Morgunblaðið - 18.04.1993, Side 39
; MQRGUNJjLAPIÐ ATVINFVIA/RAÖ/S
uílm>!íimíL
>4&UR, APHÍU ?9$>3
ffl
R AÐ AUGL YSINGAR
Sumarskóli í Skotlandi
Þriggja vikna alþjóðlegur enskuskóli, nálægt
St. Andrews, fyrir 12-16 ára börn og ungl-
inga í júlí. Skólinn er staðsettur í fallegu og
rólegu umhverfi og býður upp á fjölbreytta
íþrótta- og tómstundaiðkun, þ.á m. golf,
ásamt fjölda skoðunarferða.
Reyndur íslenskur fararstjóri verður með
börnunum allan tímann.
Nánari upplýsingar á kvöldin og um helgar
hjá Karli Oskari í símum 91-72539 og
91-75887.
&±>
Auglýsing um innritun
Frá Grunnskólunum
Mosfellsbæ
Innritun nýrra nemenda fyrir næsta vetur fer
fram í skólunum 19. og 20. aprfl frá kl. 9-14.
Áríðandi er að tilkynna nýja nemendur vegna
deildaskiptinga næsta skólaár.
6-12 ára (1.-7. bekkur) í síma 666154.
13-15 ára (8.-10. bekkur) í síma 666186.
Skólastjórar.
Til stúdenta
Háskóla íslands
Stúdentar Háskóla íslands eru minntir á að
árleg skráning í námskeið á haust- og vor-
misseri 1993-’94 fer fram í Nemendaskrá
dagana 19.-26. apríl nk. Saman fer skráning
og greiðsla skrásetningargjalds, kr. 22.500.
Væntanlegir kandfdatar athugið: Þeir, sem
miða við að brautskrást laugardaginn 26.
júní 1993, verða að skrá sig sérstaklega til
brautskráningar í.Nemendaskrá.
Á skráningartímabilinu verður Nemenda-
skráin opin samfellt kl. 9-17:30.
Deildir mæti til árlegrar skráningar
á eftirtöldum dögum:
Verkfræðideild: Mánudag 19. apríl
Raunvísindadeild: Mánudag 19. aprfl
Viðskipta- og
hagfræðideiid: Þriðjudag 20. aprfl
Félagsvísindadeild: Þriðjudag 20. aprfl
Guðfræðideild: Miðvikudag 21. aprfl
Lagadeild: Miðvikudag 21. aprfl
Heimspekideild: Miðvikudag 21. aprfl
Læknadeild: Föstudag 23. aprfl
(Læknisfræði, lyfjafræði,
hjúkrunarfræði, sjúkraþjálfun)
Tannlæknadeild: Föstudag 23. aprfl
Aukadagur: Mánudag 26. aprfl
Þeir, sem af óviðráðanlegum ástæðum geta
ekki komið til skráningar á ofnagreindum
dögum, hafi samband við Nemendaskrá áður
en árleg skráning hefst, ekki eftir að henni
lýkur. Sími Nemendaskrár er 694309.
Framkvstj. kennslusviðs.
Skrifstofuhúsnæði óskast
Höfum kaupanda að allt að 130 fm skrifstofu-
húsnæði á höfuðborgarsvæðinu með næg-
um bílastæðum.
Afhending í síðasta lagi 1. júlí.
Fasteignasalan
EIGNABORG sf.
- 641500 -
E
Vantar í miðbænum
Óska eftir að taka leigu skrifstofuhúsnæði,
stærð 30-50 fm, í miðbænum.
Allir möguleikar skoðaðir.
Vinsamlega hafið samband í síma 34514.
Við Laugaveginn
Óska eftir ca 30-60 fm verslunarhúsnæði
við Laugaveginn.
Tilboð sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir
24. apríl, merkt: „D - 0506“.
Til leigu íSkeifunni
verslunar- eða lagerhúsnæði á jarðhæð/kjall-
ara, 610 fm. golfflötur ásamt 250 fm. milli-
gólfi.
Gengið inn á milligólf frá götuhæð.
Upplýsingar í símum 682244 og 681680 á
kvöldin.
Hárgreiðslustofa óskast
til leigu/sölu eða tæki og áhöld tilheyrandi
hárgreiðslustofu.
Upplýsingar í síma 36014 eða 870201 í dag
og næstu daga.
Armúli 30 - jarðhæð
600 fm atvinnuhúsnæði með 4 metra lofthæð
til sölu eða leigu. Góður möguleiki að breyta
húsnæðinu í 3x200 fm einingar.
Upplýsingar gefur Stakfell, fasteignasala,
Suðurlandsbraut 6, sími 687633.
