Morgunblaðið - 19.08.1993, Síða 52
m
HEWLETT
PACKARD
---------UMBOÐIÐ
HP Á ISLANDI H F
Höfdabakka 9, Reykjavík, sími (91) 671000
Frá möguleika til veruleika
MORGUNBLADIÐ, KRINGLAN I 103 REYKJA VÍK
SÍMI 691100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 1655 / AKUREYRl: HAFNARSTRÆTl 85
FIMMTUDAGUR 19. ÁGÚST 1993
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK.
Margir í
maraþon-
hlaupið
AÐSTANDENDUR Reykjavík-
urmaraþons gera sér vonir um
að metþátttaka verði í hlaup-
inu, sem þreytt verður á sunnu-
daginn i tíunda sinn. Sigurður
P. Sigmundsson framkvæmda-
stjóri hlaupsins segir að þátt-
takendum fjölgi stöðugt ár frá
ári og nefnir að allt bendi til
þess að met verði slegið í fjölda
útlenskra hlaupara. Skráning-
arlokum hefur verið frestað til
20. ágúst.
„Þetta hlaup hefur allaf sett
skemmtilegan svip á borgarlífið
og allan sunnudaginn verður eitt-
hvað að gerast í miðbænum, sem
tengist hlaupinu," sagði Sigurður.
„Helsta nýjungin er sú að einni
vegalengd hefur verið bætt við
og skemmtiskokkið stytt. Nú geta
skokkarar valið á milli tveggja
vegalengda, tíu og þriggja kíló-
metra,“ sagði hann. „Þá verður
sett upp sérstök markklukka, sem
gerir hlaupurum jafnt sem áhorf-
endum kleift að fylgjast vel með.
Loks má nefna að stofnaður verð-
ur Klúbbur 10 en í hann komast
allir þeir hlauparar, sem tekið
hafa þátt í Reykjavíkurmaraþon-
inu frá 1983.
n • i Morgunblaðið/Kristinn
Malað ryrir maraþon
STARFSMENN Reykjavíkurmaraþons hafa undanfarið verið önnum kafnir við að mála bláar örva-
merkingar á götur borgarinnar. Þessi mynd er tekin við tíu kílómetra markið við Tryggvagötu
en þaðan þurfa hlauparar að hlaupa um gömlu höfnina vegna gatnaframkvæmda.
Lóðaúthlutanir í
Reykjavík 1992-93
Hafa sex-
faldast á
milli ára
LÓÐAÚTHLUTANIR í Reykjavík
á milli fyrrihluta áranna 1992 og
1993 hafa sexfaldast. Þær urðu
alls 39 á tímabilinu 1. janúar til
31. júlí í fyrra en voru 268 á sama
timabili í ár. Ágúst Jónsson hjá
borgarverkfræðingi segir að árið
í fyrra hafi skorið sig úr hvað
fáar úthlutanir varðar en talan
268 er á svipuðum nótum og næstu
fimm ár á undan.
Hér er átt við endanlegar úthlut-
anir, það er þegar búið er að draga
frá þær lóðir sem skilað var. Ágúst
bendir á að á fyrri helmingi 1992
hafi 262 lóðum verið úthlutað en síð-
an 223 af þeim skilað. í ár var 341
lóð úthlutað en aðeins 73 skilað.
Aðspurður um skýringar á því af-
hveiju svo mörgum lóðum var skilað
í fyrra segir Ágúst að efnahags-
ástand ráði þar örugglega mestu um.
Skýringu á fjölguninni frá í fyrra
má að hluta til rekja til þeirrar
ákvörðunar borgaryfirvalda í fyrra-
sumar að lengja afborgunartímann
á gatnagerðargjöldum úr 6 mánuð-
um í 18 mánuði. Skiptingin á lóðun-
um nú er þannig að 49 eru undir
einbýlishús, 54 undir rað- eða parhús
og 165 undir fjölbýlishús.
Mikill verð-
munur er á
kartöflum
NÝJAR íslenskar kartöflur
kosta frá 149 krónum og upp í
224 krónur kílóið, en innfluttar
kartöflur kosta frá 58,40 og upp
• í 113,20 krónur kílóið, sam-
kvæmt skyndiverðkönnun, sem
Morgunblaðið gerði á kartöflum
í sex verslunum á höfuðborgar-
svæðinu og fjórum úti á landi
sl. þriðjudag.
Uppi eru hugmyndir um að setja
tímabundið innflutningsbann á
kartöflur á næstunni, en að sögn
Ragnheiðar Árnadóttur, deildar-
stjóra í landbúnaðarráðuneytinu,
liggur nærri að búið sé að flytja
inn um 1.600 tonn frá því í maí sl.
Sjá „Verðkönnun vikunn-
ar“ bls. 21.
