Morgunblaðið - 19.08.1993, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ
IÞRO I IIR FIMMTUDAGUR
19. AGUST 1993
51
KNATTSPYRNA
Viðburðarríkurdagur: Valur byrjaði vel íEvrópukeppninni en KR lét þjálfarann fara
Frábær nýting Valsmanna
VALSMENN stigu mikilvægt skref í átt að fyrstu umferö EvrópU-
keppni bikarhafa, þegar þeir sigruðu finnska liðið Mypa 47 með
þremur mörkum gegn einu ífyrri leik liðanna íforkeppni Evrópu-
keppninnar á Laugardalsvelli í gærkvöldi. Valsmenn léku illa í
fyrri hálfleik, en stóðu sig frábærlega í þeim síðari og einkum
var nýtingin góð; þeir fengu þrjú færi og gerðu þrjú mörk.
Valsmenn byrjuðu leikinn reynd-
ar ágætlega og fengu dauða^
færi strax á 6. mínútu, en rúss-
neski markvörður-
inn Birjukov varði
vel frá Agústi Gylf a-
syni. Þetta var því
miður ekki fors-
mekkurinn að því sem var á leið-
inni, allavega ekki í fyrri hálfleik.
Stefán
Eiríksson
skrífar
Finnarnir komu meira inn í leikinn,
fengu fyrsta færið á 12. mínútu
eftir varnarmistök, en Bjarni Sig-
urðsson varði vel skot frá kant-
manninum Happonen. Mypa-menn
náðu í kjölfarið mjög góðum tökum
á leiknum, Valsmenn áttu í mesta
basli í vörninni, Sævar Jónsson var
í leikbanni og var hans augljóslega
sárt saknað, og kom það fáum á
Ætlum að halda
fengnum hlut
- segir Kristinn Bjömsson, þjálfari Vals
„ÉG get ekki annað en verið sáttur við þessi úrslit. Við gáfum
þeim of mikið rými ífyrri hálfleik en í seinni hálfleik skrúfuðum
við upp tempóið og með vindinn í bakið gekk þetta upp. Við
náðum að loka betur svæðum og leikur okkur varð allt annar
og betri," sagði Kristinn Björnsson, þjálfari Vals, eftir leikinn.
Kristinn sagði að hann hefði orð-
ið ánægður með eins marks
sigur „en tvö mörk gera möguleika
okkar á að komast áfram enn betri.
Við förum í seinni leikinn með það
hugarfar að halda fengnum hlut.
Það verður mikilvægt að fá Sævar
[Jónsson] inní seinni leikinn því
hann hefur mikla reynslu sem getur
vegið þungt í svona leikjum," sagði
Kristinn.
Bjarni Sigurðsson, markvórður,
stóð sig mjög vel í markinu. „Ég
fann mig vel, var heitur í flóðljósun-
um. Það var meiriháttar að ná að
snúa leiknum við eftir að hafa legið
einu marki undir í hálfleik. Við
komumst ekki í takt við leikinn í
fyrri hálfleik. En þetta var allt ann-
að í þeim seinni." Hann sagði að
Þeir myndu gera allt til að komast
áfram, „Nú er hálfleikur og því
þarf að bretta upp ermarnar fyrir
seinni hálfleikinn, fylgja þessum
sigri eftir, vinna vel og berjast. Ef
allir leggja sig fram eigum við góða
möguleika á að komast áfram,"
sagði Bjarni.
„Það var mjög ánægjulegt að
vinna þennan leik og það var ekki
leiðinlegt að skora þessi tvö mörk,"
sagði Anthony Karl Gregory, sem
gerði fyrstu mörk sín í Evrópu-
keppni. „Það var mjög erfitt að
vera einn frammi og gott að nýta
þessi tvö færi sem ég fékk. Annars
vorum við mjög slakir í fyrri hálf-
leik og kannski var um ósjálfrátt
vanmat að ræða. En í seinni hálf-
leik var allt annað upp á teningn-
um, við gafum ekkert eftir og
uppskárum eftir því. Þetta er gott
veganesti til Finnlands og við förum
þangað til að komast áfram."
óvart er Finnarnir komust yfir á
34. mínútu eftir laglega sókn.
Ótrúleg umskipti
Valsmenn komu með allt öðru
hugafari í seinni hálfleikinn. Á að-
eins stundarfjórðungi snemma í
hálfleiknum gerðu þeir þrjú mörk
úr þremur færum og björguðu
hreinlega andlitinu eftir lélegan
fyrri hálfleik. Finnarnir gerðu þau
mistðk að ætla að halda fengnum
hlut, og voru Valsmenn fljótir að
refsa þeim. Reyndar fór hægri kant-
maður Mypa, Yrjö Happonen, út af
í hálfleik, en hann hafði leikið vel
í fyrri hálfleik og var skarð hans
augljóslega vandfyllt. Finnarnir
settu smá kraft í leik sinn síðustu
tíu mínúturnar, fengu tvö góð færi,
en Bjarni Sigurðsson varði í bæði
skiptin vel, eins og hann hafði gert
nokkuð oft áður í leiknum.
