Morgunblaðið - 19.08.1993, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. ÁGÚST 1993
9
Innilegar þakkir fœri ég öllum þeim, sem sýndu
mér vináttu og hlýhug meÖ gjöfum og heilla-
skeytum á 70 ára afmœli mínu 6. ágúst sl.
Lifið heil.
Jakob Sigurðsson,
Stóragerði 21.
Enn meiri verðlækkun
á tilboðsdögum.
Póstsendum.
X & Z barnafataverslun,
Laugavegi 12, sími 62 16 82.
SÍÐUSTU DAGAR
ÚTSÖLUMIAR
Allar útsöluvörur scm efftlr eru
seldar á liálfviröi fimmtudag,
fföstudag og laugardag.
Guðrún, Rauðarárstíg.
NILFISK GM200
NILFISK GM200 hefur nýjan 5-þrepa síunarbúnað
og hreinni útblástur en nokkur önnur ryksuga
(heldur eftir 99% rykagna stærri en 0,3/1000 mm).
GM200 er líka hljóðlátari (58 desibel), kraftmeiri
(1150W mótor) og endingarbetri (2000 tímar áður
en skipta þarf um kol í mótor).
★ 7m inndregin rafmagnssnúra
★ Innbyggt sogstykkjahólf
★ Aflaukandi kónísk slanga
★ Þægileg sogaflsstilling
★ Rykmælir lætur vita þegar skipta
á um poka
★ létt (7,8 kg.) og lipur
NILFISK GM200
kostar aðeins kr. 23.150.-
21.990.- staðgreitt
og er hverrar krónu virði!
/?anix
HÁTÚNI6A REYKJAVÍK SÍMI (91)24420
VERÐHRUN
Stórkostleg verðlækkun á
lokaspretti útsölunnar.
FIDRII.DID
Aukið frelsi -aukin
ábyrgð
Undanfarinn áratug hefur frjálsræði auk-
izt mjög í þjóðfélaginu, m.a. með afnámi
hamla í verðlags-, gjaldeyris- og vaxta-
málum, svo og hefur dregið úr hvers
konar ríkisafskiptum og einkavæðing
haldið innreið sína. En auknu frelsi fylgir
aukin ábyrgð, ekki sízt fyrirtækja og fjöl-
miðla. Þetta segir í grein eftir Finn Geirs-
son hagfræðing í Vísbendingu.
Hömlum aflétt
f nýlegri grein Finns
Geirssonar í Vísbend-
ingu, sem nefnist „Frelsi
og ábyrgð“, segir m.a.:
„Á undanförnum tiu
árum hefur hömlum ver-
ið aflétt í verðlags-, gjald-
eyris- og vaxtamálum til
samræmis við það sem
gengur og gerist í við-
skiptalöndum okkar.
Jafnframt hafa ríkisfyr-
irtæki verið seld og
einkaréttur ríkisútvarps-
ins afnuminn. Þetta voru
umdeildar aðgerðir og í
brennidepli stjórnmála-
umræðunnar á þessum
tíma. Deilt var um það
hvort stjómvöld ættu að
ákveða verð á vöm og
þjónustu fyrir fyrirtæki,
skammta fólki gjaldeyri
og hvort þau ættu að
ákveða vexti. Um þetta
er varla lengur deilt,
enda hefur verðbólgan
þjaðnað, krónan styrkst
og ekki verður vart
gjaldeyrisútstreymis í
meira mæli en eðlilegt
getur talist. Engar radd-
ir heyrast heldur um að
afhenda eigi ríkinu út-
varpseinkarétt að nýju.
Mönnum finnst auðvitað
nóg um hátt vaxtastig en
ræða fremur um með
hvaða hætti hægt sé á
óbeinan hátt að ná þvi
niður heldur en um það
að afnema frelsi til
vaxtaákvarðana. Og
enda þótt við séum að
ganga í gegnum eitt
lengsta stöðnunar- og
samdráttartímabil í
manna minnum, sem
ekki sér fyrir endann á,
þá em fáir þeirrar skoð-
unar að orsakasamhengi
sé á milli þess og aukins
frelsis einstaklinga til
ákvarðana.
Sterkari inn-
viðir
Þvert á móti má leiða
likur að því að frelsið og
sú aukna ábyrgð sem þvi
óþjákvæmilega fylgir hafi
styrkt innviði efnahags-
lífsins og menn séu á ýms-
an hátt betur til þess falln-
ir en ella að glima við
þann vanda sem fylgir
tekjusamdrætti vegna
minni afla og lægra út-
flutningsverðs en áður.
