Morgunblaðið - 25.03.1993, Síða 27

Morgunblaðið - 25.03.1993, Síða 27
26 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. MARZ 1993 PlurgiwMalii Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Ritstjórnarfulltrúi Árvakur h.f., Reykjavík Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Björn Vignir Sigurpálsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðal- stræti 6, sími 691111. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 691122. Áskriftar- gjald 1200 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 110 kr. eintakið. Sparnaður í spítalarekstri Sparnaður í rekstri sjúkra- húsanna þriggja í Reykja- vík varð 560 milljónir króna á síðasta ári, samkvæmt uttekt Ríkisendurskoðunar. Stofnunin segir í greinargerð sinni að sparnaðinn megi að verulegu leyti rekja til tilfærslu bráða- vakta frá Landakotsspítala til Borgarspítala og einnig hafí sameining Fæðingarheimilisins og fæðingardeildar Landspítal- ans skilað umtalsverðum sparn- aði. Þá hafi rekstrargjöld Ríkis- spítalanna lækkað um 4,4%, eða 301 milljón. Þrátt fyrir lækkun rekstrar- framlaga til spítalanna telur Ríkisendurskoðun að ekki sjáist merki þess að þjónusta við sjúklinga hafi versnað. „Ýmsar upplýsingar benda til þess að um nokkra framleiðniaukningu sé að ræða. Þó skal á það bent að ekki liggur fyrir hvort eða að hve miklu leyti aðgerðum eða annarri þjónustu hefur ver- ið beint til annarra sjúkrastofn- ana eða læknastofa,“ segir í greinargerð Ríkisendurskoðun- ar. Þar kemur jafnfrámt fram að biðlistar, t.d. eftir gerviliða- og hjartaaðgerðum, séu nánast óbreyttir eða jafnvel heldur styttri á árinu 1992 en 1991. Þessi árangur er fagnaðar- efni. Endurskipulagning og til- færslur í rekstri skila greinilega sínu, þrátt fyrir ýmsar hrak- spár. Ekki er síður ástæða til að fagna hinum góða árangri í sparnaði á Ríkisspítulunum, sem nemur meira en helmingi þess sparnaðar, sem náðist í rekstri spítalanna á höfuðborg- arsvæðinu. Að ná 4,4% sparn- aði í jafnumfangsmiklum rekstri og starfsemi Ríkisspít- ala er nokkurt afrek. Davíð A. Gunnarsson, for- stjóri Ríkisspítalanna, segir í samtali við Morgunblaðið um þennan árangur: „Segja má að árangurinn náist með útsjónar- semi og samstilltu átaki starfs- manna. Þetta er gert með mjög miklu aðhaldi sem hægt er að beita í stuttan tíma, en ekki hægt að halda út til langframa ... Það er flókið mál að ná þeim árangri að spara þetta mikla peninga, en það er kannski auðveldara að gera það þegar menn hafa það á tilfinningunni að það eru allir að gera svipaða hluti í kreppuástandi. En það er fjöldi fólks að leggja á sig meiri vinnu fyrir sömu eða minni laun en áður.