Morgunblaðið - 08.07.1993, Side 43

Morgunblaðið - 08.07.1993, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 8. JÚLÍ 1993 fném FOLK I ■ ATHYGLI vakti á leik Hattar og Leifturs á Egilstöðum í gær- kvöldi að feðgar voru línuverðir leiksins, þeir Eysteinn Ingólfsson og Ingólfur Hjaltason. Eysteinn, sem aðeins sautján ára gamall og tók dómarapróf sitt í vor, stóð sig vel. ■ MAKK Duffield lék ekki með Leiftri að þessu sinni. Hann treysti sér ekki til að spila vegna skurðar á fæti, sagðist líka vilja hvíia sig fyrir erfíða leiki sem eru framundan. ■ ANDRI Marteinsson leikmaður FH fylgdist með leik Fylkis og FH úr áhorfendabrekkunni á Fylkisvell- inum, en hann gat ekki leikið með vegna meiðsla. Hann var hins vegar bjartsýnn á að hann yrði tilbúinn í næsta leik. ■ FINNUR Kolbeinsson leikmað- ur Fylkis var líka fjarri góðu gamni vegna meiðsla, en líkt og Andri sagðist hann allur vera að skríða saman, og færi að æfa aftur eftir helgi. I HILMAR Björnsson, sem ný- I lega sagði skilið við KR og gekk í raðir FH-inga, kom inná hjá FH fljótlega í seinni hálfleik, og stóð sig ágætlega. í kvöld Knattspyrna 16 liða úrslit bikarkeppninnar: Laugardalsv.: Valur - UBK.......20 Vestmannaeyiav.: ÍBV - KA.......20 Keflavíkurv.: IBK - Þór.........20 4. deild Hvolsv.: H.B. - Árvakur.........20 Laugav.: H.S.Þ.-b-S.M...........20 Fáskrúðsfj.v.: K.B.S. - AustriE. ...20 Seyðisfjarðarv.: Huginn - Sindri....20 Ia^^Há sending kom inn ■ \/f vítateig FH á 26. mínútu frá hægri, þar stökk Kristinn Tómasson upp ásamt Lúðvík Amarsyni, og stjakaði Lúðvík við Kristni, og dæmdi dómarinn umsvifalaust víta- spymu. Salih Heimir Porca tók spyrnuna og sendi knöttinn í bláhornið niðri vinstra megin, en var Stefán Amarson var ekki langt frá því að verja. 2mf\FyUór náði skyndi- ■ ^#sókn á 80. minútu. Þórhallur Dan Jóhannsson lék upp hægri kantinn og við vita- teiginn, nálægt endalínu, sendi hann knöttinn fyrir markið, Stefán Amarson missti af bolt- anum og Salih Heimir Porca skilaði honum i netið með ör- uggu innanfótarskoti úr miðjum markteignum. KNATTSPYRNA Morgunblaðið/Kristinn Gunnar Már Másson, framheiji Leifturs, sækir að Baldri Bragasyni, markverði Hattar á Egilsstöðum í gærkvöidi. Leiftur marði sigur gegn frískum Hötturum LEIKMENN fjórðu deildar liðs Hattar á Egilstöðum stóðu sig mjög vel gegn toppliði annarrar deildar, Leiftri, í 16 liða úrslitum bikarkeppni KSÍ á Egilstaðavelli í gær. Leikurinn, sem einkennd- ist af mikilli baráttu, var jafn lengst af, en leikmenn Leifturs knúði fram sigur með marki Péturs Björns Jónssonar, nfu mínút- um fyrir leikslok. Marteinn Geirsson þjálfari Leifturs sagði að leikmenn sýnir hefðu greinilega vanmetið gott lið Hattar, og hafi unnið heppnissigur, í lélegasta leik Leifturs undir sinni stjórn. Það var augljóst frá fyrstu mín- útum þessa leiks að leikmenn Hattar voru vel undirbúnir. Þeir börðust mjög vel TómunTT allan tímann, og Jónatansson sýndu svo ekki varð skrifar frý um villst að þar fer Egilsstöðum mjög efnilegt lið. Fyrri hálfleikur var líflegur og mörg góð færi sköpuð- ust. Strax á fimmtu mínútu var skot Gunnars Más Mássonar leik- manns Leifturs varið á línu, en í 1 aA* I ■ yt lEftir mislukkaða unarkspyrnu Baldurs í marki Hattar barst boltinn til Péturs Björns Jónssonar, nokkuð fyrír utan hægra víta- teigshomið. Hann snéri sér við og sendi knöttinn efst í mark- hornið fiær. Þetta var á 81. mín. kjölfarið fylgdu margar stórhættu- legar sóknir Hattarmanna. Síðari hálfleikur varð aldrei eins líflegur og hinn fyrri. Hvorugt lið- ið