Dæmi em um að laun i
fyrirtækjum hafi beinlínis
lækkað þar sem starfs-
mönnum var ljóst að ella
hefðu þeir misst vinnuna,
en slikt hefði þótt óhugs-
andi fyrir nokkrum miss-
erum. Nýjar leiðir í mat-
vöruverslun og gífurleg
samkeppni á því sviði hafa
stuðlað að lækkun mat-
vömverðs og fyrirtæki í
ýmsum greinum hafa
bmgðist við tekjusam-
drætti með sameiningu og
hagræðingu. Verðbréfa-
fyrirtæki hafa með aukn-
um þroska náð að efla
spamaðarvitund fólks og
þau hafa gert eignaskipti
auðveldari en áður var,
sem eykur líkur á þvi að
fjármunir nýtist betur en
ella. Fjölmiðlar em orðnir
óbundnari af flokkahags-
munum og opinskárri fyr-
ir vikið og upplýsinga-
streymi er nú greiðara en
áður var. Við höfum færst
nær alþjóðlegum straum-
um í viðskiptum sem eiga
eftir að verða enn nánari
þegar fólk getur fengið
aðgang að helstu gervi-
hnattastöðvunum með
ódýrum hætti. Mest em
þetta breytingar sem
stjómmálamenn hafa ekki
bryddað upp á.
Frelsi og
ábyrgð fyrir-
tækja
Nýfengið frelsi og auk-
in ábyrgð fyrirtækja hef-
ur jafnframt breytt hlut-
verki stjómmálamanna.
Það liggur ekki eins beint
við og áður að leita til
þeirra um sértækar, íviln-
andi aðgerðir; þeir hafa
einfaldlega ekki sömu
völd og áhrif og áður.
Stjórnendur fyrirtækja
geta í ríkara mæli en áður
einungis sjálfum sér og
náttúmöflunum um kennt
ef hlutirnir ganga ekki að
óskum. Og þegar þeir
verða að treysta á sjálfa
sig em meiri líkur á því
að þeir sýni hvað i þeim
býr.“
Frelsi og
ábyrgð fjöl-
miðla
„Á sama tíma er ekki
síður þörf fyrir áreiðan-
legar upplýsingar og ít-
arlega greiningu á þeim
málefnum sem efst em á
baugi hveiju sinni. Vand-
aðar og vel ígrundaðar
umræður í ræðu eða riti
um viðskipti stuðla auk
þess að bættu viðskiptasið-
ferði og auðvelda mark-
vissa og árangursríka
ákvarðanatöku. Þær
myndu gera sitt til að snúa
vöm í sókn til bættra lífs-
kj:ira.
UmQöllun fjölmiðla um
fyrirtæki og viðskipti má
gjaman vera uppörvandi
og jákvæð; ekki veitir af
þegar svartsýni ríkir um
horfur í efnahagsmálum.
En hún má ekki vera
gagnrýnislaus auglýsing
fyrir viðkomandi fyrir-
tæki eins og allt of oft
vill brenna við. Það hjálp-
ar engum þegar upp er
staðið og getur gert illt
verra ef í Jjós kemur að
sú mynd sem upp var
dregin er ekki sannleik-
anum samkvæm. Umfjöll-
un af þessu tagi skaðar
ekki aðeins viðkomandi
fyrirtæki sem tapar trú-
verðugleika heldur einnig
viðkomandi fjölmiðil fyrir
utan að geta valdið við-
skiptamönnum þess tjóni."
BORGARKRINGLAN
103 Reykjavík.
Sími 68 95 25.
Metsölublad á hverjum degi!
s
SUMIR HAFA EKKI HUGMYND UM ÞAÐ. EN ÞU?
Ef A tekur of þrönga
vinstri beygju á vegamótum
og lendir í árekstri við B,
sem er að koma að vegamót-
unum, getur A lent í órétti
gagnvart B.
í 3. mgr. 15. greinar
umferðarlaga segir: Við
vinstri beygju skal aka sem
næst miðju akbrautar og á
akbraut með einstefnu eins
nálægt vinstri brún og liægt
er. Beygjuna skal taka
þannig að þegar ökutækið
kemur út af vegamótunum sé
það hægra megin á akbraut-
inni sem beygt er inn á.
Sýndu aðgæslu í umferð-
inni og haltu þig á réttum
stað á akbrautinni.
TILLITSSEMl í UMFERDINNI
ER ALLRA MÁL.
SJÓVÁuÍDALMENNAR
AUKhf/ SÍAk116d11-113