Morgunblaðið - 19.08.1993, Síða 51
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 19. ÁGÚST 1993
51
Viðburðarríkur dagur: Valur byrjaði vel í Evrópukeppninni en KR lét þjálfarann fara
Frábær nýting Valsmanna
VALSMENN stigu mikilvægt skref í átt að fyrstu umferð Evrópu-
keppni bikarhafa, þegar þeir sigruðu finnska liðið Mypa 47 með
þremur mörkum gegn einu ífyrri leik liðanna iforkeppni Evrópu-
keppninnar á Laugardalsvelli í gærkvöldi. Valsmenn léku illa í
fyrri hálfleik, en stóðu sig frábærlega i'þeim síðari og einkum
var nýtingin góð; þeir fengu þrjú færi og gerðu þrjú mörk.
Valsmenn bypuðu leikinn reynd-
ar ágætlega og fengu dauða-
færi strax á 6. mínútu, en rúss-
neski markvörður-
inn Biþukov varði
vel frá Agústi Gylfa-
syni. Þetta var því
miður ekki fors-
mekkurinn að því sem var á leið-
inni, allavega ekki í fyrri hálfleik.
Stefán
Eiríksson
skrifar
Finnarnir komu meira inn í leikinn,
fengu fyrsta færið á 12. mínútu
eftir vamarmistök, en Bjami Sig-
urðsson varði vel skot frá kant-
manninum Happonen. Mypa-menn
náðu í kjölfarið mjög góðum tökum
á leiknum, Valsmenn áttu í mesta
basli í vörninni, Sævar Jónsson var
í leikbanni og var hans augljóslega
sárt saknað, og kom það fáum á
Ætlum að halda
fengnum hlut
- segir Kristinn Björnsson, þjálfari Vals
„ÉG get ekki annað en verið sáttur við þessi úrslit. Við gáfum
þeim of mikið rými ífyrri hálfieik en í seinni hálfleik skrúfuðum
við upp tempóið og með vindinn í bakið gekk þetta upp. Við
náðum að loka betur svæðum og leikur okkur varð allt annar
og betri,“ sagði Kristinn Björnsson, þjálfari Vals, eftir leikinn.
Kristinn sagði að hann hefði orð-
ið ánægður með eins marks
sigur „en tvö mörk gera möguleika
okkar á að komast áfram enn betri.
Við förum í seinni leikinn með það
hugarfar að halda fengnum hlut.
Það verður mikilvægt að fá Sævar
[Jónsson] inní seinni leikinn því
hann hefur mikla reynslu sem getur
vegið þungt í svona leikjum," sagði
Kristinn.
Bjarni Sigurðsson, markvörður,
stóð sig mjög vel í markinu. „Ég
fann mig vel, var heitur í flóðljósun-
um. Það var meiriháttar að ná að
snúa leiknum við eftir að hafa legið
einu marki undir í hálfleik. Við
komumst ekki í takt við leikinn í
fyrri hálfleik. En þetta var allt ann-
að í þeim seinni.“ Hann sagði að
Þeir myndu gera allt til að komast
áfram, „Nú er hálfleikur og því
þarf að bretta upp ermarnar fyrir
seinni hálfleikinn, fylgja þessum
sigri eftir, vinna vel og beþast. Ef
allir leggja sig fram eigum við góða
möguleika á að komast áfram,“
sagði Bjarni.
„Það var mjög ánægjulegt að
vinna þennan leik og það var ekki
leiðinlegt að skora þessi tvö mörk,“
sagði Anthony Karl Gregory, sem
gerði fyrstu mörk sín í Evrópu-
keppni. „Það var mjög erfitt að
vera einn frammi og gott að nýta
þessi tvö færi sem ég fékk. Annars
vorum við mjög slakir í fyrri hálf-
leik og kannski var um ósjálfrátt
vanmat að ræða. En í seinni hálf-
leik var allt annað upp á teningn-
um, við gáfum ekkert eftir og
uppskárum eftir því. Þetta er gott
veganesti til Finnlands og við förum
þangað til að komast áfram.“
óvart er Finnamir komust yfir á
34. mínútu eftir laglega sókn.
Ótrúleg umskipti
Valsmenn komu með allt öðru
hugafari í seinni hálfleikinn. Á að-
eins stundaríjórðungi snemma í
hálfleiknum gerðu þeir þijú mörk
úr þremur færum og björguðu
hreinlega andlitinu eftir lélegan
fyrri hálfleik. Finnarnir gerðu þau
mistök að ætla að halda fengnum
hlut, og vom Valsmenn fljótir að
refsa þeim. Reyndar fór hægri kant-
maður Mypa, Yijö Happonen, út af
í hálfleik, en hann hafði leikið vel
í fyrri hálfleik og var skarð hans
augljóslega vandfyllt. Finnarnir
settu smá kraft í leik sinn síðustu
tíu mínúturnar, fengu tvö góð færi,
en Bjarni Sigurðsson varði í bæði
skiptin vel, eins og hann hafði gert
nokkuð oft áður i leiknum.
