Morgunblaðið - 08.07.1993, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 08.07.1993, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. JÚLÍ 1993 31 Lára Ágústsdóttir Waage — Minning Fædd 9. október 1908 Dáin 29. júní 1993 Þegar ég frétti andlát Láru Ágústsdóttur Blöndal fór ég yfir það í huga mínum hvenær kynni mín af henni hefðu byrjað og eigin- lega fann ég á þeim ekkert upp- haf. Þau hafa einfaldlega alltaf verið til, allt frá því að vitund mín kviknaði austur á Seyðisfirði í frum- bernsku, en þar átti ég vin, jafn- aldra og leikfélaga í næsta húsi og Lára var mamma hans og var því jafn sjálfsögð í huga mínum og fjöll- in í kringum fjörðinn. Vináttan þró- aðist eftir því sem þroski okkar yngri jókst á meðan við enn áttum heima við fjörðinn djúpa og slitnaði ekki þótt að vík yrði milli vina um sinn og ég þykist þess fullviss að Lára og hennar skyldulið mun eiga sitt rúm í mínu sinni á meðan ég fæ skynjað mun dags og nætur. Lára fæddist á Hlaðhamri í Hrútafirði 9. október 1908, sjötta í röðinni af sjö börnum hjónanna Ágústs Lárussonar Blöndal og konu hans Ólafíu Sigríðar Theódórsdótt- ur. Fjölskyldan settist síðar að aust- ur á Seyðisfirði þar sem Ágúst gegndi lengi embætti sýsluskrifara. Árið 1931 gekk Lára að eiga Sverri Sigurðsson verslunarmann, sem síðar starfaði lengi við útibú Út- vegsbankans^ á Seyðisfirði. Börn þeirra urðu Ágúst loftskeytamaður og núverandi starfsmaður Sam- keppnisstofu og Ólafía Hjördís, efn- isstúlka sem lést langt um aldur fram, aðeins tuttugu og tveggja ára gömul. Mann sinn Sverri missti Lára 1959 og skömmu eftir það fluttist hún til Reykjavíkur í ná- grenni við sína nánustu, son sinn og fjölskyldu hans. Lára giftist öðru sinni 1965, Sig- urði Waage forstjóra, en hann lést 1976. Síðasta árið dvaldist Lára á vist- heimilinu Grund og lést þar 29. júní sl. Nú í bjartri sumarnóttinni þegar Lára leggur af stað yfír móðuna miklu fylgja henni góðar hugsanir og þakklæti fyrir að hafa átt vin- áttu hennar. Aðalsteinn Gíslason. Sumt fólk er þeirrar gerðar að það fylgir manni alla ævi. Þar skipta íjarlægðir engu máli. Þannig var Lára móðursystir mín. Eins langt og minni mitt rekur hef- ur hún verið mér nálæg, eins þótt samfundir hafi verið slitróttir hin síðari ár. Lára var fædd á Hlaðhamri í Hrútafirði 9. október 1908, dóttir hjónanna Ólafíu Sigríðar Theódórs- dóttur og Ágústs Theódórs Blön- dal. Ung fluttist hún með foreldrum sínum til Seyðisfjarðar, ólst þar upp og bjó þar síðan fram á miðjan ald- ur. Lára giftist árið 1931 Sverri Sig- urðssyni, bankaritara á Seyðisfirði, og eignuðust þau tvö börn, Ágúst, f. 1931, og Ólafíu Hjördísi, f. 1936. Utan foreldrahúsa var heimili Láru og Sverris, Skálanes á Seyðis- firði, mér frá unga aldri athvarf og skjól. Það veganesti sem þessi góðu hjón gáfu ungum sveini hefur reynst mér dijúgt. Sverrir var ein- Nikulás Einar Þórð- arson — Minning Nikulás Einar Þórðarson frá Vatns- hóli, Teigaseli 11, Reykjavík, mun hafa verið fæddur í Krosshjáleigu í Austur-Landeyjum hinn 3. nóvem- ber 1897, sonur hjónanna Þórðar