Morgunblaðið - 18.04.1993, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 18.04.1993, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLABIf) MINNINGAR SUNNUDAGUK 18. APRÍL 1993 Lára Jóhannes- dóttir — Minning Fréttin um lát Láru Jóhannes- dóttur kom eins og reiðarslag. Ung kona í blóma lífsins er horfín. I nýju starfí og með ný markmið. Vegir Guðs eru órannsakanlegir. Eg kynntist Láru í KR-konum og Skíðadeild KR, þar sem hún og eignmaður hennar störfuðu af mikl- um áhuga. Það kom varla fyrir sú helgi að þau mættu ekki í Skálafell- ið á skíði. Ég var nýbúin að hitta hana í fjallinu svo sæla og ánægða, þar sem hún var að segja mér frá ferð þeirra hjóna til Akureyrar með vinahópi úr Skíðadeildinni. Ákváð- um við þá að mæta vel í Skálafellið um páskana. Nú er svo komið stórt skarð í hópinn, þar sem Láru nýtur ekki lengur við. Hún tók einnig virkan þátt í starfí KR-kvenna. Alltaf boðin og búin að hjálpa til. í lokahófí okkar á síð- asta ári sýndi hún dans ásamt nokkrum öðrum konum, sem tókst svo vel, að þær voru beðnar að dansa aftur á árshátíð KR í mars sl. Þá stóð einnig til að æfa saman atriðið fyrir hóf KR-kvenna í lok apríl. Við munum sakna Láru, sem var svo hæglát, hlý og þægileg. Fyrir hönd KR-kvenna sendi ég Guðmundi og bömum þremur inni- legar samúðarkveðjur. Guð gefí ykkur styrk í mikilli sorg. Það er huggun að eiga ljúfar minningar um ástríka eiginkonu og móður, sem ætíð hugsaði um velferð ást- vina sinna og vildi öllum vel. Blessuð sé minning Láru Jóhann- esdóttur. Elísabet Guðmundsdóttir, formaður KR-kvenna. Allt eins og biómstrið eina upp vex á sléttri grund, fagurt með fijóvgun hreina fyrst um dags morgunstund, á snöggu augabragði af skorið verður fljótt, lit og blöð niður lagði, - líf mannlegt endar skjótt. (H.P.) Það var að morgni skírdags sem við fengum þá frétt að góð vinkona okkar hefði látist kvöldið áður. Við kynntumst henni Láru í gegnum skíðadeild KR. Höfum við átt ótal ánægjustundir með henni og fjöl- skyldu hennar, jafnt sumar sem vetur. Það var vart hægt að hugsa sér betri ferðafélaga en Láru, hún var alltaf kát og ljúf í lund. Við minnumst t.d. síðustu ferðar sem við fórum nokkrir félagar úr skíða- deild KR með þeim hjónum til Akur- eyrar í mars síðastliðnum og áttum þar yndislega daga saman. Þetta snögga andlát vinkonu okkar minnti okkur óþægilega á nálægðina við dauðann og hversu stutt er á milli'lífs og dauða. Við munum geyma minninguna um Láru í hjörtum okkar. Kæru vinir, Guðmundur, Kristín, Jóhannes og Lilja, megi minningin um Láru vera ljós á vegum ykkar um alla framtíð. Blessuð sé minning hennar. Gaui og Hildur, Keli og Björg ogbörn. Þau stigu gæfuspor Lára og Guðmundur móðurbróðir minn er þau áttust fyrir rétt tæpum 25 árum og samstíga voru þau alla tíð þótt lífsleiðin væri oft grýtt og erfið yfírferðar. Lára var fædd í Reykjavík 22. september 1946, eina bam hjón- anna Jóhannesar Guðmundssonar og Kristínar Eggertssonar sem lést eftir áralöng veikindi og Lára þá aðeins rúmlega tvítug. Segja má að María Eggertsdóttir, móðursyst- ir hennar hafi gengið henni í móður- stað og verið bömunum hennar sem önnur mamma. Bömin þeirra