“ Sparnaður í heilbrigðiskerf- inu, og raunar í ríkiskerfinu í heild, næst aldrei nema í góðu samstarfí við þá, sem þar starfa. Hið hæfa starfsfólk Rík- isspítalanna hefur lagt mikið á sig til þess að sparnaðaráformin mættu verða að veruleika. Eflaust er rétt hjá forstjóra Ríkisspítalanna að erfitt er að viðhalda ströngu aðhaldi til langframa. Slíkt veldur miklu álagi á starfsliðið. Hins vegar er ráðdeild og sparnaður í rekstri ekki eingöngu kreppu- fyrirbæri. Þótt rík ástæða sé til að spara í rekstri hins opin- bera á samdráttartímum, er einnig full ástæða til að halda þeim sparnaði áfram með batn- andi tíð. Ekki er sízt þörf á því í heilbrigðiskerfínu, sem tekur til sín mjög stóran hluta af íjár- lögum ríkisins og hefur þanizt hratt út undanfarna áratugi. Þann árangur, sem náðst hefur nú, ber að nýta til áfram- haldandi sparnaðarvinnu. Það er rétt hjá forstjóra Ríkisspítal- anna að allir eru að spara í kreppunni, jafnt einkafyrirtæki sem opinberar stofnanir. En sú hagræðing, sem næst í krepp- unni, má ekki renna út í sandinn þegar hagur þjóðarbúsins vænkast, heldur verður að við- halda hugsunarhætti sparnaðar og ráðdeildar, sérstaklega þeg- ar farið er með almannafé. Velta Ríkisspítalanna er um hálfur sjöundi milljarður króna. í fyrirtæki með slíkt umfang hlýtur allra leiða að vera leitað til hagræðingar og spamaðar og sömu stjórnunaraðferðum beitt og í einkafyrirtækjum. Árangur í sparnaði á undan- förnum misserum, bæði á Rík- isspítulunum og Borgarspítala, hefur sýnt að slíkt er vel fram- kvæmanlegt. í greinargerð Ríkisendur- skoðunar um rekstur spítalanna kemur fram að ekki sé sam- ræmi í skráningu og mælingum á þeirri þjónustu, sem spítalam- ir veiti, og hafi það valdið stofn- uninni nokkrum vandræðum. Ríkisendurskoðun bendir þarna á lítið atriði, sem-t)etur mætti fara, en er engu að síður nauð- synlegt að leiðrétta til þess að hægt sé að bera saman árangur í rekstri spítalanna og vinna að sparnaði, hagræðingu og framleiðniaukningu á fag- mannlegan hátt. Starfsfólk Ríkisspítalanna hefur sýnt að hægt er að ná árangri með aðhaldi og ráð- deild, en veita engu að síður fyrsta flokks þjónustu. Vonandi vísar þessi árangur veginn til framtíðar, bæði í heilbrigðis- kerfinu og öðrum geirum opin- bers reksturs. Jákvæð viðbrögð hjá lánastofnunum TALSMENN banka og sparisjóða taka aðgerðum Seðlabankans jákvætt og telja að sú vaxtalækkun, sem reynt er að stuðla að, muni ganga eftir. Talna um það hversu mikil lækkunin verður er þó ekki að vænta fyrr en um miðja næstu viku, en vaxta- breytingadagur er fimmtudaginn 1. apríl, eftir rétta viku. „Þetta auðveldar það að stíga áfram einhver skref í þá átt að lækka vextina,“ sagði Baldvin Tryggvason, framkvæmdastjóri Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrenn- is. í sama streng tók Stefáns Páls- son, bankastjóri Búnaðarbankans. „Þær breytingar, sem Seðlabankinn er að gera á viðskiptakjörum bank- anna eru jákvæðar," sagði Stefán. „Við erum ekki farnir að meta hvað þetta gæti þýtt, en ég tel þetta mjög jákvætt fyrir horfur á frekari vaxtalækkun.