Ágúst mjög gódur
Ágúst Gylfason lék mjög vel fyr-
ir Val, var á mikilli hreyfingu og
átti góðar sendingar. Anthony Kari
Gregory stóð fyrir sínu í framlín-
unni, og Bjami Sigurðsson hélt sín-
um mönnum algjörlega á floti þegar
mest á reyndi, og varði oft frábær-
lega.
Hjá Mypa 47 lék miðjumaðurinn
Oa Á 34. mfnútu gaf
■ l.Yijö Harponen upp
hægri kantinn á Janne Makela
sem komst alveg upp að enda-
mörkum og gaf fyrir markið,
þar sem Marko Ríýamaki
stýrði knettinum í mark.
1a 4j Hörður Már Magnús-
m I son sendi ó Anthony
Karl Gregory sem lék inn í
vítateiginn vinstra megin á 53.
mínútu. Varnarmaður náði af
honum boltanum, en Anthony
náði knettinum aftur og skoraði
með nettu skoti úr þröngu færi
úr markteignum vinstra megin.
2a rii Kristinn Láioisson
■ | gaf upp vinstri kant-
inn á Hörð Má Magnússon á 58.
mínútu. Hörður iék upp að víta-
teigshorninu vinstra megin, gaf
fyrir markið þar sem Anthony
Karl kom fæti i knöttinn yst í
markteignum miðjum og sendi
hann f netið.
3a Æ Ágúst Gylfson vann
■ | boítann í vörninni á
63. mínútu, lék í átt að miðj-
unni og gaf laglega sendingu á
Jón Grétar Jónsson sem var fyr-
ir framan vítateiginn. Brotið var
á Jóni og barst knötturinn út
til vinstri í vítateignum, þar sem
Kristiim Lárusson var staddur
og þrumaði knettinum í homið
niðri Qær.
Valur - Mypa 47
Laugardalsvöllur, forkeppni Evrópukeppni bikarhafa, fym leikur
Aðstæður: Strekkingsvindur, sem Valur lék á móti fyrir hlé, og raki í iofti.
Mörk Vals: Anthony Karl Gregory 2 (53. og 58.), Kristinn Lárusson (67.)
Mark Mypa 47: Marko Rajamaki (34.)
Gult spjald: Mika Viljanen (37.) og Janne Lindberg (77.) fyrir brot.
Dómari: John Ferry (trlandi), dæmdi vel.
Línuverðir: Thomas Ferry og Frank Hiles (írlandi).
Ahorfendur: 409 greiddu aðgangseyri.
Valur: Bjami Sigurðsson - Gunnar Gunnarsson (Milomir Gajik 61.), Jón
S. Helgason, Amaldur Loftsson, Bjarki Stefánsson - Jón Grétar Jónsson,
Ágúst Gylfason, Steinar Adolfsson, Hörður Már Magnússon, Kristinn Láms-
son (Sigurbjöm Hreiðarsson 68.) - Anthony Karl Gregory.
Mypa 47: Mihail Biijukov - Janne Makela, Mika Viljanen, Esa Pekonen,
Jukka Koskinen - Yijö Happonen (Sami Hyypia 46.), Anders Roth, Janne
Lindberg, Marko Rajamaki - Saku Laaksonen (Tomi Kinnunen 70.), Jukka
Turanen.
Morgunblaðið/Bjarni
Ágúst Gylfason lék vel gegn Mypa 47 og
vakti meðal annars athygli útsendara skoska
liðsins Aberdeen, sem var á leiknum. Hér er
hann í kröppum dansi við Mika Viljanen leik-
mann Mypa 47.
Anders Roth ágætlega í fyrri hálf-
leik, sýndi skemmtilega takta á
miðjunni, og áðurnefndur Happon-
en sömuleiðis. Markvörðurinn Bi-
ijukov virkaði öruggur í fyrri hálf-
leik, en gerði afdrifarík mistök í
þeim síðari. Liðið sýndi ágæta takta
í fyrri hálfleik, skemmtilegu og vel
útfærðu spili brá oft fyrir, en liðið
hélt ekki haus í síðari hálfleik.
Síðari leikur Vals gegn Mypa 47
verður 1. septémber í Finnlandi.
Möguleikar Valsmanna á því að
komast áfram verða að teljast góð-
ir. Komist þeir áfram mæta þeir
skoska liðinu Aberdeen í fyrstu
umferð Evrópukeppni bikarhafa.
tóm
FOLX
■ ARNALDUR Loftsson, varn-
armaður Vals, lék síðasta leik sinn
á þessu keppnistímabili fyrir Val í
gærkvöldi. Hann er á leið til Banda-
ríkjanna í nám.
