Morgunblaðið - 25.03.1993, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. MARZ 1993
25
Verdens Gang um fiskútflytjendur í Noregi
Hafa blekkt yfirvöld
í fjölmörgum löndum
„SVINDLIÐ á sér stað á minnstu skektum og allt upp í stærstu
verksmiðjutogara. Það er stundað í öllum krókum og kimum með-
fram allri ströndinni, í suðri, vestri og norðri. Það þrífst í embættis-
mannakerfinu og í pólitíkinni og altalað er, að menn séu látnir vita
í tíma ef hið opinbera ætlar að vera með einhveija eftirlitstilburði."
Þannig segir meðal annars í greininni, sem norska blaðið Verdens
Gang birti í gær um svikamylluna í norskum sjávarútvegi, kvóta-
svindl, rányrkju og tollsvik. Var frá þessu skýrt i Morgunblaðinu í
gær en Verdens Gang mun fjalla áfram um þetta mál næstu daga.
Ezer Weizman
Weizman
nýr forseti
Jerúsalem. Reuter.
EZER Weizman, fyrrum orr-
ustuflugmaður og ákafur tals-
maður friðarsamninga við
araba, var kjörinn forseti
ísraels á þingi í gær. Bar hann
sigurorð af forseta þingsins,
Dov Shilansky, með 66 at-
kvæðum gegn 53 en kjörtíma-
bilið er fimm ár.
Weizman, sem tekur við af
Chaim Herzog 13. maí nk., gaf
í skyn í gær, að hann ætlaði að
gera fleira en gegna sínum form-
legu skyldum sem forseti. „Ég
vona, að ég geti lagt mitt lóð á
vogarskálina og stuðlað að friði
í Miðausturlöndum,“ sagði Weiz-
man en hann var annar æðsti
maður ísraelshers í stríðinu við
araba 1967.
Weizman er kominn af kunnri
fjölskyldu í ísrael og frændi
hans, Chaim Weizman, var fyrir
forseti ríkisins á árunum
1948-’52.
í greininni er það haft eftir Leiv
Grönnevedt, einum af bankastjórum
Kreditkassen og fyrrum ráðuneytis-
stjóra í sjávarútvegsráðuneytinu, 4að
stjórnvöld í Noregi hafi aldrei lagt
mikið á sig við að framfylgja upp-
runareglunum. Samkvæmt samningi
við Evrópubandalagið, EB, frá 1973
ber þeim þó skylda til þess enda var
hann forsenda tollfríðindanna, sem
Norðmenn njóta.
Blaðamennimir segja, að norskir
útflytjendur hafi blekkt yfirvöld í
mörgum löndum árum saman' og
vitna í dóm, sem kveðinn var upp í
Álasundi fyrir réttu ári. Þar urðu
útflytjendur uppvísir að því að nota
fölsk heilbrigðis- og útflutningsvott-
orð og vottorð frá eftirlitsmönnum,
sem voru látnir.
Þorski breytt í annan fisk
„Kvótarnir gætu verið helmingi
meiri en þeir eru ef eftir þeim hefði
verið farið,“ er haft eftir manni, sem
þekkir vel til, en komið hefur í ljós,
að í sumum fiskvinnsluhúsum er
gert ráð fyrir því í tölvukerfinu
hvernig meðhöndla skuli ólöglegan
afla. Út úr því kemur hann sem ein-
hver allt önnur fisktegund. Nefnt er
dæmi um togara í Álasundi, sem til-
kynnti 20 tonn af þorski, 30 tonn
af ufsa og 30 tonn af karfa en í
raun var aflinn að mestu þorskur.
Frá 1988 til 1992 keyptu Norð-
menn gríðarmikið af þorski_ frá Al-
aska og síðan af Rússum. I Noregi
eru hins vegar engar opinberar tölur
til um þessi kaup og eftir ýmsum
er haft, að mikið eða jafnvel mest
af fiskinum hafi verið flutt út sem
norskt.
Umsókn Norðmanna um EB-aðild
Samningaviðræð-
ur hefjast 5. apríl
Brussel. Frá Kristófer M. Kristinssyni, fréttaritara Morgnnblaðsins.
HANS van den Broek, einn af framkvæmdastjórum Evrópu-
bandalagsins (EB), kynnti í Brussel í gær álit framkvæmda-
stjórnarinnar á umsókn Norðmanna um aðild að bandalaginu.
í máli hans kom fram að staðfesting Maastricht-samkomulags
EB væri forsenda þess að samningar við Norðmenn og önnur
aðildarríki Fríverslunarbandalags Evrópu (EFTA) sem sótt
hafa um aðild verði til lykta leiddar. Van den Broek sagði
að það væri augljóst að fyrirhugaðar hvalveiðar Norðmanna
stönguðust á við reglur EB.
Á heildina litið er aðild Noregs
að EB fáum erfiðleikum bundin.