Erlendssonar og Guðnýjar Nikulás- dóttur sem þar bjuggu. Fyrir áttu þau einn son, Odd, fæddan 7. des- ember 1895, síðar bónda í Vatns- hóli. Móður sína missti Nikulás árið 1903, en árið eftir kom Guðbjörg Sigurðardóttir ráðskona til Þórðar og varð hún síðari kona hans. Árið 1909 fluttust faðir hans og stjúpa búferlum að Hrygg í Hraun- gerðishreppi og bjuggu þar í þijú ár, en fluttust þá aftur í Landeyj- arnar, nú að Vatnshóli, og við þann stað kenndi Nikulás sig síðan. Uppeldi Nikulásar mun hafa ver- ið svipað og annarra ungmenna í sveitum landsins á þessum tíma, vinna og aftur vinna til að hafa í sig og á. Þar urðu allir fjölskyldu- meðlimir að leggja sitt af mörkum, hver eftir sinni getu. Menntunarmöguleikar fyrir al- þýðufólk voru fáir á þessum tíma, en þó var bamafræðsla víða að heQast og er það undravert hvað sá grunnur varð mörgum fróðleiks- manninum traust undirstaða raun- Gunnu, margt í heimili og fjölskyld- an bundin sterkum böndum. Þegar Gunna var aðeins fimm ára, lést Gísli faðir hennar. Bergljót bjó áfram í Meðalnesi til ársins 1924, þegar hún ákvað að bregða búi og flytja með barnahópinn alla leið til ísafjarðar. Þá voru tvær systur hennar sestar þar að, þær Þóra Jónsdóttir, veitingamaður, og Elín, ljósmóðir. Gunna var því níu ára, þegar hún kom til ísafjarðar og þar ólst hún upp. Hún kynntist þar til- vonandi eiginmanni sínum, Bimi Henrý Olsen, vélstjóra, og gengu þau í hjónaband 19. september 1935. Þau eignuðust tvö börn, Haf- liða Þór, húsgagnasmið, f. 6. maí 1937, og dóttur, sem dó skömmu eftir fæðingu. Gunna og Henrý fluttu til Reykjavíkur árið 1938. Ég kynntist Gunnu og Henry fyrst þegar við foreldrar mínir kom- um í heimsókn til Reykjavíkur frá Siglufirði, þar sem við bjuggum fyrir u.þ.b. 40 árum. Mér er enn minnisstætt hversu gott og elsku- legt samband var á milli þeirra hjóna og hve annt Henry lét sér um Gunnu sína. Ég hef ekki kynnst hjónum sem sýndu hvort öðm jafn mikla ástúð og umhyggju og þau gerðu. Til þeirra var ávallt gaman að koma og mikil gestrisni ríkj- andi. Það var því mikill missir fyrir Gunnu þegar Henry lést í janúar 1968. Gunna hafði þá um nokkurra ára skeíð unnið utan heimilis við ýmis störf, m.a. var hún aðstoðar- verkstjóri föður míns í vinnslusal Hraðfrystistöðvarinnar í Reykjavík. Hún var kröfuhörð og ákveðin, en réttsýn og átti gott með að leið- beina fólki, eins og starfið krafðist. Gunna var fínleg og glæsileg kona og hafði gaman af að blanda geði við fólk, hún var hláturmild og hress í viðmóti, þótt alvöruþungi byggi oft að baki. En skörp og skyndileg kaflaskipti urðu í lífí hennar þegar hún fékk heilablóð- fall árið 1981. Hún lamaðist öðm megin og missti málið og varð upp frá því að halda kyrm fyrir heima við, utan við hringiðu lífsins. Getur nærri hve erfitt hlutskipti þetta hefur verið henni, en hún tók því með jafnaðargeði og mikilli stað- festu. Auk þessa lögðust á hana önnur veikindi, sem gerðu hlut- skipti hennar enn erfíðara á stund- um. Hún sýndi ótrúlegt þrek í þess- um erfiðleikum. Þó var orðið ljóst undir það síðasta að