Morgunblaðið - 25.03.1993, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 25.03.1993, Blaðsíða 40
40 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. MARZ .1993 AFMÆLI Tæplega 200 manns gestir Múrarameistarafélagsins Svava Gísladóttir starfsmaður Múrarameistarafélagins, Ólafur Jóns- son málarameistari og Elín Sörladóttir eiginkona Einars Gunnars formanns Málarameistarafélagsins líta kræsingarnar hýru auga, en lengst til hægri má sjá baksvip Marteins Daviðssonar listmúrara. Óskar Ingvarsson múrarameistari og Kristinn Kristins- son húsasmíða- meistari á spjalli. Morgunblaðið/Þorkell Sveinn Valfells (t.v.) forsíjóri Steypustöðvarinnar, Þórarinn Gunnarsson framkvæmdasljóri hjá prentiðnaðinum, Hreinn Pálsson múrari, Gunnar Gunnlaugsson múrari og Asmundur Kristinsson múrarameistari. Múrarameistarafélag Reykjavíkur hélt upp á 60 ára afmæli félagsins fímmtu- daginn 18. mars í Átthagasal Hótels Sögu. Margt var um manninn, 180 manns, aðallega iðnaðarmenn heiðruðu félagið með nærveru sinni. Margar ræður voru fluttar og bárust félaginu fjöldi gjafa, meðal annars málverk eftir Tolla frá Steypustöðinni, fyrsta eintak af höggmyndinni Stúlkunni eftir Gerði Hjör- leifsdóttur frá BM Vallá, 100.000 vöruúttekt frá Steypustöðinni Ós, málverk eftir Jón Reykdal frá samstarfsfélögum í Meistarafé- lagi húsasmiða, málarameisturum og vegg- fóðrunarmeisturum, málverkið í þokunni frá pípulagningameisturum, málverk eftir Sigríði Rósinkransdóttur frá meisturum á Suðumesj- um o g glæsilega skál eftir Ríkeyju Ingimund- ardóttur frá Meistara- og verktakasambandi byggingarmanna og forláta gestabók með höfðaletri frá Múrarafélagi Reykjavíkur. Einnig bárust félaginu fjöldi blómaskreytinga og -karfa. FORRÆÐISDEILA Woody Allen segir Soon-Yi hafa átt frumkvæði að nektarmyndatöku New York. Reuter. oody Allen viðurkenndi við vitnaleiðslur í forræðisdeilu þeirra Miu Farrow fyrir dómstól í New York á mánudag að hann hefði Blakmót var haldið í Baldurs- haga nýverið, þar sem mættu til leiks kennarar grunnskólans, tvö lið nemenda og foreldrar. Aðalleikur kvöldsins var á milli kennara og nemenda (strákar). Strákamir sigmðu leikinn 15-13 í tekið nektarmyndir af fósturdóttur Miu, Soon-Yi Farrow Previn. Neit- aði kvikmyndaleikstjórinn kunni að það hefðu verið klámmyndir, miklu æsispennandi viðureign en kennar- amir voru 0-11 undir og náðu að skora 13 stig. Foreldramir urðu hlutskarpastir á mótinu sem tókst í alla staði mjög vel. I lokin var farið í „fallhlífarleik" og nemendur tolleraðir á stórri fallhlíf. fremur hefði verið um að ræða eró- tískar myndir og hefði stúlkan átt frumkvæðið að myndatökunni. Allen sat fyrir svörum í réttar- salnum annan daginn í röð en þau Mia Farrow deila hart um forræði yfír þremur börnum. Hann sagði að Soon-Yi hefði átt frumkvæði að myndatökunni. Einhvetja samveru- stund þeirra í desember 1991 hefði hún allt í einu spurt hann hvort hann vildi taka myndir af sér nak- inni. „Vissulega sagði ég,“ svaraði Allen. „Sagðir þú henni ekki að það væri rangt að gera það?“ spurði lögmaður Farrow. „Alls ekki. Þarna áttu tvær fullorðnar manneskjur hlut að máli,“ svaraði Allen. Hann sagðist síðan hafa handleikið Pol- aroid-myndavélina er stúlkan af- klæddi sig. „Leggstu niður í sófann og sýndu mér erótískustu hliðar þínar,“ sagði hann svo. Woody Allen sagði að ástarsam- band þeirra Soon-Yi hefði hafíst um haustið 1991 nokkrum mánuðum áður en myndatakan átti sér stað. „Mér fannst ég vera í slæmu sam- bandi hvað varðar rómantískar þarfír mínar síðustu fímm árin,“ sagði Allen um upphaf ástarsam- bandsins. Sagðist hann að þau Mia Farrow hefðu ekki haft kynmök frá fæðingu sonar þeirra Satchel. Deila Allen og Farrow um for- ræði yfír Satchel, sem er fimm ára, og ættleiddra barna þeirra, Moses sem er 14 ára og Dylan sem er sjö ára. Farrow hefur haldið því fram að Allen hafí misnotað Dylan en sérstök rannsóknarnefnd hreinsaði hann af þeim áburði í síðustu viku. Morgunblaðið/Róbert Schmidt Nemendur tolleraðir í stórri fallhlíf að móti loknu. BILDUDALUR Nemendur, kennarar og foreldrar í blaki Óratími er liðinn síðan samband þeirra Miu Farrow og Woody All ens var gott. Lafhræddur í vitnaleiðslunum hélt Allen því fram að hann hefði reynt allt til að halda deilum þeirra Farrow inn- an skynsamlegra marka. Hún hefði hins vegar sleppt fram af sér beisl- inu'' er hún komst að sambandi þeirra Soon-Yi. Hefði hún hefnt þess með því að snúa börnunum gegn sér og hóta sér lífláti. Meðal annars hefði hún sent sér kort á degi elskenda og stóðu steikarpinni og hnífur í gegnum það. „Ég varð bergnuminn þegar ég opnaði pakk- ann. Lafhræddur. Ég taldi að þetta væri fyrirboði einhvers," sagði Al- len. Hann hélt því fram að hann hefði reynt að róa Miu Farrow, meðal annars tvisvar orðið við þrábeiðni hennar um að gista og sofa með sér á Carlyle-hótelinu í New York. Það sagðist hann hafa gert í þeirri von að hún sneri ekki börnunum gegn sér. Allen sagðist hafa fallist á að fara ekki með börnin inn á heimili sitt eftir að þau skildu og samþykkt umgengnisreglur Miu Farrow sem voru í því fólgnar að fá einungis að heimsækja börnin hjá henni og dveljast með þeim í anddyri íbúðar hennar. „Ég gerði allt sem í mínu valdi stóð til að lempa máli. Lét hvað eftir annað undan því ég vildi ekki að deilan þróaðist í rimmu fyrir dómstólu," sagði hann. Árangurinn hefði hins vegar enginn orðið og Farrow hefði gert sig seka um að „hræðilegan söguburð" um sig við börnin. „Hún sagði þeim að ég væri djöfullinn í mannsmynd...faðir þeirra hefði gert hræðilega hluti við Soon-Yi,“ sagði hann og bætti við að þegar hann hefði reynt að kyssa Satchel hefði piltur þurrkað sér í framan og sagt: „Mamma segir að mér megi ekki þykja vænt um þig“.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.