Morgunblaðið - 25.03.1993, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. MARZ 1993
39
I
I
I
(
(
(
i
i
í
I
ð
i
hafði óvenju fallega rithönd. Og
hann var ákaflega öruggur í talna-
meðferð. Enga menn hef ég hitt
fyrir á lífsleiðinni, sem voru örugg-
ari í meðferð talna en Arngrímur
og Jóhann bróðir hans. Arngrímur
hélt fast við þá reglu að færa við-
skiptamannareikninga beint eftir
frumgögnum og bera síðan samtöl-
ur þeirra saman við niðurstöður
viðskiptamannareikninga aðalbók-
ar. Ef það kom fyrir, að tölum á
viðskiptamannareikningi Arngríms
bæri ekki saman við tölur viðskipta-
mannsins, veit ég ekki betur en það
væri nálega eða alveg undantekn-
ingarlaust, að tölur Arngríms
reyndust réttar.
íslensk endurtrygging hafði við-
skipti við mörg erlend vátrygginga-
félög í ýmsum löndum. Skilagreinir
frá þeim voru með ýmsum hætti.
Þrátt fyrir það tókst Arngrími ná-
lega alltaf að finna út, til hvaða
skírteinisára iðgjöld og tjón hvers
reikningsárs heyrðu. Af því leiddi
þegar fram í sótti, að unnt var að
mynda tröppulínu fyrir hvern samn-
ing, er sýndi hve mikill hluti tjóna
hvers skírteinisárs kom fram á
hveiju ári, sem leið. Við áætlun um
áfallin óuppgerð tjón við lok hvers
reikningsárs var mikils virði að
hafa þessar tröppulínur til hliðsjón-
ar. Oft reyndust upplýsingar frum-
tryggjenda um áfallin óuppgerð tjón
ófullnægjandi.
Ýmis áhugamál hafði Arngrímur
önnur en hin daglegu störf, þótt
hann blandaði áhugamálunum ekki
saman við daglegu störfin. Til dæm-
is hafði hann gaman af að grípa í
spil og var snjall bridgespilari. Hann
var mjög handlaginn. íbúðarhús
sitt byggði hann að mestu leyti
sjálfur. Hann var natinn garðyrkju-
maður. Til dæmis ræktaði hann
jarðarber í garði sínum og fékk oft
ótrúlega mikla uppskeru af þeim.
Starfsfólk það, sem vann hjá ís-
lenskri endurtryggingu fyrstu ára-
tugina, er nú orðið dreift víða. Sumt
er þegar fallið frá, annað orðið aldr-
að. Fráfall hvers og eins vekur upp
hjá þeim, sem eftir eru, fornar
minningar um liðna tíð. Við fráfall
Arngríms minnumst við samveru
með góðum dreng og traustum
samstarfsmanni. Eftirlifandi konu
hans og sonum sendum við innileg-
ar samúðarkveðjur.
Kr. Guðmundur Guðmundsson.
í dag er til grafar borinn Arn-
grímur Siguijónsson, fyrrum aðal-
bókari Þjóðleikhússins, en hann lést
hinn 12. þ.m. á 82. aldursári.
Arngrímur var í hópi þeirra
manna, sem lengstan starfsaldur
hafa átt í Þjóðleikhúsinu; hann kom
fyrst til starfa við bókhald leikhúss-
ins og reikningsskil í ársbyijun
1957 og vann síðan óslitið sem
aðalbókari hússins á fjórða tug ára,
allt til ársins 1989. Allan þennan
tíma var bókfærslan fyrir Þjóðleik-
^blómstrandi vt
Blóm Skreytingar Gjafavara
Kransar Krossar Kistuskreytingar
Opið alla daga frá kl. 9-22
Fákafeni 11
s. 68 91 20
erfidrykkjur í
ný uppgerðum
Gyllta salnum.
Hlaðborö og
nýlagað kaffi
kr. 790,-
Hótel Borg
sími 11440.
húsið aukastarf Arngríms og löng-
um unnið á heimili hans á Hjalla-
vegi 42 vegna aðstöðuleysis í leik-
húsbyggingunni - og svo ótrúlega
sem það hljómar nú, var starfsheim-
ild bókarans bundin öll árin við
aðeins þriðjung úr stöðugildi.
Lengst af starfstíma Arngríms
Siguijónssonar í íjóðleikhúsinu
voru öll bókhaldsgögn handfærð;
það var aðeins hin síðustu ár hans
við leikhúsið sem færslur voru unn-
ar fyrir vélabókhald. Við starfslok
Amgríms var leikhúsið komið með
sitt eigið tölvuvædda bókhald og
starfslið sem talið er svara til um-
fangs og þeirra krafna sem til þess
eru gerðar. Sást þá gleggst hvílíkur
afkastamaður Arngrímur var í sínu
fagi og í raun margra manna maki.