hún yrði hvíld- inni fegin, er dauðinn berði að dyr- um. Gunna átti því láni að fagna í þessum þrengingum að eiga unga frænku, Huldu Sigurðardóttur, sem reyndist henni einstök hjálparhella og verndarengill á hveiju sem gekk. Ifyrir þetta verður Huldu seint full- þakkað. Ég kveð Gunnu með þakklæti í huga fyrir liðnar stundir í þeirri vissu að nú sé Henry farinn að umfaðma hana í öðrum heimi og að henni líði nú betur. Minningin um þessa elskulegu frænku mína verður mér ætíð dýrmæt. Blessuð sé minning hennar. Júlíus Sæberg Ólafsson. vemlegrar menntunar. Nikulás var um marga hluti óvenjulegur maður, stálgreindur og fjölmenntaður af sjálfsnámi og stöðugri þekkingarleit og átti mikið safn alls konar fræðibóka. Efnalega var hann ágætlega stæður sem byggðist á nægjusemi og nýtni fyrir sjálfan sig. Við aðra var hann örlátur og stórgjöfull. Hann veiktist ungur af berklum og varð því aldrei sá burðamaður sem vöxtur hans benti til. Alla tíð vann hann þó erfiðisvinnu, lengi við upp- skipun og var eftirsóttur til þeirra starfa vegna iðni og trúmennsku. Pólitískur áhugi Nikulásar var mikill þótt ekki ætti hann samleið með stjórnmálaflokkum samtímans. Hann var einlægur og sannur fé- lagshyggjumaður sem tók virkan þátt í fjöldahreyfíngum þeim sem til framfara horfðu. Hann var t.d. einn af stofnendum Eimskipafélags íslands og mætti á fyrsta aðalfund þess og marga síðar og lét óhikað í ljós andúð sína á þróun mála á seinni árum. Vatnshóll var Nikulási hjartfólg- inn. Þar vildi hann gjarnan vera þó að atvik höguðu því á annan veg. Studdi hann búskap bróður síns með ráðum og dáð. Þeir bræður, Oddur og Nikulás, áttu jörðina saman. Oddur hætti búskap árið 1966. Þegar Nikulás seldi sinn hluta jarðarinnar hélt hann eftir spildu. Þar dreymdi hann alltaf um að koma sér upp athvarfi og rækta skóg. Þó að ævin entist ekki til þess sýndi hann hug sinn í verki með því að láta Austur-Land- eyjahrepp land sitt til skógræktar og útivistar og gefa það eftir sinn dag. Fyrir þetta ber að þakka og nú hvílir sú kvöð á okkur sem við þessari gjöf höfum tekið að láta drauminn rætast. Nikulás var ókvæntur og barn- laus, hann lést í Borgarspítala eftir stutta legu hinn 27. júní síðastlið- inn. Blessuð veri minning hans. Magnús Finnbogason. ERFIDRYKKJUR Verð frá kr. 850- P E it L' A N sími 620200 GfflAHMAGOÐUVERÐI wN4riT í Stórhöfða 17, við Gullinbrú, sími 67 48 44 stakur maður, einn þeirra manna sem verðskuldaði titilinn „snilling- ur“. Hann var ljölhæfur og listfeng- ur og átti alltaf stund til að ræða við mig um lífið og tilveruna. Yfir þessu heimili hvíldi stóísk ró, sem erill heimsins hafði lítil áhrif á. Lára frænka rrín hafði yfír sér tigið yfirbragð og stjórnaði heimili sínu með reisn og mildi. Hún var glaðlynd en hafði þó yfír að ráða skapstyrk og festu og mátti öllum það ljóst vera að ekki varð skoðun- um hennar hnikað án rökstuðnings. Af henni geislaði góðmennskan og þótt sumum hafi ef til vill fundist erfitt að kom - að henni hygg ég að þar hafí raðið feimni hennar og hlédrægni. Árið 1958 lést Ólafía dóttir