Morgunblaðið - 18.04.1993, Side 13

Morgunblaðið - 18.04.1993, Side 13
 »3 Morgunblaðið/Kári Jónsson Menntaskólakórinn Kór Menntaskólans að Laugarvatni syngur undir stjórn Hilmars Agnars Agnarssonar. Menntaskólinn að Laugarvatni 40 ára Laugarvatni. MENNTASKÓLINN að Laugarvatni var stofnaður með formleg- um hætti og hátíðlegri athöfn 12. apríl 1953 fyrir réttum fjöru- tíu árum. Þeirrar stundar var minnst í skólanum með veglegri veislu þann 13. apríl sl. sem til var boðið öllum íbúum Laugar- dals og velunnurum skólans. Margar veglegar gjafir og heilla- óskir bárust skólanum af þessu tilefni. Kór skólans söng og flutti atriði úr velheppnaðri leiksýningu skólans á „Land mins föður“ eftir Kjartan Ragnarsson í leikstjórn Ingunnar Jensdóttur. Kristinn Kristmundsson skóla- meistari flutti yfírlit yfir sögu skólans, upphaf hans og þróun í gegnum árin. Gat hann nokkurra manna sem sérstaklega hefðu komið við sögu skólans við stofn- un hans og fyrstu árin. Var þar fyrstan að nefna Bjarna Bjarna- son skólastjóra Héraðsskólans, Þórð Kristleifsson þýskukennara sem einnig stjómaði kór og söng- lífi skólans, Dr. Svein Þórðarson sem var skólameistari fyrstu fimm árin og úrvals kennaralið sem starfaði við skólann þegar hann var stofnaður. Kristinn taldi til sérstöðu skól- ans að bakland hans væri ekkert sérstakt landsvæði, hingað kæmu nemendur af öllu landinu og þannig hefði það alltaf verið. Skólameistari sagði skólann vera valkost þeirra sem vildu stunda bóknám, hafa góða möguleika til iðkunar íþrótta og búa á heima- vist. Skólinn er bekkjaskóli og skiptist hvert námsár í tvær ann- ir. Námsárin eru fjögur og enda með stúdentsprófi. Með tilkomu fleiri framhalds- skóla hefur nokkuð dregið úr aðsókn frá því sem hún hefur mest verið um 1985, þá fór nem- endafjöldinn í fyrsta og eina skiptið yfir tvöhundmð. Nú era um 150 nemendur við skólann. Hefur þeim einkum fækkað vegna þess hve margir nemendur hætta námi á fyrstu námsárun- um. Menntamálaráðherra, ólafur G. Einarsson, ávarpaði samko- muna og flutti starfsliði og nem- endum heillaóskir sínar. Hann kvað framsýna menn hafa staðið í forystu um stofnun skólans á sínum tíma. Lofaði hann áfram- haldandi uppbyggingu þessa frið- sæla og fagra skólaseturs í takt við tímann og að áfram yrði unn- ið af metnaði að þeirri uppbygg- ingu. Sandra Dís Hafþórsdóttir, vara-stallari, flutti ávarp fyrir hönd nemenda. Lýsti hún áhrif- um hins nána sambýlis á sam- band og samheldni nemenda- hópsins og stolti þeirra á skólan- um sínum. Margar góðar bókagjafir voru færðar skólanum. Lionsklúbbur Laugardals færði skólanum eitt- hundraðþúsund krónur að gjöf til tölvukaupa. Hreppsnefnd Laugardalshrepps færði skólan- um fimmhundruðþúsund krónur til bókasafns með því skilyrði að skólinn hefði forgöngu um að sameina bókasöfn skólanna og hreppsins í eitt-safn sem veitt gæti góða og faglega þjónustu á því sviði. Við upphaf og lok samkom- unnar söng kór menntaskólans nokkur lög undir stjórn Hilmars Arnar Agnarssonar. Samkomunni var síðan slitið með því að samkomugestir risu úr sætum og sungu skólasöng Menntaskólans „Rís þú unga ís- lands merki...“ eftir Einar Bene- diktsson. - Kári. aðstaeður smurSurv^nviarogbetn Við smynjum bílinn á meðan pú færð pér kaffi og með því, kíkin í blöðin - eða skoðar úrvalið í vensluninni. Smurstöð fyrir allar tegundir bíla-ogfólk! Skeljungurhf. Einkaumboö fyrir SheH-vörvr á Islandi HEKLA SMURSTÖÐ LAUGAVEGI 174 SÍMI695500 SÍMI695670 FJÓRAR SÓLRÍKAR VORVIKUR Á M A- L- L O R* C* A MEÐ ROYAL-BRAG. Glæsilegt sólartilboð Royal-hótelanna í fjögurra vikna ferð 21. apríl-19. maí. K60.260 kr* Heildarverð á mann í tvíbýli. VERÐLÆKKUN Á SÓLINNI Verð miðast við staðgreiðslu ferðakostnaðar fyrir 15. apríl. Að öðrum kosti hækkar verð um 5%. Flugvallarskattar, innritunargjald og forfaliagjald er innifalið í verði.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.