“ Langþráð hækkun vaxta á bundnu fé Ragnar Önundareon, fram- kvæmdastjóri hjá íslandsbanka, sagði sjálfgefið að aðgerðimar leiddu til einhverra vaxtalækkana. „Seðlabankinn er að bæta kjör okk- ar í viðskiptum. Þar á meðal er lang- þráð hækkun vaxta á bundnu fé úr 2% í 3,5%, sem ég held að allir bankamenn fagni mjög,“ sagði Ragnar. Hann sagði þó að skoða yrði fleiri þætti áður en ákvörðun um vaxtalækkun yrði tekin. Sjá fram á vaxtalækkun Bankastjórar Seðlabankans, þeir Tómas Árnason, Jóhannes Nordal og Birgir ísleifur Gunnarsson, kynna aðgerðir bankans, sem þeir telja að hljóti að leiða til 1-2% vaxtalækkunar. Seðlabankinn lækkar vexti af eigin útlánum og tilboð í skammtímaverðbréf Nauðsynlegt að hafa áhrif til frekari vaxtalækkunar SEÐLABANKINN ákvað í gær að lækka útlánsvexti sem bankarnir greiða af fyrirgreiðslu í Seðlabankanum um 1-3% en hækka um leið innstæðuvexti sem innlánsstofnanir fá bæði af lausum innstæðum og bundnu fé. Jafnframt þessu ákvað bankinn að lækka vexti í tilboðum sínum á rikisvíxla og ríkisbréfamarkaði þannig að vextir þar Iækki um allt að 1,5%. Bankinn telur að þessar aðgerðir geri bönkum og sparisjóðum kleift að lækka vexti af óverðtryggðum útlánum. Að sögn Jóhannesar Nordal, seðlabankastjóra, hlýtur sú vaxtalækkun að vera á bilinu 1-2%. Af hálfu Seðlabankans eru stjórnvöld hvött til að íhuga framkvæmd húsbréfakerfisins með tilliti til áhrifa þess á vaxtaþróun í landinu. Jóhannes Nordal sagði á fundi með blaðamönnum í gær að vextir hefðu farið lækkandi að undanförnu. Vextir hefðu hækkað í kjölfar efna- hagsaðgerða í nóvember en hefðu síðan verið að lækka. Lækkunin væri nálægt 1% á skuldabréfamark- aðnum og 1,5% á skammtímamark- aðnum. Seðlabankinn hefði beitt sér fyrir þessu með ýmsum aðgerðum m.a. með lækkun bindiskyldu um 2% á síðustu mánuðum ársins. Hann sagði að bankinn teldi nauð- synlegt nú að hafa áhrif til þess að vextir lækki enn frekar. Þess vegna hefði Seðlabankinn nú ákveðið að lækka útlánsvexti sína til bankanna um 1-3%. Samtímis hefði verið ákveðið að hækka vexti af skamm- tímainnstæðum bankanna og bundnu fé um 1,5%. „Það sem ekki skiptir minna máli en þessar beinu breytingar á okkar útlánsvöxtum er það að við höfum lækkað okkar til- boð á verðbréfamarkaðnum i ríkis- víxla og ríkisbréf um 1,5%.“ Ný verðbólguspá Seðlabankans gerir ráð fyrir að 1,5% árshraða verð- bólgunnar á mælikvarða lánskjara- vísitölu á næsta ársfjórðungi. Þessar verðlagshorfur ásamt lækkun vaxta á skammtímamarkaði og hjá Seðla- bankanum telur bankinn að geri innl- ánsstofnunum kleift að lækka útl- ánsvexti sína, einkum á óverðtryggð- um lánum 1. apríl nk. Seðlabankinn leggur einnig áherslu á mikilvægi þess að vextir á langtímabréfum, einkum spariskír- teinum og húsbréfum, lækki einnig á næstunni. Hins vegar er bent á að bankinn hafi takmarkaða mögu- leika til þess að hafa áhrif á þessum markaði, sem sé stærri en svo, að viðskipti Seðlabankans geti ráðið þar úrelitum. Af hálfu bankans er lögð mikil áhersla á að stjómvöld reyni að draga úr framboði opinberra verð- bréfa til langs tíma. Nokkurt svig- rúm sé væritanlega til þess að stýra framboði spariskírteina, m.a. með því að sækja í vaxandi mæli inn á aðra markaði t.d. með útgáfu eins til tveggja ára ríkisbréfa. Hins vegar sé erfiðara að hafa áhrif á framboð húsbréfa sem mestu hafi ráðið um vaxtastig undanfarin tvö ár. Sé ástæða til þess