Láru og Guðmund- ar urðu fjögur. Elst þeirra er Krist- ín, f. 1968, sem nú útskrifast úr íþróttakennaraskólanum á Laugar- vatni, Helga, f. 1969, d. 1979, Jó- hannes, f. 1972, er langt kominn í húsasmíðanámi og Lilja Sólrún, f. 1973, lýkur stúdentsprófí frá Kvennaskólanum í Reykjavík nú í vor. Mér hefur alltaf fundist að erfíð- leikamir og mótlætið sem Lára mætti á lífsleiðinn fyrst í móður- missinum og seinna í veikindum og missi dótturinnar Helgu hafí helst þroskað með henni hæfíleikann til að sjá og kunna að meta hvað er einhvers virði í lífinu. Hlaup eftir einskis nýtum hlutum var óþarft, en þó var ekkert nógu gott handa öðmm. Þú hittir Lám aldrei öðm- vísi en jákvæða, stutt í brosið og glettnina. Það var sama á hveiju gekk, aldrei heyrðist hún kvarta eða biðja um aðstoð. Sjálf var hún allt- af boðin og búin með útrétta hjálp- arhönd. Á ég eða viltu, vom orð sem alltaf heyrðust þegar Lára var annars vegar. Guðmundi, bömunum og föður sínum var hún ekki aðeins eigin- kona, móðir og dóttir, heldur og besti vinur og félagi. Fjölskyldan öll var samkvæmt því. Samheldnin var meiri og samverustundimar fleiri en gengur og gerist. Það var alltaf allt svo sjálfsagt. Hvort sem krakkamir vom smáböm, böm, unglingar eða komin á fullorðinsár þá fóm þau og gerðu allt í samein- ingu. Gönguferðir, á skíði, í ferða- lög, öll saman eins oft og kostur var. Það er svo ótalmargt ef að er gáð. Myndir og minningar hrannast upp í huganum. Ég stóra-litla frænkan, þá tæplega ellefu ára hugsaði ekki um að það væra þijár vikur sem mamma og pabbi ætluðu að vera í burtu í fríi, heldur um það sem mér fannst vera stóri vinning- urinn, að fá að vera hjá Lám og Gumma í vellystingum á meðan. Tíu ámm síðar, Lára í klippingu hjá mér. Hún var ánægð með allt sem lærlingurinn og seinna sveinn- inn og meistarinn framkvæmdi á kollinum - þetta er fínt, sagði hún alltaf. Fjölskyldumar saman í hjólhýs- um á sumrin, hittumst í Skálafellinu á vetuma, og ferðalögin á öllum árstímum. Elsku Gummi, Kristín, Jóhannes, Lilja Sólrún, Jóhannes eldri og amma. Þið vorað rík að eiga hana og verðið það um alla tíð, af falleg- um og góðum minningum um yndis- lega konu. Guð gefi ykkur styrk. Guðrún Helga Gylfadóttir. Mín hjartkæra tengdadóttir, Lára Jóhannesdóttir, andaðist á heimili sínu 7. apríl sl. Snöggt og óvænt var eins og ský drægi fyrir sólu. Erfítt er að trúa því, hvað það er kalt þetta líf. Eftir stendur elskulegur eigin- maður, böm in og aldraður faðir ásamt öðmm, sem elskuðu hana og virtu. Mér var hún sem besta dóttir allt frá fyrstu kynnum okk- ar, björt og glöð og jákvæð, hvem- ig sem á stóð. Hjálpsemin var sjálf- sögð, þegar hún átti S hlut. Og er þess skemmst að minnast, hvflík hjálparhella hún var Rúnari mági sínum í veikindum hans síðastliðið haust, og verður mér og honum sífellt þakkarefni. Þau vom ófá sporin og ferðimar hennar til mín og nokkra kaffisopa fengum við okkur saman. Það vom góðar sam- vemstundir. Ég kveð Lám mína. Hún bar birtu inn í líf okkar. Þau gleymast ekki þín björtu bros, þau bros náðu allra hylli. Þeir töfrar geymast, þó tíminn líði og tjald hafí faliið á milli. Helga Jónsdóttir. Með