Morgunblaðið - 08.07.1993, Page 20
20
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. JÚLÍ 1993
Forseti Eistlands
vill endurskoða
„útlendingalögin“
Tallinn. Reuter.
EISTLANDSÞING kemur saman í dag til þess að ræða þá ákvörð-
un forsetans, Lennart Meri, að skrifa ekki undir lög um réttindi
rússneskra íbúa landsins; „útlendingalögin" svonefndu. Meri
hefur falið þinginu að endurskoða lögin, að sögn talsmanns for-
setans, eftir að hafa ráðfært sig við landa sína og alþjóðlega
sérfræðinga.
Samkvæmt lögunum, sem þingið
samþykkti í síðasta mánuði, þurfa
Rússar, búsettir í Eistlandi, að
sækja um ríkisborgararétt eða dval-
arleyfí innan tveggja ára, en hverfa
úr landi ella. Rök Eistlendinga eru
að þeir vilji varðveita þjóðarein-
kenni sín, en rússnesk yfirvöld telja
lögin mismuna Rússum í Eistlandi.
Meri fór þess á leit að nefnd á
vegum Evrópuráðsins legði mat á
lögjn áður en hann myndi sam-
þykkja þau, og þegar til kom fundu
nefndarmenn ýmislegt gagnrýni-
vert. Auk þess höfðu fulltrúar
RÖSE mælst til þess að lögunum
yrði breytt, ef það mætti létta á
spennu í samskiptum Eistlands og
Rússlands.
Griðungur í vígahug
Reuter
Nýr leiðtogi
Lettlands
Riga. Reuter.
ÞING Lettlands valdi í gær Guntis
Ullmanis til þess að gegna emb-
ætti þjóðarleiðtoga. Hann er sonur
bróðursonar fyrrum leiðtoga
landsins á tímum sjálfstæðis þess
fyrr á öldinni. Þá var samþykkt,
að fyrrum kommúnistaleiðtogi
landsins skyldi dreginn fyrir dóm.
Eftir að einn frambjóðandinn dró
sig í hlé í gær og lýsti stuðningi við
Ullmanis, náði harin loks 53 atkvæð-
um af 100. Gunars Mejerovics, leið-
5 mfnuí'hÍSamÍrelIð Mannskæðar óeirðir og mótmælaaðgerðir í höfuðborg Nígeríu
flestum atkvæðum. Lettlandsleið
hefur 36 þingsæti af 100 en Bænda-
samtök Ullmanis 12 sæti.
Þrátt fyrir hatrammar deilur milli
hópa á þinginu samþykktu fulltrúar
snarlega á þriðjudag að fyrrum
kommúnistaleiðtogi landsins, Alfred
Rubiks, skyldi leiddur fyrir rétt
vegna þátttöku sinnar í tilraun til
að svipta Mikhaíl Gorbatsjov, fyrrum
Sovétleiðtoga, völdum árið 1991.
FÖTHVATIR unglingar í spænsku borginni
Pamplona í Navarra-héraði, klæddir þjóðbúning-
um, ögra nautum á götum úti. Á hveiju ári er
haldin svonefnd San Fermin-hátíð og þáttur í
henni er þetta at þar sem sá þykir fræknastur
er hleypir nautunum næst sér. Ekki bárust fréttir
af því hvort frændur Þorgeirsbola höfðu betur í
einhverju tilvikinu í gær.
Herfoi’ingj astj ó rn i n sendir
skriðdreka út á srötur Laafos
Lairos. Reuter. ^1 * ^ *
Lagos. Reuter.
HERFORINGJASTJÓRNIN f Nígeríu sendi í gær skriðdreka á götur
Lagos til að binda enda á óeirðir sem höfðu valdið ringulreið í borg-
inni og lamað atvinnulífið. Lýðræðissinnar höfðu efnt til mótmæla í
borginni til krefjast þess að herforingjasljórnin færi frá. Moshood
Abiola, líklegur sigurvegari forsetakosninga sem fram fóru 12. júní
en voru síðar lýstar ómerkar, kvaðst í gær vilja mynda þjóðsljórn með
flokki andstæðings síns í kosningunum.
Beko Ransome-Kuti, leiðtogi 12. júní. Aðeins tveir flokkar fengu
hreyfingar sem berst fyrir lýðræði í að bjóða fram í kosningunum, en
Reuter
Kirkjumunum skilað
LÖGREGLAN í ísrael hefur fundið ýmsa verðmæta kirkjumuni sem palest-
ínskir þjófar höfðu stolið frá grísk-kaþólsku rétttrúnaðarkirkjunni á Vestur-
bakka Jórdanar. Þýfíð er metið á jafnvirði 70 milljóna króna. Myndin var
tekin þegar lögreglan skilaði mununum til presta rétttrúnaðarkirkjunnar.
