Morgunblaðið - 18.04.1993, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18. APRÍL 1993
23
KAUPMANNAHAFNARBRÉF
Þjóðarsaga á matarborðinu
PÁSKASIÐIRNIR hér eru svipaðir og í ná-
grannalöndunum, páskaskraut heima fyrir
og í búðum, páskasælgæti og páskamatur.
En rödd kirkjunnar manna heyrist ekki oft.
Fyrir skömmu kom fram tillaga um að breyta
illa nýttum kirkjum í menningarmiðstöðvar.
Sem ég hugleiddi þetta barst mér boð frá
vinkonu minni um að taka þátt í seder-veislu
í tilefni framhjágöngunnar og flóttans frá
Egyptalandi.
Með framhjágöngunni er átt við þegar
Drottinn leiddi tiu plágur yfir Egypta fyrir
að halda þjóð hans í ánauð. Til að sleppa
hjá síðustu plágunni, þegar Drottinn deyddi
alla frumburði, bauð hann þjóð sinni að rjóða
dyrastafinn blóði fórnarlambsins, svo hinn
refsandi engill færi framhjá. Eftir þetta gaf
faraó gyðingum leyfi til að hverfa úr landi.
Drottinn leiddi þá yfir Rauðahafið, sem skall
yfir faraó og hermenn hans. í eyðimörkinni
hélt hann lífi í þeim í fjörutíu ár.
Vinkona mín er af argentínskum gyðinga-
ættum, en ekki alin upp í rétttrúnaði. Enginn
gestanna var gyðingur utan húsmóðirin og
aldraður hollenskur gyðingur, sem hefur búið
í Bandaríkjunum um árabil. Við hvern disk
lá lítið kver á ensku og hebresku, fallega
skreytt viðeigandi myndum rússneska lista-
mannsins Marcs Chagalls, sem hefur sótt svo
mikið í gyðinglega æsku sína.
Aðeins fyrir þá umskornu
Hollenski gesturinn tók að sér að stjóma
borðhaldinu og fræða viðstadda um sögu og
siði seder-veislunnar. Um leið og borðhaldið
hófst sagði hann af gyðinglegri glettni að
máltíðin væri að sjálfsögðu aðeins fyrir þá
umskomu ... Á heimilum gyðinga átti veisl-
an sér langan aðdraganda. Allt var þrifíð
hátt og lágt og svo þurfti að ganga úr skugga
um að ekkert gler eða geijað brauð væri í
húsinu, því þetta er veisla hinna ósýrðu
brauða. Gyðingar flúðu í skyndi svo brauð-
deigið var tekið ósýrt-með. Síðan er borðað
ósýrt brauð þessa dagana. í fjölskyldu Hol-
lendingsins fór fjölskyldan um húsið með
kertaljós og leitaði hátt og lágt og bömupum
til ærinnar gleði fundust súkkulaðibitar hér
og þar.
Gyðingurinn skýrði fyrir okkur seder-
diskinn á borðinu. Ofnsteikt bein úr lamba-
læri minnir á páskalambið er forfeðumir fóm-
uðu Guði, harðsoðið egg á hringrás lífs og
dauða, beiskar jurtir á beiskju egypska þræla-
lífsins og lítil bolla úr söxuðum hnetum,
þurrkuðum ávöxtum, víni og kryddi táknar
steinlímið sem forfeðumir notuðu í egypsku
píramídana. Steinselja táknar von og end-
urnýjun og beisk jurt minnir á að forfeðum-
ir snæddu hana og ósýrð brauð í eyðimörk-
inni. Maturinn sem borinn var á fagurlega
dúkað borðið var hefðbundinn gyðingamatur,
tilreiddur eftir öllum kúnstarinnar reglum.