að hvetja ríkisvaldið enn á ný til þess að íhuga fram- kvæmd húsbréfakerfisins með tilliti til áhrifa þess á vaxtaþróun í land- inu. Af hálfu bankans er á það bent að ávöxtunarkrafa húsbréfa hafí lækkað úr 8% þegar hún fór hæst en hafi lækkað í 7,25%. í gær hækk- aði ávöxtunarkrafan hins vegar í 7,35% á húsbréfamarkaðnum þar sem gætt hefur aukins framboðs húsbréfa síðustu daga og en að sama skapi dregið úr eftirspurn. Framkvæmdastjóri Sambands fiskvinnslustöðva Hallinn gífurleg^ur áfram Vaxtalækkun greiðir fyrir samningum, segir forseti ASÍ ARNAR Sigurmundsson, framkvæmdastjóri Sambands fiskvinnslu- stöðva, segist telja að lánastofnanir geti ekki vikizt undan þvi nú að lækka vexti verulega. Hann segir að vaxtalækkun dragi eitthvað úr hallarekstri sjávarútvegsins, en sé þó ekki nándar nærri nóg. Meira verði að koma til; annað hvort kostnaðarlækkunarleið eða gengisfell- ing. Benedikt Davíðsson, forseti Alþýðusambandsins, segir að vaxta- lækkun muni greiða fyrir gerð kjarasamninga. „Við höfum lengi sagt að vextir væru mun hærri hér en í helztu við- skiptalöndum okkar og talið að um 3% vaxtalækkun þyrfti að koma til,“ sagði Arnar. „Þessar boðuðu aðgerð- ir geta þýtt 1-2% vaxtalækkun. Engu að síður teljum við þetta skipta máli. Vaxtalækkun mun draga eitthvað úr hallarekstri sjávarútvegsins. Við höfum sagt að 3% lækkun innlendra raunvaxta þýði um eins milljarðs króna hagsbót fyrir sjávarútveginn á einu ári. Greinin í heild er hins vegar rekin með um 9% halla, sem Margrét Frímannsdóttir alþingismaður Oþarfi að hækka sjálfræðisald- ur vegna eins unglings á ári er í kring um fimm milljarðar á einu ári. Meginhluti vandans er því eftir.“ Arnar sagði að þótt vaxtalækkun ætti sér stað, myndi hallinn því verða gífurlegur áfram, en hann stafaði einkum af verðfalli afurða á erlend- um mörkuðum. Kostnaðarlækkun eða gengisbreytingu Aðspurður hvort hagsmunaaðilar í sjávarútvegi myndu fara fram á gengislækkun til að brúa bilið, sagði Arnar: „Við höfum sagt að tveir möguleikar væru í stöðunni. Annars vegar að draga enn frekar úr kostn- aði. Við höfum talið að menn ættu að skoða kostnaðarlækkunarleiðina, sem bent var á 1988. Það voru ekki skilyrði til að fara hana þá. Við höf- um talið vaxtalækkun vera lið í þeirri leið. Ef hún er ekki framkvæmanleg og ekki vilji til að fara hana, höfum við talið að ekki yrði hjá því komizt að breyta gengi krónunnar." í utandagskrárumræðum á alþingi í gær gagnrýndi Margrét Frímanns- dóttir alþingismaður hvernig félagsmálaráðherra hefði staðið að undir- búningi þeirrar ákvörðunar ríkisstjórnarinnar að veita 20 milþ'. króna til að selja á stofn lokaða deild fyrir síbrotaunglinga yngri en 16 ára og fyrirætlanir ráðherra um að hækka sjálfræðisaldur úr 16 árum í 18. Hún sagði að reynslan sýndi að einn 16 ára unglingur á ári hljóti fangelsisdóm og því sé ekki sjálfgefið að hækka sjálfræðisaldur þús- unda ungmenna til að geta sett örfáa unglinga á lokaða deild án vilja þeirra og málsmeðferðar í dómskerfinu. Jóhanna Sigurðardóttir félags- máiaráðherra