Morgunblaðið - 25.03.1993, Blaðsíða 22
8681 SMAM .es aUOAaUTMMii aiQAJaVÍUOHOM
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. MARZ 1993
Rústir tveggja smábýla í landi Þykkvabæjarklausturs hins forna
Rústir smábýla finnast ekki
síst fyrir athyglisgáfu bænda
Á sama hátt og fornar sagnir segja fremur af höfðingjum en fólki
úr alþýðustétt er eru flestar varðveittar byggingarrústir í landinu
leifar af híbýlum íslenskrar yfirstéttar og efnaðra bænda. Færri
minjar eru varðveittar um bólsetu alþýðunnar og er sú staðreynd
miður þegar haft er í huga að rústir af þessu tagi varpa jafnan ljósi
á Iíf og starf ábúendanna og eiga þannig stóran þátt í að fylla upp
í eyður í sjálfri þjóðarsögunni. Rústir smábýla finnast þó af og til,
ekki síst fyrir athyglisgáfu bændanna í sveitum landsins, að sögn
Þórðar Tómassonar, safnvarðar á Skógum, en símtal til hans frá
Himari Jóni Brynjólfssyni, bónda á Þykkvabæjarklaustri, hefur haft
í för með sér að á liðnu hausti var mælt út smábýli í Niðurföllum
í Álftaveri. Annað smábýli, u.þ.b. 90 m norðvestan við hið fyrra,
fannst þegar blaðamaður og ljósmyndari fóru í fylgd Þórðar og
Hilmars Jóns til þess að skoða rústirnar fyrir helgi.
Sagnir um byggð
Þegar Hilmar Jón er spurður um
rústirnar segir hann að alveg frá
því hann hafi verið unglingur hafí
kennileitið Niðurföll verið til og
sagnir hafí gengið meðal fólks í
sveitinni um að þar hafi verið
byggð. Ekki hafi hins vegar verið
vitað hvaða fólk bjó þar eða hve-
nær. „Það er síðan komið á þriðja
ár síðan að ég var að smala og kom
auga á mjög greinilegar rústir í
sandinum. Melalda hafði verið yfír
þeim en vindurinn náð að blása í
gegnum hana þannig að rústimar
komu í ljós,“ segir Hilmar. „Ég
hringdi svo og sagði Þórði frá
þes_su,“ bætir hann.
Árið eftir könnuðu tvímenning-
amir rústirnar og í annað sinn
haustið 1992 og fann þá Þórður
koparhnapp og einhvers konar
keramik. Hið síðamefnda segir
hann að eigi að koma að gagni við
aldursgreiningu rústanna. Hlutina
hefur hann afhent Þjóðminjasafn-
inu.
Uppmæling
Sumarið 1992 bar það til tíðinda
að Arinbjörn Vilhjálmsson, arki-
tektúrnemi í Stuttgart, spurði Þórð
hvort hann vissi um hús eða tóft
sem þyrfti að mæla upp og hann
gæti ásamt Bergljótu Jónsdóttur,
skólasystur sinni, notað sem skóla-
verkefni. Þórður benti þeim á rúst-
imar í Niðurfóllum og um haustið
aðstoðaði Hilmar Jón arkitektúr-
nemana við að komast að rústunum
svo þeir gætu mælt þær upp.
Arinbjöm og Bergljót gerðu
teikningu af bænum eftir uppmæl-
ingunni. Samkvæmt henni vom
suðurdyr á bænum og tóku við
göng inn í baðstofu eða eldhús á
hægri hönd, stofu beint af augum
og skála á vinstri hönd. Samhliða
skálanum er gert ráð fyrir skemmu
og er gengið inn í hana að sunnan-
verðu. Fjós og heygarður voru vest-
an við sjálf bæjarhúsin og smiðja
norðvestan við þau.
