mikið fannfergi var á Akureyri á fyrstu mánuðum ársins 1990, en síðustu daga aprílmánaðar og þá fyrstu í maí gerði asahláku. Starfs- menn bæjarins höfðu mokað snjó í skafl syðst við Grenilund, en mikið uppistöðulón myndaðist í kvosinni sunnan götunnar. Þegar rás var rofín í snjóbinginn flæddi vatnið niður eftir götunni og að húsunum við Grenilund með þeim afleiðingum að vatn flæddi inn í kjallara hús- anna og olli umtalsverðum skemmdum. Heildartjón í 10 íbúðum við Grenilund og einni íbúð við Heiðar- lund var metið á um 17 milljónir króna. Eigendur einnar íbúðar fengu tjón sitt bætt hjá trygginga- félagi sínu og tveir fengu það bætt að hluta, en þeir sem ekki fengu bætur höfðuðu mál á hendur Akur- eyrarbæ og töldu starfsmenn hans hafa sýnt gáleysi er þeir hleyptu vatninu úr uppistöðulóninu niður á götuna. Varúðarráðstafanir Sýknukrafa bæjarins var byggð á þeirri aðalmálsástæðu að um óviðráðanlegar ástæður hafí verið að ræða og starfsmenn hafi gert allar venjulegar varúðarráðstafanir. I dómi sem kveðinn var upp í Héraðsdómi Norðurlands eystra í máli eins íbúanna við Grenilund gegn Akureyrarbæ er bænum gert að greiða íbúanum tæpa eina millj- ón króna í skaðabætur ásamt vöxt- um og málskostnaði. Dómur verður ekki kveðinn upp í máli annarra íbúa, en litið svo á að sá fyrsti hafi fordæmisgildi. Framreiknuð skaðabótakrafa allra íbúanna nem- ur röskum 30 milljónum króna. Baldur Dýrfjörð lögfræðingur Akureyarbæjar bjóst í gær við að málinu yrði áfrýjað til Hæstaréttar. Spennandi landskeppni Frakkar halda vinningsforskoti ___________Skák_______________ Bragi Kristjánsson Landskeppni íslendinga og Frakka í skák var fram haldið á þriðjudag, en þá hófst seinni hlutinn í Digranesskóla í Kópavogi. íslend- ingar höfðu svart á öllum borðum, og lauk umferðinni með jafntefli eftir mikla baráttu, 5—5. Frakkar halda þar með forystunni, hafa 30‘/2 v. gegn 29'/2 v. íslendinga. Framan af virtust Frakkar líklegir til að auka enn forystuna í keppn- inni. Róbert tefldi byqunina djarflega gegn Apicella, en réði ekki við mark- vissa taflmennsku Frakkans í fram- haldinu og tapaði. Jóhann, Jón L. og Hannes Hlífar urðu að gera sér jafn- tefli að góðu. Við öruggan sigur Karls snerist umferðin okkar mönn- um í hag, og Margeir og Helgi náðu smám saman vinningsstöðum. Björg- vin tapaði og Héðinn gerði jafntefli, en vinningar Margeirs og Helga gáfu Islandi forystu í umferðinni. Þá var aðeins eftir æsispennandi skák Þrast- ar við fyrstaborðsmann Frakkanna. Dorfman átti drottningu gegn bisk- upi og hrók, en neyddist til að leika kóngi sínum upp í borð hjá Þresti. Þröstur fann enga leið til að refsa Frakkanum fyrir tiltækið, enda átti hann mjög lítinn tíma til að fínna góða leið, ef hún var þá til. Staðan í einstaklingskeppninni er nú þessi: 1. Jóhann Hjartarson, 5 v. 2. -3. Bachar Kouatly, 4 'h v. 2.-3. Manuel Apicella, 4‘/2 v. 4.