þessum orðum langar okkur að minnast elskulegrar systurdóttur og frænku, sem skyndilega er látin, langt um aldur fram. Lára Jóhannesdóttir lést á heim- ili sínu, Framnesvegi 16, að kvöldi 7. þessa mánaðar. Hún var hraust alla tíð og þess vegna er erfiðara en orð fá lýst að sætta sig við þá staðreynd að hún sé ekki lengur á meðal okkar. Fráfall Láru er jafn fyrirvaralaust og fæðingu hennar bar brátt að. Hún var aðeins fjórar merkur þegar hún leit dagsins ljós haustið 1946. Á þeim tíma efuðust margir um lífslíkur þeirrar litlu mannvem, sem seinna átti eftir að verða sólargeislinn í lífí foreldra sinna. Lára var dóttir hjónanna Kristín- ar Eggertsdóttur (f. 3. ágúst 1924, d. 4. desember 1967), húsmóðir í Reykjavík, og Jóhannesar Guð- mundssonar (f. 26. febrúar 1917) prentara, frá Núpi í Haukadal í Dalasýslu. Lára var sannur Vest- urbæingur, ólst upp í Sörlaskjóli 90 og gekk í Melaskóla og síðar í Hagaskóla. Hinn 12. júní 1968 giftist hún eftirlifandi eiginmanni sínum, Guð- mundi Albert Jóhannssyni á 25 ára afmæli hans. Guðmundur er sonur hjónanná Helgu Jónsdóttur (f. 23. september 1918) og Jóhanns Al- bertssonar (f. 26. júní 1899, d. 16. febrúar 1967). Lára og Guðmundur hófu búskap í Sörlaskjóli, en síðar fluttust þau, ásamt Jóhannesi föður Lára, á Framnesveginn. Bömin urðu fjögur: Kristín (f. 3. febrúar 1968) íþróttakennari, Helga (f. 16. júlí 1969, d. 10. júlí 1979), Jóhannes (f. 17. mars 1972), nemi í húsasmíði og Lilja Sólrún (f. 17. ágúst 1973), nemi í Kvennaskó- lanum í Reykjavík. Lára og Guðmundur vom alla tíð mjög samrýnd og áttu mörg sam- eiginleg áhugamál, sem þau sinntu ásamt bömunum. Fjömtíu og sex ár em ekki löng ævi. Þó mátti Lára Jóhannesdóttir þola meira mótlæti í lífinu en marg- ir aðrir á lengri tíma. Kristín, móð- ir hennar, var veik eins lengi og Lára mundi eftir sér. Tíu ára að aldri horfði hún upp á móður sína lamast, missa málið og eiga í erfíðu veikindastríði, sem lauk ellefu ámm síðar. Sumarið 1979 sáu Lára og Guðmundur á eftir 10 ára dóttur sinni, Helgu, eftir löng og erfið veikindi. A slíkum stundum kemur í ljós hvers virði það er að eiga fjöl- skyldu sem stendur saman. Lára var þeirrar gæfu aðnjótandi að eiga góða að. Hamingja hennar fólst í því að eiga eiginmann og böm sem reyndust henni alltaf frábærlega vel. Samband Lám og Jóhannesar föður hennar var einstakt. Frá því hún mundi eftir sér var Jói henni allt í senn: faðir, móðir og umfram allt góður vinur. Ásamt eiginmanni sínum og börnum þakkaði Lára fyrir sig með því að annast Jóa heima þegar heilsu hans tók að hraka. „Lára er mesti gleðigjafi lífs míns,“ var Jói vanur að segja. Sama sagði hann um dótturbömin. Með þessum orðum elskulegs föður kveðjum við Lám Jóhannes- dóttur, systurdóttur og frænku okk- ar, sem við litum oft á sem dóttur og stóm systur. Við þökkum henni fyrri allar góðu samverastundimar, sem hefðu átt að verða miklu fleiri. Að lokum fæmm við Guðmundi, Kristínu, Jóhannesi, Lilju Sólrúnu og Jóhannesi föður Lám og fjöl- skyldunni allri, innilegustu samúð- arkveðjur. Blessuð sé minning Lám Jóhann- esdóttur. María, Ingólfur, Jóhann og Halldóra. Þegar sál þín vegur gull sitt og