Morgunblaðið - 08.07.1993, Side 14

Morgunblaðið - 08.07.1993, Side 14
HflltNÖAUQ.ÝSNGASTOfA/SÍA 14 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. JÚLÍ 1993 Fáein orð um frið- un hvítabjarna eftir Örnólf Thorlacius Hvítabjörn, Ursus marítimus, er oft talinn stærsta núlifandi landrándýrið, 2-2Mi m að lengd og allt að 1,6 m hár á herða- kamb. Fullorðin karldýr eru flest 420-500 kg, en dæmi eru um allt að 800 kg dýr. Birnurnar eru minni og léttari. Stærstu grábirnir í Alaska verða á stærð við hvíta- birni eða jafnvel stærri. Að meðal- tali eru grábirnir samt mun minni. Fæðan er einkum hringanóri og aðrir selir, en soltinn björn leggur sér flest til munns og fúlsar ekki við heimskautagróðri meðan hann býðst. Tófur éta stundum hvíta- bjarnasaur, sem er mjög fituríkur. Rannsóknir benda til að bestu veiðisvæði hvítabjarna séu breiður af lagnaðarís sem brotna í sífellu fyrir áhrif vinda og strauma en fijósa jafnharðan aftur saman. Sumir birnir hafast við á ísnum allt árið en aðrir eru landbundn- ari, einkum á vetrum. Þá grafa birnumar sig í fönn, leggjast þar í híði og gjóta einum til fjórum húnum, venjulega tveimur. Svo líða tvö til fjögur ár að næsta goti. Hvítabjörn hleypur uppi hrein- dýr á stuttum spretti. Heimild er um að björn hafí synt að minnsta kosti 65 km á rúmsjó. Hvítabirnir lifa við strendur Norður-íshafsins, frá 88°N suður undir jaðar landföstu hafísbreið- unnar. Nokkur dýr slæðast sunn- ar, allt suður til Pribiloveyja á Beringshafí, um 56°N. Menn á norðurslóð hafa löngum veitt hvítabirni vegna feldsins og fítunnar. Á þessari öld fóru að- komnir menn í vaxandi mæli að veiða þá til dægradvalar og vegna skinnanna sem ágætt verð fékkst fyrir. Undir miðja öldina var farið að nota flugvélar við veiðarnar í Alaska. Árið 1972 lagði Banda- ríkjaþing bann við veiðum á hvíta- birni í Alaska þegar undan eru skildar takmarkaðar og hefð- bundnar veiðar frumbyggja. Danir og Kanadamenn hafa einnig ein- skorðað bjarnaveiðar við þarfír inúíta og Rússar og Norðmenn hafa alfriðað dýrin, sem lifa við norðurströnd Síberíu og á Sval- barða. Þessar fimm þjóðir, Banda- ríkjamenn, Kanadamenn, Danir, Norðmenn og Sovétmenn, sömdu árið 1973 um að takmarka veiðar á hvítabirni, að vernda búsvæði hans og vinna saman að rannsókn- um á tegundinni. Nú er talið að villtir hvítabirnir séu samtals um 20.000 og stofn- arnir séu í jafnvægi eða vaxandi. Þó er varað við að lítið megi út af bera, til dæmis gætu aukin umsvif við vinnslu á olíu og gasi orðið háskaleg fáliðuðum stofnum hvítabjarna í Alaska og Kanada. Alþjóðanáttúruverndarsamtökin IUCN lýsa tegundinni sem vuln- erable — ef eitthvað beri út af sé hún í hættu. Hvítabimir geta verið mann- skæðir en sem betur fer lifa þeir óvíða nærri mannabyggð. Á sjö- unda áratugnum skapaðist þó vandræðaástand við Hudsonflóa, Örnólfur Thorlacius „Samhliða friðun á þessum dýrum yrðu stjórnvöld að sjá til þess að jafnan væru til taks vanar skyttur með skot- vopn búin svefnþornum á þeim stöðum þar sem bjarna er helst von.“ nærri borginni Churchill í Man- itoba. Þar varð veruleg fjölgun bæði á bjarndýrum og mönnum. Stórir sorphaugar urðu til og bangsarnir vöndu komur sínar þangað í matarleit. Þeir réðust á allmarga menn og drápu einn. Stjórnin lét fella marga birni og flytja aðra um set,. Hingað til lands slæðast hvíta- birnir annað veifíð og em jafnan felldir. Vaknar þá stundum spurn- ingin um hvort við ættum ekki að fara að dæmi granna okkar og friða þessi sjaldgæfu dýr. Ég mun ekkert leggja til í því máli né held- ur tjá mig um veiðiaðferð sem nýlega var beitt. En mig langar að vekja athygli á því hvað friðun hefði í för með sér. Þær fimm þjóðir sem friðað hafa hvítabjöm eða takmarkað veiðar á honum hafa innan landa- mæra sinna alla villta stofna þess- arar tegundar í heiminum. Þær eru því að vernda villt dýr í nátt- úrulegu umhverfí. Hvítabjörn sem hingað slæðist á sér tæpast lífs von til lengdar auk þess sem mönnum og fénaði stendur slík hætta af honum að engin leið er að láta afskiptalaust. Samhliða friðun á þessum dýrum yrðu stjórnvöld að sjá til þess að jafnan væru til taks vanar skyttur með skotvopn búin svefnþornum á þeim stöðum þar sem bjarna er helst von. Að öðrum kosti yrði að hafa viðbúnað til að senda slíka menn fyrirvaralaust — með þyrlu eða flugvél — til að svæfa hvítabirni hvar sem til þeirra spyrðist. Síðan þyrfti annaðhvort að fljúga strax með dýrið eða dýrin sofandi til síns heima eða hafa til taks ramm- gerð búr undir þann fjölda bjam- dýra sem eðlilegt væri að ætla að hingað gætu borist samtímis. Þar biði dýrið eða dýrin flutnings. Talið er að árlega séu nú veidd-

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.