Hella - iðnaðarhús
Til sölu er mjög gott iðnaðarhús á Hellu.
Ýmsir nýtingarmöguleikar. Stærð 350 fm.
Frekari upplýsingar veittar hjá:
Fannberg sf.,
viðskiptafræðingar,
Þrúðvangi 18,
850 Hellu - sími 98-75028.
Lagerhúsnæði til leigu
Við Fákafen eru til leigu 400 m2. Nýtt, mjög
gott húsnæði, súlulaust, lofthæð 4,50 m,
fullmálað, stór rafdrifin vöruhurð, góð að-
koma. Laust fljótlega.
Teooaland
Parketgótf
Sími 813577.
Heildsöluhúsnæði til leigu
í Heild II við Skútuvog í Reykjavík er til leigu
vandað húsnæði, sérstaklega hannað fyrir
heildverslun. Húsnæðið skiptist í 240 fm lag-
erhúsnæði á jarðhæð með mikilli lofthæð
og mjög góðri aðkomu og 90 fm skrifstofu-
húsnæði á efri hæð, nær allt sér.
Afhending eftir nánara samkomulagi.
Nánári upplýsingar hjá:
Ólafi Gústafssyni hrl.,
Húsi verslunarinnar,
sími 678666.
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirtalinni fasteign verður háð á eigninni
sjálfri sem hér segir:
Miðtúni 7, Hólmavík, þinglýst eign Guðbjörns M. Sigurvinssonar og
Þórunnar Einarsdóttur, eftir kröfu veðdeildar Landsbanka islands
og Fjárheimtunnar, þriöjudaginn 27. april 1993, kl. 14.00.
Sýslumaöurínn á Hólmavík,
Rikarður Másson.
Rannsóknatengt
meistaranám í matvæla-
fræði við Háskóla íslands
Iðnaðarráðuneytið hefur ákveðið að styrkja
tvo matvælafræðinga, sem hyggja á fram-
haldsnám í matvælafræði við Háskóla ís-
lands. Iðnaðarráðuneytið mun greiða styrk
er svarar til hluta launa á námstímanum.
Rannsóknamámið þarf að vera unnið í tengsl-
um við fyrirtæki og nauðsynlegt er að náið
samstarf sé við Raunvísindastofnun og/eða
einhverja rannsóknastofnana atvinnuveg-
anna.
Matvælafræðingar, sem hafa áhuga, eru
beðnir um að leggja fram upplýsingar um
námsferil og störf, auk hugmynda um rann-
sóknaverkefni og samstarfsfyrirtæki.
Þeir, sem óska frekari upplýsinga, hafi sam-
band við dr. Ágústu Guðmundsdóttur, dós-
ent í matvælafræði.
Umsókn sé skilað til Iðntæknistofnunar,
merkt: „Rannsóknanám", fyrir 20. maí 1993.
lóntæknistof nun 11
IÐNTÆKNISTOFNUN ÍSLANDS
Keldnaholt, 112 Reykjavík
Sími (91) 68 7000
BÚNAÐARBANKI
ÍSLANDS
NAMS
1
>
Z
>
LÍNAN Á
Búnaðarbanki íslands auglýsir eftir
umsóknum um styrki úr
Námsmannalínunni
Umsóknarfrestur er til 1. maí.
Veíttir verða 9 styrkir hver að upphæð
150.000 krónur.
Styrkirnir skiptast þannig:
★ 5 útskriftarstyrkir til Háskóla íslands.
★ 3 styrkir til námsmanna erlendis.
★ 1 útskriftarstyrkur til nema á háskóla-
stigi/sérskólanema.
Umsóknareyðublöð eru til afhendingar í öll-
um útibúum Búnaðarbankans og á skrifstofu
Stúdentaráðs.
Einungis aðilar í Námsmannalínunni eiga
rétt á að sækja um þessa styrki.
Umsóknum skal skilað fyrir 1. maí til
BÚNAÐARBANKA ÍSLANDS,
markaðsdeild, Austurstræti 5,
155 Reykjavík.
Aðalfundur
Skagstrendings hf.
verður haldinn þrtðjudaginn 27. aprfl 1993
í Fellsborg, Skagaströnd, og hefst kl. 17.15.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf skv. 11.gr. sam-
þykkta félagsins.
2. Önnur mál, löglega upp borin.
Tillögur frá hluthöfum, sem bera á fram á
aðalfundi, skulu vera komnar í hendur stjórn-
arinnar eigi síðar en 7 dögum fyrir aðalfund.
Dagskrá og reikningar félagsins munu liggja
frammi á skrifstofu félagsins 7 dögum fyrir
aðalfund.
Stjórn Skagstrendings hf.