silfur á metaskálum, hlýtur gleðin og sorgin að koma og fara. K. Gibran. Kær vinkona er fallin frá langt um aldur fram. Við snöggt og ótímabært andlát eins og hér átti sér stað, verðum við sem eftir stöndum sem felmtri slegin. Okkur setur hljóð og minningamar streyma fram í hugann. Minningar um sterkan persónu- Ieika, styrka, ömgga og gefandi konu, sem jafnframt skartaði prúð- mennsku, hógværð og stillingu í öllu sínu dagfari og lífí. Um 25 ára skeið höfum við vin- konumar í saumaklúbbnum hist reglulega, blandað geði og deilt gleði og sorg hver með annarri. Seint verður metið eins og vert er og þakkað, hve slík vináttubönd em mikils virði í daglegu amstri hvers- dagsins. Að eiga sér athvarf innan góðs og tryggs vinkvennahóps, þar sem hægt er að ræða málin, skiptast á skoðunum og hjálpa hver annarri þegar á reynir, í fáum orðum sagt, styrkja hver aðra, er ómetanlegt. Lára var fædd í Reykjavík 22. september 1946 og var því á fertug- asta og sjöunda aldursári þegar hún lést. Lára var einkadóttir hjónanna Kristínar Eggertsdóttur, sem nú er látin og Jóhannesar Guðmundsson- ar, prentara, sem lifír dóttur sína. Hinn 12. júní 1968 gekk Lára að eiga Guðmund A. Jóhannsson verslunarmann. Stofnuðu þau heim- ili sitt í Reykjavík og eignuðust fyög- ur böm. Snemma á ævinni reyndi á þrek Lára og stillingu því erfíðleikar og . alvara lífsins hófst snemma. Þegar hún enn var bamung, varð móðir hennar, Kristín, fyrir áfalli, sem gerði það að verkum að hún þurfti æ síðan að vera langdvölum inni á sjúkrastofnunum. Árið 1979 urðu þau hjón Lára og Guðmundur fyrir þeirri sára sorg að missa dótturina Helgu 10 ára gamla en hún var næst elst bama þeirra. Þessi áföll bar Lára með einstakri stillingu og kjarki og hjálpaði og styrkti alla þá sem nærri stóðu með hugprýði sinni. Heimilislíf þeirra hjóna var til einstakrar fyrirmyndar. Sam- hentari hjón var vart hægt að hugsa sér bæði í leik og starfí. Þau bám gæfu til að vera miklir félagar og vinir bamanna sinna, jafnframt því að sinna uppeldishlut- verkinu af stakri prýði. Útivist og íþróttir vom snar þáttur í lífsstíl fjölskyldunnar. Áttu þau því með börnum sínum ótaldar ánægju- stundir í ferðalögum vítt og breitt um landið á sumrum og í skíðaferð- um á vetmm. Sár harmur er nú kveðinn að Guðmundi og ástvinunum öllum. Faðir Lám, Jóhannes, sem ávallt Hinn 28. janúar sl. lést í Váxjö í Svíþjóð á 81. aldursári Torsten Jerrer fyrmm yfirlæknir á Bæklun- arskurðdeild Centrallasarettsins í Vásterás. Hann fæddist í Lundi og stundaði nám sitt við háskólann þar og varði doktorsritgerð sína um „kastios í mjöðm hjá bömum“. Torsten Jerre starfaði við Vanföre- anstalten í Helsingborg og 1957 varð hann dósent við háskólann í Lundi, en sama ár tók hann við yfirlæknisstarfi við nýstofnaða Bæklunarlækningadeild í Vásterás. Því starfí gegndi hann til ársins 1975. Á starfsáram Torstens Jerres í Vásterás mynduðust sterk tengsl hans og sjúkradeildar hans við Is- land og íslenska lækna, er hófu fjöl- margir sitt framhaldsnám undir hans handaijaðri. Má fullyrða að hefur átt heimili sitt með fjölskyld- unni, missir kæra dóttur og sína styrkustu stoð, farinn að