Morgunblaðið - 19.08.1993, Blaðsíða 30
30
i
MORGUNBLAÐIÐ F'IMMTUDAGUR 19. ÁGÚST 1993
PÍTA
Brauð hefur alltaf verið mikil-
væg fæða allra þjóða. Að sjálf-
sögðu hefur það tekið miklum
breytingum í aldanna rás frá því
að frummaðurinn bakaði sitt
fyrsta brauð á heitum steinum.
Margar þjóðir eiga sér sitt sér-
staka brauð, og erum við Islend-
ingar engin undantekning þar
sem er flatbrauðið okkar. Mjölteg-
undir eru líka fjölmargar, einnig
tegundir lyftiefna eða alls engar
í sumum brauðum, sem samt lyfta
sér. Það er pittabrauð eða pítu-
brauð eins og við kölluð það, sem
er boðið upp á í þessum þætti.
Þetta brauð er nú selt víða um
heim, einnig á íslandi, þar sem
það er bæði innflutt og innlent.
Mér fínnst alltaf sárt að sjá
fólk eyða miklum peningum í að
kaupa þetta brauð, sem er sára-
einfalt að baka og hráefni í það
kostar nánast ekkert. Pítubrauð
er flatt út í hring og látið lyfta sér
í miðjunni þannig að þar myndast
holrúm fyrir fyllingu. Til þess að
þetta sé hægt, þarf hiti við bakst-
urinn að vera mjög mikill. Þessi
brauð má baka í venjulegum bak-
araofni, en þá verður að skrúfa
upp hitann í botn, minnst 250°C,
en sumir bakaraofnar hafa ekki
hærri hita, en betra er að baka
brauðið við enn meiri hita, allt að
300°C. En nú á „grillöld“ er best
að setja brauðið á grillið og baka
þannig. Pítubrauð er upprunnið
suður við Miðjarðarhafið og mikið
borðað af Aröbum, sem fylla það
eins og við gerum, en einnig borða
Grikkir mikið af því, brjóta bita
af því og borða með hummus
(kjúklingabaunamauki) eða
mezze (eins konar forréttum).
Allt er hægt að setja í pítu-
brauð, grænmeti, kjöt, físk, ost
og baunir, en íslendingum finnst
nauðsynlegt að hafa pítusósu
með, sem ég kýs þó heldur að
sleppa.
Pítubrauð
10 dl hveiti
1 tsk. salt
1 tsk. sykur
2 tsk. fínt þurrger
4 dl fingurvolgt vatn úr krananum
1. Setjið hveiti, salt, sykur og
þurrger í skál. Setjið volgt vatn
út í og hnoðið deig. Leggið stykki
yfír skálina og látið deigið lyfta
sér í 30 mínútur eða lengur.
2. Takið úr skálinni og búið til
litlar kúlur. Fletjið þær út með
höndunum. Leggið á hreint hveit-
istráð stykki og leggið annað
stykki yfír.
3. Setjið mesta straum á bakara-
ofninn eða grillið og bakið brauð-
in þannig í 2-4 mínútur á hvorri
hlið á grillinu, en í bakarofninum
þarf ekki að snúa því við, þá tek-
ur baksturinn um 5 mínútur.
4. Brauðin eru best nýbökuð, en
þau má frysta.
Tómatfylling
10-12 meðalstórir vel þroskaðir
tómatar (2 á mann)
safí úr 1 sítrónu
3/4 dl matarolía
salt milli fingurgómanna
2 skvettur úr tabaskósósu
2-3 hvítlauksgeirar eða 'h tsk.
hvítlauksduft
nýmalaður pipar
1. Skerið tómatana í þunnar
sneiðar. Leggið í skál.
2. Blandið saman sítrónusafa,
matarolíu, salti og tabaskósósu.
Metjið hvítlaukinn og setjið saman
við. Hristið eða þeytið saman.
Hellið yfír tómatana. Látið standa
í kæliskáp í 'h-1 klst.
3. Hellið safanum af tómatsneið-
unum, malið pipar yfir þær og
setjið í pítubrauðin.
Athugið: Þetta þarf að borða
strax, annars blotnar brauðið og
verður ekki lystugt.
Hakk- og hvítkálsfylling
500 g hvítkál
3 msk. matarolía
500 g nautahakk
1 tsk. salt
mikið af nýmöluðum pipar
mikið af ferskri steinselju
1. Hitið pönnu, hafið meðalhita,
setjið olíuna á hana.
2. Saxið hvítkálið gróft, setjið á
pönnuna og brúnið örlítið, gætið
þess að brenna það ekki.
3. Takið kálið og setjið á disk og
geymið.
4. Setjið pönnuna aftur á helluna
og hitið þar til rýkur úr henni.
5. Setjið helming hakksins á þurra
pönnuna og brúnið, takið af og
steikið síðari helminginn eins.
