Morgunblaðið - 18.04.1993, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 18.04.1993, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18. APRÍL 1993 19 Náin tengsl við atvinnulífið Náin tengsl við atvinnulífíð heitir ljósmynd Svavars B. Magnússonar á Olafsfírði sem valin var besta myndin úr daglega lífínu. I mörgu er að snúast hjá Júlíusi Magnússyni trillukarli á Ólafsfírði enda verkar hann fískinn sinn sjálfur. Myndin var tekin af honum á gangi niður við höfn með saltfísk og umbúðir í hjólbörunum. Frændi hans, Lúðvík Már Ríkharðsson, fékk að sitja í. Myndin sýnir á skemmtilegan hátt einn þátt daglegs lífs í sjávarþorpi. Bættákílóin Bætt á kílóin, mynd Svavars B. Magnússonar, fékk fyrstu verðlaun í flokki spaugilegra mynda. Umfang konunnar vakti athygli ljósmyndarans þar sem þau hittust á fömum vegi í Kaupmannahöfn. Þegar að var gáð reyndist hún vera að bæta á kílóin. * Astarleikur steinbítsparsins Ástarleikur steinbítsparsins er heiti mynda Sigurgeirs Jónassonar í Vest- mannaeyjum sem dómnefndin valdi bestu myndröðina. Steinbítspar fijóvg- aði hrogn í Náttúrugripasafninu í Vestmannaeyjum í byijun desember 1991, í fyrsta sinn í viðurvist mannskepnunnar. Sigurgeir myndaði öll stig ástarleiksins, líklega fyrstur ljósmyndara. Hér á opnunni er ein mynd úr röðinni. Hún sýnir móðurlega umhyggju hrygnunnar þegar hún hefur safnað hrognunum saman í kúlu og hringað sig um þau. Hreinsað frá ungunum Sigurgeir Jónasson í Vestmannaeyjum fékk viðurkenningu fyrir bestu myndina í opnum flokki og heitir hún hreinsað frá ungunum. Sigurgeir fylgdist með sólskríkjupari bera mat til unga sinna í hreiður í gamalli steinhleðslu í Sæfelli á Heimaey. Einstöku sinnum sást kvenfuglinn koma út með eitthvað sem líktist hvítum poka en þá brá svo við að fuglinn var sérstaklega var um sig og flaug upp um leið og hann kom út í hreiðuropið. Eftir mikla yfirlegu náði ljósmyndarinn einni mynd af þessari athöfn. Við skoðun hennar kom í ljós að sólskríkjan var að hreinsa úrganginn úr hreiðrinu. Ungarnir mynda poka úr himnu utan um skítinn og skila honum þannig frá sér. Kraftakeppni Kraftakeppni, mynd Róberts Schmidt á Bíldudal, varð hlutskörpust í flokki íþróttamynda. Fyrsta aflraunakeppnin á Vestfjörðum fór fram á héraðs- móti Ungmennasambandsins Hrafna-Flóka á Bfldudal í júlí 1992. Ellefu kraftakarlar sýndu trukkadrátt, bankastjórakast, glerbrotagöngu og fleira. Viðtökur áhorfenda voru góðar og var köppunum klappað lof í lófa. Spenna og átök eru í myndinni sem sýnir Kjartan Guðbrandsson lyfta handlóðum. (

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.