Utan í smiðjurústinni er stór
sporöskjulagaður brimsorfinn
steinn og er ekki talið ólíklegt að
þar sé kominn smiðjusteinn Niður-
fallabóndans. Eitthvað af smærri
hlutum fundu Arinbjörn og Bergljót
í rústunum og er snældusnúður úr
blýi þeirra merkastur.
Brýnt rannsóknarefni
Eftir mælinguna skiluðu Arin-
bjöm og Bergljót greinargerð þar
sem þau leiða að því rök að brýn
þörf sé á að rannsaka rústirnar
nánar með uppgreftri. Þannig
benda þau á að rústirnar hafí varð-
veist vel undir sandinum og séu
heillegar. Þær séu aðgengilegar til
rannsóknar en hætta sé á að þær
eyðileggist annaðhvort hægt og bít-
andi undan rótum melgresisins og
af völdum veðrunar eða í einni svip-
an í Kötluhlaupi. Að auki benda þau
á að athyglisvert væri að gera sam-
anburð á rústunum og niðurstöðum
uppgraftrarins í Kúabót á árunum
1972-76, en þar er um að ræða
stórbýli og bænahús. Er þá ótalið
að ekki em kunn mörg dæmi um
fornleifarannsókn heils smábýlis frá
þessum tíma, þ.e. miðöldum.
Rústimar hafa ekki endanlega
verið aldursgreindar en Arinbjörn,
Bergljót og Þórður em þeirra skoð-
unar að líklegast sé að bærinn hafí
farið í eyði á síðari hluta fímmtándu
aldar. Máli sínu til stuðnings segir
Þórður að aðeins komi tvö Kötlu-
hlaup til greina, um 1480 og 1580.
Lang líklegast sé að bærinn hafi
farið í eyði í fyrra gosinu þar sem
í rústunum hafí fundist mikið af
gjalli frá jámvinnslu en hún hverfí
um aldamótin 1500.
Fundur á Hellu með menntamálaráðherra
Skógaskóli verður
starfræktur áfram
Hellu.
FULLTRÚARÁÐ sjálfstæðisfélaganna í Rangárvallasýslu stóð nýlega
fyrir fundi um skólamál þar sem Ólafur G. Einarsson, menntamála-
ráðherra, taldi möguleika á að leggja fram nýtt grunnskólafrum-
varp á næsta þingi.
Menntamálaráðherra var fmm-
mælandi á fundinum en framsögu-
ræður fluttu Sigurgeir Guðmunds-
son, skólastjóri á Hellu, Svanhildur
Ólafsdóttir, skólastjóri í A-Landeyj-
um, og Sverrir Magnússon, skóla-
stjóri á Skógum.
Skógaskóli starfræktur áfram
í umræðum á fundinum komu
fram áhyggjur manna með fram-
kvæmd og fjármögnun yfírtöku
sveitarfélaganna á gmnnskólunum
og velt var vöngum yfir hvort allra
minnstu skólamir verði lagðir niður
sökum fjárskorts. Ráðherra kvað
ekki vera neinar ráðagerðir um að
leggja niður skóla, tekjustofnar
muni verða yfírfærðir á sveitarfé-
Iögin. Fram kom í máli ráðherra
að Skógaskóli undir A-Eyjafjöllum
muni verða starfræktur áfram, en
umræður hafa verið um að leggja
þann skóla niður. Góð reynsla hafí
fengist af samvinnu Skógaskóla og
Fjölbrautaskóla Suðurlands á Sel-
fossi sem býður upp á tveggja ára
fjarnám í Skógaskóla.
Sverrir Magnússon svaraði fyrir-
spumum um hvort skólinn hentaði
sem framhaldsskóli með heimavist,
■ MÁLFUNDAFÉLAG Al-
þjóðasinna heldur umræðufund
laugardaginn 27. mars kl. 12 um
Apartheid, Afríska þjóðarráðið
og baráttuna fyrir lýðræði í Suð-
ur-Afríku. Fundurinn Verður á
Klapparstíg 26. Litið verður yfir
atburði síðustu mánuði og stöðu
samningsviðræðna um myndun lýð-
ræðis í Suður-Afríku. Afstaða Af-
ríska þjóðarráðsins til alþjóðlegra
viðskiptabannsins á landið verður
kynnt og skoðað lagafmmvarp um
afnám þess hér.