Augljóst þykir þó að landbúnaður,
sérstaklega á norðurslóðum, fisk-
veiðar og byggðastefna verði snúin
viðfangsefni í samningunum. Þá
sagði van den Broek að samkeppn-
ismál, áfengiseinkasala og sala og
framleiðsla orku yrði erfið við-
fangs. Ríkisstyrkir væru umtals-
verðir í Noregi og tryggja yrði að
þeir væru í samræmi við reglur
EB. Fiskveiðar Norðmanna yrði
að aðlaga sjávarútvegsstefnu EB
og fyrirsjáanlegt væri að þær við-
ræður yrðu mjög viðkvæmar.
Van den Broek kvaðst búast við
því að viðræðurnar yrðu til lykta
leiddar þannig að Noregur fengi
fulla aðild á árinu 1995.1 umsögn
framkvæmdastjórnarinnar væri
gengið út frá því að þetta væru
allt yfirstíganlegir erfiðleikar. Sér-
fræðingar norsku stjórnarinnar
hefðu undanfarið tekið þátt í samn-
ingaviðræðunum við hin EFTA-
rikin sem ætti að flýta samningun-
um.
HVERJIR STYÐJA JELTSIN
Flest lýðveldin innan Samveldis sjálfstæöra ríkja hafa lýst yfir
stuöningi viö Jeltsín f baráttu hans við þingið. Hann hefur fallið
frá því aö taka sér „tilskipunarvald" en ætlar áfram aö halda þjóöar-
atkvæöagreiöslu um völd í Rússlandi. Hann hefur sett mikinn
þrýsting á þau héruö Rússlands sem eru í andstööu viö hann.
Héruö sem hafa gert greln fyrir afstööu sinnl
® Á móti m Styöja
1. tsjeljabInsk 7. ALTAI
2. DAGEÍSTAN 8. KAMTSJATKA
3. KARELIA 9. KRASNODAR
4. KEMEROVO 10. SVERDLOVSK
5. SAKHALÍN 11.KÚRGAN
6. STRAVROPOL 12. SAMARA
REUTER
L A N D
FYRRUM SOVÉTLÝÐVELDI
Styöja: Moldavla Hlutlaus:
0 tunSOO'
Georgía, Ukraína H-Rússland,
Kírgízístan, Eistland, Kazakhstan,
Lettland, Lítháen, Tadzhíkístan
Armenía, Azerbajdzhan /fc
Afstaöa óviss: .j
Úsbekistan, Turkmenistan
y,,
og verði þingið ofan á er einnig ljóst
að hreinsunum verður hrundið af
stokkunum. Þá verða fyrstir til að
fjúka umbótasinnarnir Andrej Koz-
yrev utanríkisráðherra, Borís Pjod-
orov aðstoðarforsætisráðherra og
Anatólí Tsjúbajs, ráðherra einkavæð-
ingar.
Mannaskipti
Það fer óstjórnlega í taugarnar á
mörgum afturhaldsmönnum að Fjod-
orov og félagar hans reyna ekki að
halda í völdin í örvæntingu af ótta
um persónulegan hag sinn — þeir
eru ekki í stjórnmálum vegna hlunn-
indanna. Þeir eru flestir ungir og
velmenntaðir, geta snúið sér að öðru.
Fjodorov gæti t.d. haldið aftur til
fyrri starfa hjá Alþjóðabankanum í
Washington. Sigri Jeltsín hljóta þeir
á endanum að víkja, Alexander
Rútskoj varaforseti og Júrí Skokov,
aðalritari öryggisráðs forsetans, sem
lýstu báðir yfir andstöðu við fyrir-
huguð tilskipunarvöld Jeltsíns. Að
undanförnu hefur forsetinn einkum
treyst á skrifstofustjóra sinn, Sergej
Fílatov, auk aðstoðarforsætisráð-
herranna Sergejs Shakrajs og Vlad-
ímírs Shúmakós.
Þeir myndu hækka 5 tign. Jeltsín
gæfi líklega upp á bátinn tilraunir
sínar til að friða andstæðingana með
því að taka miðjumenn inn í valda-
kjarnann og ýmsir róttækir umbóta-
sinnar, sem hann hefur ekki þorað
að hampa um of, yrðu aftur í sviðs-
Ijósinu. Á lægri stigum stjórnsýsl-
unnar má búast við sams konar hrær-
ingum þegar úrslit fást í valdabarátt-
unni.
pH 4,5 húðsápan er framleidd úr vöidum
ofnæmisprófuðum efnum og hentar jafht
viðkvæmri húð ungabarna sem þinni húð. Hið
lága sýrustig (pH gildi) sápunnar styrkir
náttúrulega vörn húðarinnar gegn sveppum og
sýklum og vamar því að hún þomi. Hugsaðu vel
um húðina og notaðu pH 4,5 sápuna alltaf þegar
þú þværð þér.
pH 4,5 húðsápan vinnur gegn
of háu sýrustigi húðarinnar.
v !
.I mm 1.& ^m
m
Félag Psoriasis-sjúklinga
mælir með pH 4,5 húosápunni.