Ágúst mjög góður
Ágúst Gylfason lék mjög vel fyr-
ir Val, var á mikilli hreyfingu og
átti góðar sendingar. Anthony Karl
Gregory stóð fyrir sínu í framlín-
unni, og Bjarni Sigurðsson hélt sín-
um mönnum algjðrlega á floti þegar
mest á reyndi, og varði oft frábær-
lega.
Hjá Mypa 47 lék miðjumaðurinn
Anders Roth ágætlega í fyrri hálf-
leik, sýndi skemmtilega takta á
miðjunni, og áðurnefndur Happon-
en sömuleiðis. Markvörðurinn Bi-
rjukov virkaði öruggur í fyrri hálf-
leik, en gerði afdrifarík mistök í
þeim síðari. Liðið sýndi ágæta takta
í fyrri hálfleik, skemmtilegu og vel
útfærðu spili brá oft fyrir, en liðið
hélt ekki haus í síðari hálfleik.
Síðari leikur Vals gegn Mypa 47
verður 1. septémber í Finnlandi.
Möguleikar Valsmanna á því að
komast áfram verða að teljast góð-
ir. Komist þeir áfram mæta þeir
skoska liðinu Aberdeen í fyrstu
umferð Evrópukeppni bikarhafa.
0:1
Á 34. mfnútu gáf
! ¦ .Yrjö Harponen upp
hægri kantinn á Janne Makela
sem komst alveg upp að enda-^
mbrkum og gaf fyrir rnarkíð,
þar setn Marko Rajamaki
stýrðí knettinum í mark.
1a Æ Hörður Már Magnús-
¦ 1 son sendi á Antbony
Kart Gregory sem lék innJ
w'tateiginn vinstiamegin á 53.
mínútu. Varnarmaður náði af
honum boltanam, en Anthony
náði knettínum aftur og skoraði
með nettu skoti úr þrongu færi
ur markteignum vinstra megin.
2a Æ Kiislinn Lárusson
¦ I gaf úpp yinstri kant-
inn á Hörð Má Magnasson á 68.
mínútu. Hðrður léfc upp að víta-
teigshorninu vinstra megin, gáf
fyrir markið þar sem Anthony
Karl kom fæti í knöttinn yst í
markteignum miðjum og sendi
Hann í netið.
3.
63. mínútu, lék í átt að miðj
unni og gaf laglega sendingu á
Jón Grétar Jónsson sem var fyr-
ír framan vitateiginn. Brotið var
á Jóni og barst knötturinn ut
til vinstri i vítateignum, þar setn
Kristinn Lárusson var staddur
og þrumaði knettinum í homið
niðri fjær.
Valur-Mypa47
Laugardalsvöllur, forkeppni Evrópukeppni bikarhafa, fyrri leikur
Aðstæður: Strekkingsvindur, sem Valur lék á móti fyrir hlé, og raki i lofti.
Mörk Vals: Anthony Karl Gregory 2 (53. og 58.), Kristinn Lárusson (67.)
Mark Mypa 47: Marko Rajamaki (34.)
Gult spjald: Mika VUjanen (37.) og Janne Lindberg (77.) fyrir brot.
Dómari: John Ferry (írlandi), dæmdi vel.
Lfnuverðir: Thomas Ferry og Frank Hiles (Irlandi).
Áhorfendur: 409 greiddu aðgangseyri.
Valur: Bjarni Sigurðsson - Gunnar Gunnarsson (Milomir Gajik 61.), J6n
S. Helgason, Arnaldur Loftsson, Bjarki Stefánsson - Jón Grétar Jónsson,
Ágúst Gylfason, Steinar Adolfsson, Hörður Már Magnússon, Kristinn Lárus-
son (Sigurbjörn Hreiðarsson 68.) - Anthony Karl Gregory.
Mypa 47: Mihail Birjukov - Janne Makela, Mika Viljanen, Esa Pekonen,
Jukka Koskinen - Yrjö Happonen (Sami Hyypia 46.), Anders Roth, Janne
Lindberg, Marko Rajamaki - Saku Laaksonen (Tomi Kinnunen 70.), Jukka
Turunen.
FOLK
¦ ARNALDUR Loftsson, varn-
armaður Vals, lék síðasta leik sinn
á þessu keppnistímabili fyrir Val 5
gærkvöldi. Hann er á leið til Banda-
ríkjanna í nám.
¦ MILOMIR Gajik frá Serbíu lék
fyrsta leik sinn fyrir Val í gær.
