Morgunblaðið - 08.07.1993, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ PIMMTUDAGUR 8. JULI 1993
21
Mitterand
ráðríkur
VALERY Giscard dEstaing,
fyrrum forseti Frakklands,
sakaði í gær eftirmann sinn,
Francois Mitterrand, um að
hafa brotið gegn ákvæðum
frönsku stjórnarskrárinnar.
Giscard dEstaing sagði í grein
á forsíðu dagblaðsins Le
Monde að Mitterrand hefði
seilst heldur langt þegar hann
í síðustu viku ýtti umdeildu
frumvarpi um menntamál út
af dagskrá skyndifundar í
þinginu. Með frumvarpinu
hugðist ríkisstjórnin aflétta
takmörkunum á stuðningi
sveitastjórna við einkaskóla.
Samstarfs-
hugmyndir í
Evrópuflugi
FLUGFÉLAG Austurríkis
mun ákveða í næsta mánuði
við hvaða evrópska flugfélag
það gengur til samstarfs, eða
hvort af slíkum áformum verð-
ur. Stjórnarmenn flugfélagsins
hafa rætt við Swissair, KLM
og SAS um samstarfsáætlun
til þess að snúa vörn í sókn á
erfiðum tímum í alþjóða flug-
rekstri. Þá hefur verið rætt við
Lufthansa og Air France um
möguleika á samvinnu. Á
þessu ári hefur orðið mesta tap
á rekstri félagsins í sögu þess.
írakar vilja
dæma Clinton
FORSETI íraksþings sagði í
gær að írakar myndu beita
áhrifum sínum til þess að fá
Bill Clinton, Bandaríkjafor-
seta, dreginn fyrir rétt vegna
glæpa gegn írösku þjóðinni.
Sagði þingforsetinn, að áætlun
yrði gerð á alþjóðavettvangi
til þess að krefjast réttarhalda
yfir Clinton forseta. Iraskar
þingnefndir yrðu að vinna með
þingum annarra landa svo af
réttarhöldunum mætti verða.
Afram mann-
fall í S-Afríku
BLÓÐUG átök blökkumanna í
Suður-Afríku halda áfram og
er tala fallinna nú komin í
144. Sagði talsmaður lögreglu
að tíu lík hefðu fundist aðfara-
nótt miðvikudagsins í blökku-
mannahverfunum Katlehong
og Tokoza skammt frá Jó-
hannesarborg. Carl Niehaus,
talsmaður Afríska þjóðarráðs-
ins, sagði óeirðirnar tengjast
því að tilkynnt var um dag-
setningu fyrstu lýðræðislegu
kosninganna í landinu síðasta
föstudag.
Aukin harka í
Abkhazíu
EDÚARD Shevardnadze, for-
seti Georgíu, sagði í gær að
átökin stjórnarhersins og að-
skilnaðarsinna í héraðinu Abk-
hazíu yrðu sífellt blóðugri.
Hafa hundruð manna látið lífið
frá því átökin hófust í ágúst í
fyrra. Samkvæmt upplýsing-
um heilbrigðisráðuneytis Ge-
orgíu hafa 58 stjórnarhermenn
fallið frá því fyrir helgi og
tæplega fjögur hundruð særst.
Shevardnaze lýsti yfir herlög-
um í Abkhazíu á þriðjudag og
fer herinn þar nú með völd.
Sagði hann að herlögunum
yrði miskunnarlaust fram-
fyigt-
Japanir draga úr umstangi og rausn á G 7-fundi
Reuter
Valdamenn þessa heims
LEIÐTOGARNIR sjö og fulltrúi Evrópubandalagsins á leið til hefðbundinnar „fjölskyldumyndatöku".
Fremstur gengur gestgjafinn, Kiichi Miyazawa, forsætisráðherra Japans, en í fararbroddi gestanna er
Kim Campbell, nýkjörinn forsætisráðherra Kanada. Hún er eftirlæti japanskra fjölmiðla á fundinum
enda eina konan í hópnum og talin með litríkari stjórnmálamönnum.
