Morgunblaðið - 18.04.1993, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 18.04.1993, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIR/YFIRLIT M0RGUKBLAÐI8 SUNNUDAGUR 18. APRÍL 1993 ERLENT INNLENT Vikuna 11.04-17.04 Slitnaði upp úr samninga- viðræðum Ekki tókst að semja um kaup og kjör í þríhliða viðræðum aðila vinnumarkaðarins og ríkisvalds- ins eftir yfirlýsingu þeirra síðar- nefndu á fímmtudag. Því hefur verið gert hlé á samningaviðræð- um um stundarsakir. Tap á Landsvirkjun Afkoma Landsvirkjunar hefur aldrei verið verri en á sl. ári þeg- ar fyrirtækið var rekið með tapi upp á liðlega 2,1 milljarð króna. A þessu ári er gert ráð fyrir að afkoman batni en þó verði halli upp á tæplega 1,2 milljarða. Nýtt Morgunblaðshús Morgunblaðið hefur flutt alla starfsemi sína úr Aðalstræti 6 í nýtt hús við hlið prentsmiðju Morgunblaðsins í Kringlunni 1. Fyrsta tölublaðið sem unnið var í nýju húsi kom út á miðvikudag. Borað í hafsbotn Alþjóðleg samtök um rann- sóknarverkefni á sviði jarðfræði hafsbotnsins (Ocean Drilling Pro- gram) gangast fyrir því að borað- ar verða rannsóknarholur í hafs- botninn vestan, austan, og norðan við ísland í sumar og haust. Verk- efnið er eitt hið stærsta á sviði jarðvísinda í heiminum og er gildi þess fyrst og fremst vísindalegt. ERLENT Hóta að af- létta vopna- sölubanni á Bosníu OWEN lávarður, milligöngu- maður Evrópubandalagsins (EB) í viðræðunum um frið í fyrrver- andi lýðveldum Júgóslavíu, kvaðst á fimmtudag óttast að Rússar myndu sjá Serbum fyrir vopnum yrði banni við sölu vopna til Bosn- íu aflétt. Regínald Bart- holomew, sérlegur sendimaður Bandaríkjastjómar, hafði sagt daginn áður að féllust Serbar ekki á friðaráætlun Sameinuðu þjóð- anna og Evrópubandalagsins inn- an skamms myndi stjómin beita sér fyrir því að vopnasölubanninu yrði aflétt. Tugir manna biðu bana í vikunni sem leið í hörðum stór- skotaárásum Serba á borgina Sre- brenica í austurhluta Bosníu og friðargæsluliðar Sameinuðu þjóð- anna reyndu án árangurs að flytja fólk úr borginni. Bandarískar, franskar og hollenskar orrustu- þotur hófu á mánudag eftirlitsflug yfir Bosníu til að framfylgja flug- banni Sameinuðu þjóðanna og er þetta fyrsta hemaðaraðgerðin á vegum Atlantshafsbandalagsins frá því það var stofnað árið 1949. Meint mafíutengsl Andreottis rannsökuð Guilio Andreotti, fyrrverandi forsætisráðherra Ítalíu, mætti á fimmtudag fyrir þingnefnd sem er að rannsaka meint tengsl hans við mafíuna. Hann kvað ásakanir fyrrverandi mafíuforingja um slík teflgsl „ósvífna lygi“. Búist er við að þingnefndin ljúki rannsókninni á næstu dögum og öldungadeild ítalska þingsins tekur síðan afstöðu til þess hvort svipta beri hann þinghelgi. Lög- maiður Andreottis vísaði á mið- Hjartaþræðingaforrit Stefán Kristjánsson, íslenskur læknir við Huddinge-sjúkrahúsið í Stokkhólmi, hefur gert tölvufor- rit vegna hjartaþræðinga og hefur það verið tekið í notkun á öllum sænskum sjúkrahúsum þar sem slíkar þræðingar eru gerðar. Með notkun forritsins er auðvelt að fá yfírlit yflr einkenni sjúklingsins, eðli aðgerðanna og síðar meðferð. Til stendur að kynna notkun for- ritsins utan Svíþjóðar. íslenskir námshestar Háskólinn í Skövde í Suður-Sví- þjóð hefur ákveðið að bjóða a.m.k. tíu íslendingum til náms í skólan- um á næsta skólaári gagngert til að bæfá námsárangur í skólanum. Ný lög hafa verið sett um mennta- kerfíð í Svíþjóð og hafa háskólar þar frjálsari hendur um val á nem- endum en áður. Perlan greidd Hitaveita Reykjavíkur greiðir Perluna upp að fullu á næsta ári. Niðurstöður vegna rekstraraf- komu síðasta árs liggja ekki fyrir en hagnaður fyrir greiðslu í borg- arsjóð nam 170 milljónum króna. Garðar Cortes heldur áfram Garðar Cortes, óperustjóri