I HARRI Kampman, þjálfari
Mypa-47, var greinilega ekki
ánægður með úrslitin því strax eft-
ir leikinn fór hann beinustu leið út
í rútu með liðið og keyrði í burtu
án þess að tala við nokkurn mann.
Yrði gaman
aðmæta
Valsmönnum
??
u
Morgunblaðið/Bjarni
Ágúst Gylfason lék vel gegn Mypa 47 og
vakti meðal annars athygli útsendara skoska
liðsins Aberdeen, sem var á leiknum. Hér er
hann í kröppum dansi við Mika Viljanen leik-
mann Mypa 47.
Drew Jarvie, aðstoðarfram-
kvæmdastjóri Aberdeen í Skot-
landi, fylgdist með leiknum á Laug-
ardalsvelli í gær. „Þetta voru tveir
ólíkir hálfleikir. Finnska liðið var
mun betra í þeim fyrri en svo snér-
ist dæmið við. Ef marka má þennan
leik eru liðin svipuð að styrkleika,
en á eðlilegum degi er Aberdeen mun
sterkara en þau bæði. En það getur
allt gerst í Evrópukeppni," sagði
Jarvie, og bætti við að Valsmenn
væru með öll tromp á hendi. „Ef
þeir halda vel á spilunum í Finnlandi
ættu þeir að komast áfram. Það yrði
gaman að mæta Valsmönnum."
Hann var mjög hrifinn af Ágústi
Gylfasyni og eins talaði hann um að
Bjarni Sigurðsson hefði komið í veg
fyrir að finnska liðið næði að bæta
við mörkum. „Anthony Karl Gregory
sýndi það með þessum mörkum sem
hann gerði að það verður að hafa
sérstakar gætur á honum."
Janus í stað Sochors?
IÁgóst Gyifson'vann
boítann í vörninni á
Ivan Sochor
IV AN Sochor, Tékkinn sem þjálf að hef ur 1. deildarlíö KR í
knattspyrnu ísumar, hætti störfum fgær. Atli Eðvaldsson,
aðstoðarmaður Tékkans ísumar, stjórnaði æfingu ígær-
kvöldi, en KR-ingar stefna að því að ráða nýjan þjálfara í
dag. Janus Guðlaugsson, fyrrum atvinnumaður og nú þjálfari
2. flokks KR, er efstur á óskatistanum skv. heimildum Morgun-
blaðins.
Liði KR var spáð íslandsmeistar-
atitli í árlegri atkvæðagreiðslu
fyrirliða, þjálfara og formanna
knattspyrnudeilda í upphafi keppn-
istímabils, en hefur gengið illa og
er nú í neðri hluta deildarinnar. Að
sögn Lúðvíks S. Georgssonar, for-
manns knattspyrnudeildar KR, varð
um það samkomulag milli stjórnar-
innar og Sochors, á fundi í gær,
að hann léti af störfum. Annar
stjórnarmaður sem Morgunblaðið
ræddi við, sagði að menn yrðu að
viðurkenna að liðið væri í fallhættu,
og því hefði eitthvað orðið að gera.
Sochor sagði við Morgunblaðið,
eftir að niðurstaða lá fyrir í gær,
að ástæðan fyrir slöku gengi liðsins
í sumar hefði verið meiðsli lykil-
manna, sem virtust til að byrja með
vera tímabundin en reyndust síðar
alvarlegri. Liðinu hefði gengið
ágætlega í bikarkeppninni, en tap
gegn ÍA í framlengingu í undanúr-
slitaleiknum hefði verið mikið áfall
fyrir liðið. Sochor sagði einnig að
agavandamál hefðu verið nokkur,
liðið fór í æfingabúðir fyrir undan-
úrslitaleikinn í bikarnum, en nokkr-
ir leikmenn hefðu ekki mætt og
taka hefði þurft á ýmsum vanda-
málum í kjölfarið. „Eftir allt þetta
missti liðið allan áhuga, var úr leik
í bikarnum auk þess sem ógerning-
ur virtist að ná Akranesi í deild-
inni," sagðiSochor. Hann sagði að
tapið gegn ÍA í deildinni hefði ekki
gert útslagið. „En liðið lék illa á
móti Víkingi og Fylki, og því var
ekki um neina miskunn að ræða,"
sagði Sochor.
Aðspurður sagðist hann hafa
verið tilbúinn til að ljúka tímabilinu, j
en færi af landi brott bráðlega þeg-
ar hann væri búinn að ganga frá
nokkrum lausum endum.
Aðspurður hvort ekki væri leiðin-
legt að ljúka feriinum hjá KR með
þessum hætti, sagði Sochor: „Það
er eðlilegt að reka þjálfarann þegar
illa gengur, en að þurfa að standa
í þessu sjálfur er dapurlegt og alls;
ekki auðvelt."