vísaði því á bug, sem Margrét hafði leitt getum að, að ákvörðun um fjárveitinguna hefði verið tekin undir áhrifum mikillar fjölmiðlaumíjöllunar um síbrotaungl- inga. Jóhanna sagði fyrstu tillögur um stofnun deildar af þessu tagi hefðu komið fram 1985. Ákvörðun hefði verið tekin að tilmælum m.a. bamaverndamefndar, Félagsmála- stofnunar og forvamadeildar lög- reglunnar í Reykjavík. Hún sagði 16 ára sjálfræðisaldur fyrst og fremst hafa táknrænt gildi því þorri ungmenna sé mun lengur undir handleiðslu foreldra. Verði talið ókleift að hækka aldurinn sé það lámarksaðgerð að breyta sjálfræðis- lögum þannig að dómurum verði kleift að svipta menn tímabundið sjálfræði en nú fellur úrekurður um sjálfræðissviptingu aðeins úr gildi með nýjum dómsúrskurði. í umræðunum kom m.a. fram hjá Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur al- þingismanni, sem lýsti sig fylgjandi hækkun sjálfræðisaldurs að þeirri breytingu muni fylgja útgjaldaauki fyrir ríkissjóð þar sem greiða verði barnabætur og bamabótaauka með bömum til 18 ára aldurs. Bankarnir ættu að geta lækkað vextina Benedikt Davíðsson, foreeti Al- þýðusambands íslands, segir að staða viðskiptabanka og sparisjóða ætti að vera betri eftir ákvörðun Seðlabankans um vaxtalækkun og það ætti að auðvelda gerð kjara- samninga ef þeir lækkuðu vextina á næsta vaxtabreytingardegi. Þessi ákvörðun Seðlabankans væri skref í rétta átt og hann vænti þess að það væri rétt mat hjá Seðlabankastjóra að bankamir ættu að geta lækkað vextina í kjölfarið. Hann hefði sjálf- sagt besta faglega þekkingu til þess að meta það. MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. MARZ 1993 27 Möguleikar á samningum til hausts 1994 kannaðir AÐILAR vinnumarkaðarins hafa ákveðið að láta reyna á það næstu dagana hvort sameig- inlegur grundvöllur er fyrir kjarasamningi sem gildi til hausts 1994. Þetta var ákveðið á fundi samninganefnda í hádeginu í gær. Smærri hópur fundaði aftur seinnipartinn og annar samningafundur hefur verið boðaður í dag. Búist er við að á morgun skýrist hvort ástæða sé til að halda viðræðum áfram en þá fundar framkvæmdasljórn Vinnuveitenda- sambands íslands og stóra samninganefnd Alþýðusambands Islands hefur einnig verið kölluð saman. Samstarf við stjórnvöld Benedikt Davíðsson, forseti ASÍ, sagði að ákveðið hefði verið að láta reyna á það hvort það væri sameiginlegur flötur á því að ná saman kjarasamningum sem giltu til hausts 1994 og hvort samstarf gæti orðið við stjórnvöld um hlut- deild í þeim samningi, þ.e.a.s varðandi verð- lags-, og skattamál. Stefnt væri að því að niður- staða lægi fyrir um hádegi á morgun um hvert framhaldið yrði „og hvort við Alþýðusambands- menn þurfum að stokka spilin og halda öðruvísi á málum en við höfum verið að gera til þessa,“ sagði Benedikt. Hann sagði að ef niðuretaðan yrði sú að ástæða væri til að halda áfram viðræðum í þessum far- vegi gerði hann ráð fyrir að gengið yrði til þess af krafti og að fundarhöld yrðu um helgina. Það hefði í viðræðunum alltaf verið gengið út frá því