við Gautaborgaróperuna, segir al- rangt að hann sé að láta af störf- um við óperuna eins og haldið hafí verið fram í Svenska Bladet í Gautaborg. Hann ætlar ótrauður að halda áfram skipulagningu fyrir næsta starfsár og flutning í nýtt óperuhús á næsta ári. vikudag á bug ásökunum um að skjólstæðingur sinn hefði skipað fyrir um morðin á Aldo Moro, fyrrverandi for- sætisráðherra, og mafíuand- stæðingnum Carlo Alberto Dalla Chiesa. Þessar ásakanir komu fram í vitn- isburði tveggja fyrrverandi mafíu- foringja í Bandaríkjunum. Evrópubankinn gagnrýndur Endurreisnar- og þróunarbanki Evrópu, öðru nafni Evrópubank- inn, var sakaður um taumlaust sérgæði í vikunni sem leið. Sam- kvæmt upplýsingum Financial Times, hafði bankinn um síðustu áramót ráðstafað sem svarar 10,1 milljarði króna til uppbyggingar í Mið- og Austur-Evrópu frá því hann hóf starfsemi í apríl 1991. Á sama tíma eyddi bankinn hins vegar jafnvirði um 20 milljarða króna til eigin þarfa. Þar ber hæst kostnað við húsnæði bank- ans í Lundúnum, rúmlega flmm milljarðar króna, og risnu- og rekstrarkostnað. Iðnríkin stofn- uðu bankann til að stuðla að efna- hagslegri uppbyggingu í komm- únistaríkjunum fyrrverandi. ís- lendingar eiga aðiid að bankanum og hafa þegar greitt 80 milljónir af 228 milljóna framlagi sínu til hans. Færeysku frystihúsin seld Richard Mikkelsen, formaður fjárfestingarsjóðs sem stofnaður var í tengslum við efnahagsaðstoð Dana við Færeyinga í fyrra, sagði í viðtali við blaðið Dimmalætting á miðvikudag að flest ef ekki öll frystihús í Færeyjum yrðu seld. Búist væri við að eitt móðurfyrir- tæki í eigu banka myndi kaupa frystihúsin og setja þeim starfs- reglur en ekki taka við daglegum rekstri. Bill Clinton nýtur minni vinsælda en forverar hans Reuter Á ferð og flugi Bill Clinton, forseti Bandaríkjanna, talar á ráðstefnu um áform sín um að verja milljarði dala til að veita ungu fólki frá fátækrahverfum borganna sumarvinnu. Forsetinn gagnrýndi þar málþóf repúblikana í öldungadeild Bandaríkjaþings, sem hefur tafið afgreiðslu efnahagstillagna hans, og sagði að aðgerðaleysi væri ekki lausnin á efnahagsvanda Bandaríkjanna. Clinton stendur nú höllum fæti samkvæmt skoðanakönnunum og hefur verið gagnrýndur fyrir að ferðast of mikið um landið til að afla stefnu sinni stuðnings í stað þess að reyna að semja við þingið um tillögur sínar í efna- hagsmálum. Vasast í of mörgu og van- metur samvinnu við þingið BILL Clinton nýtur minni vinsælda en nokkur annar forseti í nútímasögu Bandaríkjanna nú þegar tæplega 100 dagar eru frá því hann tók við embættinu. Byrjunin lofar ekki góðu fyrir forset- ann og margir telja að hann ætli sér að gera of marga hluti í einu. Clinton á nú í erfiðri glímu við repúblikana í öldungadeild Bandaríkjaþings, sem hafa beitt málþófi til að hindra að hægt verði að afgreiða tillögu hans um að auka ríkisútgjöldin um 16,3 milljarða dala til að blása lífi í efnahaginn. Sú glíma er fyrsti prófsteinninn á hvort Clinton sé gæddur nógu miklum leiðtoga- hæfileikum til að knýja fram hin fjölmörgu markmið sín. Inýlegri'skoðanakönnun kváðust aðeins 49% aðspurðra vera ánægð með frammistöðu Clintons í forsetaembættinu. Jafnvel Ger- ald Ford kom betur út úr skoðana- könnunum þremur mánuðum eftir að hann var settur í embættið. 