Og það voru ekki bara mikil afköst
sem einkenndu störf hans, heldur
leysti hann þau af hendi af mikilli
nákvæmni og fágætri snyrti-
mennsku. Arngrímur Siguijónsson
var listaskrifari, athugull í besta
lagi, talnaglöggur og úrræðagóður
í flækjum bókhaldsins, nákvæmur
en ekki smámunasamur, gagnrýn-
inn en hið mesta ljúfmenni í öllu
samstarfi. Þannig kom Arngrímur
Siguijónsson mér fyrir sjónir þá
tæpu tvo áratugi sem við unnum
saman og undir þau orð taka vafa-
laust allir aðrir starfsmenn leikhús-
skrifstofunnar sem samskipti höfðu
við hann. Að sjálfsögðu var hann
ekki gallalaus frekar en aðrir; hann
var veikur fyrir þegar áfengi var
annars vegar og það tók af honum
völdin endrum og sinnum, en alltaf
þegar slíkt henti mátti treysta því
að Arngrímur lyki sínu verki að
lokum eins og til var ætlast. Naut
hann þá, eins og endranær, um-
hyggju og aðstoðar eiginkonu sinn-
ar, Guðrúnar Öldu Sigmundsdóttur.
Að leiðarlokum ber að þakka
Arngrími Siguijónssyni mikil og
góð störf í þágu Þjóðleikhússins.
Við sem störfuðum með honum í
leikhúsinu minnumst hans af hlý-
hug og vottum aðstandendum sam-
úð okkar.
ívar H. Jónsson.
Við andlát föðurbróður míns,
Arngríms Siguijónssonar, þyrluð-
ust upp minningabrot um bernsku
mína í húsinu við Hjallaveginn. Sem
barn var ég hjá þeim um lengri og
skemmri tíma. í huga barnsins var
húsið stórt og garðurinn hans Arn-
gríms ekki minni en sjálfur Hallar-
garðurinn. Blómin, sem hann rækt-
aði af stakri natni, voru fallegri en
í öðrum görðum. Minnisstæðir eru
sólardagar þegar við skriðum í
moldinni að planta blómum eða
hreinsa beð. Garðurinn var stolt
hans og gleði sem ég fékk hlutdeild
í. Hann gerði tilraunir með alls
konar jurtir og tókst meira að segja
að rækta jarðarber í einu horninu.
Eitt gott sumar var jarðarbeijaupp-
skeran með ágætum og fékk ég
fulla dós af jarðarbeijum tl að fara
með heim. Enn í dag hef ég ekki
fengið betri jarðarber en þau, enda
át ég úr dósinni áður en heim var
komið.
Arngrímur bjó yfir mikilli þolin-
mæði þegar ég var annars vegar.
Hann reyndi allt til að kenna mér
fingrasetningu á píanó og ekki var
þolinmæðin minni þegar hann
reyndi að kenna mér að syngja.
Heilan dag sátum við á gólfinu við
segulbandið, ég syngjandi, en hann
að spóla til baka og stilla tækið
fyrir næstu tilraun. Hann hafði ein-
sett sér að barnið gæti sungið.
Það var allt öðruvísi í húsinu á
Hjallaveginum en heima. Fyrst og
fremst var það garðurinn og svo
húsið sem var á tveimur hæðum.
Heita vatnið rann ekki úr krönunum
heldur kom úr hraðsuðukatli. Á
kvöldin þurfti ég að standa við vask-
inn meðan Alda þvoði mér. Lyktin
af sápunni var líka önnur en ég
átti að venjast.
Jóla- og afmælisgjafir frá Öldu
og Arngrími voru líka sérstakar.
Eitt árið fengum við systurnar
glæsilega kuldaskó sem við stilltum
upp á bókaskáp til að geta notið
þess að horfa á þá. Peysurnar frá
þeim vöktu athygli, hvort sem þær
voru keyptar í búð í Englandi eða
pijónaðar hér heima.
Frá því að æskuárunum lauk liðu
mörg ár þar til ég kom aftur í hús-
ið og þá fullorðin. Húsið var ekki
eins stórt og mig minnti, en garður-
inn var eins, nema hvað trén voru
hærri. Það var vor og gamla heimil-
ið mitt í kj'allaranum hafði breyst
í gróðrarstöð. Um allt voru sumar-
blóm í ræktun sem áttu síðar að
prýða garðinn. Bak við húsið var
lítill glerskáli og þar voru rósirnar ,
sem Arngrími tókst að koma vel á
legg eins og öðru. Hann vissi allt
um ræktun og plöntur og að skiln-
aði gaf hann mér heilu kassana af
ungplöntum í minn garð. Það var
dagsverk að gróðursetja þær allar
enda voru þær rúmlega hundrað.