(Fréttatilkynning)
kvað hann það ekki hafa verið rætt
nægilega en taldi þó ekki líkur á
að svo mætti verða. Rangæingar
hafa ekki framhaldsskóla í sýslunni
en nemendum er ekið í Fjölbrauta-
skólann á Selfossi og þurfa þess
vegna að vakna eldsnemma til að
setjast á skólabekk klukkan átta
að morgni og sitja í rútu klukkutíma
hvora leið. Það gefur augaleið að
erfítt er fyrir þessa nemendur að
taka eðlilegan þátt í félagslífí skól-
ans.
Lenging skólaársins í
strjálbýli mistök
Töluverðar áhyggjur skólamanna
í héraðinu komu fram vegna áætl-
ana um lengingu skólaársins í 10
mánuði. Vom menn sammála um
að lenging skólaársins úti á lands-
byggðinni væru hrein mistök og
börnunum enginn greiði gerður,
heldur þvert á móti. Með lenging-
unni væri um að ræða lengri tíma
sem bömunum væri haldið í skólan-
um og hentaði það eflaust ágætlega
í þéttbýli þar sem skólar væra not-
aðir sem geymslur fyrir börnin. En
úti á landi væri þessu yfírleitt ekki
svo varið, í mörgum litlum skólum
væm aðallega sveitaböm og þeirra
vinnu væri beinlínis vænst bæði vor
og haust við hin ýmsu landbúnaðar-
störf. Velt var upp spumingu um
hvort væri hollara og lærdómsrík-
ara sveitabarninu að taka þátt í
atvinnu og lífsframfæri fjölskyldu
sinnar eða vera lokað inni í skóla
til júníloka.
Ráðherra sagði að það væri ekki
ætlunin að þvinga fram lagasetn-
ingu um ný grunnskólalög, það yrði
að gerast að vel yfirlögðu máli og
með góðri samvinnu og samstarfi
aðila er málið varðar.
- A.H.
Rauði kross íslands og Hjálparstofnun kirkjunnar
Á leiðarenda
Hluti fatnaðarins í birgðageymslu í Barajevo í
Belgrad. Þar eru flóttamenn tæplega 1.600.
Fötin sótt
Flóttamenn í Barajevo leita að hentugum fatn-
aði. Þörfin er mikil í fjölmennum flóttamanna-
búðum.
20 fatagámar til Júgóslavíu
TUTTUGU gámar með notuð-
um íslenskum fatnaði hafa ver-
ið sendir til lýðveida fyrrum
Júgóslavíu. Fötin hafa einkum
verið send til Serbíu þar sem
þörfin hefur verið metin hvað
mest.
Rauði kross íslands og Hjálpar-
stofnun kirkjunnar stóðu sameig-
inlega að fatasöfnuninni 14. jan-
úar sl. og tókst hún með ágætum
um allt land. Fötin vom flokkuð
og þeim pakkað inn hér heima.
Þá sigldu Samskip með þau end-
urgjaldslaust til Hollands en það-
an var þeim ekið landleiðina suður
á Balkanskaga. Ríkissjóður lagði
fram fimm milljónir króna til að
standa straum af kostnaði við
söfnunarátakið og var það hluti
af framlagi ríkisins til neyðarað-
stoðar á Balkansskaga.
Starfsmenn Alþjóða rauða
krossins og kirkjuhjálparstofnana
sáu um dreifingu fatnaðarins.
Til fyrrum Júgóslavíu
Hér má sjá hvert íslensku fatagámarnir voru sendir og hversu
margir fóru á hvern stað í rílgum fyrrum Júgóslavíu.