Athugið, að aldrei næst brúning
á hakk, ef mikið er sett á pönn-
una í einu. Það verður of mikil
kæling. Setjið síðan allt hakkið á
pönnuna, stráið salti og pipar yfir
og hellið vatninu út í. Klippið
steinseljuna og setjið saman við.
Minnkið hitann og sjóðið við hæg-
an hita undir loki í 10 mínútur.
6. Setjið nú kálið ofan á, malið
meiri pipar yfir, setjið lokið á og
sjóðið saman í 5 mínútur.
7. Setjið fyllinguna í brauðin og
berið fram.
Athugið: Gott er að skera gúrku
í sneiðar og setja með í pítubrauð-
in.
_____________Brids_________________
Umsjón Arnór Ragnarsson
Föstudaginn 30. júlí mættu 26 pör
til leiks í Sumarbrids. Spilaðar voru
10 umferðir með 3 spilum á milli para.
Miðlungur var 270. Efstu pör voru:
NS
Friðrik Friðriksson - Sigurleifur Guðjónsson 344
Guðmundur Pétursson - Þorleifur Þórarinsson 315
Hjálmar S. Pálsson - Viðar Jónsson 304
AV
Sveinn R. Þorvaldsson - HalldórÞorvaldsson 315
Þráinn Sigurðsson - Vilhjálmur Sigurðsson 312
Ámina Guðlaugsdóttir - Bragi Erlendsson 305
Sunnudaginn 1. ágúst var spilaður
tölvureiknaður Mitchell með þátttöku
16 para. Spilaðar voru 7 umferðir með
4 spilum á milli para. Miðlungur var
168. Efstu pör voru:
NS
GuðlaugurSveinsson-LárusHermannsson 189
PállÞórBergsson-UnnsteinnJónsson 179
TómasSiguijónsson-FriðrikJónsson 176
AV
Þrösturlngimarsson-ÞórðurBjömsson 207
Þórir Leifsson - Sveinn R. Eiriksson 185
Guðjón Bragason - Helgi Bogason 183
Mánudaginn 2. ágúst mættu 24 pör
til spilamennsku í Sumarbrids. Spilað-
ur var 30 spila tölvureiknaður Mitch-
ell. Meðalskor var 170. Efstu pör voru:
NS
Andrés Ásgeirsson - Bjöm Þorláksson 320
SiguijónHarðarson-HaukurÁmason 314
Sveinn R. Þorvaldsson - Páll Þór Bergsson 305
AV
Ámína Guðlaugsdóttir - Bragi Erlendsson 336
Ragnheiður Tómasd. - Guðrún Jóhannesd. 306
SigfusÞórðarson-AmarGeirHinriksson 291
GuðjónBragason-HelgiBogason 291
Þriðjudaginn 3. ágúst mættu 36 pör
til spilamennsku í Sumarbrids. Spilað-
ur var tölvureiknaður Mitchell. Spiluð
voru 30 spil og var miðlungur 420.
Efstu pör voru:
NS
Elín Jónsdóttir - Lilja Guðnadóttir 482
SigfúsÖmÁmason-ÓmarJónsson 471
Kjartan Jóhannsson - Albert Þorsteinsson 464
Jón Þór Daníelsson - Ásmundur Ömólfsson 447
AV
Láras Hermannsson - Guðlaugur Sveinsson 527
Páll Þór Bergsson - Sveinn R. Þorvaldsson 484
Jón Steinar Ingólfsson - Erlendur Jónsson 478
Guðbrandur Guðjohnsen - Magnús Þorkelsson 477
Sumarbrids er spilaður alla daga
vikunnar. Alla virka daga auk sunnu-
daga er spilaður tölvureiknaður Mitch-
ell. Hann byrjar stundvíslega kl. 19.
Á laugardögum er spilaður einmenn-
ingur og byijar þá stundvíslega kl.
14. Spilað er í húsi Bridssambandsins,
Sigtúni 9, og eru allir spilarar vel-
komnir.
Látið ekki
veður og
spilla
helginni!
Auk 200-800 m2risatjaldanna
bjóöum viö nú upp á stórskemmtileg
36, 54 og 162 nfsamkomutjöld, sem leigjendur reisa
auðveldlega sjálfir.
vAiannnn.mil Upplýsingar og pantanir
KOLAPORTSINS ísíma 625030.
ÁRNAÐ HEILLA
Ljósm.st. MYND
HJÓNABAND. Gefin voru saman
þann 7. ágúst sl. í Hjallakirkju af
sr. Kristjáni Einari Þorvarðarsyni
Þórey Dögg Jónsdóttir og Erlendur
Ólason. Heimili þeirra er í Engi-
hjalla 25, Kópavogi.
Ljósm.st. MYND
HJÓNABAND. Gefin voru saman
í Kópavogskirkju þann 31. júlí sl.
af sr. Axel Árnasyni Unna Daníels-
dóttir og Jón E. Davíðsson. Heimili
þeirra er í Svíþjóð.