þeirra skyndilega, aðeins 22 ára að aldri. Þetta var þungt högg og mér líður seint úr minni sú djúpa sorg sem yfir heimilið lagðist né heldur sá styrkur sem þau hjón sýndu á þess- um erfiða tíma. En ekki hafði dauð- inn lokið vitjun sinni í hús frænku minnar, því aðeins rúmu ári síðar varð Sverrir bráðkvadur, aðeins 51 árs að aldri. Úr þessum áföllum kom Lára styrk og hljóð en sýndi þá jafnframt best hvern mann hún hafði að geyma. Þarna urðu kaflaskipti í lífi henn- ar. Hún fluttist til Reykjavíkur og hóf störf á skrifstofu Eimskipafé- lags íslands. Árið 1965 giftist Lára síðari manni sínum, Sigurði Waage, framkvæmdastjóra Sanitas hf. Sig- urður var mikill öðlingur og aftur eignaðist Lára heimili sem bar sömu einkenni og Skálanesheimilið forð- um. Sigurður lést árið 1976 og eft- ir það bjó Lára ein á heimili sínu, þar til Elli kerling náði undirtökum og hún fór á vistheimilið Grund, þar sem hún lést. Ekki verður þessum minningar- orðum lokið án þess að minnst sé Ágústs, sonar Láru og Huldu Waage konu hans. Þau reyndust henni þannig að fágætt má teljast allt þar til yfír lauk. Lára frænka er horfin sjónum, en sem fyrr skiptir fjarlægðin ekki máli. Hún fylgir mér alla ævi. Guð blessi minningu hennar. Lárus Halldórsson. Fjölskyldumót við Úlfljótsvatn Kristinn Ólafsson Þrautabraut MARGIR krakkar voru við Úlfljótsvatn síðustu helgi þegar fjöl- skyldumót var haldið þar. Margt var gert fyrir krakkana og meðal annars sett upp þrautabraut, sem krakkarnar reyndu að komast í gegnum án þess að fipast. Stígvélakast og hjól- börukapphlaup FJÖGUR hundruð manns tóku þátt í Fjölskyldumótinu við Úlf- ljótsvatn, sem haldið var í annað sinn fyrstu helgina í júlí. Veðr- ið brosti við mótsgestum og var bryddað upp á fjölbreytilegum uppákomum. Kristinn Ólafsson, einn af aðstandendum mótsins, segir að lögð sé áhersla á að mótið sé bæði fjölskyldu- og um- hverfisvænt. Hluti af því að hafa það umhverfisvænt er að skilja við landið í betra ásigkomulagi en þegar tekið er við því. Kristinn segir að 1.500 plönt- um hafi verið plantað um helgina og umgengni hafi verið til mikill- ar fyrirmyndar. Á mótinu var bryddað- upp á alls kyns uppá- komum fyrir þátttakendur að sögn Kristins og á laugardegin- um var til að mynda haldið vel sótt barnaball. Keppt var í stíg- vélakasti og kastaði sigurvegar- inn stígvélinu 38 metra að sögn Kristins. Siglt með Erninum Önnur keppnisgrein var hjól- börukapphlaup. Bundið var fýrir augun á foreldrinu, sem hljóp með börurnar, og þurfti því að hlýða leiðbeiningum bams síns, sem sat í hjólbörunum. í ár var eins og í fyrra boðið upp á siglingu með Eminum um Úlfljótsvatn en Öm- inn er víkingaskip, sem sigldi yfír Atlantshafið fyrir nokkmm ámm. + Þökkum af alhug öllum þeim, sem sýndu okkur samúö og vináttu við andlát KRISTINS FRIÐRIKSSONAR frá Borgarfirði eystra, Vogatungu 59, Kópavogi. Sérstakar þakkir til starfsfólks Vífilsstaðaspítala fyrir góða umönnun. Ágústa Gústafsdóttir. 1 1 terrgiwwl U s Meim en þú geturímyndod þér! irj ao

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.