að gerður yrði samningur til svo langs tíma að ráðrúm gæfist til að byggja upp atvinnustigið. Til þess þyrfti samning til að minnsta kosti eins og hálfs árs. „Við höfum farið mjög vandlega yfir stöðuna og erum ákveðnir í því á allra næstu dögum að meta það endanlega hvort við teljum að það sé hægt að gera kjarasamning, hvert efni hans þurfi að vera og hvaða hliðaraðgerðir þurfi að fylgja," sagði Þórarinn V. Þórarinsson, fram- kvæmdastjóri VSÍ, í samtali við Morgunblaðið. Aðspurður hvort aðilar hefðu sett sér tíma- mörk í þessum efnum, sagði Þórarinn að hann byggist við því að reynt yrði að meta það á morgun, föstudag, hvort menn teldu að það væri grundvöllur fýrir frekari viðræðum. Þá yrði' fundur í framkvæmdastjóm Vinnuveitendasam- bandsins og einnig eftir því sem hann best vissi í stóru samninganefnd Alþýðusambandsins. í kjölfarið myndi væntanlega skýrast hvaða stefnu viðræðurnar tækju. Einar Kr. Guðfinnsson þingmaður Grettístaki lyft í vega- málum á Yestfjörðum Vel hlaðinn ÍSLEIFUR VE siglir inn til löndunar í Vestmannaeyjum í gær. Loðnuvertíð að ljúka Um 165 þúsund tonn óveidd af loðnukvótanum SÆMILEG loðnuveiði var við Snæfellsnes í gær og fengu nokkr- ir bátar fullfermi. Bræla var á miðunum og ekki er útlit fyrir mikla veiði þó veður batni. Um 165 þúsund tonn eru óveiddd af loðnukvótanum en útlit er fyrir að vertíðinni sé að ljúka. Nokkrir bátar fengu fullfermi af loðnu við Snæfellsnes í gær og í fyrradag að sögn Guðjóns Bergþóre- UM 80 manns hafa skráð sig á fiskeldisráðstefnu, sem haldin verður á Akureyri um helgina, sem er mun fleiri en búist var við, að sögn Vilhjálms Guðmunds- sonar hjá Útflutningsráði ís- Iands. Á ráðstefnunni verður m.a. sonar skipstjóra á Víkingi AK 100. Hann sagði að loðnan væri nær ein- göngu hængur og magnið ekki mik- ið. Bræla var á miðunum í gær. Sagði Guðjón að ekki væri útlit fyrir mikla veiði þó veður batnaði og benti flest til að loðnuvertíðinni væri að ljúka. Um 660 þúsund tonn af loðnu hafa borist á land á haust- og vetrar- vertíð en um 165 þúsund tonn eru óveidd af loðnukvótanum. fjallað um eldi á þorski, lúðu, bleikju og laxi, rannsóknir og horfur í markaðsmálum. Til ráðstefnunnar boða Fagráð bleikjuframleiðenda, Landssam- band fiskeldis- og hafbeitarstöðva, Rannsóknaráð ríkisins og Útflutn- „ÞÆR vegaframkvæmdir sem nú er unnið að á Vestfjörðum eiga eftir að gjörbreyta öllu fyrir at- vinnulífið þar. Flýting fram- kvæmda við Vestfjarðagöng bæt- ist þar við vegagerð yfir Hálfdán og bætur á Oshlíðarvegi,“ sagði Einar Kr. Guðfinnsson, þingmað- ur Vestfjarðakjördæmis, í sam- tali við Morgunblaðið. Einar kvaðst mjög ánægður með að ákveðið hefði verið að flýta fram- kvæmdum við Vestfjarðagöng, svo þau verði opnuð haustið 1994, eða ári fyrr en til stóð. „Þetta er óskap- lega mikill áfangi og ljóst að göng- in gjörbreyta öllu fyrir atvinnulífið á norðanverðum Vestfjörðum," sagði hann. „Þá er verið að lyfta Grettistaki í vegamálum víða á Vestfíörðum. Nú er verið að bjóða út stórverk á veginum um Hálfdán, á milli Bíldudals