Gesturinn, sem var okkar andlegi leiðtogi
þetta kvöld, átti margar ljúfar minningar
bundnar seder. Gyðingar leggja mikla rækt
við böm sín og þau eiga sér sérstakan yett-
vang þetta kvöld. Á milli bænahalds, lestra
og sálmasöngs ræða viðstaddir allt milli him-
ins og jarðar. Fjölskyldufaðirínn stjórnaði
borðhaldinu og böm og ungmenni vom sér-
staklega hvött til að spyija um hvaðeina sem
þeim datt í hug. Faðirinn sat ekki uppréttur
við borðið, heldur hallaði sér við hliðina á
disknum. í seder-textunum er talað um að
liggja til borðs, því það gerðu heldri menn
meðal Egypta og Rómveija. Þess minnast
gyðingar og minna á að þeir eru herra í eigin
húsi.
Skopsögur sem viðbit í gleði og sorg
Gyðingar eru annálaðir fyrir skopsögur og
leiðtogi okkar var engin undantekning. Gyð-
ingatrú gerir ekki ráð fyrir lífi eftir dauð-
ann. Lífíð er hér og nú, engin hótun um
helvíti. Eitt sinn leit Guð yfír jörðina og sá
að hún var harla syndug. Hann ákvað því
að senda annað syndaflóð yfír jörðina, en í
þetta skipti yrði engin örk, dúfa eða olíuviðar-
grein, bara tíu fet af vatni yfír allt. Gabríel
erkiengill flaug með boðskapinn til jarðar og
kom fyrst á fund páfa. Hann brást fljótt við
boðskapnum og skipaði fólk sínu að biðja og
lifa í hreinlífí síðustu dagana, svo það kæm-
ist í himnaríki. Æðsti prestur múhameðstrú-
armanna brást eins við. Þá fór Gabríel til
rabbíans. Eftir boðskap engilsins hugsaði
rabbíinn sig um stutta stund og sagði svo:
Já, lífíð verður liklega erfítt undir tíu fetum
af vatni...
Dómsdagur er þó hluti af trú þeirra. Þeg-
ar rithöfundurinn Bashevis Singer var spurð-
ur af hveiju hann skrifaði á jiddísku en ekki
á ensku, svaraði hann: Sjáðu til. Þegar þjóð
mín vaknar upp á dómsdegi veit ég að ein-
hveijir verða til að spyija, hvort ekki hafí
verið skrifað eitthvað gott á jiddísku nýlega.
Þá vil ég gjaman vera nefndur til...
Þegar gyðingar deyja á að grafa þá sem
fyrst eftir andlátið. Síðan tekur við sjö daga
sorgartími. Þá er fjölskyldan saman heima
við, tekur sér ekkert fyrir hendur annað en
að taka á móti gestum, sem fá hvorki vott
né þurrt. Faðir Hollendingsins dó snögglega
eftir að sonurinn var orðinn fullorðinn og
fluttur til Bandaríkjanna. Hann kom strax
heim til að vera við jarðarförina og sorgartím-
ann. Jafnvel sorgin megnaði ekki að slá á
skopskynið, svo hann fór ósjálfrátt að segja
gamansögur. Þegar gesti bar óvænt að garði
urðu þau öll að taka sig á að koma andlitinu
í alvarlegar skorður, því um stund hafði sorg-
in gleymst og hláturinn fyllt húsið. Þegar
móðir hans dó var hann orðinn einn eftir og
sá engan tilgang í að halda sorgarviku
einsamall. Hann var lengi að komast yfír
móðurmissinn og er ekki í vafa um að skýr-
ingin er að sorgarvikan eftir föðurmissinn
gaf honum tíma til að upplifa sorgina. Helgis-
iðir gegna oft tilgangi, þegar að er gáð.
Tengiafl sögunnar
Þrátt fyrir sterkt trúarlegt uppeldi leitaði
efinn snemma á gyðinginn. Þegar hann var
um ellefu ára gamall laumaðist hann eitt
sinn óséður inn í eldhús á hvíldardeginum.
