Morgunblaðið - 18.04.1993, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18. APRÍL 1993
15
reykskýi, sem flest barnanna hafa
alizt upp við að líta á sem sjálfsagð-
an hlut, þar sem þau hafa aldrei
þekkt neitt annað.
„Það voru aðallega stúlkumar
sem sýndu mótþróa í bytjun. Þær
hugsuðu að sjálfsögðu um útlitið,
og grímurnar eru ekki beinlínis sam-
kvæmt nýjustu tízku,“ játar Stovic-
ek. „En eftir að við höfðum útskýrt
fyrir þeim áhrif þessarar daglegu
„þoku“ á heilsufar þeirra og framtíð
hafa flestar sætt sig við grímurnar.
Ég reikna með að 70% bamanna
noti nú grímur þegar mengunin ér
hvað mest. í upphafi var algengt
að bömunum væri strítt þegar þau
settu upp grímurnar, en nú hefur
þetta svo til snúizt við. Bömin em
að gera sér grein fyrir því að útlitið
skiptir minna máli en heilsan og líf-
ið“, segir hann.
Þegar Milan Stovicek fyrir nokkm
sneri sér til bæjarstjórnarinnar með
ósk um peningaframlag til kaupa á
grímum handa skólabömunum
mætti honum kuldalegt viðmót þess-
ara stórlátu bæjarfulltrúa. Þeir
kærðu sig ekki um að skólastjóri
bæjarins, sem var í miklum metum
hjá bæjarbúum, væri að vekja upp
ótta og grafa undan virðingu bæjar-
ins með því að benda á mengunar-
hættuna. Þeir reyndu að taka um-
sókn hans sem lélegri fyndni. En
Stovicek lét sig ekki. Hann fór hins-
vegar beint til fundar með forstjór-
um fyrirtækjanna sem menguninni
ollu og gerði þeim grein fyrir þeirri
ábyrgð er þeir bæm gagnvart böm-
unum á svæðinu. Skýrsla hans um
fósturlát, bamadauða, ofnæmi,
krabbameinstíðni og ævilíkur hafði
mikil áhrif á forstjórana sem síðar
féllust á að fjármagna grímukaupin.
„Við emm einmitt nú í samvinnu
við mengunarfýrirtækin að þróa
nýja gerð af grímum sem á að fram-
leiða, og verður þeim dreift til bama
á öllu svæðinu. Grímurnar sem börn-
in nota núna em of þröngar og ósjá-
legar,“ segir hann og dregur fram
átta fmmútgáfur. Gul gríma með
skiptanlegri síu er vinsælust hjá
stúlkunum. Brezk-tékknesku sam-
starfsfyrirtæki hefur verið falið að
framleiða öndunargrímur fyrir
34.000 börn á verstu mengunar-
svæðunum.
Á nítjándu öldinni var Most-hér-
aðið fjárkista Bæheims vegna auð-
ugra járn og surtarbrandsnáma, sem
voru gull þeirra tíma á dögum iðn-
væðingarinnar. í síðari heimsstyij-
öldinni arðrændu nazistayfirvöldin í
Þýzkalandi svæðið til hins ítrasta
án tillits til umhverfísins, og eftir
valdarán kommúnista var þessari
tillitslausu rányrkju náttúmauðlind-
anna haldið áfram. I dag fer um 60%
heildarframleiðslu Tékklands á raf-
magni fram í Usti, Teplice, Chum-
utov og Most. Landsvæðið milli þess-
ara fjögurra borga er þéttskipað
efnaverksmiðjum og orkuvemm sem
brenna surtarbrandi, en hann hefur
tiltölulega lágt hitagildi og gefur frá
sér kæfandi svartan reyk. Yfirvöld
kommúnista höfðu lítinn áhuga á
reyksíum, og hreinsibúnaði, og af-
leiðingin í dag er ólýsanleg umhverf-
isspilling í miðri Evrópu. Bara í ná-
grenni Mezibori, þar sem 5.000
manns búa, em 12 verksmiðjur og
iðnver sem halda áfram að spúa
svörtum, óhreinsuðum reyk út í and-
rúmsloftið, á þrískiptum vöktum all-
an sólarhringinn. Staðsetning svæð-
isins í dal milli tveggja fjallgarða
gerir það að verkum að þar blæs
sjaldan vindur. Stundum er þar al-
gjör stilia vikum saman og skil heits
og kalds lofts verka eins og pottlok
yfir dalnum.
Vaxandi umhverfisvitund er ný-
mæli, og fyrir stuttu fóm þúsundir
borgarbúa í hópgöngu til stuðnings
við nýtt kjarnorkuver í Temelin sem
gæti leitt til lokunar fimm surtar-
brands-orkuvera. Nýliðin 40 ár und-
ir kommúnisma var fræðsla um
umhverfísmál bönnuð og talin skað-
leg starfsemi ríkisins og grafa undan
stöðugleika í landinu. Flestir íbú-
anna eru fæddir í menguðu um-
hverfi og hafa vanist því. Mengandi
iðnver eru ekki aðeins dauðadómur
þeirra, heldur einnig lífsviðurværi
og vinnustaður. En á síðustu mánuð-
um hefur myndin af börnum að leik
með öndunargrímur haft mikil áhrif
á alla.
„Það var dálítið óþægilegt þegar
Þá daga þegar
brennisteinsdíox-
iðmagnið er
óvenju hátt er
börnunum einnig
ráðlagt að bera
grímurnar innan-
dyra í kennslu-
stundum.
mengunin var hvað mest nýlega,"
segir Jana Malinova, sem er 12 ára
og nemandi í Mezibori skólanum.
„Við neyddumst til að vera innan-
dyra í sjö daga. Það var líkast því
að vera í fangelsi,“ segir hún. „Mér
finnst ég öruggari þegar ég er með
grímuna," bætir hún við.
„Ef til vill verður það okkur til
bjargar að yfirvöld vilja koma upp
kjarnorkuveri," segir vinkona henn-
ar, Petra Zavazalova. „Kjarnorka er.
betri en kol, þar sem hún mengar
ekki andrúmsloftið."
Skólinn hefur nemendaskipti við
skóla í Maribo í Danmörku. Alls
hafa 100 börn heimsótt Danmörku
frá árinu 1991 og fengið að kynnast
fersku lofti, bláu hafi, grænum skóg-
um og sólskini. Heimsóknirnar til
Danmerkur breyta ekki hversdagslífi
þeirra í reykskýinu yfir Most, en nú
vita Jana og félagar hennar þó
hvernig sólin lítur út á bláum himni.
3 linuna uni haluína
í verslun okkar í Skeifunni 11
Sölusýning á öllum nýju 1993
árgerðunum af fjallahjólum og
hefðbundnum hjólum, fyrir fullorðna
og böm, tvthjól og þrthjól.
• Nýip iitir • Nýp vélbúnaður • Ný hönnun
Nýjar gerðir • Nýir demparagafflar • Nýir gírar
Verslunin verður opin:
Laugardaginn kl. 10.00 til kl. 16.00
Sunnudag kl. 13.00 til kl. 17.00
orninnÞ*
WBSIBPWBM ■5*' i
V/5A"
BBHHBI
SÉRVERSLUNí 68 ÁR
raðgreiðslur PÓSTSENDUM UM LAND ALLT
SKEIFUNNI V V
VERSLUN SÍMI 679890 VERKSTÆÐI SÍMI 679891
TREK ■ JAZZ ■ SPECIALIZED ■ GT ■ WINTHER ■ PEUGEOT