Morgunblaðið - 18.04.1993, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 18.04.1993, Blaðsíða 48
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN I, 103 REYKJAVÍK SÍMI 691100, StMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 1655 / AKUREYRI: HAFNARSTR/ETl 85 LANDSBOK Landsbanki íslands Banki allra landsmanna SUNNUDAGUR 18. APRIL 1993 VERÐ I LAUSASOLU 110 KR. Vegurinn yfir Lágheiði enn lokaður Rætt umjarðgöng milli Siglufjarð- / O tl ar og Olafsfjarðar VEGURINN yfir Lágheiði á Tröllaskaga hefur verið iokaður nánast í allan vetur og þó langt sé liðið á apríl er vegurinn enn ófær og óvíst hvenær fært verður milli Ólafsfjarðar og Fljóta. Ekki er fyrir; hugað að gera endurbætur á veginum á næstu árum en rætt hefur verið um gerð jarðganga milli Siglufjarðar og Ólafsfjarðar. Að sögn Jónasar Snæbjömssonar, umdæmisverkfræðings Vegagerðar ríkisins á Sauðárkróki, er ekki fyrir- hugað að endurbæta veginn yfir Lágheíði samkvæmt langtímaáætlun Vegagerðarinnar fyrr en á árunum 2000 til 2005. Hefluð slóð Sagði hann að vegurinn, sem er tæplega 40 km langur, væri nánast ekki annað en hefluð slóð og þyrfti að breyta vegarstæðinu og hækka veginn víðast hvar til þess að hann yrði fær yfir vetrarmánuðina. Áætlað er að þessar framkvæmdir myndu kosta 300 til 400 milljónir króna. Jarðgöng Jónas sagði að nýlega hefði komið fram hugmynd um gerð jarðganga milli Sigluíjarðar og Ólafsfjarðar og yrði þá farið í gegn um Héðinsfjörð. Áætlað er að jarðgöngin myndu kosta um tvo milljarða króna en þau myndu koma í staðinn fyrir veginn um Lágheiði. Sagði Jónas að sjálf- sagt væri að möguleikar jarðganga yrðu vandlega kannaðir áður en ráð- ist yrði í endurbætur á veginum. Þrjú sendi- ráð undir Framboð aukistá tómötum FRAMBOÐ á íslenskum tóm- ötum hefur aukist til muna í verslunum á höfuðborgar- svæðinu undanfarna daga. Að sögn Kolbeins Ágústssonar, sölusljóra hjá Sölufélagi garð- yrkjumanna, er búist við því að íslenskir tómatar verði á boðstólum mjög viða um land upp úr næstu mánaðamótum. „Þetta er svipað með tómat- ana og með gúrkumar og fleiri grænmetistegundir að uppsker- an er um viku síðar á ferðinni nú en í meðalári. Samt sem áður tóku plöntumar mjög vel við sér í vetur, en síðan kom eitthvað bakslag í þetta. Fyrstu tómata- kassamir bámst í lok mars, en hinn 29. kom kassi frá Guðjóni Birgissyni á Melum á Flúðum og hinn 31. kom kassi frá Guð- mundi Sigurðssyni á Áslandi á Flúðum. Það er hins vegar rétt núna sem þetta er farið að ber- ast eitthvað fyrir alvöm," sagði Kolbeinn. Hann sagði að sem fyrr væri verðið nokkuð hátt í byijun en síðan félli það mjög hratt með auknu framboði. sama þak? VIÐRÆÐUR standa nú yfir milli sendiráða Breta, Þjóðverja og ítala á íslandi um að sendiráðin standi saman að nýbyggingu á Laufásvegi 31 og starfi þar í einu húsi í framtíðinni. „Við vonumst til að innan mánaðar náist samkomulag um að reist verði bygging við Laufásveg 31 þar sem breska sendiráðið, þýska sendiráðið og ef til vill ít- alska sendiráðið verði til húsa í framtíðinni," sagði Alper Mehmet, sendifulltrúi við breska sendiráðið, í samtali við Morgunblaðið. Hann sagði að lóðin væri í eigu breska ríkisins en bygging hússins yrði kostuð af þjóðunum þremur. Me- hmet sagði að von væri á fulltrúum frá Englandi og Þýskalandi sem kæmu hingað til að semja um málið. Tómatamir komnir Friðgeir Gíslason, starfsmað- ur Hagkaups í Kringlunni, kemur fyrir nýjum íslenskum tómötum í grænmetisborðinu. BÁTAR VIÐ BRYGGJU í ÓLAFSVÍK Morgunblaðið/Ámi Sæberg Deilur í ríkisstjórninni vegna undirbúnings nýrra kjarasamninga Djúpstæður ágreiningur var um þátttöku ríkisins Halli á ríkissjóði stefndi í 18 milljarða króna á næsta ári miðað við kjaratillögur DJÚPSTÆÐUR ágreiningur kom upp í ríkisstjórninni við undirbúning ákvarð- ana um opinberar aðgerðir í tengslum við kjarasamninga. Samkvæmt upplýsing- um Morgunblaðsins var Davíð Oddsson, forsætisráðherra reiðubúinn að ganga mun lengra en Friðrik Sophusson fjármálaráðherra taldi ráðlegt. Að minnsta kosti þrír ráðherrar Alþýðuflokksins voru sama sinnis og fjármálaráðherra, svo og Þorsteinn Pálsson, sjávarútvegsráðherra. Samkvæmt upplýsingum Morg- unblaðsins hefur Davíð Oddsson forsætisráðherra lýst þeirri skoðun sinni að miklu megi til kosta, til þess að tryggja frið á vinnumarkaðnum, einkum með hliðsjón af því að samningurinn hafi átt að gilda út næsta ár. Friðrik Sophusson fjármálaráðherra, ásamt Jóni Sigurðssyni, Þorsteini Pálssyni, Sighvati Björgvinssyni og Jóni Baldvin Hannibalssyni hvöttu á hinn bóginn til þess að spornað yrði við auknum álögum á ríkissjóð. Þeir lýstu þeirri skoðun í ríkisstjóm að það væri ótrúverðugt að auka við lánsfjárþörf ríkissjóðs, sem hefði ekkert annað í för með sér, en að raunvaxta- stig færi hér hækkandi, þvert á yfirlýst mark- mið ríkisstjórnarinnar og aðila vinnumarkaðar- lnS- 13 milljarða halli Morgunblaðið hefur upplýsingar um að ef samið hefði verið á þeim grundvelli sem rætt var um, allt þar til upp úr viðræðum slitnaði, aðfaranótt sl. föstudags, þá hefði hallarekstur ríkissjóðs á þessu ári numið um 13 milljörðum króna, í stað 10 og á næsta ári hefði hallarekst- urinn orðið um 18 milljarðar króna. Sjá bls. 10-12: „Ráðherrar óánægðir..."

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.