Þann dag má ekkert taka sér fyrir hendur,
heldur ekki að kveikja eld. Með dúndrandi
hjartslátt kveikti hann eldsnöggt á eldspýtu,
slökkti jafnskjótt aftur og hljóp fram . .. en
ekkert gerðist. Guð refsaði honum ekki, hafði
kannski ekki einu sinni séð til hans. Þar með
var efanum sáð. Seinna sagði hann félaga
sínum söguna, en sá var einnig gyðingur og
alinn upp í rétttrúnaði. Efi hans hafði kvikn-
að á svipuðum aldri. í sínagógunni má ekki
líta á prestinn við ákveðnar aðstæður, því
annars getur Gúð slegið niður eldingu og
blindað þann sem brýtur af sér. Stráksi dró
annað augað í pung og gjóaði hinu eldsnöggt
á prestinn, svo hann missti þá aðeins sjón á
öðru auga, ef Guð refsaði honum. En ekkert
gerðist, nema að trúin dofnaði og efínn óx.
En skiptir þá gyðinglegt uppeldi hollenska.
gyðinginn einhveiju máli, úr því hann er
ekki trúaður? Já, hvort það gerir. „Ég fædd-
ist sem gyðingur og dey sem gyðingur." Við
skildum vita að gyðingdómur væri miklu
meira en trú. Og reyndar færði borðhaldið
okkur heim sanninn um það, þvi eins og
aðrar gyðingahátíðir snerist það allt um þjóð-
arsöguna. Gyðingdómur snýst um þjóðina
sjálfa og sögu hennar, auk lögmálsins. Há-
tíðahald þeirra er ekki aðeins tilbeiðsla, held-
ur minnir gyðinga á þjóðarsöguna, sem teng-
ir þá alla saman, bæði trúaða og vantrúaða.
Þess vegna segja þeir „þegar við fórum frá
Egyptalandi“ og „við sem vorum í helför-
inni“, þó þeir hafí hvergi verið þar nærri.
Gesturinn sagðist glaður og þakklátur fyr-
ir uppeldi sitt, þó hann saknaði ekki trúarinn-
ar. Gyðingar álitu sig sem kunnugt væri
Guðs útvöldu þjóð „og gallinn er að of marg-
ir trúa því!“ Son sinn hefur hann ekki alið
upp í trúnni, þó hann hafí tekið sárt að geta
ekki veitt honum sama uppeldi og hann fékk
sjájfur.
í landi þar sem talað er um að breyta kirkj-
um í „menningar“-miðstöðvar er fróðlegt að
heyra riíjað upp að trú sé ekki aðeins spum-
ing um trúarkjamann sjálfan, heldur um
menningarlega kjölfestu. Kristin trú er einn-
ig slík kjölfesta. Það er sorglegt að sjá þekk-
ingu á henni vanrækta, ekki aðeins trúarinn-
ar vegna, heldur einmitt vegna þess að hún
er lykill að listum, sögu og mörgu fleiru sem
við bemm í okkur, hvort sem við erum trúuð
eða ekki.
Sigrún
Davíðsdóttir.
Um leið og vi& birtum nöfn vinningshafa þökkum viö þeim þúsundum
sem tóku þótt í þessari léttu og skemmtilegu getraun.
Svara ótti tveimur spurningum;
1. Frá hvaða landi eru HYUNDAI bílarnir?
Rétt svar: Frá Suður Kóreu.
2. HvaS eru margar LADA bifreiðar í umferðinni hérlendis?
Rétt svar: Um 11.000.
Svör viS spurningunum komu fram í bæklingnum.
VERÐLAUNAHAFAR:
I Nýr LADA SAFIR beint úr kassanum.
Hulda Árnadóttir Suðurgötu 7 Keflavík.
, . Helgarferð með FLUGLEIÐUM
-J * I fyrir tvo til AMSTERDAM. Gist á Holiday Inn Crown Plaza.