Umræða um útgjaldahlið fjárlagafrumvarps á ríkissljórnarfundi í dag
Tillaga um tryggingagjald
vegna sjúkrahússkostnaðar
RÍKISSTJÓRNIN kemur saman í dag til að fjalla um útgjaldahlið
fjárlagafrumvarpsins og sparnaðartillögur ráðuneytanna en búist
er við að þær geti átt eftir að taka nokkrum breytingum í viðræðum
á milli ráðherranna á næstu dögum og vikum. Meðal stærstu til-
lagna sem heilbrigðis- og tryggingaráðherra hefur lagt fram er að
leggja á næsta ári á sérstakt sjúkratryggingagjald vegna kostnaðar
af innlögnum á sjúkrahús og verði það innheimt í tekjuskatts-
kerfinu, skv. upplýsingum Morgunblaðsins. Skattgreiðendur geta þó
óskað eftir að verða undanþegnir gjaldinu en yrðu þá að greiða
sérstakt innritunargjald vegna sjúkrahússkostnaðar ef þeir leggjast
inn á spítala, sem yrði talsvert hærra en sjúkratryggingagjaldið.
Áætlað er að þessi breyting geti skilað nálægt hálfum milljarði kr.
í sparnaði á næsta ári ef samþykkt verður, samkvæmt upplýsingum
Morgunblaðsins.
Ekki hefur verið útfært hversu
víðtækt sjúkratryggingagjaldið
yrði og hvort það næði t.d. líka
til svokallaðra innanspítala-
aðgerða.
Telqutengt að hluta
Um yrði að ræða fast gjald á hvern
greiðanda sem atvinnurekendur
stæðu skil á ásamt öðrum launa-
tengdum gjöldum en upphæð þess
er ekki endanlega ákveðin. Er fyr-
irhugað að gjaldið yrði tekjutengt
að hluta til.
Umsögn samgöngnráðherra til danskra flugmálayfirvalda vegna Óðins hf.
Engar athugasemdir gerð-
ar við niðurstöðu Flugráðs
Minnt á meðmæli með umsókn Flugleiða
HALLDÓR Blöndal samgönguráðherra sendi í gær danska samgöngu-
ráðuneytinu bréf þar sem hann segist ekki gera athugasemd við niður-
stöðu meirihluta Flugráðs sem mælti með því í síðustu viku að flugfé-
lagið Óðinn hf. fengi áætlunarleyfi á flugleiðinni milli Reykjavíkur
og Kulusuk á Grænlandi að uppfylltum skilyrðum um eigið fé til að
fá útgefið flugrekstrarleyfi til áætlunarflugs. Jafnframt minnir ráð-
herra í bréfinu á þau mcðmæli sem hann hafi áður gefið með um-
sókn Flugleiða hf. sem send var dönskum flugmálayfirvöldum vegna
þessarar flugleiðar á síðasta ári. Flugleiðir sóttu um leyfi til áætlunar-
flugs til Kulusuk í fyrra og mælti ráðuneytið þá með því við danska
samgönguráðuneytið að Flugleiðir fengju leyfið.
Fyrir nokkru óskuðu hins vegar
dönsk flugmálayfirvöld sérstaklega
eftir umsögn um flugfélagið Óðinn
hf. vegna umsóknar þess frá í jan-
úar um áætlunarleyfi á þessari
flugleið. Samgönguráðherra óskaði
þá eftir umsögn Flugráðs sem
mælti með að Óðinn fengi flugleyf-
ið. í gær var svo svar ráðuneytisins
sent danska samgönguráðuneytinu
sem tekur ákvörðun um hvaða
flugfélag fær úthlutað leyfi til
þessa áætlunarflugs.
Samgönguráðherra sagðist í
samtali við Morgunblaðið jafn-
framt hafa lagt áherslu á að ís-
lenskt flugfélag fengi heimild til
að fljúga á þessari flugleið og hann
vonaðist til að samkomulag næðist
um loftferðasamning á milli ríkj-
anna.
Auk Flugleiða og Óðins sótti
Islandsflug um áætlunarleyfi milli
Reykjavíkur og Kulusuk.
Að mati sérfræðinga er enn
eftir talsverð vinna við að útfæra
þessa tillögu. Hugmynd byggist á
stefnuskrá ríkisstjómarinnar en-
þar segir m.a. að leita skuli leiða
til að gefa almenningi kost á að
velja um mismikla sjálfsáhættu
vegna þátttöku í kostnaði við
læknisþjónustu gegn breytilegu
tryggingaiðgjaldi.
Niðurskurður og sparnaður
3-4 milljarðar
Markmið ríkisstjórnarinnar og
útgjaldarammar einstakra ráð-
herra miðast við að heildarútgjöld
ríkissjóðs verði skorin niður um
3-4 milljarða króna á næsta ári
frá áætluðum útgjöldum ríkissjóðs
á þessu ári. Sé miðað við fjárlög
yfírstandandi árs nemur niður-
skurðurinn þó ekki nema um 500
milljónum króna að raungildi.
Vantar 900 milljónir
Stefnt er að því að ná rekstrarút-
gjöldum ráðuneytanna niður um
3% frá því sem fjárlög ársins gerðu
ráð fyrir eða um 1.500 millj. kr.
Svokallaðar tilfærslur, þ.e. trygg-
ingagreiðslur, niðurgreiðslur og
ýmis framlög standa hins vegar í
stað miðað við fjárlög þessa árs.
Ráðherrar hafa þegar lagt tillögur
sínar um niðurskurð og sparnað
fram en enn vantar þó um 900
milljónir kr. upp á að settum
markmiðum verði náð í nokkrum
ráðuneytanna.