Morgunblaðið - 19.08.1993, Blaðsíða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. ÁGÚST 1993
Ljósin kosta
1,5-3 milljónir
KOSTNAÐUR við uppsetningu
umferðarljósa við gatnamót er á
biiinu 1,5 tii 3 milljónir, að sögn
Sigurðar Skarphéðinssonar
gatnamálastjóra. Á milli 12 og
15 milljónum er varið til gerðar
umferðarljósa í borginni árlega.
„Ef við getum sett ljósin upp
samhliða gatnaframkvæmdum en
þurfum ekki að saga malbik og lag-
færa aftur er þetta ódýrara," segir
Sigurður. Tæplega 40 umferðarljós
hafa verið sett upp við gatnamót í
borginni á síðustu fímm árum.
-----»■-»■■■»—..
Norræn
fimleikahá-
tíð fyrir 60
ára og eldri
FIMLEIKASAMBAND íslands
stendur fyrir stórri hátíð, Gym i
Norden eða Fimleikar í norðri, í
Laugardal í Reykjavík dagana
19. til 23. ágúst nk. Þessi hátíð,
á ári aldraðra í Evrópu er mót
fyrir 60 ára og eldri og er þetta
í fyrsta sinn sem slíkt mót er
haldið hér á landi.
Mót þetta er samnorrænt mót
þar sem áhersla er lögð á sameigin-
lega menningu norrænna þjóða.
Þátttaka er góð og munu margir
gestir gista Laugardal þessa móts-
daga, þar á meðal um 300 þátttak-
endur frá hinum Norðurlöndunum.
Á dagskrá verður leikfimi og
vatnaleikfimi, ratleikir, stöðvar-
þjálfun og skipulagðar gönguferðir.
Eins verða tvær sýningar föstudag-
inn 20. ágúst kl. 20 og sunnudaginn
21. kl. 13.
Opnunarhátíðin í kvöld, fimmtu-
daginn 19. ágúst, hefst kl. 21. Þar
mun borgarstjóri, Markús Örn Ant-
onsson, flytja ávarp og sýndir verða
þjóðdansar og fimleikar. Stefán
Jasonarson flytur hvatningarorð af
sínum alkunna hressileik en setn-
ingunni lýkur síðan með samsöng
allra viðstaddra undir stjórn Sigurð-
ar R. Guðmundssonar.
Föstudaginn 20. ágúst verður
sérstök hátíðarsýning sem hefst kl.
20 þar sem þátttakendur mótsins
koma fram með fjölbreytt sýningar-
atriði.
Laugardaginn 21. ágúst verður
sýning í Laugardalshöll og hefst
kl. 13. Um kvöldið verður hlöðuball
í höllinni.
-----»-♦-♦-...-.
Biskupábiblíu-
hátíð í Svíþjóð
BISKUP Islands, herra Ólafur
Skúlason, verður viðstaddur há-
tíðarhöld í Svíþjóð um næstu
helgi, sem efnt er til í tilefni
þess að í ár eru fjögur hundruð
ár síðan ákveðið var að leggja
Biblíuna, trúaijátningar kirlq-
unnar, auk Augsborgarjátning-
arinnar til grundvallar í starfi
sænsku kirkjunnar.
Ólafur þáði boð sænsku kirkjunn-
ar um að taka þátt í sérstakri hátíð-
arguðsþjónustu í dómkirkjunni í
Uppsölum 22. ágúst næstkomandi
að viðstöddum fjölaa gesta víða að
úr heiminum, svo sem Desmond
Tutu biskupi í Suður-Afríku.
Biskupshjónin munu í kjölfarið
fara til Gautaborgar og heimsækja
íslendinga búsetta þar í borg. Herra
Ólafur messar af því tilefni í norsku
kirkjunni sunnudaginn 29. ágúst
og kór íslendingafélagsins syngur.