-7. Helgi Ólafsson, 3xh v. 4.-7. Karl Þorsteins., 3'/2 v. 4.-7. Margeir Pétursson, 3/2 v. 4.-7. Eric Prie, 3‘/2 v. Björgvin Jónsson veitti Manuel Apicella eina tapið til þessa í skemmtilegri skák í 5. umferð. Hvítt: Björgvin Jónsson. Svart: Manuel Apicella. Frönsk vörn. 1. e4 - e6, 2. d4 - d5, 3. Rc3 - Bb4, 4. e5 — c5, 5. a3 — Bxc3+, 6. bxc3 — Re7, 7. Dg4 — Dc7, 8. Dxg7 - Hg8, 9. Dxh7 - cxd4, 10. Re2 - Rbc6, 11. f4 - Bd7, 12. Dd3 — dxc3, 113. Dxc3 — (Önnur leið er hér 13. Rxc3, t.d. 13. - a6, 14. Hbl - Rf5, 15. Re2 - Ra7!?, 16. Dc3 - Bc6, 17. Rd4 - Rxd4, 18. Dxd4 - Rb5, 19. Dc5 - d4, 20. Hb3 - Dd8!, 21. Hh3 - Hc8, 22. Hgl - Rc3, 23. Bd3 - Be4, 24. Dd6 - Dxd6, 25. exd6 - Kd7 með jöfnu tafli (Ehlvest— Nikolic, Heimsbikarmóti í Reykjavík 1991). 13. - Rf5, 14. Hbl - 0-0-0, 15. Hgl - d4, 16. Dd3 - Ra5!? (Einnig er oft leikið 16. — f6!? í þessari stöðu, t.d. 17. g4 — Rh4, 18. exf6 - e5, 19. f7! - Hxg4, 20. Hxg4 - Bxg4, 21. Bh3! - Dd7, 22. Bxg4 — Dxg4, 23. Dg3 — Dh5, 24. Hb3! - e4!, 25. Dg7 - d3, 26. cxd3 - Rf3+, 27. Kf2 - Dh2+, 28. Dg2 — Dxg2+, 29. Kxg2 — exd3 með jöfnu tafli (Hellers-Djurhuus, Gausdal 1992). 17. g4 — (Til greina kemur að koma í veg fyrir næsta leik svarts með 17. Hb4!? o.s.frv.) 17.-----Rh4!? (Frakkinn fylgir ekki frægri skák, þar sem 16. — Ra5!? var leikið í fyrsta skiptið, en þar varð framhald- ið 17. - Ba4!? 18. x3? (18. gxf5 - Bxc2, 19. Db5 — Hxgl, 20. Rxgl - Bxbl, 21. Dxbl - Rb3!? flókið tafl) 18. - Bc2!, 19. Dxc2 - d3, 20. Da2 - Dc5!, 21. Hg2 - Re3, 22. Bxe3 - Dxe3, 23. Hg3 - d2+, 24. Kdl - Df2, 25. Kc2 - dlD+, 26. Hxdl - Hxdl, 27. Kxdl - Dxfl+ og svartur vann (Jóhann Hjartarson — Nogueiras, Heimsbik- armót í Belfort 1988). 18. Hg3 - Ba4, 19. Hb2 - (Þar sem svarti riddarinn er ekki lengur á f5, og kemst þess vegna ekki til e3, þá getur hvítur valdað peðið á c2 í rólegheitum.) 19. - Dc5, 20. Bd2 - Rc6 (Betra hefði verið að leika 20. — Rc4, 21. Hb4 — b5 og upp kemur geysiflókin og vandtefld staða.) • b 0 0 • f g h 21. Rgl! - (Mjög snjall leikur, sem leiðir til unninnar stöðu fyrir hvít. Með því að leika riddaranum aftur á upphafs- reitinn opnar hvítur leið til drottn- ingaskipta, en eftir það á svartur erfitt með að vetjast hvítu peðunum á kóngsvæng.) 21. - Hh8, 22. Dc4 - Dxc4, 23. Bxc4 - Rg6, 24. Rf3 - Rce7 (Svartur á varla betri leik, því að O 2 3 < ISLAND £ 1. Dorfman 2. Renct 3. Kouatly 4. Apicella .9? CL LT) 6. Bricard 7. Hauchard 8. Koch 9. Marciano 10. Chabanon VINNINGAR 1. Jóhann Hjartarson Zi 1 1 1 Zi í 2. MargeirPétursson 14 1 Zi Zi Zi Zi 3. Jón L.Árnason 'h 0 Zi 0 Zi Zi 4. Helgi Ólafsson Zi 1 Zi 1 Zi 0 5. Hannes H. Stefánsson Zi 1 Zi 0 Zi Zi 6. Karl Þorsteins 1 Zt Zi 0 Zi 1 7. Þröstur Þórhallsson 0 'Á 0 Zi Zi 1 8. Héðinn Steingrímsson Zi 0 0 Zi 0 1 9. BjörgvinJónsson 0 1 Zi 0 Zi 1 10. Róbert Harðarson 0 0 Zi 0 Zi Zi Vinningar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.