Þetta var þó aðeins brot af því sem
hann hafði komið til það vorið. Síð-
ast hitti ég þennan aldraða föður-
bróðir minn í vetur. Það lá vel á
honum þrátt fyrir að sjónin hefði
daprast mikið. Aftur barst talið að
gróðri og hann benti okkur á hátt
og beinvaxið grenitré sem hann
hafði gróðursett fyrir Iöngu. Það
tré þykir einstakt og á eftir að
standa í garðinum við Hjallaveginn
sem minnisvarði um mann sem á
langri ævi ræktaði skrúðgarð í holti.
Nanný.
t
Útför eiginkonu minnar, móður, tengdamóður og ömmu,
ÁSTU ÞÓRÐARDÓTTUR,
Sléttuvegi 13,
Reykjavík,
fer fram frá Bústaðakirkju, föstudaginn 26. mars, kl. 13.30.
Jakob Þorsteinsson,
Þóra Jakobsdóttir, Friðrik S. Kristinsson,
Þorsteinn Jakobsson, Guðrún Óðinsdóttir,
Óskar Jakobsson, Angela Jakobsson,
Halldór Jakobsson, Birna Guðjónsdóttir
og barnabörn.
t
Ástkaer móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma,
BJÖRG EINARSDÓTTIR,
Snælandi 2,
Reykjavik,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju, föstudaginn 26. mars kl.
13.30.
Erlingur Lúðviksson, Jakobína Ingadóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
SIGURBORG SIGURBJÖRNSDÓTTIR,
Vigholtsstöðum,
Dalasýslu,
sem lést 20. mars, verður jarðsungin
að Hvammi í Dölum laugardaginn 27.
mars kl. 14.00.
Sigurbjörn Sigurðsson, Melkorka Benediktsdóttir,
Steinunn Sigurðardóttir, Brynjar Valdimarsson,
Steinunn M. Sigurbjörnsdóttir, Haraldur Reynisson,
Sigurborg H. Sigurbjörnsdóttir, Sveinn Sigurðsson,
Sigurður Sigurbjörnsson,
Sigurður Brynjarsson,
Friðrik Brynjarsson,
Rósa Björg Brynjarsdóttir,
Nanna Margrét Brynjarsdóttir,
Melkorka Rún Sveinsdóttir.
t
Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug við andlát og útför, móður
okkar,
ÖNNU GUÐMONSDÓTTUR
frá Kolbeinsvík.
Börnin.
t
Innilegar þakkir til þeirra mörgu, sem sýndu okkur samúð og vinar-
hug við fráfall
GUNNARS ÓLAFSSONAR
frá Reykjarfirði.
Sigurlaug Magnúsdóttir,
börn og tengdabörn.
t
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við
andlát og útför föður okkar, tengdaföður, afa og langafa,
GUÐJÓNS HAFSTEINS JÓNATANSSONAR
rennismiðs,
Hamraborg 32,
Kópavogi.
Aðstandendur.
t
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og vinar-
hug við andlát og útför eiginmanns míns,
KARLS J. MAGNÚSSONAR
rafeindavirkjameistara,
Ljósheimum 20.
Ólöf Eiríksdóttir,
börn, tengdabörn
og barnabörn.
t
Innilegar þakkir til allra er sýndu okkur samúð og vinarhug við
andlát og útför móður okkar og tengdamóður,
DÝRLEIFAR ÁRNADÓTTUR,
Sauðárkróki,
Sigurbjörg Guðmundsdóttir,
Sveinn Guðmundsson,
Anna Pála Guðmundsdóttir,
Árni Guðmundsson, Hjördfs Þórðardóttir,
Hallfríður Guðmundsdóttir, Egill Einarsson,
Stefán Guðmundsson, Hrafnhildur Stefánsdóttir.
t
Innilegar þakkir til allra er sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför
móður okkar, tengdamóður og ömmu,
SIGURBJARGAR GUÐLAUGSDÓTTUR
frá Flatey
á Skjálfanda.
Hrefna Hallgrimsdóttir,
María Jóhannesdóttir,
Jóhannes Jóhannesson,
Stefanía Jóhannesdóttir,
Hólmdis Jóhannesdóttir,
Sólveig Jóhannesdóttir,
GunnarJóhannesson,
Hallur Jóhannesson,
Guðlaugur Jóhannesson,
Hafdis Jóhannesdóttir,
Þórður Þórðarson,
Þórir Daníelsson,
Bára Hermannsdóttir,
Jón Hermannsson,
Sveinberg Hannesson,
Sóley Hannesdóttir,
Hróðný Valdimarsdóttir,
Hafdis Júlíusdóttir,
Bragi Pálsson,
barnabörn og fjölskyldur þeirra.
Lokað
Tilraunastöð Háskóla íslands í meinafræði að Keld-
um verður lokuð eftir hádegi föstudaginn 26. mars
vegna jarðarfarar BJARGAR EINARSDÓTTUR.
Forstöðumaður.