og Tálknafjarðar, og verður lokið við að byggja hann upp úr snjónum nú í haust. Þá hafa einnig verið opnuð tilboð í ingsráð íslands. Gert er ráð fyrir umtalsverðum vexti í fiskeldi í heim- inum næstu áratugina og að fram- leiðsla eldisafurða þrefaldist fram til áreins 2000 og muni þá nema 38 milljónum tonna árlega. vegskála á veginum um Óshlíð, milli Bolungarvíkur og ísafjarðar. Samanlagt gjörbreyta þessar fram- kvæmdir allri aðstöðu á Vestfjörð- um,“ sagði Einar Kr. Guðfínnsson. ------» » »- Útboð ríkisbréfa í gær Meðal- ávöxtun 12,43% MEÐALÁVÖXTUN samþykktra tilboða í útboði á sex mánaða ríkisbréfum sem fram fór í gær var 12,43%t sem svarar til 11,39% forvaxta, en lægsta ávöxtun var 12,30% og hæsta 12,58%. í síð- asta útboði ríkisbréfa 24. febrúar var meðalávöxtunin 12,40%. Alls bárust 42 gild tilboð í ríkis- bréf í gær að fjárhæð 384 milljónir" króna og heildarfjárhæð tekinna tilboða nam 224 milljónum frá 12 aðilum en í útboði í febrúar sl. nam heildaijfárhæð tekinna tilboða 434 millj. kr. frá alls 29 aðilum. Með útboðinu í gær skuldbatt ríkissjóður sig til að til að taka tilboðum á bilinu 100 til um 600 milljónir kr. 80 manns á fiskeldisráðstefnu Samkomulag náðist á hluthafafundi Sameinaðra verktaka hf. Tillaga um 600 millj. kr. arðgreiðslur dregin til baka Samþykkt að skipa sáttanefnd til að taka út stöðu félagsins Á DAGSKRÁ hluthafafundar í Sameinuðum verktökum hf., sem haldinn var í gær að kröfu minnihlutans í félaginu, var gerð til- laga um 600 milljóna króna arðgreiðslu til eigenda félagsins, skv. heimildum Morgun- blaðsins. Tillagan kom þó ekki til umræðu eða afgreiðslu og var dregin til baka þegar lögð var fram breytingartillaga, sem var studd af öllum stjórnarmönnum Sameinaðra verktaka, Páli Gústafssyni og fleirum, um skipun þriggja manna nefndar til að taka út stöðu félagsins, móta stefnu um arðgreiðslur og um framtíð íslenskra aðalverktaka sf. Var breytingartillagan samþykkt samhljóða og hefur tekist sátt á milli fylkinganna innan félags- ins um þessa niðurstöðu samkvæmt heimildum Morgunblaðsins. í nefndina voru skipaðir Vilberg Vilbergsson, stjórnarmaður í SV, Páll Gústafsson fram- kvæmdastjóri og Jakob Bjarnason fulltrúi Hamla. Nefndin mun leggja tillögur sínar um félagið fyrir stjórn félagsins og aðalfund sem væntanlega verður haldinn í apríl og verða þær svo til áfram- haldandi umræðu fram að öðrum hluthafafundi í haust. Engin ákvörðun um arðgreiðslu Skv. upplýsingum Morgunblaðsins var upphaf- leg tillaga um arðgreiðslur til eigenda í jöfnum greiðslum á fimm árum, sem var tilefni hluthafa- fundarins, lögð fram í þeim tilgangi að fínna flöt á málamiðlun innan félagsins. Hún var svo dreg- in til baka án umræðna þegar fyrir lá samkomu- lag um skipan nefndar til að taka út stöðu SV. Verðmatsskýrsla sem Verðbréfamarkaður ís- landsbanka vann í haust um sölugengi hlutabréfa í SV sem eru til sölu á hlutabréfamarkaði var kynnt á hluthafafundinum í gær en litlar umræð- ur urðu um skýrsluna.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.