náði afgerandi færum og svo virtist sem leikurinn stefndi í fram- lengingu, þegar Pétur Björn skor- aði óvænt mark. Markið var mikið áfall fyrir spræka Austfirðinga og Leiftursmenn voru nær því að skora fleiri mörk en þeir að jafna. Páll Guðmundsson og Pétur Björn Jónsson voru besti Leifturs- manna, en liðið var að öðru leyti ekki sannfærandi. Flestir leik- manna Hattar stóðu sig vel, en sérstaklega bera að geta frammi- stöðu Heimis Hallgrímssonar og Haraldar Klausen. Gott spil og góð barátta fór saman - sagði Magnús Jónatansson þjálfari eftir sigur Fylkis á FFI í bikarnum „GÓÐ barátta og gott spil fór saman í þessum leik, og ég er ánægður með hann. Við lékum yfirvegað en þrátt fyrir að ég sé ánægður held ég að FH-ingar hafi átt lélegan leik í kvöld, ég hef séð þá gera miklu betur,“ sagði Magnús Jónatansson þjálfari | Fylkis eftir 2:0 sigur á FH á heimavelli í 16 liða úrslitum bikar- keppninnar. Jafnræði var með liðunum lengi vel, þau þreifuðu hvort á öðru en um miðjan hálfleikinn virtust FH-ingar vera að ná I tökum á leiknum. Eiríksson Fylkismenn fengu skrifar hins vegar víta- spyrnu nokkuð óvænt á 26. mínútu, og komust U yfir, og hleypti það nýju blóði í leik þeirra, og stjómuðu þeir leiknum fram að leikhléi. FH-ingar voru miklu ákveðnari til að byija með í seinni hálfleik og jöfnunarmark lá í loftinu. Fylkis- vömin átti hins vegar svör við nær öllum leikfléttum þeirra í sókninni og þegar á leið fór sjálfstraustið að bila hjá FH-ingum. Fylkismenn náðu nokkrum skyndisóknum er um stundarfjórð.ungur var eftir og úr einni slíkri gerðu þeir út um leikinn. „Við ætluðum ekki að bakka, þetta er bara eitthvað sem gerist,“ sagði Magnús Jónatansson. Að- spurður sagðist Magnús ekki eiga sér óskalið í átta liða úrsiitum, hann vildi bara heimaleik. „Okkar mark- mið er að halda velli í deildinni, og gera okkar besta í bikamum." Ólafur Kristjánsson fyrirliði FH sagði að þeir hefðu einfaldlega ekki verið rétt innstilltir. „Það vantaði bæði stemmningu í liðið og baráttu. Við vorum meira með boltann, en það er ekki nóg, það verður að koma honum í netið.“ Salih Heimir Porca var bestur heimamanna, hafði gott auga fyrir spili og sköpuðu sendingar hans oft usla. Þórhallur Dan var líka ógn- andi, og áður hefur verið minnst á Fylkisvömina; Helgi Bjamason, Gunnar Þ. Pétursson og Halldór Steinsson unnu vel saman í vöm- inni. Hörður Magnússon og Davíð Garðarsson sýndu nokkra baráttu í liði FH, sem og Þorsteinn Jónsson í seinni hálfleik. Liðið var hins veg- ar lánlaust í'sókninni og lét mótlæt- ið fara of fljótt í taugamar á sér. ÚRSLIT HK-ÍA 0:3 Kópavogsvöllur, 16 liða úrslit n\jólkurbikar- keppni KSÍ, miðvikudaginn 7. júli 1993. — Aðstæður: Norðan gjóla, rigning og svalt. Mörk ÍA: Mihajlo Bibezcic (15.), Luca Kostic (38.), Ólafur Adolfsson (40.). Gult spjald: Alexander Högnason (37.). Rautt spjald: Enginn. Dómari: Kári Gunnlaugsson. Línuverðir: Sigurður Friðjónsson og Gísli H. Friðjónsson. Áhorfendur: 542. HK: Ragnar Bogi Petersen (Eiríkur Þor- varðarson 50.) - Rúnar Höskuldsson, Reyn- ir Björnsson, Stefán Guðmundsson, Þor- steinn Sveinsson, Jóhann H. Ólafsson - Helgi Kolviðsson, Zoran Ljubicic, Valdimar Hilmarsson - Ólafur Már Sævarsson, Ejub Purisevic. ÍA: Kristján Finnbogason - Sturlaugur Haraldsson, Ólafur Adolfsson, Luca Kostic, Sigursteinn Gislason - Haraldur Hinriksson (Sigurður Sigursteinsson 80.), Alexander Högnason, Sigurður Jónsson, Haraldur Ing- ólfsson (Theódór Hervarsson 80.) - Þórður Guðjónsson, Mihajlo Bibezcic. Fylkir-FH 2:0 Fylkisvöllur, 