Hjónin munu loks heimsækja ís-
lenska sjúklinga, sem dvelja á Sahl-
grenska sjúkrahúsinu í borginni,
segir í frétt frá Biskupsstofu.
Góð silungsveiði
í Mývatni í sumar
Björk, Mývatnssveit.
SILUNGSVEIÐI í Mývatni hefur víða verið góð í sumar. Mjög mikið
rykmý hefur verið undanfarna daga við vatnið og ekki síst ofan á
vatninu. Þar er mýgrútur yfir að lita enda silungurinn vel feitur
og sjaldan eða aldrei verið betri og virðist hafa næga átu.
Þá er ánægjulegt að sjá stóra væri að silungurinn lifði veturinn af
hópa andarunga á Mývatni. Allt vegna átuskorts. Virðist því betur
bendir því til að lífríki sé hér með að sú hrakspá hafí ekki haft við
miklum blóma. Einn bóndi hér í sveit mikii rök að styðjast.
setti fram á síðasta vetri, að hæpið - Krislján
Hlýjasti dag-
ur sumarsins
Björk, Mývatnssveit.
ÞRIÐJUDAGURINN 17. ágúst var
hlýjasti dagurinn hér í Mývatns-
sveit það sem af er sumri og komst
hitinn í 19 stig. Ágætur þurrkur
var og gátu margir hirt hey.
Sumir bændur hafa lokið heyskap
og telja heyfenginn sinn vel í meðal-
lagi. þrátt fyrir verulegt kal í túnum
og mjög erfíða tíð. Margir fullyrða
að verkun í rúllur hafí víða algjörlega
bjargað heyskap bænda.
Enn er kartöflugras ófallið hér og
vænta menn þess að ef ekki koma
frostnætur á næstunni sé von um
einhveija uppskeru í haust.
- Kristján
------»--♦-♦----
■ Sumarkapp KEA og Coca cola
er heiti á getraunaleik sem Kaup-
félag Eyfirðinga og Vífilfell hafa
efnt til, en hann er fólginn í því
að svara nokkrum spurningum á
getraunaseðli sem fylgir kaupi
menn eina kippu af tveggja lítra
kóki, Sprite eða Fanta og skila
honum í kassa í KEA- verslunun-
um. I fyrstu verðlaun eru ferð
fyrir tvo frá Akureyri til Flórída,
önnur verðlaun eru 12 innkaupa-
körfur frá matvöruverslunum
KEA og þriðju verðlaun eru 30
kippur af gosi frá Vífilfelli. Þá
verða gefnir bolir í aukaverðlaun.
Dregið verður 20. og 27. ágúst og
loks 3. september.
------»-■»-»----
Listasumar
GUÐRÚN Jónsdóttir og Ólafur
Vignir Albertsson koma fram á
tónleikum í Safnaðarheimili Ak-
ureyrarkirkju í kvöld, fimmtu-
dagskvöldið 19. ágúst, og hefjast
þeir kl. 20.30.
Tónleikarnir eru liður í Listas-
umri, sem staðið hefur yfír að undan-
fömu. Á efnisskrá tónleikanna eru
lög eftir Schumann, Brahms, Ma-
hler, Strauss, Mozart, Boito, Puccini
og Doniazetti.
Nær sólinni
FREYR Áskelsson og Viktor Ingimarsson komust aðeins nær sólinni
en sumir aðrir Eyfirðingar þegar hún lét sjá sig í vikunni. Þeir félag-
ar vinna hjá Rafmagnsveitu ríkisins og voru að störfum á Svalbarðs-
strönd, klifu staurana í átt til sólar og nutu útiverunnar í ríkum
mæli eftir votviðrasamt sumar.
