Morgunblaðið - 19.08.1993, Blaðsíða 52
-¦¦¦¦¦-'¦¦¦;¦¦¦ ' ¦ -••¦:¦¦¦¦ : :--!-" '¦'¦'--' ¦'¦ ¦¦"¦¦'¦ ':--'i;- ¦¦"-¦¦•'¦¦ ¦^¦¦¦:---;---.:.:
WSSt HEWLETT
mlrJk PACKARD
----------------------------------------------------UMBOOIÐ
HP A iSLANDI HF
Höfðabakka 9, Reykjavik, sími (91) 671000
Frá mÖguleika tíl veruleika
m$wMMh \%
MORGUNBLADID, KRINGLAN 1 103 REYKJAVÍK
StMI 691100, SlMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF /555 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85
FIMMTUDAGUR 19. AGUST 1993
VERÐ I LAUSASOLU 125 KR. MEÐ VSK.
Margir í
maraþon-
hlaupið
AÐSTANDENDUR Reykjavík-
urmaraþons gera sér vonir um
að metþátttaka verði í hlaup-
inu, sem þreytt verður á sunnu-
daginn í tíunda sinn. Sigurður
P. Sigmundsson framkvæmda-
stjóri hlaupsins segir að þátt-
takendum fjölgi stöðugt ár frá
ári og nefnir að allt bendi til
þess að met verði slegið í fjölda
útlenskra hlaupara. Skráning-
arlokum hefur verið frestað til
20. ágúst.
„Þetta hlaup hefur allaf sett
skemmtilegan svip á borgarlífið
og allan sunnudaginn verður eitt-
hvað að gerast í miðbænum, sem
tengist hlaupinu," sagði Sigurður.
„Helsta nýjungin er sú að einni
vegalengd hefur verið bætt við
og skemmtiskokkíð stytt. Nú geta
skokkarar valið á milli tveggja
vegalengda, tíu og þriggja kíló-
metra," sagði hann. „Þá verður
sett upp sérstök markklukka, sem
gerir hlaupurum jafnt sem áhorf-
endum kleift að fylgjast vel með.
Loks má nefna að stofnaður verð-
ur Klúbbur 10 en í hann komast
allir þeir hlauparar, sem tekið
hafa þátt í Reykjavíkurmaraþon-
inu frá 1983.
Morgunblaðið/Kristinn
Málað fyrir maraþon
STARFSMENN Reykjavíkurmaraþons hafa undanfarið verið önnum kafnir við að mála bláar örva-
merkingar á götur borgarinnar. Þessi mynd er tekin við tíu kilómetra markið við Tryggvagötu
en þaðan þurfa hlauparar að hlaupa um gömlu höfnina vegna gatnaframkvæmda.
Lóðaúthlutanir í
Reykjavík 1992-93
Hafa sex-
faldast á
milli ára
LÓÐAÚTHLUTANIR í Reykjavík
á milli fyrrihluta áranna 1992 og
1993 hafa sexfaldast. Þær urðu
alls 39 á tímabilinu 1. janúar til
31. júlí í fyrra en voru 268 á sama
timabili í ár. Ágúst Jónsson hjá
borgarverkfræðingi segir að árið
í fyrra hafi skorið sig úr hvað
fáar úthlutanir varðar en talan
268 er á svipuðum nótiun og næstu
fimm ár á undan.
Hér er átt við endanlegar úthlut-
anir, það er þegar búið er að draga
frá þær lóðir sem skilað var. Ágúst
bendir á að á fyrri helmingi 1992
hafi 262 lóðum verið úthlutað en síð-
an 223 af þeim skilað. í ár var 341
lóð úthlutað en aðeins 73 skilað.
Aðspurður um skýringar á því af-
hverju svo mörgum lóðum var skilað
í fyrra segir Ágúst að efnahags-
ástand ráði þar örugglega mestu um.
Skýringu á fjölguninni frá í fyrra
má að hluta til rekja til þeirrar
ákvörðunar borgaryfirvalda í fyrra-
sumar að lengja afborgunartímann
á gatnagerðargjöldum úr 6 mánuð-
um í 18 mánuði. Skiptingin á lóðun-
um nú er þannig að 49 eru undir
einbýlishús, 54 undir rað- eða parhús
og 165 undir fjölbýlishús.
Mikill verð-
munur er á
kartöflum
NÝJAR íslenskar kartðflur
kosta frá 149 krónum og upp í
224 krónur kílóið, en innfluttar
kartöflur kosta frá 58,40 og upp
í 113,20 krónur kilóið, sam-
kvæmt skyndiverðkönnun, sem
Morgunblaðið gerði á kartöflum
í sex verslunum á höfuðborgar-
svæðinu og fjórum úti á landi
sl. þriðjudag.
Uppi eru hugmyndir um að setja
tímabundið innflutningsbann á
kartöflur á næstunni, en að sögn
Ragnheiðar Árnadóttur, deildar-
stjóra í landbúnaðarráðuneytinu,
liggur nærri að búið sé að flytja
inn um 1.600 tonn frá því í maí sl.
Sjá „Verðkönnun vikunn-
ar" bls. 21.