16 liða úrslit mjólkubikar- keppni KSÍ, miðvikudaginn 7. júlí 1993. Aðstæður: Rigning og völlurinn-þvf blaut- ur, hægur andvari. Mörk IA: Salih Heimir Porca (26. vsp., 80.) Gult spjald: Gunnar Þ. Pétursson (6.) Fylki, fyrir brot, Ólafur H. Kristjánsson (36.) FH, fyrir brot, Þórhallur Dan Jóhannsson (41.) Fylki, vamarveggur Fylkismanna færði sig ekki þrátt fyrir itrekuð tilmæli dómara og sýndi hann því næsta Fylkismanni spjald. Rautt spjald: Enginn. Dómari: Guðmundur S. Maríasson, stóð sig prýðilega. Línuverðir: Ólafur Ragnarsson og Jón Sveinsson. Áhorfendur: 321 borguðu sig inn. Fylkin Páll Guðmundsson - Halldór Steins- son, Helgi Bjamason, Gunnar Þ. Pétursson - Aðalsteinn Viglundsson, Baldur Bjama- son, Bjöm Einarsson, Salih Heimir Porca, Ásgeir Ásgeirsson (Kristinn Guðmundsson 75.) - Þórhallur Dan Jóhannsson, Kristinn Tómasson (Bergþór Ólafsson 84.). FH: Stefán Arnarson - Auðun Helgason, Petr Meazek, Ólafur H. Kristjánsson - Þor- steinn Jónsson, Hallsteinn Arnarson, Þór- hallur Víkingsson, Lúðvík Amarson (Hilmar Bjömsson 51.) - Hörður Magnússon, Jón Erling Ragnarsson (Ólafur Stephensen 84.), Davíð Garðarsson. Víðir- Víkingur 1:2 Garðsvöllur, 16 liða úrslit mjólkurbikar- keppni KSÍ, miðvikudaginn 7. júlf 1993. Aðstæður: Norðaustan gola og úrkoma. Mark Víðis: Grétar Einarsson (12.) Mörk Víkings: Guðmundur Steinsson 2 (4. og 65.) Gult spjald: Guðmundur Guðmundsson Víkingi (44.) fyrir mótmæli. Rautt spjald: Enginn. Áhorfendur: Um 200. Dómari: Gísli Björgvinsson sem dæmdi prýðilega. Línuverðir: Gylfí Orrason og Gunnar Gylfason. Víðir: Gísli R. Heiðarsson, Björn Vilhelms- son, Vilhjálmur Einarsson, Daníel Einars- son, Garðar Newman, Olafur Gylfason, (Atli Vilhelmsson 52.), Ólafur R. Róberts-,. son, Ólafur Jónsson, Guðmundur Einarsson, Grétar Einarsson, Jóhann Guðmundsson. Víkingur: Guðmundur Hreiðarsson, Krist- inn Hafliðason, Snævar Hreinsson, Stefán Ómarsson, Trausti Ómarsson, (Róbert Am- þórsson 62.), Amar Amarsson, Guðmundur Guðmundsson, Guðmundur Steinsson, Atli Helgason, Hólmsteinn Jónsson (Björa Bjartmarz 82.), Hörður Theodórsson. Höttur - Leiftur 0:1 Egilsstaðavöllur, 16 liða úrslit mjólkurbik- arkeppni KSÍ, miðvikudaginn 7. júli 1993. Aðstæður: Norð-austan kaldi og völlur í slæmi ásigkomulagi. Mark Leifturs: Pétur Bjöm Jónsson (81.) Gult spjald: Sigurbjöm Jakobsson, Leiftri (5.) fyrir brot. Áhorfendur: 356 greiddu aðgangseyri. Dómari: Gísli Guðmundsson. Dæmdi rnjög vel og beitti hagnaðarreglu og spjöldum vel. Lfnuverðir: Ingólfur Hjaltason og Eysteinn Ingólfsson. Höttur: Baldur Bragason, Gunnar Leifsson (Sigurður Magnússon 70.), Veigar Sveins- son, Kári Hrafnkeisson, Jón Finnsson, Grét- ar Egertsson (Viðar Jónsson 80.), Heimir Hallgrímsson, Ámi Ólafsson, Hörður Guð- mundsson, Haraldur Klausen, Jón Fjölnir Albertsson. Leiftur: Þorvaldur Jónsson, Pétur Mar- teinsson, Gunnlaugur Sigursveinsson, Páll Guðmundsson, Sigurbjörn Jakobsson, Gú- staf Ómarsson, Helgi Jóhannsson, Gunnar Már Másson, Pétur Bjöm Jónsson, Einar Einarsson, Sindri Bjamason (Steinn V. Gunnarsson 90.) Handknattleikur Opna Norðurlandamótið, leikmanna 18 ára og yngri: Riðlakeppnin: ísland - Svíþjóð-2..............23:18 Sigfús Sigurðsson 5, Davið Hallgrímsson 4, Daði Hafþórsson 4, Geir Aðalsteinsson 3, Páll Beck 3, Magnús Magnússon 2, Hilm- ar Þórlindsson 1, Ari AUanson 1. Undanúrslit: ísland- Sviþjóð-1.................23:21 ■Eftir framlengingu. * Úrslitaieikur í gærkvöldi: ísland - Þýskaland................17:27

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.