Hætta að greiða mat
ofan í fréttamennina
Tókýó. The Daily Telegraph.
LOGREGLAN í Tókýó hefur mikinn viðbúnað vegna leiðtogafundar
sjö helstu iðnríkja heims (G-7) í borginni, alls gæta 36.000 þusund liðs-
menn hennar öryggis ráðamannanna. Það hefur aukið á spennuna að
sprengja sprakk nýlega á hóteli í Seoul, höfuðborg nágrannaríkisins
Suður-Kóreu, þar sem Bill Clinton Bandaríkjaforseti hugðist gista en
hann fer til landsins að loknum Tókýófundinum. Japanar hafa dregið
mjög úr þeirri rausn er fréttamönnum og öðrum gestum var sýnd síð-
ast er fundað var í Tókýó. Nú verða erlendir blaðamenn m.a. að kaupa
sér skyndibita en geta ekki lengur hvomað í sig krásum á kostnað
japanskra skattgreiðenda.
Öfgahópar til hægri og vinstri
hóta ýmsum ofbeldisaðgerðum og
japanskir ráðamenn hafa ekki gleymt
því að þegar sjöveldin hittust í Tókýó
1986 var skotið eldflaugum að bú-
stöðum nokkurra þátttakenda en
enginn þeirra varð þó fyrir hnjaski.
I liðinni viku skaut róttæklinga-
hópur eldflaug að bandarískri her-
stöð í einu af úthverfum Tókýó en
tiiræðið mun ekki hafa valdið tjóni.
Hægri-öfgamenn hyggjast efna til
mótmæla vegna komu Borísar Jelts-
íns Rússlandsforseta til landsins í
Á fréttamannafundi, sem Clinton
hélt í gær í Tókíó, á fyrsta fundar-
degi leiðtoga iðnríkjanna sjö, kvaðst
hann vera staðráðnari í því en
nokkru sinni fyrr að ljúka sem fyrst
við GATT-samninginn og sagði
tollalækkanirnar vera merkið, sem
beðið hefði verið eftir. Mickey Kant-
or, viðskiptafulltrúi Bandaríkja-
stjórnar, sagði samninginn frá í gær
leggja grunn „að mestu tollalækk-
unum sögunnar", það er GATT-
samningunum, og ft'ölga störfum í
Bandaríkjunum einum um 1,4 millj-
ónir á 10 árum. Kvaðst hann nú
viss um, að Úrúgvæ-lotu GATT-við-
ræðnanna yrði lokið fyrir 15. des-
ember nk. en henni átti upphaflega
að ljúka í desember 1990.
dag. Ekki hefur tekist að leysa ára-
tuga langar deilur Japana og Rússa
vegna nokkurra lítilla, japanskra
eyja milli Japans og Kamtsjatka-
skaga en Sovétríkin lögðu eyjamar
undir sig í stríðslok.
Óþarfar samkundur?
Litlar vonir hafa verið bundnar
við árangur af fundinum og gagn-
rýni á samkundur af þessu tagi hef-
ur farið vaxandi á undanförnum
árum. Margir telja að um óþarfa
umstang og bruðl sé að ræða; leið-
John Major, forsætisráðherra
Bretlands, kvaðst telja, að með
tollalækkununum væru 85% GATT-
samninganna í höfn og hann taldi
einnig, að þær myndu hafa mjög
atvinnuskapandi áhrif. Frönskum
embættismönnum fannst hins veg-
ar, að ekki hefði verið gengið nógu
langt til móts við kröfur Evrópu-
bandalagsins, EB, um opna mark-
aði.
Sem dæmi má nefna, að tollar
falla alveg niður á lyfjum og skyld-
um vörum; lækningabúnaði; verk-
færum og tækjum í byggingariðn-
aði; stáli; landbúnaðartækjum; hús-
gögnum; bjór og eimuðum vökva
og lækka um allt að 50% á keramiki,
gleri, vefnaðarvöru og fatpaði.
togarnir noti þessi tækifæri fyrst og
fremst til að komast í fréttirnar.