Listasafn Akureyrar verður formlega opnað með sýningu í næstu viku
Myndverk sýnd í 3 sölum
LISTASAFN Akureyrar verður
formlega opnað í næstu viku,
en ötullega hefur verið unnið
að breytingum og endurbótum
á húsnæði þess, þar sem áður
var Mjólkursamlag KEA í Gróf-
argili. Það er fyrsti áfangi
safnsins sem nú verður opnað-
ur, en gert er ráð fyrir að það
fái til umráða aðra hæð í hús-
inu eftir að Brauðgerð KEA
flytur þaðan starfsemi sína.
„Það sem er að gerast héma
er bylting í bænum, ekki bara fyr-
ir listalífið, heldur bæjarlífið yfír-
höfuð,“ segir Haraldur Ingi Har-
aldsson, forstöðumaður Listasafns
Akureyrar.
Þrír sýningarsalir
Listasafnið skiptist í þijá sýn-
ingarsali auk þess sem þar eru
skrifstofur, afgreiðsla og fleira. Á
opnunardaginn verða í austursal
safnsins sýnd verk í eigu Akur-
eyrarbæjar, en alls á bærinn um
300 listaverk og þá verða einnig
sýnd þar verk eftir fímm aku-
reyrska listamenn, þau Kristinn
G. Jóhannsson, Helga Vilberg,
Guðmund Ármann, Dröfn Friðf-
innsdóttur og Aðalstein Svan Sigf-
ússon.
í miðsalnum verður samsýning
ungra listamanna sem rætur eiga
eða rekja til Akureyrar, en það
eru þau Kristján Steingrímur, Þor-
valdur Þorsteinsson, Kristíri Gunn-
laugsdóttir, Sigurður Ámi Sig-
urðsson og Kristinn Hrafnsson.
„Við emm stolt af þessum krökk-
um, þau hafa staðið sig vel og
verið áberandi í íslensku listalffi,"
sagði Haraldur Ingi, en þau sýna
hvert sitt verk sem ætlunin er að
gefa safninu og sagði Haraldur
Ingi að fyrir það væri hann þakk-
látur.
Verk eftir Kristján Guðmunds-
son verða sýnd í þriðja salnum í
vestanverðu húsinu og sagði for-
stöðumaður safnsins að sérlega
Morgunblaðið/Golli
Haraldur Ingi Haraldsson, for-
stöðumaður Listasafns Akur-
eyrar, sem opnað verður í næstu
viku.
ánægjulegt væri að sýna verk
hans á þessum tímamótum. Inn
af vestursalnum em þrír fyrrver-
andi kæliklefar, sem verða notaðir
fyrir litlar innsetningar, að sögn
Haraldar Inga, og mun Finnbogi
Pétursson ríða á vaðið með
hljóðskúlptúr.
Nótt við dag
í sumar hefur verið unnið að
breytingum og endurbótum á hús-
næðinu og sagði Haraldur Ingi að
sjálfsagt yrði að leggja nótt við
dag til að standast áætlun, en
opna á safnið laugardaginn 28.
ágúst næstkomandi.
Hafnarframkvæmdir standa yfir í Grímsey
Morgunblaðið/Hólmfríður
Hafnarframkvæmdir
VERIÐ er að smiða nýja trébryggju í höfninni í Grimsey.
40 metra bryggja í
smíðum í innri höfn
FRAMKVÆMDIR hafa að undanförnu staðið yfir við smiði nýrr-
ar trébryggju í innri höfninni í Grímsey og er áætlað að verkinu
verði lokið í haust.
Það er flokkur smiða frá Vör hf. á Akureyri ásamt verkstjóra á
vegum Hafnarmálastofnunar sem annast smíðina, sem gengur vel.
Trébryggjan sem er í innri höfninni í Grímsey verður 40 metra löng,
en gert er ráð fyrir á teikningum að hún verði síðar 60 metrar að
lengd. Þessi nýja bryggja bætir úr brýnni þörf, fýrir eru trébryggja
og lítil flotbryggja hér í höfninni, en plássið hvergi nærri nóg fyrir
þá báta sem hér liggja að jafnaði.