Umræða um útgjaldahlið fjárlagafrumvarps á ríkisstjórnarfundi í dag
Tillaga um tryggingagjald
vegna sjúkrahússkostnaðar
RIKISSTJORNIN kemur saman í dag til að fjalla um útgjaldahlið
fjárlagafrumvarpsins og sparnaðartillögur ráðuneytanna en búist
er við að þær geti átt eftir að taka nokkrum breytingum í viðræðum
á milli ráðherranna á næstu dögum og vikum. Meðal stærstu til-
lagna sem heilbrigðis- og tryggingaráðherra hefur lagt fram er að
leggja á næsta ári á sérstakt sjúkratryggingagjald vegna kostnaðar
af innlögnum á sjúkrahús og verði það innheimt í tekjuskatts-
kerfinu, skv. upplýsingum Morgunblaðsins. Skattgreiðendur geta þó
óskað eftir að verða undanþegnir gjaldinu en yrðu þá að greiða
sérstakt innritunargjald vegna sjúkrahússkostnaðar ef þeir leggjast
inn á spítala, sem yrði talsvert hærra en sjúkratryggingagjaldið.
Áætlað er að þessi breyting geti skilað nálægt hálfum milljarði kr.
í sparnaði á næsta ári ef samþykkt verður, samkvæmt upplýsingum
Morgunblaðsins.
Ekki hefur verið útfært hversu
víðtækt sjúkratryggingagjaldið
yrði og hvort það næði t.d. líka
til svokallaðra innanspítala-
aðgerða.
Tekjutengt að hluta
Um yrði að ræða fast gjald á hvern
greiðanda sem atvinnurekendur
stæðu skil á ásamt öðrum launa-
tengdum gjöldum en upphæð þess
er ekki endanlega ákveðin. Er fyr-
irhugað að gjaldið yrði tekjutengt
að hluta til.
r- Umsögn samgðnguráðherra til danskra flugmálayfirvalda vegna Óðins hf.
Engar athugasemdir gerð-
ar víð niðuritöðu FlugUðs
Minnt á meðmæli með umsókn Flugleiða
i HALLDÓR Blðndal samgönguráðherra sendi í gær danska samgöngu-
ráðuneytinu bréf þar sem hann segist ekki gera athugasemd við niður-
stöðu meirihluta Flugráðs sem mælti með því í síðustu viku að flugfé-
lagið Óðinn hf. fengi áætlunarleyfi á flugleiðinni milli Reykjavíkur
og Kulusuk á Grænlandi að uppfylltum skilyrðum um eigið fé til að
fá útgefið flugrekstrarleyfi til áætlunarflugs. Jafnframt minnir ráð-
herra í bréfinu á þau meðmæli sem hann hafi áður gefið með um-
sókn Flugleiða hf. sem send var dönskum flugmálayfirvöldum vegna
þessarar flugleiðar á síðasta ári. Flugleiðir sóttu um leyfi til áætlunar-
flugs til Kulusuk í fyrra og mælti ráðuneytið þá með þvi við danska
~* samgönguráðuneytið að Flugleiðir fengju leyfið.
Fyrir nokkru óskuðu hins vegar
dönsk flugmálayfirvöld sérstaklega
eftir umsögn um flugfélagið Óðinn
hf. vegna umsóknar þess frá í jan-
úar um áætlunarleyfi á þessari
flugleið. Samgönguráðherra óskaði
þá eftir umsögn Flugráðs sem
mælti með að Óðinn fengi flugleyf-
ið. í gær var svo svar ráðuneytisins
sent danska samgönguráðuneytinu
sem tekur ákvörðun um hvaða
flugfélag fær úthlutað leyfi til
þessa áætlunarflugs.
Samgönguráðherra sagðist í
samtali við M^rgunblaðið jafn-
framt hafa lagt áherslu á að ís-
lenskt flugfélag fengi heimild til
að fljúga á þessari flugleið og hann
vonaðist til að samkomulag næðist
um loftferðasamning á milli ríkj-
anna.
Auk Flugleiða og Óðins sótti
íslandsflug um áætlunarleyfi milli
Reykjavíkur og Kulusuk.
Að mati sérfræðinga er enn
eftir talsverð vinna við að útfæra
þessa tillögu. Hugmynd byggist á
stefnuskrá ríkisstjórnarinnar en-
þar segir m.a. að leita skuli leiða
til að gefa almenningi kost á að
velja um mismikla sjálfsáhættu
vegna þátttöku í kostnaði við
læknisþjónustu gegn breytilegu
tryggingaiðgjaldi.
Niðurskurður og sparnaður
3-4 miUjarðar
Markmið ríkisstjórnarinnar og
útgjaldarammar einstakra ráð-
herra miðast við að heildarútgjöld
ríkissjóðs verði skorin niður um
3-4 milljarða króna á næsta ári
frá áætluðum útgjöldum ríkissjóðs
á þessu ári. Sé miðað við fjárlög
yfírstandandi árs nemur niður-
skurðurinn þó ekki nema um 500
milljónum króna að raungildi.
Vantar 900 miUjónir
Stefnt er að því að ná rekstrarút-
gjöldum ráðuneytanna niður um
3% frá því sem fjárlög ársins gerðu
ráð fyrir eða um 1.500 millj. kr.
Svokallaðar tilfærslur, þ.e. trygg-
ingagreiðslur, niðurgreiðslur og
ýmis framlög standa hins vegar í
stað miðað við fjárlög þessa árs.
Ráðherrar hafa þegar lagt tillögur
sínar um niðurskurð og sparnað
fram en enn vantar þó um 900
milljónir kr. upp á að settum
markmiðum verði náð í nokkrum
ráðuneytanna.