Nígeríu, stóð fyrir mótmælunum sem
hófust á mánudag og áttu að standa
í viku. Hann var handtekinn á þriðju-
dagskvöld án þess að lögreglan gerði
grein fyrir ástæðu handtökunnar.
Ringulreið hefur verið í höfuðborg-
inni frá því mótmælin hófust og að
sögn óháðra dagblaða í Nígeríu biðu
allt að 24 manns bana í óeirðunum
á mánudag og þriðjudag. Öryggis-
verðir voru sagðir hafa skotið á
óeirðaseggi í gær og banað að
minnsta kosti tveimur mönnum.
Mótmælin eiga rætur að rekja til
þeirrar ákvörðunar Ibrahims Ba-
bangida, forseta herforingjastjórnar-
innar, að ógilda forsetakosningamar
þeir voru báðir stofnaðir að frum-
kvæði herforingjastjómarinnar, sem
ákvað sjálf stefnu þeirra beggja.
Annar þeirra er örlítið til hægri og
hinn til vinstri. Frambjóðandi þess
síðarnefnda, Moshood Abiola, mun
hafa borið sigur úr býtum í forseta-
kosningunum, en úrslitin voru ekki
tilkynnt.
Babangida hefur sett forystu-
mönnum flokkanna tveggja úrslita-
kosti; annaðhvort fallist þeir á nýjar
kosningar eða myndi þjóðstjórn til
bráðabirgða og leysi flokkana upp.
IÞROTTAGALLI
st. S-XL
TILBOÐSVERÐ
3.990,-
»hummel^P
SPORTBÚÐIN
ÁRMÚLA 40,
símar 813555 og 813655.
Attali reynist Evrópubankanum dýr
Kvaddur með 15
milljónum króna
JACQUES Attali, sem hefur sagt af sér sem bankastjóri Endurreisn-
ar- og þróunarbanka Evrópu (EBRD), fær að öllum líkindum jafn-
virði að minnsta kosti 15 milljóna króna þegar hann lætur af emb-
ættinu, að sögn breska dagblaðsins The Financial Times. Af þess-
ari fjárhæð þarf hann ekki að greiða tekjuskatt.
The Financ-
ial Times hafði
eftir Anne
Wibble, íjár-
málaráðherra
Svíþjóðar og
formanni
bankastjómar
EBRD, að búist
væri við að E-fli
starfslokagreiðslumar til Attalis
myndu nema einum árslaunum.
Hún bætti þó við að það færi eftir
niðurstöðu eftirlitsnefndar bankans
sem hefur verið falið að rannsaka
meint bruðl í starfsemi bankans.
Nefndin á að skila skýrslu um
málið 15. þessa mánaðar. The Fin-
ancial Times sagði að samkvæmt
ráðningarsamningi Áttalis frá ár-
inu 1991 væru árslaun hans
147.000 punda, jafnvirði 15,7 millj-
óna króna, en þau hefðu hækkað
nokkuð síðan.
Attali sagði af sér eftir að skýrt
var frá því í apríl að rekstrar- og
stofnkostnaður bankans hefði verið
tvöfalt hærri en aðstoð hans við
Austur-Evrópu. The Sunday Times
greindi frá því að í skýrslu eftirlits-
nefndarinnar yrði að öllum líkind-
um hörð gagnrýni á Attali. Sífellt
væru að koma fram nýjar upplýs-
ingar um bruðl bankans; Attali
hefði til að mynda farið á kostnað
bankans til Rúmeníu til að heim-
sækja franska sjávarlíffræðinginn
Jacques Cousteau og bankinn hefði
einnig greitt fyrir ferð fjölskyldu
hans til eyja á Karíbahafí. Þá hefur
Attali verið að sakaður um hafa
fengið farseðil til Tókýó fyrir jafn-
virði 700.000 króna endurgreiddan
tvisvar.
4.000 bls Ijósrit á hvern
starfsmann á mánuði
Bruðl annarra yfírmanna bank-
ans þótti einnig með ólíkindum.
Einn af framkvæmdastjórunum er
sagður hafa lagt inn reikning fyrir
þyrluferð sem hann fór til að renna
sér á skíðum á Ölpunum þegar
hann var í Sviss.
Jafnvel skrifstofukostnaðurinn
var hærri en annars staðar. Til að
mynda var ljósritunarkostnaður
bankans jafnvirði 5 milljóna króna
á mánuði, en það jafngildir því að
4.000 blaðsíður hafí verið ljósritað-
ar á hvern starfsmann á hveijum
mánuði.
Ríkin sem eiga hlut í bankanum
fá frest til að tilnefna menn í
bankastjóraembættið til 21. júlí og
eftirmaður Attalis verður kjörinn
innan þriggja vikna eftir það.