Morgunblaðið - 08.07.1993, Page 34
34
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. JÚLÍ 1993
STiÖRNUSPÁ
eftir Frances Drake
Hrútur
(21. mars - 19. aprfl)
Reyndu að forðast deilur í
dag og ljúktu við verkefni
sem bíður lausnar. Heima
er bezt þegar kvölda tekur.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Einhver spenna getur ríkt
í sambandi ástvina. Um-
hyggjusemi leysir vandann.
I kvöld gefst tækifæri til
samvista við vini.
Tvíburar
(21. maí - 20. júnf)
Vinnan hefur forgang í dag,
en þú þarft einnig að sinna
hagsmunum heimilisins.
Fjárhagurinn ætti að fara
batnandi.
Krabbi
(21. júní - 22. júlf)
Þú færð góð ráð sem reyn-
ast þér vel. Undirbúningur
ferðalags er kominn á loka-
stig. Haltu þér utan við þras
og þrætur.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þú færð ábendingu varð-
andi fjármálin sem getur
leitt til tekjuaukningar.
Ekki eyða peningum í
óþarfa innkaup.
Meyja
(23. ágúst - 22. september)
Ef ráðríki ræður ferðinni
getur komið upp ágreining-
ur milli ástvina. Reyndu að
koma til móts við óskir ann-
arra.
Vog
(23. sept. - 22. október)
Þér geta orðið á mistök ár-
degis sem leiða til ágrein-
ings við samstarfsmann.
Síðdegis þróast viðskiptin
mjög þér í hag.
Sporódreki
(23. okt. - 21. nóvember)
Erfítt er að semja við stygg-
lyndan vin í dag, en ástar-
gyðjan er þér hliðholl. Nú
er upplagt að undirbúa
ánægjulega helgi.
Bogmaóur
(22. nóv. - 21. desember)
Varastu þjösnaskap í sam-
skiptum við aðra og reyndu
að komast hjá þrætum. í
kvöld gefst tími til að sinna
fjölskyldumálunum.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar) X*
Þótt ekki séu allir sammála
þér í dag ættir þú að varast
deilur. Njóttu ánægjulegra
stunda með ástvini í kvöld.
Vatnsberi
(20. janúar - 18. febrúar) ðh
Deila getur komið upp í dag
vegna peninga. Framtíðar-
horfur þínar eru góðar og
fjárhagurinn fer ört batn-
andi.
Fiskar
(19. febrúar — 20. mars)
Félagi er eitthvað afundinn,
en það lagast. Þegar hallar
degi ríkir sátt og samlyndi
og þið njótið ánægjulegra
samvista.
Stjörnusþána á að lesa sem
dœgradvól. Sþár af þessu tagi
byggjast ekki á traustum grunni
visindalegra staðreynda.
TOMMI OG JEIMNI
LJÓSKA
SMÁFÓLK
MÝ 6RAMPA 5M5 TM05E
OJ5R5 TME 6000 9M5..
Afi minn sagði að þetta hefðu verið Hvaða timar?
góðir tímar ...
Hann veit ekki hvaða tímar, en hann
er viss um að þetta voru góðir tímar.
BRIDS
Chemla segist aldrei hugsa
við spilaborðið, enda sé lítil þörf
á því. Þetta er auðvitað hans
aðferð til að tjá eigið ágæti, en
í þessu leynist samt sannleiks-
kom. Chemla hefur mikla spila-
rútínu (sem hann hefur aðallega
fengið af rommý-spilamennsku
um nætur í París) og gerir því
oft réttu hlutina án þess að hafa
of mikið fyrir því. En ekki alltaf.
Ísland-Frakkland. Spil 4.
Vestur gefur; allir á hættu.
Vestur
♦ K963
♦ KG53
♦ 32
♦ Á86
Norður
♦ G4
V 972
♦ 94
♦ K75432
Austur
♦ D752
V ÁD8
♦ ÁG76
Suður *G9
♦ Á108
♦ 1064
♦ KD1085
♦ D10
Eftir opnun vesturs í upphafi,
varð niðurstaðan sú sama á báð-
um borðum: 4 spaðar í austur
með tígulkóng út. í lokaða saln-
um höfðu sagnir Levý og Mouiel
verið mjög upplýsandi: Opnun á
eðlilegu laufí og svar á eðlilegum
tígli. Vömin vissi því af a.m.k.
fjórlit í tígli í austur.
Mouiel lá lengi yfir útspilinu,
en ákvað loks að drepa á ás og
fara í trompið. Hann. spilaði
spaða á kónginn og síðan smáum
spaða frá báðum höndum. Þor-
lákur átti slaginn á spaðagosa
og spilaði tígli yfir á tíu ofanrit-
aðs, sem tók spaðaás og spilaði
lauftíu. Nú vantar sagnhafa slag
og niðurstaðan var óhjákvæmi-
lega einn niður.
I lokaða salnum vissi vörnin
lítið um spii sagnhafa. Sævar
hafði opnað á gervitígli og Jón
krafði í geim með annarri gervi-
sögn og spurði síðan um skipt-
ingu Sævars. Spilamennskan
þróaðist nákvæmlega eins fram-
an-
af, en þegar Chemla hafði tekið
spaðaásinn, þá spilaði hann sig
ekki út á hjarta eða laufi, heldur
tíguldrottningu (?!). Þar með
fékk Jón 10. slaginn á silfurfati.
Ástæðan? Chemla er ekki að
þreyta sig. Perron hafði fylgt lit
í tíglinum í röðinni þristur-nía.
Samkvæmt þeirra aðferðum
sýnir það staka tölu og Chemla
gekk að því sem vísu að Perron
ætti þrílit.
12 IMPar til íslands.
SKAK
Á hollenska meistaramótinu í
ár kom þessi staða upp í viðureign
alþjóðlega meistarans Martins
Martens (2.440) og stórmeistar-
ans Jeroens Piket (2.590), sem
hafði svart og átti leik.
44. — Be3! og hvítur gafst upp,
því eftir 45. Dxe3 — Dh3+, 46.
Hh2 — Dfl+ blasir mátið við.
Allir virkir stórmeistarar Hollend-
inga, nema Timman, tóku þátt á
mótinu, en úrslitin urðu fremur
óvænt: 1. Van der Sterren 8V2 v.
af 11 mögulegum, 2.-4. Cifuentí-
es, Van der Wiel og Nijboer 6'/2
v. 5.-6. Piket og Riemeresma 6
v. 7. Sosonko 5 v. 8-11. Van
Mil, Van Wely, Ree og Hoeksema
4‘/2 v. 12. Martens 3 v. Það voru
fyrirtækin AVRO og Philips sem
stóðu fyrir mótinu með miklum
glæsibrag í borginni Eindhoven.
Piket, sem var stigahæstur, átti
aldrei möguleika á að veija titil
sinn. Van der Sterren, sem er 35
ára, hefur þótt fremur litlaus
skákmaður en í vor hefur hann
verið óstöðvandi, sigraði t.d. á
svæðamótinu í Brussel ásamt Van
Wely.