Lægra settir embættismenn séu í
reynd búnir að vinna þau störf sem
leiðtogarnir hæli sér síðan af þegar
einhver niðurstaða fáist af viðræðun-
um.
John Major, forsætisráðherra
Breta, hvatti ákaft til þess að dregið
yrði úr umstanginu og japönsku gest-
gjafarnir hafa farið að ráðum hans.
Setningin tók að þessu sinni aðeins
hálftíma en ekki þrjár klukkustundir
eins og síðast. Á fundinutn í Tókýó
1986 gæddu erlendir fréttamenn,
sem eru um 1.600 frá 45 löndum,
sér á ókeypis kræsingum. Að þessu
sinni býðst þeim að maula samlokur
sem þeir greiða sjálfir fyrir og sötra
kaffí með.
Orðspor Japana í tæknimálum
beið alvarlegan hnekki að þessu
sinni. Margir fréttamenn komu vopn-
aðir nýtísku kjöltutölvum, að sjálf-
sögðu japansk-smíðuðum, en það
kom babb í bátinn. Ekki reyndist
unnt að stinga tölvunum í samband
við myntsímana sem þeim standa til
boða og grípa varð til annarra og
frumstæðari ráða eins og þess að
handskrifa fréttina og lesa síðan upp
í síma.
III meðferð á Clarke
Japönsk stjórnvöld liggja undir
ámæli fyrir að hindra með ýmiss
konar klókindum aðgang annarra
þjóða að mörkuðum landsins og vilja
augljóslega sýna að útlendir bílar séu
til í landinu. Major forsætisráðherra
var þannig ekið í Mercedes Benz-
glæsivagni frá flugvellinum að fund-
arstað. Fréttamaður breska blaðsins
The Daily Telegraph bætir við að
Kenneth Clarke fjármálaráðherra
hafi orðið að „láta sér duga“ að sitja
í Rolls-Royce breska sendiherrans í
Japan.
Samið um mikl-
ar tollalækkanir
Tókíó. Reuter.
FJÖGUR mestu viðskiptaveldin, Bandaríkin, Kanada, Japan og Evr-
ópubandalagið, náðu í gær samkomulagi um víðtækar tollalækkanir.
Kvaðst Bill Clinton, forseti Bandaríkjanna, binda vonir við, að með
því hefði verið rutt úr vegi helstu hindruninni fyrir nýjum GATT-
samningi. Taka lækkanirnar til 18 vöruflokka og hverfa tollarnir
alveg á flestum en lækka mikið á öðrum.
MMC Colt, árg. '88, 3 d., rauður,
ek. 61 þús.
Verð 430 þús.
Suzuki Swift, árg. '91, 5 g., 3 d.,
rauður, ek. 21 þús.
Verð 660 þús.
VW Golf CL 1600, árg. '91, 5 g„
d„ grár, ek. 46 þús.
Verð 870 þús.
BIFREIÐAR & LANDBÚNADARVÉLAR HF.
Suðurlandsbraut 14,
s. 681200, beinn s. 814060.
Bílar til sölu
MMC Lancer 1500, árg. '90, sjálfsk.,
5 d„ hvítur, ek. 33 þús.
Verð 890 þús.
MMC Lancer 1500, árg. '89, 5 g„
4 d„ blár, ek. 40 þús.
Verð 740 þús.
MMC Lancer 1500, árg. '88, 5 g„
4 d„ hvítur, ek. 90 þús.
Verð 520 þús.
Mazda 323 LX 1300, árg. '90,
sjálfsk., 3 d„ grár,. ek. 38 þús.
Verð 710 þús.
Volvo 244 DL, árg. '81, drappl., ek.
197 þús.
Verð 190 þús.
Toyota Camry GLI 2000, árg. '87,
sjálfsk., 4 d„ grár, ek. 112 þús.
Verð 740 þús.