heilsu. Sömuleiðis er missirinn sár Helgu, tengdamóður Láru, en mikið ástríki var ávallt með þeim tengda- mæðgum. Þegar við nú kveðjum Lára, okk- ar kæra vinkonu, er efst í huga okkar þakklæti fyrir að hafa kynnst slíkri afbragðskonu. Við vottum Guðmundi og ástvinum öllum okkar innilegustu samúð og biðjum góðan Guð að styrkja þau í þeirra miklu sorg og blessa þeim minningamar um góða og göfuga konu. Saumaklúbburínn Á skírdag bámst okkur félögun- um í Skíðadeild KR þau dapurlegu tíðindi, að hún Lára félagi okkar hefði orðið bráðkvödd kvöldið áður á heimili sínu. Fréttin kom sem reiðarslag og sló skugga á þá hátíð skíðamanna, sem páskar em. Lára var fædd árið 1946 og ólst upp í Vesturbænum. Hún var dóttir hjónanna Kristínar Eggertsdóttur og Jóhannesar Guðmundssonar. Kristín er látin fyrir mörgum ámm en Jóhannes lifir einkadóttur sína. Lára gekk að eiga eftirlifandi eigin- mann sinn, Guðmund Jóhannsson verslunarmann, árið 1968. Gerðu þau sér vistlegt heimili á Framnes- vegi 16 ásamt föður Láru. Þau eign- uðust fjögur böm, Kristínu, Helgu, sem er látin, Jóhannes og Lilju. Um 1980 fóm þau Lára og Guð- mundur að venja komu sína á skíði í Skálafell með bömin. Hófst þá fljótlega þátttaka þeirra í leik og starfí skíðadeildar KR. Bömin æfðu og kepptu, Guðmundur sinnti stjómarstörfum og Lára var bak- hjarl þeirra allra í blíðu og stríðu. Var sérstaklega til þess tekið, hve samhent fjölskyldan var I öllu sem þau tóku sér fyrir hendur. Lára var hlédræg í daglegri um- gengni og hafði sig lítið í frammi. Hún var orðvör og góðmælt í garð annarra. Hún var ætíð boðin og búin til að starfa fyrir Skíðadeildina og þau hjónin létu sig ekki vanta, hvort sem um var að ræða skíða- ferðir innanlands eða utan, sumar- ferðir eða aðrar uppákomur hjá deildinni. Var Lára þar hrókur alls fagnaðar í hópi góðra vina. Ein af síðustu minningunum er frá því, að Lára stóð í eldhúsinu í KR-ská- lanum með öðram konum úr deild- inni og bakaði vöfflur af miklum krafti fyrir keppendur á Unglinga- meistaramóti Islands. Að leiðarlokum viljum við félagar í Skíðadeild KR þakka Láru sam- fylgdina og við vottum Guðmundi, börnunum og öldruðum föður henn- ar okkar innilegustu hluttekningu. Af eilífðar ljósi bjarma ber, sem brautina þungu greiðir. Vort líf, sem svo stutt og stopult er, það stefnir á æðri leiðir. Og upphiminn fegri’ en augað sér mót öllum oss faðminn breiðir. (E. Ben.) sérstakur hlýhugur Torstens Jerres til íslands og íslenskra Iækna hafí með beinum og óbeinum hætti rennt stoðum undir öra þróun bæklunar- lækninga á íslandi, enda var vís- indaáhugi hans mikill og beindist m.a. að þróum aðgerða við slitgigt bæði í mjöðmum og hnjám. Þá var hann einnig framarlega í félagsskap sænskra bæklunarlækna og vara- formaður félags þeirra frá 1968- 1972. Ég vil vegna þeirra lækna ís- lenskra, er nutu þess að nema og starfa við Bæklunarskurðdeild Centrallasarettsins í Vásterás, minnast hans með þakklæti og virð- ingu og senda eftirlifandi konu hans, frú Margareta Jerre, og son- um þeirra smúðarkveðjur. Bragi Guðmundsson. Skiðadeild KR. Dr. med. Torsten Jerre - Minning

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.