Morgunblaðið - 25.03.1993, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 25.03.1993, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. MARZ 1993 37 var ekki síðri heimilisfaðir, enda átti hann yndislega fjölskyldu og reyndist henni í samræmi við lund- erni sitt, traustur og góðsamur. Um leið og við, fjölskyldan að Runnum, þökkum samfylgdina og trausta vináttu vottum við þér, elsku Magga, og börnunum þínum, Önnu, Maríu, Jónu og Herði, okkar innilegustu samúð í sorg ykkar. Ennfremur fjölskyldunni á Vestur- götu 148 og öllum þeim sem nú eiga um sárt að binda vegna mik- ils harmleiks. Guð blessi ykkur og styrki. Þorvaldur Pálmason. Alltaf skulu stóráföll koma jafn- mikið á óvart. Mikið varð mér um þegar ég frétti að Nikulás Kajson hefði farist miðvikudaginn 17. mars síðastliðinn við mynnið á Akraneshöfn. Það er gjaman talað fjálglega um sjómenn á Sjómanna- daginn og þeir nefndir hetjur hafs- ins. Þess á milli vilja þeir gleymast og sannarlega vill gleymast þessi ægilega glíma við náttúruöflin sem engu eira. Það er þó ýtt við okkur landkröbbunum öðru hveiju þegar slíkar voðaatburðir gerast. Þá blas- ir við hversu hættulegt starfið er. En sjómenn eru lítillátir. Þeim finnst þetta bara vera þeirra starf og ræða það ekki frekar. Kynni okkar Lalla hófust fyrir rúmum 15 árum. Konur okkar eru frænkur og það var ástæðan fyrir okkar fyrstu kynnum. Okkur varð vel til vina enda Lalli mannkosta- maður. Það var gaman að ræða við hann um landsins gagn og nauðsynjar. Hann fylgdist vel með þjóðmálum og hafði skoðun á þeim. Sjálfur var hann ljúfmenni og mik- ið snyrtimenni. Glettnin var stutt undan og hann var skemmtilega stríðinn. Þetta var ekki meinfysin skemmandi stríðni heldur létt glettni sem skemmdi engan. Það var gott að setjast niður með hon- um og spjalla. Hann var tillitssam- ur í umgengni og frá honum komu jákvæðir straumar. Það finnst strax í samskiptum við fólk hvort einlægni þess er ekta eða ekki. Einlægnin hans Lalla var ekta. Útgerð sína rak hann með prýði og hann var skipstjóri góður. Hann var með fengsælli skipstjórum í smábátaútgerð á Akranesi og var- færinn skipstjórnandi. Var hann líka nýtinn og sparsamur útgerðar- maður. Minnti hann mig stundum á föður minn sem rak útgerð í Vestmannaeyjum í 26 ár. Faðir minn átti það til að snúa spottum við þegar þeir voru farnir að slitna i annan endann í stað þess að taka fram nýja. Þetta á ekkert skylt við nísku heldur er þetta nýtni og út- sjónarsemi. Lalli hafði þennan eig- inleika sem átti sinn þátt í því að hann rak góða útgerð. Tilvitnanir, ljóð og spakleg orð verða fátækleg þegar slíkir voðaat- burðir ríða yfir. Af hveiju er ungir maður í blóma lífsins kallaður svo skyndilega á brott? Af hveiju var honum ekki ætlað að njóta fjöl- skyldunnar og vinanna lengur? Og þeir hans? Það er erfitt að sætta sig við ástvinamissi og ekki síst vegna þess að það fást ekki svör við þessum spurningum. Engin orð fá heldur lýst sorginni sem heltek- ur. Fyrst kemur kökkur í hálsinn og síðan steinn fyrir bijóstið. Þetta tvennt virðist síðan sameinast und- ir bringubeininú. Það er eins og greip nái heljartaki og herði að. Ekkert læknar slíkt nema tíminn. Tíminn sest í sæti líknarans og lin- ar þjáningarnar smám saman. Við fjölskyldan sendum Möggu og bömunum fjórum, Önnu, Maju, Jónu og Herði, okkar innilegustu samúðarkveðjur. Sömu kveðju sendum við öðrum ástyinum. Megi almættið geyma ykkur og styðja í þrengingum ykkar. Ægir Rafn Ingólfsson og fjölskylda. Undankeppni íslandsmótsins í sveitakeppni að hefjast Hörð barátta fyrirsjáanleg Brids Guðm. Sv. Hermannsson Undankeppni íslandsmótsins í sveitakeppni í brids hefst á Hótel Loftleiðum í dag kl. 13. Þar keppa 32 sveitir af öllu landinu um 8 sæti í