■ MILOMIR Gajik frá Serbíu lék
r ta leik sinn fyrir Val í gær.
HARRI Kampman, þjálfari
Mypa-47, var greinilega ekki
ánægður með úrslitin því strax eft-
ir leikinn fór hann beinustu leið út
í rútu með liðið og keyrði í burtu
án þess að tala við nokkum mann.
V
Yrði gaman
aðmæla
Valsmönnum
Drew Jarvie, aðstoðarfram-
kvæmdastjóri Aberdeen í Skot-
iandi, fylgdist með leiknum á Laug-
ardalsvelli í gær. „Þetta voru tveir
ólíkir hálfleikir. Finnska liðið var
mun betra í þeim fyrri en svo snér-
ist dæmið við. Ef marka má þennan
leik eru liðin svipuð að styrkleika,
en á eðlilegum degi er Aberdeen mun
sterkara en þau bæði. En það getur
allt gerst í Evrópukeppni," sagði
Jarvie, og bætti við að Valsmenn
væru með öll tromp á hendi. „Ef
þeir halda vel á spilunum í Finnlandi
ættu þeir að komast áfram. Það yrði
gaman að mæta Valsmönnum."
Hann var mjög hrifinn af Ágústi
Gylfasyni og eins talaði hann um að
Bjami Sigurðsson hefði komið í veg
fyrir að finnska liðið næði að bæta
við mörkum. „Anthony Karl Gregory
sýndi það með þessum mörkum sem
hann gerði að það verður að hafa
sérstakar gætur á honum.“
Janus í stað Sochors?
Ivan Sochor
IVAN Sochor, Tékkinn sem þjálfað hefur 1. deildarlið KR í
knattspyrnu í sumar, hætti störfum í gær. Atli Eðvaldsson,
aðstoðarmaður Tékkans í sumar, stjórnaði æfingu í gær-
kvöldi, en KR-ingar stefna að því að ráða nýjan þjálfara í
dag. Janus Guðlaugsson, fyrrum atvinnumaður og nú þjálfari
2. flokks KR, er efstur á óskalistanum skv. heimildum Morgun-
blaðins.
Liði KR var spáð íslandsmeistar-
atitli í árlegri atkvæðagreiðslu
fyrirliða, þjálfara og formanna
knattspymudeilda í upphafi keppn-
istímabils, en hefur gengið illa og
er nú í neðri hluta deildarinnar. Að
sögn Lúðvíks S. Georgssonar, for-
manns knattspymudeildar KR, varð
um það samkomulag milli stjórnar-
innar og Sochors, á fundi í gær,
að hann léti af störfum. Annar
stjómarmaður sem Morgunblaðið
ræddi við, sagði að menn yrðu að
viðurkenna að liðið væri í fallhættu,
og því hefði eitthvað orðið að gera.
Sochor sagði við Morgunblaðið,
eftir að niðurstaða lá fyrir í gær,
að ástæðan fyrir slöku gengi liðsins
í sumar hefði verið meiðsli lykil-
manna, sem virtust til að byija með
vera tímabundin en reyndust síðar
alvarlegri. Liðinu hefði gengið
ágætlega í bikarkeppninni, en tap
gegn ÍA í framlengingu í undanúr-
slitaleiknum hefði verið mikið áfall
fyrir liðið. Sochor sagði einnig að
agavandamál hefðu verið nokkur,
liðið fór í æfingabúðir fyrir undan-
úrslitaleikinn í bikarnum, en nokkr-
ir leikmenn hefðu ekki mætt og
taka hefði þurft á ýmsum vanda-
málum í kjölfarið. „Eftir allt þetta
missti liðið allan áhuga, var úr leik
í bikarnum auk þess sem ógerning-
ur virtist að ná Akranesi í deild-
inni,“ sagði Sochor. Hann sagði að
tapið gegn ÍA í deildinni hefði ekki
gert útslagið. „En liðið lék illa á
móti Víkingi og Fylki, og því var
ekki um neina miskunn að ræða,“
sagði Sochor.
Aðspurður sagðist hann hafa
verið tilbúinn til að ljúka tímabilinu,
en færi af landi brott bráðlega þeg-
ar hann væri búinn að ganga frá
nokkrum lausum endum.
Aðspurður hvort ekki væri leiðin-
legt að ljúka ferlinum hjá KR með
þessum hætti, sagði Sochor: „Það
er eðlilegt að reka þjálfarann þegar
illa gengur, en að þurfa að standa
í þessu sjálfur er dapurlegt og alls
ekki auðvelt."
KNATTSPYRNA