50% aðspurðra voru þá ánægð með frammistöðu Fords þótt hann hefði byijað á því að taka þá umdeildu ákvörðun að veita forvera sfnum í emb- ættinu, Ric- hard Nixon, sakaruppgjöf. George Bush naut stuðnings 58% að- spurðra, Ronald Reagan 67% og Jimmy Carter 63% í könnunum sem gerðar voru þremur mánuð- um eftir innsetningu þeirra. Málþóf á þinginu Fréttaskýrendur telja helstu ástæðuna fyrir litlum vinsældum Clintons þá að hann hafí orðið fyrir álitshnekki í deilunni við repúblikana í öldungadeildinni, sem hafa látið móðan mása til að hindra atkvæðagreiðslu um efna- hagstillögur hans. 57 demókratar eiga sæti í öldungadeildinni og aðeins 43 repúblikanar, en meiri- hluti demókrata nægir þó ekki til að knýja fram atkvæðagreiðslu um málið, því til þess þarf 60 þing- menn. Repúblikanar eru hlynntir nokkrum af tillögum Clintons, svo sem hugmyndum hans um auknar atvinnuleysisbætur og bólusetn- ingu barna. Þeir eru hins vegar andvígir áformum forsetans um aukin útgjöld til að koma í veg fyrir nýja efnahagslægð, einkum tillögu hans um að veija 2,5 millj- örðum dala í styrki til borga og sveitarfélaga sem eiga að geta notað þá að eigin vild. Repúblik- anar hafa gagnrýnt þessa tillögu vikum saman, hæðst að sundlaug- unum og skautahöllunum sem kynnu að verða reistar fyrir pen- ingana. Andóf repúblikana í öldunga- deildinni er sig- ur fyrir leiðtoga þeirra, Bob Dole, sem er sagður gera sér vonir um að verða frambjóð- andi repúblikana í forsetakosning- unum 1996 þótt hann verði þá orðinn 73 ára gamall. Hann hefur haldið því fram að efnahagstillög- ur Clintons séu alls ekki nógu viðamiklar til að örva efnahaginn. Áform forsetans um flugvalla- og vegaframkvæmdir, auk styrkj- anna til sveitarfélaganna, séu að- eins til þess fallin að ýta undir kjördæmapot og framkvæmdirnar komi aðeins einstaka ríkjum til góða. Ónóg samvinna við þingið Útséð er um að Clinton takist að knýja allar efnahagstillögurnar fram og hann verður því að sætta sig við málamiðlun. Dole tókst að tryggja einhug á meðal þing- manna repúblikana vegna óánægju með að stjórnin skyldi ekki hafa leitað eftir samvinnu við þingið um aðgerðirnar en kos- ið þess í stað að veitast að and- stæðingunum í fjölriíTðlum. Repú- blikanar segja að Clinton hafi til að mynda notað svokallaða vor- rúlluveislu í Hvíta húsinu um páskana, sem er ætluð börnum, til að skjóta á andstæðinga sína. Hann sagði að málþóflð í öldunga- deildinni hindraði að áformin um bólusetningu barna kæmust til framkvæmda. Repúblikanar segja að engu sé líkara en Clinton sé enn í kosn- ingabaráttu og líti á alla sem óvini sína. Það sé löngu orðið tímabært að kosningabaráttunni ljúki og forsetinn sýni forystuhæfíleika, hætti að veitast að repúblikönum og reyni að semja við þingið um aðgerðir í efnahagsmálum. Færist of mikið í fang Margir eru nú þeirrar skoðunar að Clinton færist of mikið í fang og að ungu mennimir í stjóm hans séu að fást við of mörg verk- efni í einu; reyna að blása lífí í efnahaginn, minnka fjárlagahall- ann, bæta heilbrigðiskerfíð og stuðla að réttlátari telquskiptingu, svo fátt sé nefnt. „Hann heldur að hann geti þetta allt vegna þess að hann er klókur stjómmálamað- ur. Hann hefur of mikið sjálfs- traust svo það jaðrar við hroka," segir Steve Schier, stjómmála- fræðingur við Carleton College í Minnesota. Málþóf repúblikana gæti haft afdrifaríkar afleiðingar fyrir önn- ur mikilvæg stefnumið Clintons. Haldi svo fram sem horfir verður mjög erfítt fyrir hann að koma nokkru í framkvæmd. Of mikið um ferðalög Ýmsir fréttaskýrendur telja að Clinton hafí eytt of miklum tíma í að ferðast um landið til að sann- færa almenning um ágæti efna- hagsstefnunnar í stað þess að ræða við einstaka þingmenn til að tiyggja framgang hennar. Stuðningsmenn forsetans segja hins vegar að repúblikanar sýni nú sitt rétta andlit og að banda- rískur almenningur sé að átta sig á að stjómarandstöðuflokkurinn standi fyrir algjöra kyrrstöðu og aðgerðaleysi. Slæm útkoma Clint- ons í skoðanakönnunum bendir hins vegar til þess að pattstaðan á þinginu hafi ekki síður skaðað forsetann sjálfan. BAKSVID eftir Boga Arason

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.