úrslitakeppni um páskana. Sveitirnar 32 hafa verið dregnar í fjóra riðla og komást tvær sveitir áfram í úrslitin úr hveijum riðli. Ri’ðlaskipanin hefur þegar birst í Morgunblaðinu. Fyrirsjáanleg er skemmtileg barátta um úrslitasætin í öllum riðlunum þótt þeir virðist nokkuð missterkir og í einum þeirra, B-riðli, ættu að minnsta kosti fjórar sveitir að eiga möguleika á úrslita- sætunum tveimur. Samt yrði vænt- anlega litið á það sem óvænt úrslit ef Reykjavíkurmeistarar S. Ármanns Magnússonar og Bridshátíðarmeist- arar Glitnis kæmust ekki áfram, þótt sveitir Roche og Nýheija, sem einnig eru í riðlinum, séu vísar til alls. Allar þessar sveitir eru frá Reykjavík. Áuk þess eru í riðlinum sterkar sveitir frá Selfossi, ísafírði og Norðurlandi. í D-riðli gæti orðið hörð barátta milli þriggja Reykjavíkursveita um úrslitasætin tvö, Tryggingamið- stöðvarinnar, Hjólbarðahallarinnar og Hrannars Erlingssonar. Þar er Tryggingamiðstöðin sigurstrangleg- ust en sveitin vann fyrir skömmu aðalsveitakeppni Bridsfélags Reykja- víkur með yfirburðum. í þeim riðli eru einnig sveit Sjóvár-Almennra frá Akranesi sem gæti vel blandað sér í þessa baráttu og einnig tvær sveit- ir frá Austurlandi, en þar er mikill uppgangur í bridsíþróttinni um þess- ar mundir. Línurnar virðast öllu skýrari í hin- um riðlunum tveimur. í A-riðli ættu íslandsmeistarar Landsbréfa og Sím- on Símonarson að komast áfram ■jSSP Morgunblaðið/Arnór Að spilum Frá undankeppni íslandsmótsins í sveitakeppni á siðasta ári þótt sveitir Arnar Einarssonar frá Akureyri og Gísla Steingrímssonar frá Reykjavík gætu komið á óvart. í C-riðli eru sveitir VÍB og Spari- sjóðs Siglufjarðar sigurstranglegast- ar en Sigfús Þórðarson frá Selfossi og Júlíus Snorrason frá Reykjavík gætu unnið hvaða sveit sem er. Það er oft fjörug spilamennska í undankeppni Islandsmótsins. Þetta spil kom upp fyrir nokkrum árum og sýnir að það borgar sig oft að segja einum betur þegar sagnbarátt- an er komin S/NS upp á hærri sagnstigin. Norður ♦ K8765 ♦ 753 ♦ DG84 Vestur ♦ 3 Austur ♦ ÁD ♦ G ♦ ÁKDG86 ♦ 10952 ♦ 5 ♦ K93 ♦ KG94 „ , ♦ 87652 Suður ♦ 109432 ♦ - ♦ Á10762 ♦ ÁDIO Vestur Norður Austur Suður - - - 2 spaðar 4 tyortu 4 spaðar 5 hjörtu 5 spaðar 6 hjörtu Pass Pass 6 spaðar Dobl/// Opnun suðurs sýndi að minnsta kosti 5-5 í tígli og spaða og 7-11 punkta. Það var mikil stígandi í sögn- unum og þegar 5 spaðar komu að vestri hugsaði hann með sér, að þótt réttast væri að dobla þann samning og fá væntanlega 500 eða svo fyrir, myndu NS ekki standast freistinguna að halda áfram í 6 spaða ef ýtt yrði við þeim með 6 hjörtum. Hann reynd- ist sannspár og doblaði glaður 6 spaða. En eftir að hafa spilað út hjartaás varð vestur langleitari og langleitari með hveijum slag. Suður trompaði, spilaði spaða á kóng, svínaði tígli og lagði fljótlega upp. Sögð og unnin slemma á aðeins 16 hápunkta! Það bætti ekki úr skák fyrir vestur, að sveitarfélagar hans stríddu honum á að hafa ekki fundið hið augljósa trompútspil, þ.e. spaðadrottninguna. Þá hefði suður örugglega talið að austur ætti ásinn blankan og sett lítið í borði. miðað yí9 efnahagshorfur! LADA • LADA • LADA • LADA SAFIR Frá 418.000,- kr. 104.500,- kr. út og 10.051,- kr. í 36 mánuði SKUTBÍLL SAMARA Frá 498.000,- kr. 134.500,- kr. út og 11.974,- kr. í 36 mánuði Frá 533.000,- kr. 131.000,- kr. út og 13.568,- kr. í 36 mánuði SPORT Frá 798.000,- 300.000,- kr. út og 19.173,- kr. í 36 mánuði Tökum notaða bíla sem greiðslu upp í njja og bjóðum ýmsa aðra greiðslumöguleika. Tekið heíiur verið tillit til vaxta í útreikningi á mánaðargreiðslum. AFAR KAI .MLFI I Ii KOSTIIR! BIFREIÐAR & LANDBÚNAÐARVÉLAR HF. ÁRMÚLA 13, SÍMl: 68 12 00 BEINN SÍMI: 3 12 36

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.