Helga Ingvarsdóttir
Bræðraborgarstíg 41 Reyk|avík.
40 AUKAVINNINGAR:
lOstk. SEL 8x40 sjónaukar.
10 stk. ARQIC CAT leður vélsleðahanskar.
10 stk. Buröarbogar á bíla.
10 stk. Bílmottusett.
40 AUKAVINNINGSHAFAR:
10 stk. SEL 8x40 sjónaukar.
Elísabpt Kristinsdóttir Hólagötu 37 Vestmannaeyjum.
Sjöfn Isaks.dóttir Heiðarhrauni 5 Grindavík.
SigurSur Orvar Sigurmonsson Þúfur Hofsósi.
Friögeir Gar&arsson SuSurbraut 24 Hafnarfiröi.
Arnfríður Jónasdóttir Móasíðu 36 Akureyri.
Helgi Ágústsson Vesturberai 118 Reykjavík.
Dröm Guðbjörnsdóttir Hlíðardalsskóla Selfossi.
Anna P. Aylett Hvarfi Laugarvatni.
Guðmundur Jónsson Vogatungu 59a Kópavogi.
Valgerður Jakobsdóttir Kolbeinsgötu 11 Vopnafirði.
10 stk. ARCTIC CAT leður vélsleóahanskar.
Magnús Hilmarsson Lyngbergi 23 Þorlákshöfn.
Haltdór Sigfússon Geldingsá Akureyri.
Egill Einarsson Kringlunm 25 Reykjavík.
Þurlður Jóhannsdóttir Jaðri Borgarnesj.
Guðný H. Gunnlaugsd. Brattavöllum Árskógshr. Ak.
Pétur Guðmundsson Völusteinsstrætí 18 Bofungarvík.
Anna K. Daviðsdóttir Fjarðarstræti 39 Isafirði.
Jórunn Sigfúsdóttir Arnartanga 66 Varmá.
Einar Arngrímsson Sunnubraut 4 Dalvík.
Hiörtur Holm Hermannsson Laugaskóla Laugum.
10 stk. Burðarbogar á bifa.
Sólveig Snorradóttir Holtsdötu 1 Njarðvík.
Ásta Oddsdóttir Norðurtúni 23 Siglufirði.
Svava Blandon Syðra-Laugalandi Akurpyri.
Helgi Kr. Einarsson Hjarðarlandi Bisk. Árnessýslu.
Þorvaldur Sverrisson Heiðarhrauni 44 Grindavík.
Guðfinna B. Hjarðar Sleðbrjót Jökulsárhlíð Egilsstöðurr
Björn Þór Guðmundsson Miklubraut 16 Reykiavik.
Monica Magnúsdóltir Hjarðarholti 4 Mosfellsbæ.
Dóra Kristjánsdóttir Smaratún 6 Svalbarðseyri.
Ingunn Þórðardóttir Safamýri 15 Reykjavík.
10 stk. Bílmottusett.
Sif Aðils Miklubraut 56 Reykjavík.
Páll Hannesson Fjarðarbraut Stöðvarfirði.
Kristján A. Kristjánsson Laugagerði 70 Reykjavík.
Þórunn J. Kristinsdóltir Túni Borgarhr. Borgarnesi.
Sigurjón Hreinsson Goðheimum 14 Reykjavík.
Jón Ingipnarjson Hafnargötu 15 Grímsey.
Eiríkur Oli Olafsson Kirk|uteig 2 Eskifiröi.
Svanhvít Guðmundsdóttir Búöaveg 30a Fáskrúðsfirði.
Dagmar Þórisdóttir Breiðvangi 52 Hafnarfirði.
Anna GuÖmundsdóttir Næfurás 15 Reykjavik.
2
Mmmm
ARCnCCAI
Allar nánari upplýsingar veitir Pétur hjá B&L i síma: 681200 - Vinningshöfum óskum viS til hamingju meS árangurinn!
Ármúla 13
Sími: 681200